Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1999, Page 9
FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1999
9
DV
Utlönd
SKEIFUNN117 • 108 REYKJAVÍK
SÍMI 581-4515 • FflX 581-4510
Palestínumenn
þrýsta á Barak
Tiskukóngur
spáir tortímingu
Parísarborgar
Tískukóngurinn Paco Rabane
óttast mjög að París muni farast í
eldi þann 11. ágúst næstkomandi
þegar rússneska geimstöðin Mir
hrapar niður á á austurhluta
borgarinnar.
Rabane segir að þetta komi
fram í spádómum 16. aldar spá-
mannsins Nostradamusar.
Rabane er svo sannfærður um
að túlkun sin á Nostradamusi sé
rétt að hann hefur ritað um hana
bók. Þá ætlar hann að færa næstu
tískusýningu sína, og hugsanlega
þá síöustu, fram til 11. júlí.
„Ég er búinn að flýta sýning-
unni og hef sagt öllum starfs-
mönnum mínum að vera ekki í
París 11. ágúst,“ segir tískukóng-
urinn Paco Rabane.
Ehud Barak, nýkjörinn forsætis-
ráðherra Israels, er þegar farinn að
finna fyrir þrýstingi frá Palestínu-
mönnum. Þeir vilja að hann stöðvi
framkvæmdir við smíði íbúða fyrir
gyðinga í arabíska hluta Jerúsalem
sem hafnar voru á þriðjudaginn,
daginn eftir kosningamar í ísrael.
„Þetta var neikvæður boðskapur
og slæm byrjun,“ sagði Nabil Amr,
einn leiðtoga Palestínumanna í gær.
Barak heldur fast við þá skoðun
sína að Jerúsalem eigi að vera
óskipt. Palestínumenn vilja að aust-
urhluti borgarinnar verði höfuð-
borg í ríki þeirra.
Formlegar stjórnarmyndunarvið-
ræður hefjast ekki fyrr en um kom-
andi helgi. Barak hefur 45 daga til
stj ómarmyndunar.
Ehud Barak, nýkjörinn forsætisráð-
herra ísraels. Símamynd Reuter
Dodge Caravan 2,4 '97, ekinn
26 þús. km. Verð 2.090.000.
Volvo S40 '97, ekinn 25 þús. km,
2000 cc, ssk. Verð 2.230.000.M.
Benz E430 '94, 3500 cc, ssk.,
m/gríðarlegum aukabúnaði.
Verð 4.200.000.
Svíar reiöir yfir loftárásunum á Belgrad:
Jevgení Gvozdev frá Dagestan í Rússlandi stendur um borð í skútu sem
hann smíðaði á svölum íbúðar sinnar. Gvozdev sigldi í skútu umhverfis jörð-
ina fyrir fjórum árum og ráðgerir nú nýja hnattsniglingu. Símamynd Reuter
Ætluðu að myrða
fleiri en í Littleton
Fjórir táningar í Holland
Woodsskólanum í Michigan í
Bandaríkjunum ráðgerðu að fram-
leiða eigin sprengjur og útvega sér
vopn til þess að geta framið
fjöldamorð eins og í Col-
umbineskólanum í Littleton í
Colorado. Piltarnir ætluðu að
myrða fleiri en voru myrtir i
Colorado. Þeir ætluðu einnig að
nauðga stúlkum í skólanum, að
því er kemur fram í médi saksókn-
ara.
Tveir piltanna eru aðeins 13 ára
og er þeim lýst sem ósköp venju-
legiun drengjum. AJlir fjórir verða
látnir koma fyrir rétt í venjulegum
dómstól. Verði eldri piltarnir sak-
felldir geta þeir átt von á lifstíðar-
fangelsi. Yngri piltamir geta feng-
ið mildari dóm.
Nemendur, sem urðu vitni að
fjöldamorðunum í Littleton,
greindu í vikunni fulltrúadeild
Bandaríkjaþings frá upplifun sinni
og hvöttu þingmenn til þess að sjá
til þess að slíkir atburðir kæmu
ekki fyrir aftur. Nefnd fékk meðal
annars tillögu um að foreldrar
ættu að gæta bama sinna betur.
Sumir nemendur töldu erfitt að
leysa vandann.
