Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1999, Qupperneq 20
TiLBQÐ
Ti iLB( IÐ ! 39,-
4ni»- 7ð,-
TiLBOP 39,
ou,
Sharos
A 11 a r t e g u n d i r
TiLBOP 35,-
isx 5ú,-
mm
I , I
' [ I
TiLBOP 45,
5ú,-
4
s*C'j ■
v.. „ f
«t « a «11
TÍLBÖP 189,
3IW"*
\ bónusvideq
L.etgan I þínu tivarH
01-----------------
L VI í-ftir jy ■
‘-^Finnur Arnar, sá geðþekki myndlistarmað-
ur, hefur lokið við tvö verk og ætlar að sýna
þau i versluninni 12 tónum að Grettisgötu 64.
Sýningin verður opnuð kl. 16 í dag. Finnur er
hófsamur í list sinni þótt oft glitti í henni í póli-
tíska meiningu og annað sem ekki þykir of
fínt. Annars er Rnnur kunnastur fyrir leikmynd-
ir sínar enda hefur engin leiksýning klikkað
sem hefur tjaldað leikmynd frá honum.
Birgir Örn Thoroddsen (alias Curver eða bara
Bibbi) opnar eins konar sýningu að heimili sínu
að Fjarðarási 26 í Árbæjarhverfi kl. 16. Sýning-
in er í raun gjörningur sem standa mun fram til
27. mars næstkomandi og felst í því að Bibbi
ætlar loks að taka til í herberginu sínu og gefa
sér þennan tíma til þess. Hann vonast til að
fjölmiðlar muni skrá þetta afrek sitt og hefur
vilyröi fyrir að bæði Tvihöfði og Kolkrabbi muni
hafa eftírlit með tiltektinni. En hvað um það, kl.
16 í dag getur fólk séð herbergið hans Bibba
eins og það hefur verið allt of lengi og næstu
vikur kíkt inn og séð hvernig honum vegnar að
koma þvi I skikkanlegt horf.
Sesselja Björnsdóttir opnar einkasýningu í Gall-
eríi Horninu, Hafnarstræti 15, kl. 16. Á sýning-
unni eru olíumálverk og ber hún yfirskriftina
Ókannað rými. Þetta er fimmta einkasýning
Sesselju en hún hefur auk þess tekið þátt i fjöl-
mörgum samsýningum. Sýningin verður opin
alla daga kl. 11-24 - sérinngangur þó aðeins
kl. 14-18 - og stendur til 24. mars._____
Helgi Þorgils Friöjóns-
& son er fyrstur listamanna
til að opna sýningu í því
3f sem kallast Listavor ís-
V *t| landsbanka í Vestmanna-
^ . ■ eyjum. Þetta er röð sýn-
■É, íva M inga sem haldnar verða í
■fy } , gamla áhaldahúsinu á
£ 'rwjS horni Vesturvegar og
mk ■ Græðisbrautar og munu
SIssú, Tumi Magnússon og Kristján Stein-
grímur, Gabríela Friðriksdótir og fleiri koma i
kjölfar Helga. En Helgi kemur kl. 14 í dag með
vorið til Evia.__________________________
Þóra B. Jónsdóttlr opnar sýningu í Fjaröar-
nesti, Bæjarhrauni 4, Hafnarfirði, kl. 15. Efn-
ið í myndirnar sínar sækir Þóra í vestfirsk fjöll
og björg - meðal annars sjálft Látrabjarg.
•fundir
Werner Bauwens, einn yfirmanna alþjóða-
deildar NATO i Brussel, heldur erindi á sameig-
inlegum fundi Samtaka um vestræna sam-
vlnnu og Varöbergs í Skálanum á Hótel Sögu
kl. 12. Efni lestursins er NATO og þær breyt-
ingar sem samtökin hafa gengið í gegnum á
hálfrar aldar sögu sinni.
©sport
Handbolti, 1. deild kvenna kl. 16.30: ÍR-Val-
ur, Austurbergi, Fram-Stjarnan, Framhúsi,
Grótta/KR-KA, Seltjarnarnesi, ÍBV-Haukar,
Vestmannaeyjum og Víkingur-FH, Víkinni.
Kórfubolti, 1. deild kvenna kl. 17.00:
KR-Keflavík, Hagaskóla, og Njarðvík-Grinda-
vík, Njarðvík.
íslandsmeistaramót í 5 og 5 samkvæmis-
dönsum í íþróttahúsinu við Strandgötu I Hafn-
arfirði kl. 14. Forsala aðgöngumiða hefst kl.
