Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1999, Blaðsíða 34
34
FIMMTUDAGUR 20. MAI 1999
Afmæli
Jóhanna Ósk Kristjánsdóttir
Tll hamingju með
afmælið 20. maí
95 ára
Jóhanna Ósk Kristjánsdóttir hús-
móðir, Ámesi II, Trékyllisvík í Ár-
neshreppi, er fertug í dag.
Starfsferill
Jóhanna fæddist viö Stykkis-
hólmi og ólst þar upp. Hún gekk í
Bama- og gagnfræðaskólann í
Stykkishólmi, stundaði nám við
Iðnskólann í Reykjavík í hár-
greiðslu 1986-88.
Á unglingsárunum vann Jóhanna
við Reykjalund í eitt sumar, var í
saltfisksvinnu, skelfiskvinnslu og
rækjuvinnslu í Stykkishólmi og
stundaði almenn verslunarstörf við
Kaupfélagið í Stykkishólmi, í sölu-
skálum í Búðardal og á Selfossi og
við verslunina Rangá i Reykjavík.
Með náminu vann Jóhanna fyrst
á Hárgreiðslu- og rakarastofunni
við Klapparstíg og síðan á Hár-
greiðslu- og rakarastofunni Galtará
við Hraunberg í Reykjavík. Hún
hefur nú sl. níu ár helgað heimili
sínu og bústörfunum starfskrafta
sina.
Fjölskylda
Sambýlismaður Jóhönnu er Guð-
laugur Ingólfur Benediktsson, f.
17.11. 1953, bóndi í Árnesi II. Hann
er sonur Benedikts Valgeirssonar, f.
13.8.1910, bónda í Ámesi II, og k.h.,
Oddnýjar Sumarrósar Einarsdóttur,
f. 22.4. 1921, d. 23.12. 1989, húsfreyju.
Sonur Jóhönnu og Friðjóns Árn-
ar Guðmundssonar er Kristján Öm
Friðjónsson, f. 7.6.1977, starfsmaður
hjá Eimskipafélagi íslands í Reykja-
vík.
Dóttir Jóhönnu og
Sveins Guðfinns Ragn-
arssonar er Ósk Sveins-
dóttir, f. 24.4. 1981, nemi í
framhaldsskóla að Laug-
um í Suður-Þingeyjar-
sýslu.
Synir Jóhönnu og Ing-
ólfs em Róbert Hlífar Ing-
ólfsson, f. 28.4. 1991;
Númi Fjalar Ingólfsson, f.
27.11. 1992.
Albróðir Jóhönnu er
Þórður Hreinn Kristjáns-
son, f. 27.5. 1956, vélstjóri í Reykja-
vík, en synir hans eru Andri Már, f.
16.4. 1987, og Egill Örn, f. 4.3. 1993.
Hálfbróðir Jóhönnu, samfeðra, er
Guðjón Kristjánsson, f. 12.11. 1953,
sjómaður í Reykjavík, en synir hans
em Ingvar Freyr, f. 26.5. 1974, Ævar
öm, f. 8.12.1977, og Hrannar Már, f.
29.8. 1979.
Foreldrar Jóhönnu: Kristján
Breiðfjörð, f. 1.1. 1930, d. 30.9. 1996,
vélstjóri, og Ásta Sigrún Þórðardótt-
ir, f. 3.4. 1937, húsmóðir og starfs-
maður við heimilishjálp í Reykja-
vík.
Fósturfaðir Jóhönnu frá því hún
var tólf ára er Númi Ólafsson Fjeld-
sted, f. 16.2. 1933.
Ætt
Kristján var sonur Boga, kaup-
manns og smiðs í Flatey á Breiða-
firði, afabróður Davíðs Gíslasonar,
læknis á Vífilsstöðum. Bogi var son-
ur Guðmundar, b. í Miðhúsum og
síðar í Hallsteinsnesi,
Arasonar, b. á Klúku í
Bjamarfirði á Ströndum,
Jónssonar, b. á Kletti í
Geiradal, Jónssonar, b. í
Múla í Skálmamesi,
Loftssonar. Móðir Jóns
og Kletti var Ólöf Þórólfs-
dóttir. Móðir Ara var El-
ín Jónsdóttir. Móðir Guð-
mundar var Sólveig
Magnúsdóttir, b. á Hafn-
arhólmi í Nessveit á
Ströndum, Jónssonar, og
Ingibjargar Jónsdóttur
Glóa, b. í Goðdal, Arnljótssonar.
