Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.1999, Síða 22
f
Lifiri eftir vmnu |
I í f ó k u s
Það er öllum hollt að fá æðiskast
annað slagið. Það léttir lundina og
gerir lífið skemmtilegra. Þó skal
passa að meiða engan i kastinu
(bara niðast á dauðum hlutum) og
helst ekki segja neitt sem særir.
Langbest er að æpa og góla sam-
hengislausar setningar og þá helst
úti fyrir borgarmörkunum, en
þangað er stutt að fara. f auðninni
er jafnvel hægt að svipta sig klæð-
um til að auka áhrifamátt æðisins
og hlaupa um á dinglumdanglinu.
Eftir gott æðiskast blasir lfflð við á
ný. Ef læknar myndu rannsaka
æðisköst kæmi eflaust út að það
iengdi lifið og væri gott fyrir hjart-
að. Fáum því kast um helgina.
ú r f ó k u s
Eru ekki allir orðnir leiðir á
Móniku Lewinsky? Hvað gerði
þessi jússa annað en japla á sprota
valdamesta manns heims? Ókei,
það er kannski meira en
ég hef gert.
Nú er komin
út bókin um
Móniku eftir
þann sama
* og gerði bók-
ina um Díönu
og því læðist
að manni sá
grunur að nú
eigi að gera Móniku aö nýjum dýr-
lingi. Hún er þó eiginlega likari
Hitler, sem útrýmdi ættarnafninu
Hitler og skeggmottunni. Hvaða
heilvita maður myndi skira dóttur
sína Móníku og hvaða kona með
fullu viti klæðir sig í stíl við
Lewinsky og greiðir sér eins? Og
það sem meira er: hún hefur komið
skrifstofukynlífl endanlega út af
kortinu.
Góða skemmtun!
tileikhús
✓Þrír einþáttungar eftir Bertolt Brecht verða
leiknir í Skemmtihúsinu, Laufásvegi 22, kl.
20. Baksvið þeirra allra er þúsund ára riki Ad-
oifs Hitlers og Hjalti Rögnvaldsson, óþekki
stórleikarinn, ber þá alla uppi. Erllngur Gísla-
son leikstýrir. Miðapantanir í sima 530 3030.
Dirty Dancing verzlunarskólanema er i ís-
lensku óperunni kl. 20 í kvöld. Sími 551
1475.
•opnanir
Arkitektafélagið opnar sýningu á verkum fé-
laga sinna í Tjarnarsal I Ráðhúsinu.
•fundir
Magnús Harðarson frá Ekonomika hagfræði-
ráðgjöf flytur erindi sem nefnist: Framleiðslu-
jöfnun og árstíðasveiflur á málstofu viðskipta-
og hagfræðideildar. Málstofan fer fram á kaffl-
stofu á 3. hæð í Odda og hefst kl.16.15.
Stjörnustríð - barátta milii góðs og ills er yf-
irskrift hugvekju sem Dwight Nelson flytur ein-
hvers staðar í Ameriku en verður varpað á skjá
í Loftsalnum, Safnaðarheimili Aðventista,
Hólshrauni 3, Hafnarfirði. Hver er uppruni hins
illa? spyr Dwight og hvernig getur kærleiksrík-
ur Guð umborið ranglætið I heiminum.
isport
Sex leikir í 1. deild karla í handbolta og hefj-
ast þeir allir kl. 20: Stjarnan-FH, Fram-ÍBV,
Grótta/KR-Selfoss, Haukar-KA, Valur-HK og
Afturelding-ÍR.
Fimmtudágúf
11. mars
popp
t/íslensku tónllstar-
verðlaunin verða afhent
á Grand hótel í kvöld við
eins pent borðhald og
hægt er að treysta popp-
urum til. Hver var hljóm-
sveit ársins 1998? En
söngkona, lagahöfundur
að ekki sé talað um blás-
ari? Blóminn af Islenska poppaðlinum mætir,
sumir stlga á stokk til að taka lagið og aðrir til
að taka við verðlaunum (í einhverjum tilfellum
þeir sömu). Mikið fagnað og svolítið fussað
yfir hver fékk hvaða verðlaun, piskur og slúður
á hverju borði,
kalt strið á
milli skalla-
poppara og
ungviöisins -
allt eins og
það á að vera.