12.30. Keppt verður í grunnsporum í öllum
aldursflokkum um daginn en um kvöldið verö-
ur úrtökumót fyrir Evrópu- og heimsmeistara-
mót og einnig verður sérstök kántríkeppni. Ef
áhorfendur fer að kitla í fæturna fá þeir að
bregða sér í dansæfingar í hléum.
gjörningur
Birgir Örn Thoroddsen
(einnig þekktur sem Bibbi Cur-
ver) opnar sýninguna „Herberg-
ið“ að heimili sínu Fjarðarási 26
á morgun kl. 16. Sýningin stendur
til 27. mars en þá verður haldið
upp á lokunina með freyðivíni. Á
þessum þrem vikum ætlar Birgir
að taka til í herberginu og endur-
gera það. Sýningin er opin al-
menningi alla virka daga á milli
kl. 13 og 16 og á milli kl. 12 og 18
um helgar. Þar gefst gestum kost-
ur á að sjá Birgi við tiltektina og
fylgjast með þróun mála.
„Gestir mega ekki hjálpa til,“
segir Birgir ákveðinn. „Sýningin
er viss niðurstaða á mínum verk-
um síðustu mánuðina, en í þeim
var ég að skrásetja eigið líf og úr
þeirri skráningu urðu til verk.
Nú ætla ég að sleppa sjálfu lista-
verkinu en fá fjölmiðla í staðinn
til að skrásetja það fyrir mig.
Verkið er í raun ósýnilegt og að-
alinntak þess er tiltektin.“
Kolkrabbinn og Tvihöfði munu
fylgjast grannt með þróun verks-
ins og Birgir vonast til að sem
flestir aðrir fjöJmiðlar fjalli um
það. Birgir er á öðru ári í fjöltækni
í MHÍ og býr í húsi foreldra sinna
í Árbænum. Mamma hans heitir
Bryndís Hannah. Skyldi hún ekki
vera fegin að strákurinn ætlar
loksins að taka til?
„Jú, þó fyrr hefði verið.
Draslið er búið að vera eins og
svartur blettur á heimilinu og
hefur farið í taugarnar á
manni. En ég væri orðin brjál-
uð ef ég væri ekki löngu hætt
að æsa mig yfir þessu. Kannski
er ég svona gamaldags, en mér
finnst algjör óþarfi að láta al-
þjóð fylgjast með hvers slags
trassi hann er.“
Hvaö finnst þér annars um list-
sköpun sonarins?
„Ég er stolt yfir því sem fjöllista-
maðurinn minn gerir og finnst
gaman að því, þó svo þetta sé nú
eitthvað skrýtið listaverk. Bróðir
hans sagði að þetta væri í anda við
strauma núna, eða eitthvert svona
bla bla, en mér finnst þetta ekki
vera listaverk. Ég hélt bara að
hann væri orðinn bilaður þegar
hann fór að tala um þetta, en ég er
svo sem orðin öllu vön og maður
lærir að láta þetta ekki fara I taug-
arnar á sér.“
Sunnudaguí
7. mars
•klúbbar
•^AIIir plötusnúðar vikunnar (dj. Joe, dj. Pét-
ur, dj. Habit, dj. Kári, dj. Margeir og dj. Herb
Legowitz) mæta á Vegamót í kvöld og bera
saman plötur sínar. Mulinex tónlistar-hristing-
ur: blue note, latin groove, funk fusion, funky
disko og Guö má vita hvað ekki.
• kr ár
Fyrir mörgum árum uppgötvaði poppkóngurinn
Magnús KJartansson unga snót að nafni Rut
Reglnalds og gerði snemmhendis að barna-
stjörnu. Nú eru þau mætt á Kaffi Reykjavík -
Rut að nálgast miðjan aldur og Magnús - tja,
hvað skai segja - að nálgast ellilífeyrisaldur-
inn. En saman eru þau indæl og kunna þessi
ógrynni af lögum sem öllum þykir alltaf svo
dæmalaust gaman að heyra.
Vlýkomnir vestan af landi koma hr. Eyjólfur
Kristjánsson og hr. Stefán Hilmarsson fram á
Gauki á Stöng. í tilefni af tiu ára og einnar
viku afmæli löglegs bjórs á islandi munu þeir
taka Nínu. Eyfi mun setja upp hárklútinn ef
gengið verður á eftir honum. Kl. 22 verða
síðan úrslit í bjórþambskeppninni sem staðið
hefur þessa afmælisviku. Steinar Waage
krýnir þann sem
Eins og öll önn-
ur sunnudags-
kvöld mæta
Bítlarnlr með
söng og spaug
á Glaumbar.
Kringlukráin. Guðmundur Símonarson og
Guðlaugur Sigurðsson dempa menn niður fýr-
ir átök komandi viku.
