Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1999, Síða 16
hvar eru þeir núf
f Ó k U S 5. mars 1999
Þá hófust
erfiðir tímar
„Ég var í byggingarvinnu og
vann þá viö aö byggja nýja tónlist-
arskólann i Hafnarfirði þar sem ég
bjó þá. Félagi minn sagði mér svo
þær hræðilegu fréttir að Kurt
Cobain væri dáinn og á eftir komu
erfiðir tímar. Við syrgðum hann
mikið, félagarnir. Um kvöldið héld-
um við eins konar erfidrykkju til
minningar um hann og hlustuðum
á Nirvana. Við vorum með stórt
Heiðar Örn Kristjánsson, söngvari
hljómsveitarinnar Botnleöju.
„Þetta jaðrar við
gruggrokkið og
sumir vilja segja
að þetta sé
svolítið indí.“
forum ekki
r buxunum!
Hljómsveitin Carpet spilar á
síðdegistónleikum Hins hússins í
dag kl. 17. Þetta er rokksveit frá
Mosfellsbæ með fimm strákum á
aldrinum 20 til 25 ára og hafa þeir
spilaö saman sl. fjögur ár, fyrst
sem Belle, þá sem Orange Carpet
og loks bara sem Carpet. En hefói
ekki verið einfaldara að kalla
bandið bara Teppi?
„Nei, það hljómar ekki nógu vel
fyrir Kanann," segir Egill gítar-
leikari. Hann er á línunni en hin-
------ ir strákarnir
gjamma fyrir aftan. „Þetta er
rokk, melódískt rokk,“ segja þeir
lesendum til hægðarauka. „Þetta
jaðrar við gruggrokkið og sumir
vilja segja að þetta sé svolítiö
indí.“
Carpet stefnir auðvitað á heims-
frægð og hitar upp fyrir Dead Sea
Apple á stórtónleikum á Akureyri
um þarnæstu helgi. Þangað er von
á erlendum bransaköllum og
Carpet ætlar að ota sínum tota þó
karlarnir hafi eflaust mestan
áhuga á Dauðahafseplinu. „Fram-
haldið kemur í ljós eftir Akur-
eyri,“ segja strákarnir, bjartsýnir.
„Auðvitað langar okkur til að
meika það í útlöndum, enda lítið
upp úr því að hafa að meikaða
hér.“
Geriói hvaö sem er fyrir þessa
bransakarla?
„Við drögum mörkin við það að
fara úr buxunum," segja þeir en
eru samt í vafa: „Þetta er ekki
spurning um að verða frægir held-
ur að geta lifað af músíkinni,"
segja þeir svo, alvarlega. „Við
erum að vinna hingað og þangað,
í prentsmiðju, bólstrun, ÁTVR og
allir hættir í skóla. Það er einn
kominn með stúdentspróf og það
dugar alveg fyrir bandiö."
Þeir yrðu samt að fara úr bux-
unum til að njóta hinnar endan-
legu hamingju með hljómsveitinni
Carpet - „það væri blódjobb hjá
Pamelu Anderson!" - en há-
punkturinn hingað til er svo sem
ekkert slor - „Það var þegar við
spiluðum á landsmóti Sniglanna
‘95, 6 og 7“, segja þeir að endingu
og stinga aftur i samband inni í
skúr.
uð meiri leyndardómi.
„Sigurður var bara með á einu
balli,“ segir Jón, „við áttum ekki
samleið, skulum við segja, og
Bringuhárin voru mest bara fjórir.
Sigurður þótti sleipur gítarleikari
og kunni að spila „Sultans of
Swing“ sem þótti mælikvarði á
færni gítarleikara í þá daga. Hann
kom víða við síðan, var m.a. í
Sniglabandinu og maður hefur séð
hann afgreiða í flestum hljóðfæra-
búðum bæjarins." Samkvæmt
rannsóknum Fókuss starfar Sig-
urður nú hjá Landssímanum.
„Hannes og Hafþór fóru báðir í
flugbransann," heldur Jón áfram.
„Ég veit ekki nákvæmlega við hvað
Hannes starfar en hann vinnur hjá
Flugleiðum í London og var lengi í
námi í Bandaríkjunum. Hafþór er
lærður flugmaður og er núna
stöðvarstjóri hjá Atlanta. Ég held
það sé tilviljun að þeir enduðu báð-
ir í fluggeiranum en þeir voru báð-
ir ansi sleipir hljóðfæraleikarar.
Við höfum ennþá smásamband.
Ekki mikið, samt.“
Hljómsveit víkunnar á barmi heimsfrægðarinnar
er indígruggbandið Carpet frá Mosó.
sveitina Fjórir piltar af Grundar-
stíg. Við Stefán vorum reyndar
bara tveir í henni fyrst. Á seinni
árum okkar í skólanum breyttist
þessi hljómsveit í hljómsveitina
Bringuhárin sem var stofnuð til að
spila kóvermúsík og til að ná sér í
einhvern pening með skólanum.
