Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1999, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1999, Blaðsíða 21
20 FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1999 Sport ENGLAND Alex Ferguson, fram- kvæmdastjóri Manchest- er United, hefur haft í nógu að snúast undan- fama daga og fram undan eru engin rólegheit. Sl. sunnudag landaði Fergu- son meistaratitlinum í fimmta skipti sem stjóri United. í fyrradag lá leiö hans á lögreglustöðina í Manchester þar sem hann hirti upp fyrirliða liös- ins, Roy Keane. Nýjasta vandamáliö hjá Ferguson eru meiðsli Hollend- ingsins Jaap Stam og valda þau Ferguson miklum heUabrotum. Litlar sem engar líkur eru taldar á því að Jaap Stam geti leikið með United gegn Newcastie í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar á laugardag. Hann er slæmur í fæti og staulast um á annarri löppinni. Nær öruggt er talið að David May taki stöðu HoUendingsins í vörn United líkt og hann gerði í leik United gegn Tottenham um síðustu helgi. Og meira en Iiklegt er að May leiki aUa þrjá úrslitaleiki United und- ir lok vertiðarinnar. May var i vöm United gegn Totten- ham og hann mun leika gegn Newcastie um næstu helgi og Bayem Munchen í úrslitaleik Evrópukeppni meistaraliða fjórum dögum siöar. Ef- laust hefur May ekki dreymt um að leika þessa leiki og þess má geta að ef hann verður í liði United gegn Newcastie í bikamum og Bayem í Evrópukeppninni verða það einu leikir hans með United í þessum tveimur keppnum. Chris Sutton er á forum frá Black- bum Rovers ef marka má fréttir í enskum fjölmiðlum. Tottenham hefur lýst yftr miklum áhuga á leikmannin- um sem hefur verið mjög ósáttur hjá Blackbum og vill fyrir alla muni fara frá félaginu. Talið er vist að George Graham muni kaupa Sutton á næstu dögum. Alan Shearer, fyrirliði Newcastie, segist ekki trúa þvi sem Alex Fergu- son segir þess efnis að Jaap Stam verði ekki með United gegn Newcastie um næstu helgi. „Ferguson er snjall og mikili sálfræðingur. Ég spái því að Stam verði á sínum stað í vöm United á laugar- dag,“ sagði Shearer i gær. Það kemur í ljós á laugardag hvor hefur rétt fyr- ir sér, Ferguson eöa Shearer. Talandi um Alan Shearer. Hann sagöi í gær að Dwight Yorke væri að sínu mati leikmaður ársins í ensku knattspymunni en ekki Frakkinn David Ginola. „Yorke er frábær leik- maður, ekki bara markaskorari held- ur alhliða ieikmaður. Hann er leik- maður ársins og enginn annar,“ sagði Shearer i gær. Forráóamenn Manchester United hafa ákveöið að sekta ekki Roy Kea- ne vegna atburða undanfarinna daga. Aldrei kom til tals að hann missti fyr- irliðastöðuna hjá United og verður Keane því fyrirUði United gegn Newcastie á laugardag. Þegar Keane var orðinn laus úr svartholinu var hann spurður einu sinni enn hvort hann væri ekkert að róast með árun- um. „Ég hef oft svarað þessari spum- ingu játandi en jafnan gert eitthvaö heimskulegt af mér strax í kjölfarið. Því þori ég varla að segja já einu sinni enn,“ sagði Keane. Jim Smith, framkvæmda- stjóri Derby County, ætiar að taka tti í leikmanna- hópi sínum fyrir næstu leiktíð. Hann hefur nú þeg- ar sett þá Paulo Wanchope, Igor Stimac og Dean Sturridge á sölu- lista. Wanchope sagði í síð- ustu viku að margir leik- menn Derby vildu fara frá félaginu. West Ham hefur mikinn áhuga á því að fá Króatann Slaven Bilic til baka frá Everton. Lundúnaliðið seldi Bilic þangað fyrir tæpum tveimur árum en leikmaðurinn hefur ekki átt fast