Þotuliðið er á Naustkránni.
Glen Valentine situr enn við píanóið á Café
Romance og grætur horfnar ástir.
Ken hinn írski rekur raunir helgarinnar með
söng og spili á Café Amsterdam.
Na Fír Bolg skemmtir gestum Dubliner's.
Timburmannamót á Grand Rokk. Hver er
þynnstur?
Það eru allir stjörnur í Karaoke-inu í Ölveri.
Ljóðaflutningur á Ara í Ögri.
& d j a s s
Svartfuglarnir spila af fingrum fram á Jóm-
frúnni við Lækjargötu kl. 16.
• k 1 a s s í k
Séra Gunnar Björnsson hefur verið afleysinga-
prestur á Selfossi skamma hríð en samt hef-
ur honum tekist að stofna Tríó Suðurlands.
Hann hefur fengið til liðs við sig Agnesi Löve
píanóleikara og Ásdísi Stross fiðluleikara.
Sjálfur spilar séra Gunnar á selló sem alþjóð
veit. Þetta kappsama fólk heldur tðnleika í
Þorlákshafnarkirkju kl. 16 í dag og mun þar
leika Trió nr. 25 i g-dúr eftir Haydn og Trio op.
1 nr. 3 i c-moll eftir Beethoven.___________
Örn Magnússon píanóleikari heldur tónleika í
Hafnarkirkju á Höfn i Hornafirði og hefjast þeir
kl. 20.30. Örn leikur Rimnadansa eftir Jón
mest drekkur og best.
myndlist
Eyjólfur Einars-
son opnar sýn-
ingu í dag,
föstudag, á ný-
legu steinþrykki
á Mokka.
Þrjár einkasýningar verða opnaðar í Nýlistasafn-
inu kl. 16 á laugardag. Rósa Gísladóttir sýnir
kyrralífsmyndir í forsalnum og gryfjunni. Þetta
eru þrivíðar uppstillingar úr gifsi. Ragnheiður
Ragnarsdóttir kallar innsetningu sína í Bjarta- og
svartasal Sjónmál og reynir þar að fjalla um af-
mörkun og opnun og smiða sér leið til að tengj-
ast umhverfinu - eða svo segir hún sjálf. ívar
Brynjólfsson verður síðan með Ijósmyndir í Súm-
salnum. Sýninguna kallar hann Væntingar og
segir að verkin séu heimildir um raunveruleikann
eins og hann birtist á ofurvenjulegum stööum.
í Gerðubergi verður opnuð samsýning kl. 16 á
laugardag á verkum sex
myndlistarmanna á aldr-
inu 76 til 92 ára. Þarna
er samankomið landslið
Islands í næfisma; Þórð-
ur G. Valdlmarsson (ali-
as Kikó Korriró), Sigurö-
ur Einarsson, Svava
Skúladóttir, HJörtur Guð-
mundsson og systurnar
Guðrún og Sigurlaug Jónasdætur.
Flnnur Arnar hefur lokið við tvö verk og ætlar
að sýna þau í versluninni 12 tónum á Grettis-
götu 64. Sýningin verður opnuð kl. 16 á laugar-
dag.
opnanir
Blrgir Örn Thoroddsen (alias Curver eöa bara
Bibbi) opnar eins konar sýningu að heimili sínu
að Fjarðarási 26 í Árbæjarhverfi kl. 16 á laug-
ardag. Sýningin er í raun gjörningur sem standa
mun fram til 27. mars næstkomandi og felst í
því að Bibbi ætlar loks að taka til i herberginu
sínu og gefa sér þennan tima til þess.
Sesselja Björnsdóttlr opnar einkasýningu i
Galleríl Horninu, Hafnarstræti 15, kl. 16 á laug-
ardag. Á sýningunni eru oliumálverk og ber hún
yfirskriftina Ókannað rými. Sýningin verður opin
alia daga kl. 11-24 - sérinngangur þó aðeins
kl. 14-18 - og stendur til 24. mars.
Helgl Þorgils Friðjónsson er fyrstur listamanna
til að opna sýningu i þvi sem kallast Listavor ís-
landsbanka i Vestmannaeyjum. Þetta er röð
sýninga sem haldnar veröa í gamla áhaldahús-
inu á horni Vesturvegar og Græðisbrautar og
munu Sissú, Tumi Magnússon og Kristján
Steingrímur, Gabríela Friðriksdóttir og fleiri
koma i kjölfar Heiga. En Helgi kemur kl. 14 á
laugardaginn með vorið til Eyja.