Nafnið stóð í mörgum því þeir
héldu að þetta væri einhver pönk-
hljómsveit. Prógrammiö var mjög
breitt, allur andskotinn, t.d.
„Abacadabra" en Stuðmannalög
urðu fljótt uppistaðan hjá okkur.
Þetta var á þeim tíma er Stuðmenn
báru ægishjálm yfir aðrar dans-
hljómsveitir og tóku flestöll skóla-
böll. Brimkló var heit líka á þess-
um tíma og gott ef Start var ekki
líka. Það eru engin
sérstök böll eftir-
minnileg enda spil-
uðum við ekki mjög
mikið en þetta var
skemmtilegt. Jú,
fyrsta ballið var eft-
irminnilegt því við
fengum svo lítið
borgað. Ég held það hafi verið 1500
kall á mann eða eitthvað. Ég held
við höfum ekki verið mjög góðir
miðað við jafnaldra okkar í dag.
Eitt lag með Bringuhárunum kom
upp síðar, lagið „Móðurást" með
Possibillies og náði nokkrum vin-
sældum. Það varð til í djammi á
einhverri æfingu. Við æfðum uppi
í Laxnesi - við hliðina á fjósinu
minnir mig - og keyptum okkar
eigið söngkerfi og svona. Samt tók-
um við okkur aldrei alvarlega og
ég hafði ekki trú á því að ég yrði
tónlistamaður fyrr en fimm, sex
árum síðar. Þangað til var þetta
bara kæruleysi og ég ætlaði að
verða fjölmiðlamaður. Einu, tveim
árum eftir að þessi fréttatilkynning
birtist fóru menn svo sinn í hvora
áttina."
Hvar eru þeir nú?
Jón og Stefán eru enn á kafi í
tónlistinni. Þeir hafa fylgst að í
gegnum hvert bandið af öðru og
spilað saman i leiksýningum. Ör-
lög annarra Bringuhára eru hjúp-
Bringuhárin ‘82: Hafþór,
Jón, Stefán, Hannes og
Siguröur. Hér eru þeir aö
æfa puttalagiö fræga.
plakat af honum uppi á vegg og
drekktum sorgum okkar i áfengi.
Nirvana var uppáhaldshljómsveitin
okkar og viö tókum þetta mjög
nærri okkur. Þetta var rétt áður en
Framh
Botnleðja varð til. Hún varð til
svona hálfu ári scinna, eða um
haustið 1994. Kurt Cobain hafði
mikil áhrif á okkur og er einn
mesti áhrifavaldur minn í tónlist.
Ég varð fyrir miklum vonbrigðum
með að hann skyldi hafa framið
sjálfsmorð. Það hefði verið flottara
ef þetta hefði veriö svona „Lennon-
dauði“, ef einhver heföi skotið
hann annar en hann sjálfur. En
hann var jú kexruglaður eins og
margir aðrir snillingar sem lenda í
dópi og rugli.“
Líkiö af Kurt Cobaln, söngvara rokkhljómsveit-
arinnar Nirvana, fannst áttunda maí 1994 í
Seattle. Læknir komst aö þeirri niöurstöðu að
hann heföi framiö sjálfsmorö 4. mai og úr-
skurðaði hann látinn klukkan hálfellefu aö
staðartíma. Cobain átti aödáendur um allan
heim sem tóku dauöa hans afar illa. Einhverj-
ir uröu svo leiðir aö þeir ákváðu að fylgja hon-
um héöan og frömdu líka sjálfsmorö. Enn aðr-
ir hafa haldið því fram aö hann hafi verið myrt-
ur. Cobain var kvæntur söngkonunni Courtney
Love og áttu þau eina dóttur sem heitir
Frances Bean og er skírð I höfuðið á meðlimi
skosku hljómsveitarinnar Vaselines sem Kurt
dáði mikið. Hann var eiturlyfjaneytandi og var
27 ára þegar hann dó.
Hver man ekki eftir hljómsveit-
inni Bringuhárunum? Hún ruddist
inn á íslenska poppmarkaðinn með
fréttatilkynningu í DV 7. desember
1982. Þá var sveitin nýstofnuð og
sérhæfði sig í léttri danstónlist og
þá helst hinu svokallaða „fram-
haldsskólarokki". Bringuhárin
voru fimm, Jón Ólafsson, söngur
og ferðahljómborð, Stefán Hjör-
leifsson, söngur og gítar, Hafþór
Hafsteinsson, trommur, Hannes
Hilmarsson, bassi og Sigurður
Kristinsson, strengjatól og söngur.
Ferill Bringuháranna
„Við vorum saman í Verzlunar-
skólanum, ég, Stefán og Hannes,"
segir Jón sem verður fyrir svörum,
„og við stofnuðum skólahljóm-
vai
8. maí 1994, kl. 5.3®?
..
áL