Fyrsta kvöld Músíktilrauna 1999 verður í
Tónabæ I kvöld. Ballið byrjar kl. 20. Ungar,
óreyndar, óþekktar og misgóðar sveitir munu
kynna sjálfa sig og þiggja stig af dómnefnd
skipaðri margfróðum poppspekúlöntum. Stór-
sveitin Unun setur virðulegan blæ á kvöldið og
leiðir nýliðunum í Ijós hversu langt þeir geta
náð meö elju og atorku. Þetta er tækifærið til
að sjá stjörnur framtíðarinnar áður en nokkur
veit að þær eru stjörnur.
Saktmóðígur heldur tónleika á Spotlight í
kvöld kl. 22. Og kannski verða þarna einhver
bönd eða eins og piltarnir í Saktmóðlgi segja:
„Það er verið að vinna í því að fá einhverja
djöfla." Kvöld fyrir þá sem þola hvorki tónlist-
arverðlaunin né músíktilraunirnar en vilja
samt rokk og ról.
tklúbbar
✓Á uppastaðnum Rex munu plötusnúðarnir
dj. Árni, dj. Margeir og dj. Alfred More heyja
Borðapantanir á Grand hótel.
Mermirnir henner
Nínu á fullu
Eyjólfur Kristjánsson og Stef-
án Hilmarsson voru ómótstæði-
legir þegar þeir sungu lagið Nína
í Júróvisjón hér um árið. Þeim
sjálfum fannst líka svo gaman að
syngja saman að þeir héldu áfram
að koma fram eftir keppnina og
gera það enn svona endrum og
sinnum. í kvöld verða þeir á góu-
gleði í Grundarfirði og allt bendir
til þess að þeir muni koma oftar
og oftar fram á næstu misserum.
„Við erum báðir miklir aðdá-
endur Pauls Simons og dagskrá-
in okkar byggist að miklu leyti á
lögum Simons og Garfunkels.
Venjulega erum við bara tveir en
1 lok mars ætlum við að gera
þetta almennilega svona einu
sinni. Þá verðum við með stóra
tónleika í Iðnó sem byggjast á
þessari dagskrá okkar og tólf eða
fjórtán manna hljómsveit leggur
okkur lið,“ segir Eyjólfur.
Takiö þió ekki örugglega alltaf
Nínu-lagiö líka?
„Við spilum ekki einu sinni tíu
mínútna djobb án þess að taka Nínu.“
Og setur Eyjólfur upp klútinn
þegar hann kemst í stuð?
„Hann myndi örugglega gera
það ef hann yrði beðinn um það.
Ætli hann sé ekki með hann í
rassvasanum," segir Stebbi.
„Nei,“ segir Eyjólfur. „Ég er
löngu búinn að týna honum.“
Eruöi soldiö góöir saman?
„Nja. Það er nú ekki fyrir okk-
ur að dæma það. En okkur finnst
þetta ofboðslega gaman og ætlum
að halda áfram, verðum til dæm-
is á Akureyri 19. mars og svo ætl-
um við að syngja með nýju batter-
íi sem er að fara um allt land út
af alþingiskosningum. Batteríið
heitir Kosningaskjálfti 99 og við
verðum söngvarar í hljómsveit
sem heitir Kjörseðlarnir," segir
Eyjólfur.
Eruö þiö þá á mála hjá ein-
hverju framboðinu?
„Nei, alls ekki. Við erum ekki
að þessu fyrir neinn einn flokk.
Tilgangurinn er bara að gera and-
rúmsloftið í kringum kosningarn-
ar léttara." -ILK
baráttu við saxófón Óskars Guðjónssonar.
Þessa glímu skratz og blásturs kalla þeir fé-
lagar Improve Groove - að sjálfsögðu - og
hefst leikurinn kl. 22.
Ikrár
Hljómsveitin Slxties stefnir að því að vera
búin að jafna sig eftir síðustu helgi í kvöld -
fimmtudag - og ætlar að hita fólk upp fyrir
átök komandi helgar á Kaffi Reykjavík.
Glen Valentlne situr enn við píanóið á Café
Romance og grætur horfnar ástir.