Móðir Boga var Guðrún Jónsdóttir,
b. á Galtará í Gufudalssveit, Guðna-
sonar og Helgu Guðmundsdóttur.
Móðir Kristjáns var Jóhanna
Kristín Jónasdóttir, b. á Neðri-
Branná í Saurbæ, Sigurðssonar, b.
á Kvenhóli á Skarðsströnd, Sigurðs-
sonar, vinnumanns á Börmum í
Reykhólasveit, Sigurðssonar. Móðir
Sigurðar á Kvenhóli var Guðrún
Þorleifsdóttir. Móðir Jónasar var
Þuríður Þorvarðardóttir. Móðir Jó-
hönnu var Helga Finnsdóttir, b. á
Geirmundarstöðum, Jónssonar, b.
þar, Bjamasonar, b. á Smyrlhóli,
Péturssonar. Móðir Jóns var Helga
Finnsdóttir. Móðir Finns var Hall-
dóra Halldórsdóttir. Móðir Helgu
var Ragnheiður yngri Guðmunds-
dóttir, b. í Steinadal í Kollafirði á
Ströndum, Jónssonar, og Ragnheið-
ar Guðmundsdóttur.
Ásta Sigrún er dóttir Þórðar Val-
geirs, b. í Hergilsey, Benjamínsson-
ar, barnakennara, smiðs og bóksala
i Flatey, Jóhannessonar, b. á
Kirkjubóli í Bæjarnesi, Bæringsson-
ar, b. í Skoruvík á Fellsströnd, Jóns-
sonéir, hreppstjóra í Vogi, Bærings-
sonar. Móðir Bærings var Halldóra
Grímsdóttir. Móðir Jóhannesar var
Steinunn Bjömsdóttir. Móðir Benja-
míns var Ingibjörg Guðmundsdóttir
frá Hvallátrum. Móðir Þórðar var
Guðríður Sigurðardóttir, b. í Þernu-
vík, bróður Hannibals, afa Hanni-
bals Valdimarssonar. Sigurðar var
sonur Jóhannesar, b. á Kleifum,
Guðmundssonar, b. þar, Sigurðsson-
ar. Móðir Jóhannesar var Elín Vil-
hjálmsdóttir. Móðir Sigurðar var
Guðríður Jónsdóttir. Móðir Guðríð-
ar Sigurðardóttur var Þóra Gunn-
laugsdóttir.
Móðir Ástu var Þorbjörg Sigurð-
ardóttir, b. í Hvammi á Barða-
strönd, Guðmundssonar, b. þar,
Jónssonar, yngra í Hvammi,
Bjamasonar, hreppstjóra á Efri-
Rauðslæk, Jónssonar. Móðir Jóns
yngra var Herdís Jónsdóttir. Móðir
Guðmundar var Sigríður Jóhannes-
dóttir. Móðir Sigurðar var Guðrún
Einarsdóttir. Móðir Þorbjargar var
Dagbjört Sigurðardóttir Storms, frá
Fremri-Langey, Jónssonar, b. í Efri-
Lág í Eyrarsveit, Jónssonar, b. i
Fjósakoti í Saurbæ, Jónssonar, b. á
Reykhólum, Magnússonar. Móðir
Jóns í Efri-Lág, var Guðrún
Jónsdóttir. Móðir Sigurðar var
Kristín Þorsteinsdóttir. Móðir
Dagbjartar var Sigríður Ólafsdóttir.
Guðrún Jónsdóttir,
Lágafelli, Hveragerði.
90 ára
Guðbjörg Guðsteinsdóttir,
húsfreyja að Nesjavöllum
í Grafningi.
í tilefni afmælisins tekur hún
á móti gestum í veitingasal
Úifljótsvatnsskála við Úlfljóts-
vatn, laugard. 22.5. kl. 15-18.
