Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1999, Síða 4
4
FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1999
Fréttir
Lögregla tók skýrslu vegna kennslubókar í hnefaleikum:
Eins og í bananalýðveldi
- segir Þorsteinn Gíslason málarameistari og spyr um frelsi til að lesa
„Þaö komu tveir lögreglumenn
inn i búð til mín um miðjan dag
og tóku skýrslu af mér vegna
kennslubókar i hnefaleikum sem
legið hefur héma á borðinu og ég
hef selt eða gefið. Þótt bannað sé
að stunda hnefaleika hér á landi
veit ég ekki til þess að það sé
bannað að lesa sér til um þá. Ég
hélt að hér gilti lesfrelsi. En ég er
hins vegar meðhöndlaður eins og
einhver krimmi innan um við-
skiptavinina. Ég botna ekkert í
þessu. Þetta er eins og í hverju
öðm bananedýðveldi," sagði Þor-
steinn Gíslason, málarameistari
og eigandi verslunarinnar Mál-
arameistarans í Síðumúla, við
DV.
Gamall hnefaleikakappi
Þorsteinn er gamall hnefaleika-
kappi, oft nefndur Steini box.
Hann kenndi hnefaleika um ára-
bil áður en þeir vom bannaðir.
Fyrir um 40 árum gaf hann út
bókina Kennslubók í hefaleikum
þar sem kennd em ýmis undir-
stöðuatriði hnefaleika. Hefur
hann haft bókina frammi í búð-
inni hjá sér, gefið hana eða selt
eftir atvikum. Þegar áhugi á
hnefaleikum fór að aukast á ný
síðustu ár var Þorsteinn beðinn
um að endurútgefa bókina, sem
hann gerði.
Þorsteinn Gíslason málarameistari með eintak af bókinni Kennslubók f
hnefaleikum sem hann gaf fyrst út fyrir 40 órum. DV-mynd E.ÓI.
„Svona bækur em til um allan
heim og ég skil ekki hvað er ólög-
legt við að lesa sér til rnn box. En
bækurnar á borðinu hjá mér hafa
farið fyrir hjartað á einhverjum
og lögreglan fengið kvörtun. Hins
vegar efast ég um að þeir aðhafist
neitt frekar í málinu."
Kenndi hnefaleika
Þorsteinn kenndi hnefaleika í
um 15 ár áður en þeir voru bann-
aðir. Hann segist hafa kennt um
150 manns vetur eftir vetur.
Kennslan hafi komið á móti mál-
aravinnunni sem var í lágmarki á
vetuma. „Ég var ekki að gera ann-
að en það sama og hefur verið gert
í framhaldsskólum og sums staðar
í barnaskólum um allan heim.“
Þorsteinn vill undirstrika að
hnefaleikar þeir sem hann kenndi
séu eins og hnefaleikar á Ólympiu-
leikunum. „Þetta ameríska box í
sjónvarpinu er ekki heiðarlegt og
þar eru menn að gera hluti sem
ekki eru leyfðir i boxi eins og ég
þekki best, t.d. að slá vankaðan
mann. Atvinnumennskan í boxi er
frekar ljót.“
Þorsteinn, sem er 85 ára, segist
ekki æfa hnefaleika lengur en slær
stundum í sekk og bolta að gamni
sínu. „Ég orðinn of þungur til að
sippa.“
-hfh
Áhrlf Schengen-samkomulagsins á íslenska farþega:
Hraðari afgreiðsla ferðamanna
- tolleftirlit veröur þó óbreytt
„Aðild okkar að Schengen-sam-
starfinu þýðir að öll afgreiðsla
ferðamanna sem koma frá
Schengen-landi til annars
Schengen-lands verður til muna
hraðari. Persónueftirlit verður
ekki til staðar og nægir að sýna
fullgild skilríki með mynd eins og
ökuskírteini eða bankakort.
Menn geta þannig skilið vegabréf-
ið eftir heima ef þeir ætla ein-
göngu að ferðast Schengen-landa.
Ég legg hins vegar áherslu á að
tolleftirlit verður með sama hætti
og fyrr enda er Schengen ekki
tollabandalag," sagði Einar Gunn-
arsson hjá utanríkisráðuneytinu
við DV.
