Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1999, Qupperneq 15
FIMMTUDAGUR 20. MAÍ 1999
15
Bestu ráðin
fyrir bílinn
Þrif á vorin
Meö hækkandi sól flykkjast bíleig-
endur meö bíla sína á þvottastöðvar til
aö hreinsa og þrífa þá. Þaö ætti aö
vera kærkomið að fá nokkur góð ráö
um hvemig eigi að þrifa bílinn sinn.
Bílþvottur
í stað þess aö þvo bílinn með sápu
og vatni skaltu nota eina fotu af vatni
og bæta einum bolla af steinolíu út í. Á
eftir skaltu þurrka bílinn vel með
mjúkum klút. Það besta við þetta er að
ekki þarf að bleyta bílinn neitt áður,
sama hversu skítugur hann er, né
heldurþarf að skola hann á eftir. Þegar
rignir hripar vatnið af honum. Þetta
tefur fyrir ryði. Notið ekki bón að
þessari meðhöndlun lokinni.
Gluggaþvottur
Matarsóti hreinsar bletti og umferð-
aróhreinindi af rúðum, ljósum og
krómi. Nuddið með matarsóta sem
stráð hefur verið á rakan svamp.
Skolið á eftir.
Notið netpoka úr plasti (eins og sá
sem laukur er seldur í) til að nota við
hreinsun á rúöum þegar skordýr hafa
klesst á þær. Vöðlið nokkrum slikum
pokum í vöndul og nuddið af.
Miðar á rúðunni
Þeir sem hafa fengiö limmiða frá
hinu opinbera á rúðuna hjá sér er ráð-
lagt að bleyta miðann með heitu ediki.
Skrapið svo varlega af en vætið í ediki
eftir því sem þarf þar til miðinn er far-
inn. Sítrónusafi gerir sama gagn. Það
er einnig hægt aö bera á salatolíu. Hún
þarf að vera á smástund og er svo
skröpuð af. Ef þarf að losa límmiða af
númeraplötunni eða stuðaranum er
gott að væta hann með naglalakkseyði
(acetoni) eða kveikjaralegiog skafa síð-
an af með rakvélablaði eða hnífi.
Tjörueyðir
Bleytið tjörubletti með línolíu. Látið
bíða þarf til blettimir hafa mýkst.
Nuddið síðan með tusku sem bleytt
hefur verið í oliunni. Sumir segja að
hnetusmjör virki sem tjörueyðir!
Ryðblettir
Losnið við ryðbletti af stuðcu'anum
með því að nydda þá með álpappír sem
hefur veirð vöðlað saman eða notið
fina stálull. Einnig er hægt að nota
sápufyllta stálullarhnoðra og steinolía
kemur líka að gagni.
Rispur
Ef þú hefur fengið rispu á bílinn og
vilt fela hana þar til þú ferð með bílinn
á verkstæöi skaltu nudda samlitum
vaxlit vel í rispuna.
Salt í mottunum
Saltblettir geta verið fastir í mottun-
um eftir veturinn. Blandið til helm-
inga ediki og vatni, setjið í tusku og
nuddið mottuna með blöndunni.
Sígarettuaska
. Aska sem heldur áfram að brenna í
öskubakkanum er til leiðinda. Komið í
veg fyrir það meö því að setja matar-
sóta í öskubakkann.
Ódýrara að smyrja
nestið heima
Hvort sem haldiö er í vinnuna
eða í ferðalag út á land kemst eng-
inn af án þess að fá sér að borða.
Sumir kjósa að koma við í sölu-
turni á leiðinni út úr bænum en
Sparið 20.000 á ári
Verð á tilbúnum langlokum í
verslunum er breytilegt en DV fór
í stórmarkað, valdan af handa-
hófi, þar sem langlokan kostaði
230 krónur. Álegg hennar var
skinka, agúrkur, kál og pítusósa.