Elínborg Sigurðardóttir,
Dvalarheimilinu Lundi, Hellu.
80 ára
Áslaug Árnadóttir,
Hrafnistu, Hafnarfirði.
Guðmxmdur Guðmundsson,
Hringbraut 67, Keflavík.
Guðrún Jónsdóttir,
Túngötu 18, Grenivík.
75 ára
Jónlna Björg Helgadóttir,
Hornbrekku, Óiafsfirði.
Kristján Ebenezersson,
Borgarholtsbr. 29, Kópavogi.
70 ára
Hreinn Stefánsson,
Miðstræti 16, Neskaupstað.
Svavar EHasson,
Furagrund 4, Akranesi.
60 ára
Jóhanna Ósk
Kristjánsdóttir.
Lárus Elíasson
Gísli Karl Sigurðsson,
Sólvöllum 19, Akureyri.
Guðrún Kristjánsdóttir,
Sunnuvegi 1, Þórshöfn.
Hörður Antonsson,
Hraunhlöðu, Stokkseyri.
Lárus Elíasson, verk- og viðskipta-
fræðingur, Fannafold 151, Reykja-
vík, er fertugur í dag.
Starfsferill
Láras fæddist á ísafirði en ólst upp
á Höfn í Homafirði frá þriggja ára
aldri. Hann stundaði nám við Reyk-
holtsskóla, lauk þaðan landsprófi,
1975, stundaði nám við Iðnskólann á
ísafirði og lauk þaðan 1. stigi Vél-
skólans 1976 og framgreinadeild
Tækniskólans, lauk stúdentsprófi
frá Tækniskóla íslands 1978, lauk
BA-prófi í vélaverkfræði við HÍ
1983, lauk MA-prófi i vélaverkfræði
við Universitat Karlsruhe í Þýska-
landi 1986, og lauk MBA-prófi í fjár-
málastjórn og alþjóðaviðskiptum frá
Ohio University í Athens í Banda-
ríkjunum 1990.
Láras var hönnuður hjá Islenskum
aðalverktökum hf. 1984, og hjá
Verkfræðistofu Guðmundar og
Kristjáns, m.a. við hönnun Nesja-
vallavirkjunar, 1986-89, var fyrirles-
ari í varmafræði við HÍ 1987-88, var
viöskiptafræðingur hjá Iðnþróunar-
sjóði við greiningu á lánshæfni fyr-
irtækja frá 1990, fulltrúi í hagdeild
Eimskipafélags íslands 1990-91,
deildarstjóri hjá Eimskipafélaginu í
Sundahöfn og síðar deildarstjóri
skipa- og útflutningsþjónustu fyrir-
tækisins.
í ársbyrjun 1993 tók Láras við fram-
kvæmdastjórastöðu hjá Alpan hf. og
hefur gegnt því starfi síðan.
Láru sat í stjórn Stéttarfélags verk-
fræðinga 1986.
Fjölskylda
Láras kvæntist 15.6. 1991 Ingi-
björgu Óðinsdóttur, f.
19.1. 1966, ráðningarfull-
trúa. Hún er dóttir Óðins
Geirssonar og Aðalheið-
ur Maack, eigenda
Stimplagerðarinnar við
Selmúla, búsett í Garða-
bæ.
Sonur Lárasar og
Önnu Elisabetar Ólafs-
dóttur, matvæla- og nær-
ingarfræðings, er ívar
Öm, f. 18.2.1985, nemandi
í Húsaskóla í Grafarvogi.
Böm Lárusar og Ingibjargar eru
Alexander, f. 3.4. 1992, nemi í Folda-
skóla í Grafarvogi; Atli Geir, f. 26.6.
1995; Aðalheiður, f. 21.9. 1997.
Alsystkini Lárusar era Jón, f.
26.4. 1958, sjálfstætt starfandi verk-
taki, kvæntur Björgu Ásdísardóttur,
búsettur í Vogum á
Vatnsleysuströnd og á
hann fimm böm; Ingi
Sturla, f. 17.6. 1960, sjó-
maður, kvæntur Önnu
Blomkvist Elíasson, bú-
settur í Svíþjóð, og á
hann eitt bam; Guðrún
Benedikta, f. 9.6. 1963,
myndlistarmaður og
kennari, gift Kristjáni
Gíslasyni og eiga þau
þrjú börn.