Þóra B. Jónsdóttir opnar sýningu í Fjarðar-
nesti, Bæjarhrauni 4, Hafnarfirði, kl. 15 á laug-
ardaginn. Efnið í myndirnar sínar sækir Þóra í
vestfirsk fjöll og björg - meðal annars sjálft
Látrabjarg.
síöustu forvöö
Stöðlakot, Bókhlöðustíg 6. Gunilla Möller sýnir
þar olíumálverk og teikningar. Sýningunni lýkur á
sunnudaginn en er opin kl. 14-18 þangað til.
aörar sýningar
Þrjár sýningar eru í Llstasafni íslands. I sal 1 er
sýning á verkum fjögurra frumherja í ísienskri
málaralist, Þórarlns B. Þorlákssonar, Ásgríms
Jónssonar, Jóhannesar
Kjarvals og Jóns Stef-
ánssonar. I sal 2
hafa listfræðingar
safnsins valið sam-
an verk þeirra málara
sem innleiddu hug-
myndir móderismans í
íslenska myndlist. Söku-
dólgarnir eru Gunnlaugur Scheving, Jóhann
Briem, Jón Engilberts, Snorri Arinbjarnar, Nína
Tryggvadóttir og Þorvaldur Skúlason. I sal 3 er
sýning á gvassmyndum þýska myndlistar-
mannsins Sigmars Polkes og kallast sýningin
Tónlist af óræðum uppruna. Polke var fyrir 10
árum eða svo stórt númer í myndlistarheimn-
um og lifir enn á þeirri frægð. Neðanmálsgrein
í sögunni segja sumir - einn af risum seinni
tíma listar, segja aðrir. Kannið máliö.
Magnús Kjartansson sýnir málverk sin I Gall-
eríi Sævars Karls.
Gallerí Ingólfsstræti 8. ívar Valgarðsson greip
til þess ráðs að mála með Crayola-vaxlitum
beint á veggi gallerisins og sótti innblástur í
nöfnin á litunum. Þetta er því sýning sem hæf-
ir vel musteri minimalismans og konseptsins.
Galleriið er opið fimmtudaga til sunnudaga milli
kl. 14 og 18.
Listasafn ASÍ, Freyjugötu 41. Þrjár sýningar eru
í safninu. í Ásmundarsal og á svölum sýnir
Brynhildur Þorgeirsdóttlr skúlptúra sína. i gryfj-
unni sýnir Stelnunn Helgadóttir málverk. Og í
Arinstofu eru ný aðföng Listasafnsins. Opið er
á milli kl. 14 og 18 alla daga nema mánudaga.
Sýningarnar standa til 7. mars.
Kjarvalsstaðlr, Flókagötu. Sýningin „Af trönum
meistarans* með verkum frá síðari æviárum
Kjarvals. Meðal annarra verka er málverkið
„Sjón er sögu rikari" sem danska rikið var svo
hugulsamt að lána til íslands. Sýningin stendur
tii 24. maí.
Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn. Minningarsýn-
ing um Svölu Þórisdóttur Salman myndlistar-
mann.
Hafnarborg, Strandgötu 34, Hafnarfirði.
Sænska textíllistakonan Gun Johansson er
með sýningu á verkum sínum. Sigurlaugur Elí-
asson er með sýningu í Sverrissal Hafnarborg-
ar á tréristum. Opið er milli kl. 12 og 18 alla
daga, utan þriðjudaga - en þá er lokað.
Ómar Stefánsson sýnir málverk í Gallerí Fold
við Rauðarárstíg kl. 15 á morgun. Verkin gefa
innsýn inn í veröld Ómars, kynjaheim að hætti
Hleronymusar Bosch.
Hallgrímskirkja. Málverk eftir Kristján Davíös-
son eru uppi á veggjum í anddyri kirkjunnar
kirkjugestum til yndisauka.
Llsthús Ófeigs, Skólavörðustíg 5, Reykjavík.
Slgurður Magnússon myndlistarmaður með
einkasýningu. Sýningin er opin á verslunartíma
á virkum dögum en milli kl. 11 og 14 á laugar-
dögum.
Kringlan. Sýning á málverkum Hrafnhlldar
Bernharðsdóttur i sýningarrými Gallerís Foidar
og Kringlunnar á annarri hæð, gegnt Hagkaupi.
Ágústa Sigurðardóttlr sýnirí Skotinu, sýningar-
aðstöðu aldraðra i Hæðargarði 31. Ágústa hef-
ur sótt myndlistarnámskeið fýrir aldraða og ger-
ir enn. Auk málverka sýnir frú Ágústa kort og
slæður.
Gallerí, Skólavörðustíg 8. Ásgeir Lárusson.
Opið alla daga kl. 13-18.
f Ó k U S 5. nnars 1999