Gunnar Páll æfir sig á píanóið á Grand hótel.
•leikhús
✓Lelkfélag Reykjavikur frumsýnir leikritið
Fegurðardrottningin frá Línakri eftir Martin
McDonagh á litla sviði Borgarleikhússins kl.
20.30. Þetta er kolsvört kómedía og að sjálf-
sögðu með harmrænum undirtóni. Mag og
Maureen eru mæðgur sem búa I litlu þorpi á
irlandi. Samskipti þeirra einkennast af mikilli
grimmd og mæðgurnar skiptast á að níðast
hvor á annarri. Leikritið var frumsýnt á írlandi
1996 og fékk ágætar viðtökur gagnrýnenda og
áhorfenda. Síðan hefur það vlða verið sett
upp. Uppsetning Walter Kerr-leikhússins á
þessu verki fékk til dæmis fern Tony-verðlaun
á síðasta ári. Martin McDonagh er risandi
stjarna í leikhúsheiminum og eins og aðrar
slíkar reynir hann að gera sem minnst úr þeim
sem hampa honum. Hann segist ekki sækja
mikið í leikhúsið, fyrirmyndir hans séu bíókall-
arnir Quentin Tarantino og Martin Scorsese.
Það er metsöluleikstjórinn María Sigurðar-
dóttir (Sex í sveit, Pétur Pan) sem leikstýrir en
Margrét Helga Jóhannsdóttir og Sigrún Edda
Björnsdóttir leika mæðgurnar. Ellert A. Ingi-
mundarson og Jóhann G. Jóhannsson leika
einnig. Síminn í Borgarieikhúsinu er 568
8000.
Maður á mislitum sokkum eftir Arnmund
Backman er á Smíðaverkstæði Þjóöleikhúss-
ins kl. 20.30. Þessi farsi gengur og gengur og
þvi er uppselt i kvöld. Enn eitt gangstykkið
með „gömlu leikurunum". Að þessu sinni
Þóra Friðrlksdéttir, Bessi Bjarnason og Guð-
rún þ. Stephensen. Sími 551 1200 fyrir þá
sem vilja panta miða á sýningu einhvern tím-
ann í framtíðinni.
Þrír einþáttungar eftir
Bertolt Brecht verða
leiknir i Skemmtihúsinu,
Laufásvegi 22, kl. 20.
Baksvið þeirra allra er
þúsund ára ríki Adolfs
Hitiers og Hjalti Rögn-
valdsson, óþekki stór-
leikarinn, ber þá alla
uppi. Erlingur Gíslason
leikstýrir. Miðapantanir í síma 530 3030.
Hellisbúinn er i íslensku óperunni. Uppselt er
á sýninguna kl. 20. Siminn er 551 1475.
Leikfélag Fjölbrautaskólans á Suðurnesjum
frumsýnir Hamlngjuránið, leik- og söngleik Sví-
ans Bents Alfons, í kvöld kl. 20 i Félagsbíói í
Keflavík. Þetta er sama stykkið og Þjóðleik-
húsið sýndi við nokkrar vinsældir 1996. Leik-
stjðri er María Reindal.
•fundir
Þór Whitehead, prðfessor í sagnfræði, flytur
erindi sem nefnist: Atvinnustefna Framsókn-
arflokks og Alþýðuflokks á milli stríða á mál-
stofu hagfræðiskorar og sagnfræðiskorar.
Málstofan fer fram í stofu 422 í Árnagaröi, 4.
hæð, og hefst kl. 16.15.
Ingibjörg Harðardóttir dósent fjallar um: Áhrif
ómega-3 fitusýra í fæði á viðbrögð við sýking-
um á málstofu læknadeildar. Málstofan fer
fram í sal Krabbameinsfélags (slands, Skðg-
arhlíð 8, efstu hæð, og hefst kl. 16.00. Kaffi-
veitingar.
Fundur á vegum Verkfræðingafélags Islands,
umhverfis- og byggingarverkfræðiskorar HÍ og
nemendafélags skorarinnar um Gildi siðfræði
og fagurfræði í námi og starfi verkfræðings-
ins i fundarsal VFÍ að Engjateigi 9. Fundurinn
hefst kl. 16.15. Frummælendur eru Pétur
Stefánsson, form. VFÍ, Páll Skúlason, rektor
HÍ, Jóhann Már Maríusson, aðstoðarforstj.