sæti i liði Everton. Sjálfur hefur Bilic ekk- ert á móti þvi að snúa aftur heim. Alan Curbishley, knattspymustjóri Carlton, verður boðinn nýr samning- ur hjá félaginu á atira næstu dögum. Liðið féll úr úrvaisdeildinni á dögun- um eftir árs setu. Richard Murry, stjómarformaður, segir að félagiö beri fullt traust til Curbishley og hon- um verður trúað til þess aö koma lið- inu i hóp þeirra bestu á nýjan leik -SK/JKS Liðsmenn og forráðamenn Lazio réðu sér að vonum ekki fyrir kæti eftir sigurinn í Evrópukeppni bikarhafa á Villa Park í Birmingham í gærkvöld. Bikarkeppninni var komið.á fót fyrir 39 árum en verður lögð niður og sameinuð UEFA-bikarnum. Símamynd Reuter Lazio meistari - ítalska liöið Evrópumeistari eftir 2-1 sigur á Real Mallorca ítalska liðið Lcizio frá Rómaborg varö Evrópu- meistari bikarhafa í knattspymu í gærkvöld þegar það sigraði Real Mallorca, 2-1, í úrslitaleik keppn- innar á Villa Park í Birmingham. Þetta er í fyrsta skipti sem Lazio verður Evrópumeistari en nú verð- ur keppni bikarhafa lögð niður og sameinuð UEFA- bikamum. Leikurinn fór fjörlega af stað og gaf fyrirheit um góða og skemtilega viðureign. Christian Vieri kom Laziod yfir strax á 7. minútu með góðum skalla. Þetta mark sló Spánverjana ekki út af laginu því að- eins fjórum mínútum síðar vom þeir búnir að jafha metin, 1-1. Þar var að verki Dani sem nokkur ensk félagslið em á höttunum eftir. Eftir þetta vom liðin að leika ágætlega úti á vellinum en sköpuðu sér fá tækifæri. Tékkinn Pavel Nedved skoraði sigurmark Lazio með skoti af 18 metra færi átta mínútum fyrir leikslok. Mailorca-liðið var ef eitthvað var ákveðn- ara og var nálægt því að jafna undir lokin en allt kom fyrir ekki. Liðið má vel við una en geysilegur uppgangur hefur verið á liðinu á síðustu árum. „Alvaran tekur við strax, og við fáum ekki tíma til að fagna þessum sigri. Þetta er stór stund fyrir fé- lagið en nú tekur við undirbúningurinn fyrir deild- arleikinn um næstu helgi,“ sagði Sven Göran Er- ickson, þjálfari Lazio, eftir leikinn. Liöið heyr eins og kunnugt harða baráttu við AC Milan um italska meistaratitilinn. -JKS Allen Iverson, leikmaðurinn snjalli hjá Philadelphia, er hér að brjóta sér leið fram hjá Travis Best í liði Indiana í leik liðanna í nótt. NBA körfuboltinn í nótt: Shac hitti úr 2 vítum af 10 - SA Spurs og Indiana unnu aftur San Antonio Spurs sigraði LALakers öðm sinni í 8-liða úrslitum NBA-deildar- innar í nótt og Indiana Pacers lék sama leikinn gegn Fhiladelphia 76ers. Leikur SA Spurs og Lakers var hníijafn allan tímann en honum lauk með sigri SA Spurs, 79-74. Staðan í leikhléi var 44-41, SA Spurs i vil. Ótrúlega slök vítanýting Shaquille O’Neal og félaga hans varð Lakers að falli. O’Neal hitti aðeins úr tveimur vítum af tíu sem er ótrúleg frammistaða hjá leikmanni í NBA. Vítanýting Lakers-liðsins var afar slök í heildina, aðeins 57,7%. Leikmenn SA Spurs hittu úr 94,4% sinna vítaskota. Tim Duncan skoraði 21 stig fyrir Spurs og tók átta fráköst, Sean Elliott skoraöi 19 stig, David Robinson 16 og Rose var með 13 stig. Hjá Lakers var Kobe Bryant allt í öllu og skoraði 28 stig. Shaquille O’Neal skoraði aðeins 16 stig og það sama gerði Glen Rice. Góður sigur Indiana Indiana komst 2-0 yfir í einvígi sínu gegn Fhiladelphia 76ers með því að sigra 85-82 á heimavelli sínum í nótt. Staðan í leikhléi var 45-32, Indiana í vil. Rik Smits skoraði 25 stig fyrir Indiana, Reggie Miller 17, Chris Mullin 