Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1999, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1999, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 20. MAI 1999 17 Margir möguleik ar I bílakaupum - DV kannar kostnað við bílalán Sala á nýjum bílum hefur aukist gríðarlega mikið á undanföm- um árum. Annars veg- ar má rekja það til aukins kaupmátt- ar en að stómm hluta er skýringa að leita á fjár- magnsmörkuð- um. Framboð á lánsfjármagni hefur aukist mjög Óverðtryggt lán 48 mánuðir Kaupverð 1.500.000 Útborgun -375.000 Kostnaður +48.138 Samtals 1.173138 mikið og aðgengi fólks að hagstæð- um lánum hefur aukist mikið. Það hefur gert fleiri kleift að endur- nýja bíla sína. Full þörf hefur verið á að endur- nýja bílaflotann enda var hann orðinn með þeim elstu i Evrópu. Það eru ótal möguleikar sem bjóðast til að kaupa bíla um þessar mundir, misgóðir eins og skiljanlegt er. Gamla góða leiðin er að greiða út í hönd en slíkt er mjög á undanhaldi og flestir nýta sér þau lánakjör sem nú eru í boði. Það eru fjölmargir aðilar sem bjóða bílalán Kostnaður Stofngjald 29.328 Stimpilgjald 17.610 Þinglýsingarkostnaður 1.200 Samtals 48.138 Vextir 10.65% Hlutfallstala kostnaöar 14,49% Lánshlutfall 75,00% Afborgun 1.173.138 Vextir 260.637 * m.v. verðbólguspá vexnr ZbU.bö/ kb r ■ n| | _ r m r Greiðsia 1.440.975 Nyr diII keyptur a lanum Verðtryggt lán 60 mánuðir Kaupverö 1.500.000 Útborgun -375.000 Kostnaöur +54.278 Samtals 1.179.278 Kostnaður Stofngjald 35.378 Stimpilgjald 17.700 Þinglýsingarkostnaður 1.200 Samtals 54.278 Vextir 7,80% Hlutfallstala kostnaöar 10,89% Lánshlutfall 75,00% Afborgun 1.179.278 Vextir 237.880 Greiðsla 1.496.383* um þessar mundir og hægt er að reikna sjálfur á heimasíðum þeirra sem bjóða lánin hvernig greiðsluá- ætlun gæti litið út. Það er full ástæða til að hvetja fólk til að skoða þá kosti vel því í lánamálum er íslenski verðbréfamarkaðurinn: Enginn eftirbátur - segir FBA Morgunkom Fjárfestingarbanka atvinnulífsins segir að íslenski verðbréfamarkaðurinn sé hreint enginn eftirbátur evrópskra verð- bréfamarkaða, enda þótt stundum Verðbréf á upp- og niðurleið - síðastliðna 30 daga - heyrist sú skoðun að hækkanir á ís- lenska hlutabréfamarkaðinum hafi verið of litlar. í Morgmikomi segir að ekki sé undan miklu að kvarta þvi að úr- valsvísitala Verbréfaþings íslands hafi hækkað um 7,8% frá áramótum og aðalvísitalan um 10,4% sem sé mjög viðunandi í samanburði við helstu verðbréfamarkaði álfúnnar. -SÁ m m w rff ■ ^ i4% b% 12% Tæknival hf. Islenskir Frumherji hf. Héðinn Sláturfélag aðalverktakar hf. smiöja hf. Suðurlands hf. Jökull hf. KEA hf. Sæplast hf. Vinnslustöðin hf. Marel hf. -J% -11% -1U% -23% margt öðruvísi en það kann að virð- ast við fyrstu sín. Margir kostir í boði Því fylgja margir kostir að vera á nýjum bíl. Ábyrgð á nýjum bíl er yf- irleitt 3 ár frá kaupdegi. Með þvi að nota bílasamninga er hægt að vera ávallt á nýjum viðhaldsfríum bílum eða nýlegum bílum í ábyrgð. Svo má alls ekki gleyma þeirri ánægju sem fólgin er í því að aka um á nýjum bíl. Auðvitað fylgir þessu nokkur kostn- aður en margir kostir eru í boði. Al- mennt er hægt að fá 75-80% að and- virði nýs bíls að láni og tímalend er mjög mismunandi. Ef fólk vill löng lán þurfa þau að vera verðtryggð en þau geta verið allt að 84 mánuðir. Skemmri lán er hægt að taka óverð- tryggð. Hins vegar er ljóst að þeim mun lengri sem lánin eru þeim mun hærri eru þeir heildarvextir sem greiða þarf. Einnig vaknar upp sú spuming hvort taka eigi verðtryggt eða óverðtryggt að láni. Ef verðbólga eykst þá er heppilegt að skulda óverð- tryggt en að sama skapi eru vextir hærri og kostnaður meiri. Hins vegar hafa verðtryggðu lánin verið miklu vinsælli og langflestir nýta sér þau. Greiðslubyrði af svona samningum er eðli málsins samkvæmt mjög mis- munandi eftir því hve löng lán menn velja. í því dæmi sem hér er gefið upp er greiðsla á mánuði á óverðtryggða láninu 24.440 kr. í 48 mánuði. Ef hins vegar verðtryggða lánið er valið er greiðslan 19.655 kr. á mánuði en í 60 mánuði. Og hvor kosturinn er betri? Heildarvaxtakostnaður er meiri á óverðtryggða láninu og endanleg greiðsla líka. Hins vegar ef tekið er tillit til verðbólgu verður verðtryggða lánið dýrara miðað