Landsvirkjunar, Anna Runólfsdóttir verkfræði-
nemi. Fundarstjóri Ragnar Sigbjörnsson pró-
fessor. Frjálsar umræður verða í lok fundarins.
fsport
Knattspyrna, deildabik-
ar karla: Fylkir-Vík-
ingur, R„ Leiknisvelli
kl. 18.30, ÍA-Fjöln-
ir, Leiknisvelli kl.
20.30.
Körfubolti, úrvals-
deild karla: Sex leikir kl.
20: Skallagrímur-ÍA, Borgar-
nesi, Þór, A.-Tindastóll, Akureyri, KR-Valur,
Hagaskóla, KFÍ-Grindavík, Isafirði, Njarð-
vík-Haukar, Njarðvík og Snæfell-Keflavík,
Stykkishólmi.
hverjir voru hvar
80’s kvöldið á Kaffl Thomsen síðasta laugar-
dagskvöld var vist alveg ðtrúlegt. Staðurinn
pakkaður og allir í góðu stuði. Til dæmis Hrafn-
hildur í Spútnik, sem vann forláta hárstraujárn
í verðlaun fyrir besta búninginn, Heiða í Kron,
Palli í Maus, Eiður Snorri,
Guðjón í OZ, Eyþór og
Móa, Árni Vigfúss Hellis-
búaframleiðandi, Gaui
Bergmann, Dj Flex, Dj
Rampage, Sharky spreyj-
ari og Quarashi drengirnir
Steini. Sölvi og Hössi.
Arna frá Kaffibarnum lét sig ekki vanta og ekki
heldur Jói B tölvuséní, Jóna Animal og Sasa X-
tra. Þarna voru líka Fríða make-up pía, Frans úr
Ensími, Sóley skutla, Bjössi Steinbeck, Geirl
Paranoia, Jón Gnarr og síðast en ekki síst
Bjarni Gríms, Yngvi, Tobbl og Mummi sem
mynduðu grúppuna Effect sem stofnuð var í til-
efni kvöldsins og hirti í sameiningu verðlaunin
fyrir besta karlbúninginn (notað fótanuddtæki).
Þá var FM957 Miami kvöldið á Astró ekki síður
vel lukkað. Þar var að sjálfsögðu allt liöið af
FM957, Maggi Magg, Hvatl, Hulda, Rúnar Ró-
berts, Svall og Samúel Bjarki, svo og Fíns Mið-
ils fólkið, Bruce útvarpsstjóri og Laugi xK.K.
Karls. Ólafur Þórsacafé kóngur var mættur eftir
stripp-keppnina ásamt Andrési Pétri og þarna
voru líka Bjössi Nike/Uss, Sigurjón Ragnar, Jó-
hann Ingi og Magnús Arnar, stórskytta og
„hunk“ úr Fram. Svavar Örn og hans félagar
voru á sínum stað og Jana, sem lenti í einu af
toppsætunum í Ungfrú Island í fýrra, var glæsi-
leg með sínum heittelskaða, sem reyndar
keppti um titilinn Herra ísland (fagurt sett).
Svava Amigos var í góðum Miami filing með
staffinu af Amigos og Tal-mafían mætti með
norsku stórlaxana frá Motorola. Maja „Blind
date” úr Hausverk um helgar fékk verðskuld-
aða athygli fyrir efnislítinn kjól og Valll sport,
Jón Kári Miami farastjóri og Dórl Ijósmyndari og
aðstoðar Miami fara-
stjóri voru sjóðheitir á
spjallinu um tilvonandi
Miami ferð. Ingvar
Helgasonjr. hreppti Mi-
ami ferð fyrir tvo og svo
sást líka í Gumma
Braga vaxtarræktar-
tröll og fullt fullt af létt-
klæddu liði.