Utanríkisráðherrar íslands og
Noregs og aðstoðarutanríkisráð-
herra Þýskalands undirrituðu í
Brussel á mánudag samning ís-
lands, Noregs og ráðs Evrópusam-
bandsins um þátttöku íslands og
Noregs í framkvæmd, beitingu og
þróun Schengen-gerða. Með
samningnum er tryggð áfram-
haldandi þátttaka íslands og Nor-
egs í Schengen-samstarfinu.
Sameiginleg framkvæmd
Schengen-reglna er fyrirhuguð í
október árið 2000. Þá munu ís-
lenskir ferðamenn sem ferðast til
Norðurlandanna og Evrópusam-
bandslanda, utan Bretlands og ír-
lands, ekki sæta persónueftirliti.
Schengen-farþegar munu fara á
sérstök svæði í flughöfnum og fá
mim fljótari afgreiðslu en efla.
Vegabréfaeftirlit á Norðurlöndun-
um verðin' með sama hætti og nú
er.
Á Norðurlöndunum er hins
vegar ekkert sérstakt svæði fyrir
Norðurlandabúa sem verða að
standa í röð ásamt fólki utan
Norðurlanda. Eftir að Schengen
kemur til sögunnar verða hins
vegar sérstök svæði fyrir Norður-
landabúa og Schengen-farþega.
Farþegar á leið til Bretlands og
írlands, sem koma frá landi utan
Evrópusambandsins, verða áfram
að láta sér lynda að standa í röð
eftir vegabréfaskoðun.
-hlh
—
Svo falla krosstré sem önnur tré
Með skuggalegri mönnum
Páll Pétursson félagsmálaráð-
herra er með mestu húmoristum
á þingi og hefur það ekkert breyst
þótt Páll hafi þurft
að gangast undir
erfiðar skurðað-
gerðir á undan-
förnu. Öruggar
heimildir herma
að þegar Páfl lá á
sjúkrahúsinu i
fyrradag þá hafi
hann farið með
eftirfarandi visu
þegar útlitið barst í tal:
Heldur mun hann þiggja þokka
fárra
þegar talið berst að dygðum
sönnum.
Útlitið er innrætinu skárra
Er hann þó með skuggalegri
mönnum.
Kári kominn heim
Það hefur um nokkurt skeið
verið áhyggjuefni fjárfesta í hinu
öfluga fyrirtæki deCode genetic,
móðurfyrirtæki ís-
lenskrar erfða-
greiningar, að
helsta andlit fyrir-
tækisins og að-
aldrifljöður, Kári
Stefánsson,
dragi sig í hlé
þegar fyrirtækið
fer á almennan
hlutabréfamarkað
erlendis. Hafa fjárfestar óttast að
brotthvarf Kára myndi rýra hlut
þeirra sjálfra í fyrirtækinu en nú
hafa þeir sömu fengið nokkra
hugarró. Kári hefur nefhilega
loksins flutt lögheimili sitt í þjóð-
skrá og býr nú í Víðhlíð 6 í
Reykjavík. Athygli vekur að í
sömu götu býr Þorgeir Örlygs-
son, formaður Tölvunefndar, en
þeir Kári hafa oft tekist hart á...
Stjórnarmyndunin
Haft er fyrir satt að einstakir
þingmenn innan Framsóknar-
flokksins beri nokkum kvíðboga
fyrir væntanlegri
stjórn með Sjálf-
stæðisflokknum
komandi ár. Váleg
tíðindi um þenslu-
merki í efnahags-
lífmu þykja gefa
fyrirheit um nið-
urskurð í rikis-
fjármálum og þá
sér í lagi einum út-
gjaldamesta liö þeirra, velferðar-
málum. Hafa sumir þingmenn
viðrað þá skoðun að flokkurinn
verði fyrir alla muni að forðast
heilbrigðis- og tryggingaráðuneyt-
ið þegar viðræöur hefjast um
ráðuneytaskiptingu þar sem ann-
ars sé hætt við því að niðurskurð-
arskellurinn komi harkalega nið-
ur á flokknum í næstu kosning-
um...
Kaupfélag Þingeyinga er fallít.
Bara rétt si sona upp úr þurru.
Þeir segja reyndar að þetta sé
engum að kenna og ekkert við
þessu að segja og bændur sitja
glúpnir og blankir og svo er mað-
ur að sunnan fenginn til að kasta
rekunum og allt bú, eins og böm-
in segja.
