Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1999, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1999, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 20. MAI 1999 nn Ummæli byrgðarleysi iórnmálamanna „Það 1 ■ J oft erfitt að vera í verkalýðsforystu og taka ábyrga l afstöðu og horfast í t augu við það að of , miklar launahækk- I anir geta jafnvel i haft öfugar afleið- ; ingar og minnk-l 1 andi kaupmátt. i Þessa ábyrgð hafa embættis-; og stjómmálamenn J ekki til að bera. Það höfum við ít- rekað horft upp á.“ Guðmundur Guðmundsson ÍDV. Hvíld langferða- bílstjórans „Hann verður sem sagt að hvíl- ast heima hjá sér og það e kannski bara verið að taka af bíl stjórunum þennan sjarma að skríða upp í hjá farþeganum." Jóhannes Ellertsson langferðabíl stjóri um skylduhvíld langferða- bilstjóra, i Morgunblaðinu. Hrossakaupin „Geir og Finnur dunda sér viö hrossakaupin næstu daga meðan Halldór er í útlöndum og Davíð i gönguferð með Tanna. Þeir telja sig hafa nægan tíma og því miður er það trúlega svo.“ Kristín Halldórsdóttir, 1 fyrrv. þingmaður, iDV. Fjósamaður „Gagnrýnandi verður alltaf að velja úr þaö sem er nýtilegt af nýjum bókmenntum og má aldrei vera smeykur við að verða skítugur á höndunum þegar hann mokar sinn ftór. Þess vegna fannst mér svo ágætt að íslend- ingar skyldu halda að ég væri fjósamaður.“ Erik Skyum-Nielsen bókmennta- gagnrýnandi, í DV. Valdhafar á Hagstofunni „Hagstofan hefur ekki bar; ráðuneytisvald, hún hefur kans ellívald eins og var hérna í konungsríki. Hún setur lög, ákveður hegningu og framfylgir þeim.“ Þorgeir Þorgeirson rithöfundur, sem fékk i gegn nafnbreyt- ingu eftir tæpra sjö ára baráttu, í Morgunblaðinu. Fæðingar og karlmenn „Vitið þið að hann afi minn var ekki viðstaddur eina einustu fæðingu hjá ömmu minni, það þótti bara hallærislegt að hanga yfir grenjandi kerlingu." Aðalheiður Jóhannesdóttir, liðs- stjóri sigurliðs MA í Morfís- keppninni, i Veru. * | Sigþór Júlíusson, knattspyrnumaður í KR: Mikil samkeppni um sæti í liðinu fram undan Islandsmótið i knattspymu fór heldur betur fjörlega af stað þegar Sigþór Júlíusson, knattspymumað- ur í KR, skoraði mark eftir að að- eins sautján sekúndur vora búnar af fyrsta leiknum og þegar upp var staðiö reyndist það vera sigurmark- ið í viðureign KR gegn ÍA: „Þetta var mjög óvænt og ánægjulegt, það er einstakt að skora svona snemma í leik og það í fyrsta leik íslands- mótsins," sagði Sigþór í viðtali við DV. „Ég þurfti samt fljótt að koma mér niður á jörðina því leikurinn var hraður og mikið um að vera, -------------- enda tvö sterk lið sem þama áttust við.“ Sigþór er að hefja sitt þriðja ár með KR: „KR er með mjög sterkan og samtilltan hóp og það verður samkeppni um sætin í liðinu í sum- ar og það ætti að styrkja okkur enn frekar þegar Bjarki Gunnlaugsson kemur til leiks sem verður fljótlega. Ég tel að við séum með mjög sterkt lið sem vel er hugsað um og hefur getu til að ná í titla á hundraö ára afmælisárinu. Og í þeirri baráttu er ekki svo lítið atriði að hafa stóran og sterkan stuðningsmannahóp sem styður við bakið á okkur. Það er ekki nóg að búið sé að stofna félag i kringum liðið heldur er á vegum þess rekin útvarpsstöð sem á öragg- lega eftir að vera mjög virk í kring- um leikina eins og kom fram strax fyrir fyrsta leikinn. Þá má geta þeirrar skemmtilegu nýjungar sem er algeng hjá erlendum liðum; að !} leikmenn komi eins klæddir til L leiks og nú mætum við allir í flott- um og snyrtilegum jakkafotum og það er virkilegur stíll yfir liðinu í þessum fötum." Sigþór er Húsvíkingur og hóf sinn feril í knattspymunni norðan heiða: „Ég hóf að spila í 1. deildinni með KA, sautján ára gamall, árið 1992. Leið mín lá síðan á heimaslóð- ir til Völsungs þar sem ég lék um tíma, fór til Reykjavíkur og lék með Val tvö leiktímabil og hef síðan ver- ið í KR og er að hefja mitt þriðja leiktímabil þar.