Foreldrar Lárasar era El-
ías Jón Jónsson, f. 19.12. 1929, fyrrv.
lögregluvarðstjóri á Keflavíkurflug-
velli, og Oddbjörg Ögmundsdóttir, f.
23.3.1939, húsmóðir. Þau búa í Hafn-
arfirði en bjuggu lengi á Höfn í
Hornafirði.
Lárus Elíasson.
Fréttir
Framkvæmdir við þjónustuskála Alþingis, sem reistur verður við vesturenda
Alþingishússins, hófust í gær með því að slegið var í bjöllu þingsins en síð-
an hóf skurðgrafa að grafa fyrir undirstöðu skálans. Að sögn Karls M. Krist-
jánssonar verður í sumar grafinn grunnur skálans og steyptur upp bíla-
geymslukjallari undir honum. Þessum framkvæmdum á að verða lokið í
september í haust. Næsta vor hefjast síðan framkvæmdir við þjónustuskál-
ann sjálfan og á byggingu hans að Ijúka áður en árið 2000 er á enda runnið.
Á myndinni standa alþingismenn og fylgjast með því þegar skurðgrafan ríf-
ur upp malbikið þar sem áður var innkeyrsla á bílastæði aiþingismanna.
DV-mynd SVA
Árekstur varð á gatnamótum Miklubrautar og Snorrabrautar í fyrradag. Báð-
ir bílarnir voru mikið skemmdir og flytja þurfti annan ökumanninn á Sjúkra-
hús Reykjavíkur. DV-mynd S
Þeir ílska sem róa... Þelr ílska sem róa... Þelr ílska sem róa... Þelr
www visir is
PYRSTUR MEO FR6TTIRNAR
50 ára
Kristín
Kristjánsdóttir,
húsmóðir og
dagmóðir,
Akurgerði 50,
Reykjavík.
Maður hennar er Guðmundur
H. Pétursson lagerstjóri.
Hún er að heiman.
Ágústa S. Jóhannesdóttir,
Víðimel 23, Reykjavík.
Bjarni Jarlsson,
Höfðaholti 7, Borgarnesi.
Björg Friðriksdóttir,
Flúðaseli 67, Reykjavík.
Brandur Jóhann Skaftason,
Barmahliö, Reykhólahreppi.
Hilmar Hilmarsson,
Birkihlíð 8, Sauðárkróki.
Jóhannes Þ. Guðmundsson,
Miklubraut 58, Reykjavík.
Jón Hafliðason,
Bergþóragötu 13, Reykjavík.
Jón O. Sigfússon,
Grundargerði 2B, Akureyri.
Ragnheiður Magnúsdóttir,
Engimýri 5, Akureyri.
Sigrún I. Skúladóttir,
Birkivöllum 12, Selfossi.
Snorri Þórisson,
Álfatúni 4, Kópavogi.
40 ára
Grétar Pétur Sigurðsson,
Hamrabergi 13, Reykjavík,
varð fertugur í gær.
Hann tekur á móti gestum að
heimili sinu laugard. 22.5. nk.
eftir kl. 15.00.
Björk Sigurjónsdóttir,
Smáratúni 37, Keflavík.
Erla Björk Garðarsdóttir,
Svarthömrum 18, Reykjavík.
Halldór Jóhannesson,
Laufrima 47, Reykjavík.
Helga Margrét Sveinsdóttir,
Klukkubergi 18, Hafnarfirði.
Ingólfur K. Rögnvaldsson,
Freyvangi 16, Hellu.
Jón Helgi Gíslason,
Grenimel 29, Reykjavík.
Matthildur Einarsdóttir,
Tjamargötu 38, Keflavík.
Nanna K. Guðmundsdóttir,
Lyngbergi 3, Hafnarfirði.
Sigríður Petra Hansen,
Brekastíg 32, Vestm.eyjum.