Kaupfélag Þingeyinga er elsta
kaupfélag landsins. Stolt sam-
vinnuhreyfmgarinnar og bænda-
stéttarinnar og Þingeyingar hafa
staðið þéttan vörð um þetta helga
vé og þeir vora meira að segja
orðnir svo lýðræðislegir og frjáls-
lyndir, Þingeyingarnir, að það var
komin kona í formannsstólinn.
Ekki það að skellurinn sé
henni að kenna þótt hún hafi sof-
ið á verðinum, eins og hún sjálf
viðurkennir. Þótt maður sé kos-
inn formaður í kaupfélagi og ráði
sérstakan kaupfélagsstjóra til að
annast reksturinn er ekki hægt
að ætlast til að þetta fólk fylgist
með öllu sem er að gerast. Þetta er heldur ekki
stjórninni að kenna né heldur kaupfélagsstjóran-
um og afls ekki bankanum að kenna heldur er
þetta því um að kenna að kaupfélagið var rekið
með útgáfu markaðsvíxla sem þýðir á mannamáli
að það var gert út á veltuna. Og veltan var með
ágætum, takk fyrir.
Það er misskilningur að halda að menn hafi
vitað þetta fyrir kosningar en haldið því leyndu.
Gjaldþrot koma ekki hægt og sígandi. Þau koma
eins og hvirfilbylur og náttúrahamfarir sem ekki
gera boð á undan sér. Það hafði sem sagt enginn
hugmynd um að ástandið væri svona slæmt og
bændur lögðu inn peninga sína og afurðir eins og
ekkert væri og kaupfélagið tók við
þeim eins og ekkert væri og allir
biðu rólegir eins og öll þessi
hundrað ár sem kaupfélagið hefur
lifað og þeir á því.
Þetta var allt i stakasta lagi
þangað til kaupfélagsstjórinn gekk
á fund Landsbankamanna og
sagði þeim tíðindin. Það vantaði
nokkur hundruö milljónir upp á
að veltan stæði undir rekstrinum.
Ekki það að þeir ætli að láta
kaupfélagið fara á hausinn. Sei,
sei og nei, nei. Lögfræðingur frá
Ólís var fenginn norður til að lita
á eignimar og skuldirnar og velt-
una og vixlana og bingó: bændur
og búalið réttu upp hendumar í
samhljóða atkvæðagreiðslu um að
bjarga því sem bjargað yrði, enda
var þetta engum að kenna, nema
þá markaðsvíxlunum sem vora
þeirri ónáttúra gæddir að falla á
gjalddaga. Það var ekki stjómin
og ekki kaupfélagsstjórinn og ekki
reksturinn og ekki skuldimar sem
fóru með Kaupfélag Þingeyinga á hausinn. Það
vora bannsettir víxlamir, sem vora þó ekkert
nema venjulegir markaðsvíxlar sem stóðu undir
veltunni sem var með ágætum þangað til víxlarn-
ir féllu. Það kom þeim Þingeyingum í opna
skjöldu.
Dagfari
Björn í ham
Björn Bjamason vandar ræki-
lega um við Emu Kaaber, rit-
stjóra Stúdentablaðsins, í nýjasta
pistli heimasíðu
sinnar www.centr-
um.is/bb,e n eins
og menn muna þá
setti Erna
menntamálaráð-
herra á forsíðu
blaðsins í
hundslíki. I sið-
asta tölublaði
málgagns stúdenta varði Erna
„hundsforsíðuna" og vísaði meðal
annars til þess að í ritstjóratíð
Styrmir Gunnarssonar, nú
Moggaritstjóra, fyrir 40 árum
hefði verið birt mynd af Gylfa Þ.
Gíslasyni, þáverandi mennta-
málaráðherra, í ekki síður óvirðu-
legum dýrabúningi. í netpistli sín-
um bendir Björn hins vegar á um-
rætt blað Styrmis hafi aldrei farið
í dreifingu þar sem þáverandi
ábyrgðarmenn blaðsins hafi gert
blaðið upptækt og ekki sé vitaö til
þess að þeir hafi hælt sér af uppá-
tækinu síðan...
Umsjón Kjartan B. Björgvinsson
Netfang: sandkorn @ff. is