„Sé einhver vondur í hjarta sínu
er ekki hægt að breyta því. Það er
bara guð sem getur breytt vondu
hjarta," sagði einn nemendanna.
Herkúles
Sími 568-2644
GSM 891-9344
Jóhann Hannó Jóhannsson,
lögg. bifreiÓasaíi
Sigríöur Jóhannsdóttío
lögg. bifrei&asali
FriSbjöm Kristjónsson,
sölufulltrúi
Jóhann M. Ólafsson,
Ingi fiór Ingólfsson,
sölufulltrúi
Kristján Örn Óskarsson,
sölufulltrúi
EVRÓPA
BILASALA
„TÁKN UM TRAUST"
Faxafen 8
Sími 581 1560
Fax 581 1566
Opnum kl. 8:30
Sími 581 1560
VWVento Gl 1800'95,
ekinn 63 þús. km, 5 g.
Verð 1.130.000.
Subaru Legacy Outback '98, ekinn
7 þús. km, 2500 cc, ssk., með öllu.
Verð 2.690.000.
Einnig '97 á 2.250.000.
Daihatsu Sirion SX 10/98, ekinn
6 þús. km, ssk.
Verð 1.050.000.
Hyundai coupé '97,
ekinn 15 þús. km, 2000 cc.
Verð 1.490.000.
Bústaður sendiherrans
varð fyrir skemmdum
Lltleiga á alls konar
leiktækjum
í bamaafmæli
- götupartí
— ættarmut
u.fl.
Honda CVR '98, 2000 cc, ssk.
Verð 2.250.000.
Dodge Dakota Club SLT '96,
ekinn 49 þús. km, 6 cyl., ssk.
Verð 1.995.000.
Rúður brotnuðu mélinu smærra
og fleiri skemmdir urðu á bústað
sænska sendiherrans í Belgrad í
loftárásum flugvéla NATO á
júgóslavnesku höfuðborgina í gær.
Við sömu götu eru einkahöll Slobod-
ans Milosevics Júgóslavíuforseta og
nokkrar hernaðarlega mikilvægar
byggingar.
„Sprengjumar komu niður að-
eins um tvö hundruð metra frá okk-
ur,“ sagði sænski sendiherrann,
Mats Staffansson, í samtali við
sænska Aftonbladet.
Anna Lindh, utanríkisráðherra
Svíþjóðar, sagði að svo harðar loft-
árásir á Belgrad væru óásættanleg-
ar og að hún myndi hafa samband
við ráðamenn i höfuðstöðvunum í
Brussel og láta þá heyra það.
Viktor Tsjernomyrdín, sáttasemj-
ari Rússa í Kosovo, hélt til Moskvu
í gær eftir að stjómvöld í Belgrad
féllust á að þörf væri að ræða við
Sameinuðu þjóðimar til að binda
enda á átökin. Tsjernomyrdín hittir
Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuöu þjóöanna, ræöir viö albönsk
börn í Stenkovac flóttamannabúöunum í Makedóníu. Hann segir aö SÞ ættu
aö gegna lykilhlutverki viö lausn deilunnar um framtíð Kosovo.
sendimenn Bandaríkjastjómar í
Moskvu í dag.
Tsjernomyrdin og Milosevic
ræddu saman í sjö klukkustundir.
Að viðræðunum loknum sögðu ráð-
gjafar Milosevics að þátttaka
Júgóslava í að skipuleggja hvemig
hugsanlegum friðarsamningum
yrði framfylgt væri óhjákvæmileg.
Vesturveldin og Rússar lögðu
fram áætlun fyrir tveimur vikum
þar sem gert er ráð fyrir veru er-
lendra gæslusveita í Kosovo, brott-
fór júgóslavneska hersins og heim-
flutningi flóttamannanna.
Rússneski sendimaðurinn var
ekki fyrr farinn frá Belgrad en flug-
vélar NATO héldu árásum sínum
áfram. Serbneskir fjölmiðlar sögðu
að þrir sjúklingar hefðu týnt lífi
þegar flugskeyti hæfði sjúkrahús og
tvær konur sem vora að fæða börn
hefðu særst. Nokkrir starfsmenn
sjúkrahússins slösuðust einnig en
ekki hefur fengist staðfest hversu
miklar skemmdir urðu.