8, D. Davis 7, Best 7 og Rose 7. Hjá 76ers var Allan Iverson allt í öllu eins og venjulega en hann skoraði 23 stig í leiknum. Matt Geiger skoraði 18 stig, Ratliff var með 12 stig, Hughes 8 og Snow 8. -SK FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1999 21 x>v RVALSDEILD Þaó var ólikt gengi á síðasta sumri hjá ÍBV og Leiftri, sem mætast úti í Eyjum í kvöld. Eyja- menn hafa verið ósigrandi í Eyj- um á sama tíma og Leifturs- mönnum hefur gengið afleitlega á útivelli. IBV hefur nú unnið 13 heimaleiki í röð auk þess að hafa skorað að minnsta kosti eitt mark í síð- ustu 23 heimaleikj- um sínum. Síðast tapaði það heima fyrir KR 12. júní 1996, sem er einnig það lið sem síðast hélt hreinu í Eyjum er það kom á Heimaey 7. júlí 1996. Hvort tveggja er þetta met í 10 liða efstu deild. Gengi Leifturs á úti- völlum er aftur á móti afleitt. Þeir gerðu aðeins 19% marka sinna í fyrra á útivöllum, sem er met í 10 liða efstu deild, auk þess sem þeir hafa tapað þremur úti- leikjum í röð, ekki unnið í síð- ustu sjö. Þá hefur Leiftur ekki skorað í síðustu 274 deildamínút- ur á útivelli auk þess að skora aðeins 1 útimark í siðustu 7 úti- leikjum og 4 í 9 leikjum 1998. ÍBV og Leiftur hafa mæst fjór- um sinnum úti í Eyjum í efstu deild. Eyjamenn hafa unnið þrjá af þessum fjórum og skorað 10 mörk gegn fimm Leiftursmörk- um en Leiftur vann sinn eina leik, 3-1, í opnunarleik liðcmna 1997. Það verður því fróðlegt að sjá í kvöld hvort einhver breyting verður á þessu hjá ÍBV og Leiftri sem mætast á Hásteinsvelli klukkan 20 í kvöld. Leikirnir í úrvalsdeildinni í kvöld hefjast allir klukkan 20. Þeir eru ÍBV-Leiftur, Grindavík- Fram, Breiðablik-Valur og Vík- ingur-Keflavík. Önnur umferðin fer svo öll fram á mánudag, ann- an í hvítasunnu. Þá leika: Leift- ur-KR, Valur-ÍBV, ÍA-Víkingur, Grindvík-Breiðablik og Fram- Keflavík. -ÓÓJ/GH Bolton tryggði sér sæti í úrslitaleik sem sker úr um hvaða lið fer með Sunderland og Bradford upp í A-deild ensku knattspyrnunnar. Bolton tap- aði að vísu fyrir Ipswich í gærkvöld, 4-3, en vann fyrri leikinn, 1-0, og kemst áfram á mörkum skoruðum útivelli. Eiður Smári Guójohnsen var i byrjunarliði Bolton en Guðni Bergsson var á varamannabekknum. Það kemur i ljós eftir leik Birming- ham og Watford hveijir mótheijar Bolton verða á Wembley mánudaginn 31. maí. Manchester City og Gillingham leika á Wembley 30. maí um það hvort liðið leikur I B-deildinni á næsta tímabili. Manchester City sigr- aði Wigan, 1-0, í siðari leiknum i gær- kvöld og vann samanlagt, 2-1. Gilling- ham sigraði Preston, 1-0, og saman- lagt, 2-1. í C-deildinni geröu Rotherham og Leyton Orient markalaust jafntefli en Orient vann fyrri leikinn, 4-2, og kemst áfram. Scunthorpe sigraði Swansea, 3-1, og samanlagt, 3-2. Það verða því Leyton Orient og Scunt- horpe sem leika um sæti í B-deildinni á Wembiey 29. maí. Tryggvi Guðmundsson skoraði eitt marka Tromsö sem sigraði Skjervöy, 3-1, i norsku bikarkeppninni í knatt- spymu í gærkvöld. öll lið efstu deild- ar komust áfram en Kongsvinger og Skeid þurftu bæði framlengingu til að sigra Uð úr neðri deildum. Kongsvin- ger vann Magnlerud/Star, 3-2 og Skeid vann Mercantile, 1-0. Lil- leström vann Faaberg, 1-0, Viking vann Vard, 2-0, Stabæk vann Abildsö, 3- 0, og Strömsgodset vann Tollnes, 4- 0. Sigþór Júlíusson bætti 39 ára gamalt met Einars Magnússonar: Alvörumark - segir Einar Magnússon um markið sem hann skoraði árið 1950 Keflvíkingurinn Einar Magnús- son