Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1999, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1999, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1999 * 25' Pau standa Kirkjuvörður: „Hitti fólk í gleði þess og sorgum." Næturvörður: „Maður er alltafað umpóla sólarhringnum." Húsvörður: „Heilmikið mál að vera treystfyrir þessu sómafólki." Huggar og gefur afsér Unnur Guðbjartsdóttir hefur verið kirkjuvörður í Hall- grímskirkju í níu ár. Áður en hún hóf þar störf hafði hún gegnt húsmóðurstörfum í fimmtán ár. „Foreldrar mínir höfðu unnið sem kirkjuverðir í kirkjunni um árarað- ir og ég kom smátt og smátt inn í þetta.“ Kirkjuverðir í Hallgrímskirkju eru þrír og er móöir Unnar ein af þeim. Starf Unnar felst i umsjón með safnaðarheimilinu auk kirkju- vörslu. Hvað varðar safnaðarheim- ilið sér hún m.a. um erfisdrykkjur en hvað varðar kirkjuvörsluna tek- ur hún m.a. á móti gestum, svarar í síma og sér um undirbúning fyrir útfarir. í gegnum starf sitt hittir Unnur fólk í gleði þess og sorgum. „Stund- um, þegar enginn prestur er til stað- ar, verðum við að hugga það og gefa heilmikið af okkur. Þetta getur ver- ið fólk sem á ekkert húsaskjól eða sem hefur lent i erfiðleikum.“ Unn- ur bjóst ekki við þessari hlið starfs- ins fyrir níu árum. Stór hluti starfsins er móttaka ferðamanna sem margir hverjir leggja leið sína í kirkju Hallgríms í íslandsreisunni. „Gífurlegur ferða- mannstraumur er í þessa kirkju en hún er opin frá 9-18 alla daga.“ Unni flnnst Hallgrímskirkja ynd- isleg kirkja og yndislegur vinnu- staður. „Ég held að margir átti sig almennt ekki á hvað um er að vera i kirkjunni. Hér er mikil starfsemi. Það er ekki bara messa klukkan 11 á sunnudögum eins og margir halda.“ Unni flnnst Hallgrímskirkja fallegasta kirkja sem hún hefur komið í. Hún segir líka að góður andi sé í kirkjunni. Hún hefur alltaf í huga að vinnustaðurinn er guðs- hús. Unnur býr I Hafharfirði. Þegar hún fer í messu fer hún í messu í Hallgrímskirkju. -SJ í gegnum starf sitt hittir Unnur fólk sem á ekkert húsaskjól eða sem hefur lent í erfiðleikum. „Stundum, þegar enginn prestur er til staðar, verðum við að hugga það og gefa heilmikið af okkur." DV-mynd Pjetur annarri vinnu. „Ég fékk að sýna fólkinu íbúðirnar sem var að íhuga að kaupa og mér féll sér- staklega vel við þetta fólk. Reyndar var það einn vinnufélagi minn sem benti mér á að sækja um hús- varðarstarfið. Ég brosti í kampinn til að byrja með.“ Starfið er margbrotið að sögn Rúnars. „Að stórum hluta felst þetta í þrifum á sameign í þremur stigahús- um; það virðist hafa orðið sú þróun að húsverðir sjá um þrif.“ í húsinu eru 79 íbúðir og íbúar eru á annað hundrað. Rúnar sér líka um lagfær- ingar í íbúðunum og þarf að sinna neyðarköllum en neyðarhnappar eru í hverri íbúð. „Maður er alls staðar með, á öllum vígstöðvum. Þegar maður er húsvörður í stóru húsi þar sem býr svona margt fólk þarf mað- ur að vera tilbúinn að mæta öllu.“ Rúnar segir að þetta sé ákaflega skemmtilegt sam- býli. „Hérna býr mikið sómafólk og það er heiður að fá að umgangast það. Mér finnst íbúarnir al- mennt lifsglaðir. Ég sé eng- an lífsleiöan." Fólkið hans Maður er alls staðar með, á öllum vígstöðvum. Þegar maður er húsvörður í stóru húsi þar sem býr svona margt fólk þarf maður að vera tilbúinn að mæta öllu.“ DV-mynd E.ÓI. Ég er búinn að vera húsvörður í þessu húsi síðan í september en áður var ég i byggingarvinnu hjá Byggingarfélagi Gylfa og Gunnars sem byggði þetta hús.“ Rúnar Guðjónsson er maðurinn með lyklakippuna í fjölbýlishúsinu við Skúlagötu 20 þar sem eru íbúðir fyrir aldraða. Áður hafði hann gegnt sams konar starfi í 15 ár í húsinu þar sem hann bjó, auk þess að vera í Hann er spurður hvort hann líti á fólkið sem vini sína eða skjólstæðinga. „Ég kalla þetta fólkið mitt í daglegu tali, hvort sem ég tala við mína nánustu eða aðra. Mér finnst það heilmikið mál að vera treyst fyrir að vera með þessu sómafólki. Hér iðar allt af lífi og Qöri. Margt yngra fólk mætti taka sér til fyr- irmyndar lífsstílinn hjá þeim eldri.“ -SJ Sér borgina vakna Gunnar Guðmundsson er annar tveggja næturvarða í Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar hóf hann störf þegar húsið var enn í byggingu. Þá lenti hann stundum í að reka útigangsmenn út úr ókláraðri bíla- geymslunni þar sem þeir höfðu hreiðrað um sig. Starfið lætur líkamsklukk una vita af sér. „Maður er alltaf að umpóla sólarhringn- um. Það er misjafnt hvemig gengur að sofna. Stundum tekur það hálftíma til klukkutíma." Gunnar er smiður og hafði verið sjálfstætt starfandi áður en hann varð næturvörður: „Fyrir um átta áram var erfitt að innheimta laun. Ég varð leiður á því.“ Starf Gunnars í Ráðhúsinu felst m.a. í að fylgjast með kerfunum í húsinu og gæta þess að ekkert geti valdið skemmd- um. Hann fylgist líka með mannaferðum í kringum húsið og þarf stundum að hringja á lögregluna. „Rúður hafa m.a. verið brotnar. Við erum með neyðarhnapp sem við getum ýtt á ef eitthvað mikið gerist." Hann er kóngur á nóttunni í húsinu sem svo mikill styr stóð um á sínum tíma. Þar sem hann er einn á vakt á nóttunni getur hann ekki talað um eigin- lega vinnufélaga. Hann finnur hins vegar aldrei fyrir einmanaleika. „Sumir gætu ekki unnið svona starf. Þeir væra til dæmis hræddir við myrkrið. Ég finn ekki fyrir þvi. Ég vil hafa myrkur en þá er ég minna sýni- legur þeim sem era úti. Gunnar les og horfir á sjónvaruiö þegar hann er ekki að ganga um húsið. „Ég er alæta á bækur.“ Stærsti sjónvarpsskjárinn snýr út að Tjöminni. „Mér finnst sárast þegar vargur- inn tekur ungana og stundum er skelfilegt á að horfa. Það er ekkert sem ég get gert.“ Næturvörðurinn sér hvernig mannlíf- ið deyr út á kvöldin og lifnar við á mórgnana. „Það er viss harmónía í þessu öllu.“ Hann hefur þá fylgst með næturhröfnum sem eru ekki einu sinni fleygir. -SJ Næturvörðurinn sér hvernig mannlífið deyr út á kvöldin og lifnar við á morgnana. DV-mynd Pjetur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.