Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1999, Blaðsíða 11
FIMMTUDAGUR 20. MAI 1999
11
Fréttir
Strætóslysið í Grafarvogi:
Bílstjórinn heimsótti
drenginn á spítala
Aðstoðarmann í eldhús vantar.
Skálatúnsheimilið í Mosfellsbæ vantar aðstoðarmann í eldhús.
Aðstoðarmaðurinn þarf að geta eldað í forföllum matráðsmanns.
Daglegur vinnutími er frá kl. 9 til 14 hvern virkan dag,
auk þess annan hvern helgan dag.
Launakjör eru samkvæmt samningum S.F.R. og ríkisins.
Upplýsingar í síma 530 6606 á vinnutíma.
„Þegar ég heimsótti hann á spít-
alann var hann að leika sér i tölvu
og leið bara ágætlega. Hann var
marinn á hægri fæti og læknirinn
sagði mér aö það væri ekki mögu-
leiki að drengurinn hefði lent und-
ir vagninum. Hér hafa orðið ein-
hver mistök í fréttaflutningi,“
sagði strætisvagnabílstjórinn á
leið 15 sem sagt var frá í fréttum
að hefði ekið yfír 9 ára dreng sem
var að reyna að ná vagni hans í
Grafarvogi i síðustu viku. Fréttum
fylgdi að drengurinn væri mjaðma-
grindarbrotinn.
.„Þetta er ekki rétt og lögreglan
hefur tjáð mér að það verði engin
eftirmál vegna þessa atburðar,"
sagði bUstjórinn sem hefur verið
miður sín frá því að slysið varð.
Það að drengurinn sé marinn á
hægri fæti bendir tU að hann hafí
dottið á gangstéttina þegar hann
var að hlaupa eftir vagninum. BU-
stjórinn sem hér á hlut að máli hef-
ur ekið strætisvagni í Reykjavík í
40 ár og aldrei lent í óhappi. Hann
hafði ráðgert starfslok hjá SVR 14.
júlí næstkomandi og við það ætlar
hann að standa: „Ég ætla að keyra
þá tvo mánuði sem eftir eru,“ sagði
bUstjórinn.
-EIR
Inga Rún Pálmadóttir fyrrverandi Grýla að störfum á stofu sinn.
DV-mynd Hilmar Þór
Bílasala
Bílakaup
Innfluttningur
VILTU SPARA 250.000?
Malarhöfða 2
Sími: 577 3344
GSM: 896 4411
Ford Ka, árg. ‘98,
Þessi kostar 950. þús. stgr.
eða t.d. ekkert út og 21.500 kr. á mán.
ekinn 7 þús. km, dökkgrænn metallic, 1300-vél með beinni
innspýtingu, vökvastýri, 2 loftpúðar, álfelgur, samlitir stuðarar,
útvarp/kassetta.
Nýr bíll með þessum búnaði kostar um 1200 þús.
Ath. fleiri góö tilboö á heimasíðu okkar. draumabillinn.is
Visa og Euro raðgreiöslur
Grýla tattóverar
á Króknum
„Það er alls konar fólk sem fær
sér tattú. Ég veit um eina konu,
hjúkrunarfræðing á miðjum aldri,
sem er aö fara að fá sér sjötta tattú-
ið sitt, þannig að þetta er ekki bund-
ið neinum sérstökum aldri,“ segir
Inga Rún Pálmadóttir sem rekur
tattústofuna Atlantis á efri hæð
gamals timburhúss á Sauðárkróki.
Inga Rún varð á árum áður þjóð-
þekkt sem gítarleikari í Grýlunum
en hefur nú snúið sér að húðflúr-
inu.
Á slíkum stöðum býst fólk e.t.v.
frekar við þvi að sjá kraftalega,
skeggjaða og síðhærða karlmenn að
störfum en skeggleysið hefur ekki
háð Ingu Rún.
Stofuna hefur hún starfrækt slð-
an í júlí í fyrra og segir viðskiptin
hafa verið blómleg, fólk komi viðs
vegar af Norðurlandi og jafnvel alla
leið úr Reykjavik til að láta tattó-
vera á sér kroppinn. Hún segist
fmna fyrir auknum áhuga fólks á að
fá sér tattú þegar fer að sumra og
þessa dagana er hún að vinna fram
á nætur til að sinna eftirspuminni.
Það er ekki bara unga fólkið sem
vill láta skreyta líkama sína.
Hefur ekki
liðið skort
í kvennamálum
Stökktu til
Benidorm
9. júní
í 1 eða 2 vikur
29.955,-
Heimsferðir bjóða nú þetta ótrúlega tilboð
til Benidorm þann 9. júní, þessa vinsælasta
áfangastaðar Islendinga. Þú bókar núna og tryggir þér sæti
í ferðina 9. júní og fjórum dögum fyrir brottför hringjum við
í þig og tilkynnum þér á hvaða gististað þú gistir í fríinu.
A Benidorm er sumarið byrjað og hér nýtur þú frísins við
frábærar aðstæður og um leið getur þú valið um spennandi
kynnisferðir með fararstjórum Heimsferða.
Verð kr. 29.955." Verð kr. 39.955.-
M.v. hjón með 2 böm, 2-11 ára, vikuferð 9. júní, skattar innifaldir.D M.v. hjón með 2 böm í íbúð, 2 vikur 9. júní, skattar innifaldir.
Verð kr. 39.990.- Verð kr. 49.990.-
M.v. 2 t' herbergi/íbúð.vikuferð 9. júní, skattar innifaldir. M.v. 2 í studio/íbúð, 2 vikur, 9. júní, skattar innifaldir.
í J /~fR \
HEIMSFERÐIR
Austurstræti 17, 2 hæ> • sími 562 4600 • www.heimsferdir.is