átti fyrir opnunarleik KR og ÍA í fyrrakvöld met, sem flestir bjugg- ust við að myndi endast honum alla ævina, ef ekki lengur en það. Einar lék sinn fyrsta leik með Keflavík, gegn Val 26. maí 1960, þá 17 ára, og það tók hann aðeins 31 sekúndu að setja mark sitt á deild- ina er hann skoraði fyrsta mark fs- landsmótsins 1960. Þetta var fyrir leik KR og ÍA „fljótasta" opnunar- mark fslandsmóts í sögunni. Hefur verið gaman að grobba sig af þessu „Ég man vel eftir þessu marki og það var miklu fallegra en markið hjá KR-ingum. Boitanum var rennt til mín og ég lét vaða frá vítateigs- línunni. Boltinn söng í netinu og þetta var sko alvörumark," sagði Einar Magnússon í samtali við DV í gær. „Ég vissi að ég átti þetta met og auðvitað er súrt að missa það og einkum og sér í lagi vegna þess að þetta var hálfgert klaufamark. Mitt mark var miklu fallegra og var al- vörumark. Markið liggur ekkert of- arlega í huga mér í dag en það hef- ur komið í umræðuna svona ein- stöku sinnum svo ég vissi alveg um þetta met. Það hefur verið gaman að grobba sig af þessu en nú er það ekki lengur hægt og ég sætti mig alveg við það. Ég óska Sigþóri góðs gengis og vona að hann hangi á þessu meti sem lengst. Ég bjóst aldrei viö að eiga þetta met til ei- lífðar," sagði Einar enn fremur. Sigþór Júlíusson skoraði eftir aðeins 17 sekúndur á KR-vellinum og nældi sér í metið og það verður seint eða aldrei slegið. Markið er það annað „fljótasta" í leik í efstu deild en örugglega það „lang- fljótasta" hjá liði sem ekki byrjar með boltann, því Eyjamenn byrj- uðu með boltann er Leifur Geir Hafsteinsson gerði fljótasta mark í sögu íslandsmótsins sumarið 1995. „Fljótasta" opnunarmark l& landsmóts: 17 sekúndur: Sigþór Júlíusson KR gegn ÍA á KR-vellinum, 18. ma: 1999. 31 sekúnda: Einar Magnússon Keflavík gegn Vcd í Keflavík, 26 mai 1960. 67 sekúndur: Eyleifur Haf steinsson, ÍA gegn Keflavík í Njarð vík, 23. maí 1965. „Fljótasta“ mark íslands- móts: 8 sekúndur: Leifur Geir Haf steinsson, fBV, gegn KR á Há steinsvelli í Eyjum, 6. júlí 1995. 17 sekúndur: Sigþór Júlíusson KR gegn ÍA á KR-vellinum, 18. ma! 1999. 19 sekúndur: Sveinbjörn Há konarson, Stjömunni gegn Víði i Garði, 11. ágúst 1991. -ÓÓJ/GK Forkeppni Evrópumóts landsliða í körfuknattleik: Leikmenn mættu virkilega tilbúnir - ísland sigraði Kýpur, 74-69, i fyrsta leik i Slóvakiu íslendingar sigmðu Kýpur, 74-69, í fyrsta leiknum í forkeppni Evrópu- móts landsliða í körfuknattleik i Slóvakíu í gær. Staðan í hálfleik var 38-30 fyrir ísland. Sigurinn öruggur Að sögn Péturs Sigurðssonar, framkvæmdastjóra KKÍ, var mjög mikilvægt að vinna sigur í fyrsta leik. Viðureignin í gær var f jafn- ræði fyrstu tíu mínútumar. Eftir það tóku íslendingar framkvæðið og náðu mest 15 stiga forystu. Kýpurmenn náðu að minnka for- skot íslendinga undir lokin en sig- urinn var alltaf ömggur. Menn vita að hverju er stefnt „Undirbúningurinn hefur verið góður og liðið mætti virkilega tilbú- ið í þennan leik. Menn vita að hverju er stefnt og leggja sig 100% fram. Það var aöalatriðið að sigra i þessum leik en sigurinn hefði þess vegna geta orðið mun stærri. Nokk- ur mistök í lokin þýddu að þetta var fimm stiga sigur en ekki 10-12 stiga sigur,“ sagði Jón Kr. Gíslason, landsliðsþjálfari, eftir viðureignina. Stigahæstu menn íslenska liðsins vora Helgi Jónas Guðfinnsson og Falur Haröarson með 18 stig hvor og Herbert Amarson skoraði 16 stig. Þurfa að vinna þrjá leiki íslendingar