“ Maður dagsins Sigþór segir að þrátt fyrir að fjöl- margir knattspymu- menn séu að leika í út- löndum telji hann að lið- in séu sterkari en þegar hann var að hefja feril sinn: „Það er mun meira lagt í að gera liðin sterka og jafnari að getu. Til að mynda æfum við í KR flesta daga vikunnar og þar sem nú er leikið nokkuð þétt til að byrja með má segja aö við séum að æfa og leika alla daga vikunnar." Sigþór starfar hjá P. Ámasyni í búslóðaflutningum hjá bandaríska hemum á Keflavíkurflugvelli: „í sumar fer ég svo að starfa hálfan daginn i Knattspymuskóla KR eins og ég hef gert undanfarin sumur, starf sem hentar mjög vel með fót- boltanum." Það komast ekki að önn- ur áhugamál hjá Sigþóri en fót- boltinn: „Ég er alltaf með hugann við boltann. Þeg- ar það er ekki KR þá er það Manchester United sem ég fylgist vel með og er mikill aðdá- andi liðsins.“ Unnusta Sigþórs heitir Hrefha Regína Gunn- arsdóttir. -HK Gangan í kvöld endar í Vogum á Vatnsleysuströnd. Póstgangan 1999 Nú er komiö að þriðja áfanga Póstgöngunnar 1999, raðgöngu íslandspósts á milli pósthúsa. Þetta er leiðin sem Sig- valdi Sæmundsson, fyrsti fastráðni land- pósturinn á Suðurlandi, gekk árið 1785. í kvöld verð- ur gengið frá Kúagerði að pósthúsinu í Vogum. Boðið verður upp á rútuferðir frá BSÍ klukkan 19, pósthúsinu í Kópavogi klukkan 19.15, pósthúsinu í Garða- bæ klukkan 19.30, pósthúsinu i Hafnar- firði klukkan 19.45 og til Reykjavíkur frá pósthús- inu í Vogum. Þátttakendur era minntir á að taka með sér póstgöngukortin. Útivera Orð í tíma töluð Myndgátan hér aö ofan lýsir nafnorði. KR og ÍA hófu leikinn á íslands- mótlnu í knattspyrnu í fyrrakvöld. Fjórir leikir í boltanum Nú er hafin keppni á íslands- mótinu í knattspymu og var opn- unarleikurinn í fyrrakvöld milli KR og ÍA, en þessum tveimur lið- um er spáð góðu gengi í sumar. í Landsímadeildinni era tíu lið og klárast fyrsta umferðin í kvöld með fjóram leikjum sem verða viðs vegar um landið. í Grindavík taka heimamenn á móti Fram og verður þaö eflaust jöfii viðureign. íþróttir í Vestmannaeyjum leika ÍBV og Leiftur frá Ólafsfirði, en þar má búast við spennandi leik. íslands- meistarar ÍBV hafa verið ósigr- andi á heimavelli sínum, en Leift- ursmönnum er spáð góðu gengi með sína þrjá brasilísku knatt- spymumenn innanborðs, svo það er aldrei að vita hvemig sá leikur fer. í Kópavogi leika Breiðablik og Valur og í Víkinni leika Víkingur, sem flestir sérfræðingar spá að fari beint niður í 1. deild, gegn Keflvikingum, sem byrjuðu af miklum krafti í fyrra en döluðu þegar leið á sumarið. Brídge Þetta spil kom fyrir í úrslita- keppni um meistaratitil í sveita- keppni hjá Bridgefélagi Reykjavík- ur fyrir 40 áram. Það vora sveitir Harðar Þórðarsonar og Sigurhjartar Péturssonar sem áttust við. í sæti suðurs var Gunnar Pálsson í sveit Sigurhjartar. Greinilegt er að sagn- venjur hafa nokkuð breyst frá þess- um tíma. Norður var gjafari og eng- inn á hættu: * G9753 * G542 ■f 84 * D3 * K642 «4 D983 •f 62 * K85 * Á Á106 •f ÁKDG1097 * Á2 Norður, Austur Suður Vestur Pass pass 5 grönd pass 6 * * pass 6 f p/h Gunnar Pálsson opnaði á fimm gröndum, einhvers konar slemmu- kröfu sem verður að teljast sögn í harðari kantinum. Norður sagöi sex lauf til að sýna lítil spil og gefa suöri tækifæri að segja lit sinn. Vestur spilaði út spaðafjarka í upphafi og Gunn- ar átti fyrsta slag- inn á ás. Hann tók nú slag á tígulásinn og spil- aði litlum tígli á áttuna í blindum. Síðan kom lítið hjarta og austur setti lítið spil. Gunnar lét tíuna nægja og var þar með kominn með vinning í spilið. Vestur lenti í kastþröng, gat ekki haldið valdi bæði á laufi og hjarta, þannig að þessi vafasama slemma komst í hús. Á hinu borðinu í leikn- um vora spiluð þijú grönd. Austur missti af skemmtilegri vöm sem er ekki auðveld. Ef hann setur hjarta- kónginn þegar hjarta er spilað úr blindum er ekki hægt að vinna spil- ið. ísak Öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.