En ef þetta hráeftii, sem er í tilbú-
inni langloku, er keypt í minnsta
fáanlegu magni, kostaði það sam-
anlagt 589 krónur. En vitanlega er
aðeins lítið notað af pítusósu, káli,
skinkunni og agúrkunni, þannig
að skoða verður hvað hvert fyrir
sig kostar mikið. Ef miðað er við
að notaður sé aðeins hluti af
hveiju verður niðurstaðan sú að
langlokan, sem búin er til heima,
kostar að-
e i n s „
145 kr.
aðrir smyrja sjálfir nestið og
geta með því sparað töluverða
peninga. DV kannaði hvort
hægt væri að vera hagsýnn
með því að kaupa nestið úti í
búð og smyrja það heima í
stað þess að kaupa tilbúna
langloku í verslun.
145 krónur. Langlokan sjálf kostar
88 krónur, 2 sneiðar af skinku 35
krónur, agúrkusneiðar 4
krónur, kál 9
krónu’-
hægt sé að gera enn
hagkvæmari
innkaup
þegar
kemur
að sam-
lokum
þar sem
brauð-
sneiðar
eru
Samlokur ódýrari
En það er ekki sjálfgefíð fyrir
hvem sem er að smyrja nestið
sjálfúr. Að sjálfsögðu er gert ráð
fyrir því
Tilbúin út úr búð
Heimatilbúin
og einn tuttugasti af pitusósu 9
krónur. Það er því tvímælalaust
hagkvæmara að smyrja nestið
heima því með því sparast 85
krónur í hvert skipti. Ef ein-
hver kaupir sér langloku á
hverjum degi alla fimm
vinnudaga vikunnar, allt
árið um kring, sparar
hann rúmlega 20.000
krónur yfir árið. Það mun-
ar um minna.
Langloka Brauöhleifur í stærra
Sklnka 2 sneiöar notaöar
Agúrka 1/10 notaöur
Kál 1/10 notaöur
Pítusósa 1/20 notaöur
Langlokan, tiibúin
svo að ekkert skemmist. En á
sama hátt má einnig hugsa sér að
lagi 88 kr.
35 kr.
4 kr.
9 kr.
9 kr.
■st í
145 kr. dýr-
ari kant-
inum. Fyrir þá sem engan
tíma hafa þýðir hins vegar ekkert
að spara og líklega einfaldast að
telja
Heimatilbúin langloka
að viðkomandi geti
geymt það sem gengur af hverju
sinni í kæli,
notaðar sem
brauðmetið í máltíðinni. Tvær
brauðsneiðar af heilu brauði
kosta aðeins brot af því sem lang-
lokan kostar og verður
hún að
Sykrið morgun
kornið sjálf
Það ætti ekki vera
erfitt að finna hvar
morgunkornið er í
stórmörkuðunum.
Kornið tekur mikið
pláss enda kaupir svo
gott sem hvert og eitt
einasta heimili ein-
hvers konar morgun-
korn. En það er ekki
sama hvað er keypt -
sumt er hollara en ann-
að. Og framboðið af
öðru er meira en af
hinu, nefnilega
sykraða korninu. Til
þess telst t.d. Cocoa
Puffs, Honey Nut Cher-
ioos og það kom sem
hefur eins konar syk-
urhjúp utan á því. Til
Cheenos
þess holla telst Corn
Flakes og Cheerios sem
er greinilega ekki jafn
vinsælt og hið sykraða
því það er mun minna
framboð í hillum af
því. Hlutfollin era einn
á móti fimm í þeirri
verslun sem DV kann-
aði hjá. Og hið sykraða
kostar meira. Að jafn-
aði um 30 krónum dýr-
ara og gæti hin hefð-
bundna vísitölufjöl-
skylda sparað nokkuð
á því að kaupa ósykrað
og setja sjálft á sykur-
inn heima sem fæst á
góðu verði í hvaöa
stórmarkaði sem er.
Alltí
garðinn
og garðvinnuna
Vantar þig gróðurmold, fræ, áburð,
blómapotta, verkferi, styttur og skraut
í garðinn eða eitthvað annað sem snýr
að garðyrkju, blóma- eða trjárækt? Hjá
FRJÓ ferðu mikið úrval af allskonar
vörum til garðyrkjustarfa, á frábæru
verði.
Við höfutn allt sem þú þaift \
til að prýða garðinn þinn! ;
©FRJ0
STÓRHÖFÐA 35, 112 REYKJAVÍK
SÍMI 567 7860, FAX 567 7863