við þá áætlun sem hér sýnd. En það er Ijóst að verð- tryggða leiðin er auðveldari þar sem greiðslumar eru lægri enda hafa flest- ir nýtt sér þau. Almennt má segja að vextir af bílalánum séu lægri en margir halda og nú geta fleiri en oft áður keypt sér nýja bíla. Hins vegar þarf eins og alltaf að vega saman kostnað og ábata miðað við þá þörf sem menn hafa. -bmg Barnið í bílstólnum. Kornabörn í bílum með líknarbelg frammi í: Smábörnin skulu vera í bílstól í aftursæti í siðasta tölublaði FÍB-blaðsins, Ökuþórs, var gagnrýnd harkalega fræðslumynd Umferðarráðs í sjón- varpi um bamabílstóla. í myndinni kemur fram að öraggasti staðurinn fyrir kornabam i bíl sé í framsætinu í sérbúnum barnabílstól sem snýr öf- ugt miðað við akstursstefnu. Þetta var gagnrýnt í blaði FÍB fyrir þá sök að i nánast öllum bílum sem nú era fluttir nýir til landsins er líkn- arbelgur frammi í, eða öryggispúði sem blæs upp við árekstur. Verði árekstur blæs belgurinn mjög hratt upp eða með hraða sem svarar til um 300 km hraða á klst. Það verður því nánast sprenging og belgurinn er full- uppblásinn talsvert áður en árekstur- inn er afstaðinn. Belgimir eru miðaðir við það að fullorðin manneskja skelli á þeim, en ef komabam verður fyrir belgnum' getur það slasast alvarlega eða jafnvel látið lífið. Ef liknarbelgur er fyrir framsætisfarþega í bílnum má ekki undir neinum kringumstæðum setja barnið í framsætið þó það sitji í stól sem snýr öfugt við akstursstefnu held- ur skal það vera í stól í aftursæti bils- ins. DV spurðist fyrir um það á heima- síðum nokkurra framleiðenda bíla sem hér eru á markaði. í svörunum kom fram að allir bílar þeirra era búnir líknarbelgjum frammi í. Spurt var einnig um hvort hægt væri að af- tengja þá ef ferðast ætti með barn frammi í bílnum. Svarið var alls stað- ar neikvætt. Það ráð sem Hagsýni DV gefur því fólki sem á bila sem búnir era líknarbelg fyrir framsætisfarþega er: Hafið bömin í aftursætinu og í barnabílstól eða búnaði sem hæfir barninu. í lögum um gerð og búnað öku- tækja segir orðrétt: „Barn yngra en 6 ára skal í stað öryggisbeltis eða ásamt með öryggisbelti nota barnabílstól, beltispúða eða annan sérstakan ör- yggis- og verndarbúnað ætlaðan böm- um. Ef slíkur búnaður er ekki í bif- reið skal barnið nota öryggisbelti ef það er unnt.“ -SÁ Neytendavernd Neytendavemd er yfirleitt mik- il í nágrannalöndunum og sér- stakar stofnanir sjá um að taka við kvörtunum vegna vamings sem fólk telur að séu gallaðar eða uppfylli ekki kröfur. Hér á landi eru Neytendasam- tökin sérstaklega styrkt af ríkis- valdinu til að halda uppi þjón- ustu af þessu tagi við almenning, auk þess sem ýmis sérhæfður varningur er prófaður sérstak- lega, svo sem rafföng. Upplýsingar, bæði innlendar og erlendar, um flest heimilis- tæki er t.d. hægt að afla sér á skrifstofu Neytendasamtakanna og skynsamlegt er að kynna sér slík gögn áður en fólk festir kaup á nýjum heimilistækjum, ekki síst stærri og dýrari tækjum. Dönsk neytendasíða Heimasíða dönsku neytenda- verndarinnar er á slóðinni www.forbmgerstyrelsen.dk. Þar er hægt að blaða í miklu magni upplýsinga um einstakar vöruteg- undir sem reynst hafa varasamar á einhvem hátt. Þar er m.a. sagt frá rólu sem for- eldrar fengu handa eins árs barni sínu. Rólan var hengd upp undir loftið í stofunni en í hvert sinn sem barnið var sett í róluna hvolfdi henni og barnið hékk fast með höf- uðið niður. Faðirinn sneri sér til neytenda- stofnunarinnar sem sendi hana áfram í prófun hjá Tæknistofnun Danmerkur sem komst að þeirri niðurstöðu að rólan væri ómöguleg og jafnvel háskaleg bömum. í kjöl- farið ákvað innflytjandi rólunnar að stöðva söluna. Þá höíðu 3000 ról- ur veriið seldar en samkvæmt dönskum lögum geta þeir sem keyptu róluna innan síðustu tólf mánuða fengið hana endurgreidda. Niðurstaða þessa máls í Danmörku hefur leitt til þess að aðvörun hefur verið send tfi allra landa innan Evrópska efnahagssvæðisins um að þessi róla sé varasöm. Hún er af gerðinni Chicco Swing. -SÁ Fjölbreytt og vönduð leiktækjasamstæða fyrir ánægð börn. Skemmtilegt hf. Dalbrekku 22, s. 544 5990. Leigjum borð, stóla, ofna o.fl. Tjaldaleigan Skemmtilegt hf. Dalbrekku 22 - sími 544 5990 .

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.