Dagblaðið Vísir - DV - 12.05.1999, Síða 14
so SPORTBÍLAR
MIÐVIKUDAGUR 12. MAÍ 1999
Það besta og það flottasta!:
aka eftir teinum. Fyrsti gírinn er
hár, þannig að það þarf að gefa þvi
vel inn þegar tekið er af stað en
Það þarf aðeins eitt augnatillit
og þú ert fallinn í stafi. Fal-
legar, ávalar línurnar og útlit
sem segir bara eitt, ánægja. Aftast i
hugarfylgsnunum bærir minning
um goðsögn á sér, það besta, það
flottasta, hjólið sem allir reyna að
vinna í SBK-ofurhjólakeppninni.
ítölsk hönnunin skín líka í gegn,
straumlínulagaðar línur, svo maður
tali nú ekki um rauða litinn. Því
segja menn stundum að Ducati sé
Ferrari mótorhjólanna.
Þegar þú kemur aðeins nær ferðu
að taka eftir smáatriðum í hönnun
og tækni hjólsins sem setja síðan
punktinn yfir i-ið. Það eru sko vöðv-
ar undir skinninu á þessu hjóli. Vél-
in er 996 rúmsentímetra, 90" V2,
með tveimur yfirliggjandi knastás-
um og fjórum ventlum á hvem
strokk. Ventlastýringin er einka-
leyfisvernduð hönnun Ducati,
svokölluð „Desmodromic" sem fær
afl sitt frá vélinni eftir tenntum
reimum. Þetta hjól er 112 hestöfl við
9000 snúninga og þjöppunina 11:1.
Við nánari skoðun vélar koma ætt-
areinkenni keppnishjólsins fram.
Háþrýst olíukerfi, fjöldiska, vökva-
stýrð þurrkúpling og sex gira hert-
ur gírkassi. Eitt af sérkennum hjóls-
ins er grindin en hún er úr sér-
stakri málmblöndu er kallast „ALS
450“ og byggist á þríhyrningsform-
um sem gerir grindina eina þá
sterkustu og jafnfram stöðugustu
sem til er í dag. Hægt er að stilla af-
stöðu framgaffals úr 23" i 24° og
gafflamir sjálfir koma frá Showa og
eru 43 mm með 120 mm hreyfigetu.
Kraftmikil hjól þurfa góðar brems-
ur og þessar eru af bestu sort, 320
mm Brembo bremsudælur með fjór-
um stimplum hver. Hjólhafið er að-
eins 1410 mm og þyngdin 200 kíló.
Útlit Ducati 996 ber það með sér til
hvers það er ætlað.
aflið kemst strax til skila. Fyrsti gír-
inn er það hár að hægt er að nota
hann í kröppustu beygjunum. Við
8000 snúninga streymir aflið svo
fram eins og beljandi stórfljót en
snúningshraðamælirinn gefur upp
allt að 13.000 snúninga. Samt er ekk-
ert „rautt strik" á honum sem gefur
til Kynna að það sé óhætt að botna
það eins mikið og hægt er. Stýrið er
mjög gott og jafnvel í holóttri beygju
eru lítil átök við það, þökk sé
massífum stýrisdemparanum. Það
er fátt sem hægt er að bæta á þessu
hjóli nema ef vera skyldu dekkin.
Hjólið kemur með Michelin Hi-
Sport II en þyrfti helst Hi-Sport III
eða Pirelli Dragon Corsa dekk. Hér-
lendis er það svo sem ekkert atriði
en ef þetta hjól fengi einhvem tíma
braut við sitt hæfi liði því betur á
góðum dekkjum.
Þetta hjól er það fyrsta sinnar teg-
undar hér á landi.
-NG
mmmrn www
tlitstareytingar og
/ængir fáanlegir á
margar geröir bíla.
Úrval aukahluta á bíla,
gæði og gott verð
Támstundahúsið
Nethyl Z
sími 5B7 BBBB
Ens og arabískur
gæðingur *
IMCEPT
Bón- og
bílahreinsivörur sK?
ISLAKK HF.
sérverslun með bónvörur
Fyrstu kynni
DV prófaði þetta hjól um daginn
og sú upplifun var alveg einstök,
svipuð og að setja Cessnuflugmann
upp í F15 þotu. Þú færð það strax á
tilfinninguna að þetta er kappakst-
urshjól eins og þau gerast best. Stíf
fjöðrunin og grindin gera hjólið svo
rásfast að það er eins og það sé að
m
Bíllinn til vinstri er ekki IMESRADÍÖ
með CLIFFORD þjófavörn!
Síðumúla 19 Slmi 581 1118 -Fax 581 1854
Þér líður eins og þú keyrir á teinum í beygjum.