Kvöldið eftir hélt gleðin
áfram á Stróinu. Stelpurnar i OASIS mættu
snemma í privatið og áttu það sameiginlegt að
efnið hafði verið sparað allverulega þegar kjói-
arnir voru hannaðir og fýrir vikið fengu þær
ómælda athygli. Karlafélagið Á kantinum byrj-
aði í hádegismat á Loftleiðum, fór svo á Glaum-
bar og leit á boltann og svo á djammið. I þess-
um 20 manna hópi eru m.a. Gunnleifur KR, Ás-
geir Elíasson þjálfari,
Steini Glaumbar og Bald-
ur Hard Rock. Kolbrún og
Elín frá lcelandic models
skönnuðu svæðið í leit að
fyrirsætum og þarna var
lika hann Dommi X-net og
eitt flottasta par bæjarins,
Debby og Bragi frá Betr-
unarhúsinu. Jón Gnarr,
sem er talinn einn fyndn-
asti maður landsins, sötraði kaffi á meðan
Sveinn Waage, sem vann keppnina fýndnasti
maður landsins, var í einföldum i gosi. Ingi sól-
baðsstofueigandi sem er alltaf brúnn var á
svæðinu og líka Maggi Rikk, Sveinn Eyland
xMirabelle, og Pizza 67 gengið Georg, Gauji,
Elnar, Árni og Gísll, en það er talið að þrjú ár
séu síðan þessir flatbökufélagar sáust síðast
úti á lifinu saman. Að lokum skulu upptaldir
Astrógestirnir Jóhannes B. Skúla, stjóri Dag-
skrárblaðsins, Addi Fudgeprins og Linda GK
kona og fýrirsæta.
Grand Rokk er nú á nýjum stað, flottari en lík-
lega aðeins verri. Um síðustu helgi sáust þar
Davíð Þór Jónsson, ritstjóri Bleiks og blás og
fýrrum spyrill Gettu betur, óvinur hans Hjálmar
Blöndal, blaðamaður og fýrrum formaður Nem-
endafélags MH, Guðrún Kristjánsdóttir, fyrrver-
andi ritstjóri Mannlífs, og Jakob Bjarnar hinn
geðþekki útvarpsmaður og góövinur Radíus-
bræðra.
Á Sóloni var þetta venjulega
stjórnmálastóð eins og Björg-
vin Guðmundsson, Heimdell-
ingur og brennivínssali, Þor-
steinn Davíðsson Oddssonar
J og Kristján Eldjárn, tónlistar-
maður með meiru ásamt
kærustunnl.
Vegamót var f sínu venjulega
ástandi. Á föstudagskvöldinu
voru meðal annars þar þau
Steinunn Ólína leikkona, Ingvi
Steinar Kaffibrennslumaður,
Stjáni á Humarhúsinu, Þor-
steinn fóstbróðir, Stefán Þjónn í
súpunni og Linda leikkona.
Kvöldiö eftir mættu Egill Ólafs, Eiður & Einar
Snorrar, Halldóra Gelrharðs leikkona, Elma
|meira át[
www.visir.is
Lísa fýrirsæta, Ari Matt, Ottó Tynes, Steini
Bachmann, Eggert Þorleifs og Ari Magg Ijós-
myndari.
Svo var rosapartý á Skugganum þar sem sást
til dæmis í Pálma og Jón Gunnar ásamt öllum
hinum frá Mónó og Bylgjunni. Hanz töffararnir
mættu líka en yfirgáfu svæðið snemma. Flott-
ustu gæjarnir með Hausverk um helgar voru all-
ir mættir og voru fljótir að
losna við verkinn. Allied
bauð upp á svalandi
drykki og fylgdust Friðjón
og Konni vel með að allir
fengju nóg. Leifur Gríms
mætti líka til að fýlgjast
með að Carlsberginn læki
vel niður og þarna sást
Ifka í Andra og Gunnlaug
KR-inga, Hlín Hawaian Tropic-gellu og Önnu
Skuggadrottningu.
Það voru líka allir í svaka stuði kvöldið eftir,
alla vega þeir Ingvar Ólafs Þróttari, Friðrik
Stefáns, Elríkur Önundar, Hermann Hauks
og Hjörtur Harðar körfubolltagæjar. Þá lét
Kata Lýsistvenna sig ekki vanta, né hvað þá
heldur Andri f Heimsferðum og Ragna Lóa
sem voru hress, Lovísa Playboy gella og Jóna
Líf, íslandsmeistari í erótískum dönsum.
V.
f Ó k U S 5. mars 1999