þurfa að vinna þrjá leiki í forkeppninni í Slóvakíu tU að komast inn í riðlakeppnina á kom- andi hausti. íslendingar leika í dag við Wales, á fóstudag við Hvíta Rússland, á laugardag við Slóvakíu og síðasti leikurinn verður við Rúmena á sunnudag. -JKS Herbert Arnarson, sem hér er í skemmtilegri stellingu í leik gegn Litháum í vetur, lék vel með íslenska landsliöinu í gær og skoraði 16 stig. DV-mynd ÞÖK Sport ÚRVALSDEILD Framarar hafa aldrei náð að vinna Grindavík i 6 leikj- M um liðanna í efstu deild. Þrisvar hefur orðið jafntefli og þrisvar hafa Grindvíkingar tekið öU þrjú stigin úr leikjum lið- anna. Framarar hafa samt náð að gera 7 mörk í þessum 6 leikjum gegn 12 mörkum Grindavíkur. Framarar hafa ekki skorað i opnunarleik sínum í íslandsmót- inu síðan 1993 eða í 4 leikjum og í heUar 415 leikmínútur. Grind- víkingum hefur að sama skapi ekki gengið vel í opnunarleik mótsins því þeir hafa aldrei unn- ið fyrsta leik í móti í 10 liða efstu deUd. Talandi um slœmt gengi i fyrsta leik í móti hafa Blik- ar hafa tapað fjóram opnunarleikjum í röð, og það sem meira er, þeir era með markatöluna 2-15 í þessum fjórum leikjum. Blikar hafa samt ekki tapað fyrir Val í Kópavogi í efstu deUd síðan sumariö 1992 er þeir steinlágu 0-5. Keflavik hefur unnið eins marks sigra á Víkingi í síðustu 4 leikjum liðanna í efstu deild. Víkingar hafa skorað 6 mörk í þessum fjórum leikjum en þau hafa samt ekki náð að skila stigi til liösins. David Winnie, Skotinn sterki í vöminni hjá KR og besti leik- maður síðasta íslandsmóts, á að baki einstakan árangur í þeim 14 leikjum sem hann hefur leikið í efstu deUd hér á landi. KR-vörnin með /f&rtts. Winnie innanborðs hefur aöeins fengið á (I 1) sig 7 mörk og haldið sjjsggslf' hreinu í 10 af þess- um 14 leikjum. Það eru aðeins Eyjamenn sem hafa fundið leiðina fram hjá kappan- um, því af þessum 7 mörkum hafa þeir gert 5 mörk í sínum tveimur leikjum. Öðrum liðum hefur því aðeins tekist að gera 2 mörk í 12 leikjum á KR-vörnina þegar Skotinn David Winnie er með. -ÓÓJ Slóvakar sigruðu Wales með mikl- um mun, 104-68, í C-riðli forkeppni Evrópumótsins í körfuknattieik en Is- lendingar leika einmitt í sama riðli. Síöasti leikur dagsins var viðureign Rúmena og Hvit-Rússa og fóru þeir fyrmefndu með sigur af hólmi, 81-67, og virðast hafa sterku liði á að skipa. KVA, sem leikur í 1. deildinni í knattspymu, hefur fengið til sín tvo leikmenn frá nágrönnum sínum i Fjarðarbyggð, Þrótti úr Neskaupstað. Það eru Marteinn Hilmarsson og Egill Örn Sverrisson. Alonzo Mourning, leikmaður Miami Heat, var í gær útnefndur varnar- maður ársins í NBA-deildinni í körfuknattieik. Mourning hefur tekið 11 fráköst að meðtali i ieik á keppnis- tímabilinu og varið 3,9 skot. Viggó Sigurðsson, fyrmm þjálfari Wuppertal í þýsku A-deildinni i handknattieik vann fyrir dómstólum í Þýskalandi í gær mál gegn Wupper- tal sem hann höfðaði eftir að honum var vikiö úr starfi. Viggó var samn- ingsbundinn Wuppertal fram í júlí árið 2000 og þarf félagið að greiða Viggó laun til til þess tíma. Rússar og Hvít-Rússar gerðu 1-1 jafntefli í vináttulandsleik í knatt- spymu í Rússlandi i gær. Alexander Mostovoy skoraði mark Rússa á 31. mínútu en Igor Tarlovsky jafnaði fyrir Hvít-Rússa á 46. mínútu. Rúss- ar, sem em í riðli með íslendingum í undankeppni EM, era að búa sig und- ir leik gegn heimsmeisturum Frakka sem fram fer 5. júní. -VS/GH/JKS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.