Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Qupperneq 10
plötudómur
Skrattar
„Tribute“-plötur hafa lengi
verið við lýði og m.a.s. komið
út á Islandi (Megas og Villi
Vill). Bestar eru þessar plötur
þegar tónlistarmenn votta tri-
bute-hafanum virðingu sína
með því að fara frjáls- og frum-
lega með tónlist hans en ekki
þegar hermt er eftir á augljós-
an hátt. Hér hitta ýmsir skrattakollar
með samning við bandariska harð-
kjama-merkið Victory eina af sínum
andlegu ömmum, Motorhead.
Motorhead er í raun bassaleikar-
inn Lemmy. Hann stofnaði nýtt
band þegar hann var rekinn úr sýru-
sveitinni Hawkwind 1975. Hann vildi
að það héti Bastard en umboðsmað-
Built for Speed
A Motorhead Tribute -k'k'k
ommu sina
urinn sagði að með slíkt
nafn kæmist bandið aldrei
inn á sjónvarpsþáttinn Top
of the Pops. Lemmy lét und-
an og breytti nafninu í
Motorhead. Upp frá því hef-
ur Lemmy aldrei látið und-
an og boðið aðdáendum sín-
um upp á hrátt, kraftmikið
og drulluskítugt rokk og fokking ról.
Hann er löngu orðinn goðsögn í
rokkinu, á svipuðum kaliber og
Ozzy og Alice Cooper, nema hvað
Lemmy fer seint að spila golf eins og
gungan hann Alice. Hans rokk og líf
er nefnilega eins mikið „alvöru" og
vartan sem stendur út úr andlitinu á
honum.
Meistari Lemmy.
Þetta rokk á að vera hrátt,
sveitt og drullugt og spilað
hátt í suddalegum partíum.
Skál fyrir því!
Allir sannir rokkarar finna sig því
i Lemmy og ungu strákarnir í hard-
kor-böndunum hér gera vel við
groddalög Motorhead, hjakka á
klassíkinni með bros á vör. Þeir gera
þó ekkert nýtt við lögin, enda misstu
þau alveg marks með einhverri til-
raunastarfsemi: Þetta rokk á að vera
hrátt, sveitt og drullugt og spilað
hátt í suddalegum partíum. Skál fyr-
ir því! -glh
■llSlt&lðlÍBfieiHllÍBlj
,ji ^ ,31
t'r-t-y-i-i- = Gargandi snilld!
icicirtr = Ekki missa af þessu.
i-idr = Góð afþreying.
i- = Notist í neyc
.0.= Tímasóun
J??C= Skaðlegt
r-. r- /^,
í ■ I Í \ss^
Vinýll
jólabarátlunni
Þó það sé varla komið sumar er
vetrarútgáfan íslenska farin að
skýrast. Margar spútniksveitir láta
í sér heyra á ný. Ensími kemur
með nýja plötu og Maus og Qu-
arashi verða með kombakk í
plötubúðunum. Þá eru strákamir í
Vinýl langt komnir með sína plötu
þó ekkert lag hafi verið klárað. Um
tíma leit út fyrir að fyrsta stóra
platan þeirra kæmi fyrir síðustu
jól en því var slegið á frest enda
bræðurnir uppteknir í meiki með
Móu systur. Sumarsafnplöturnar
verða svo á sínum stað, m.a. hin
árlega „nýbylgju“-safnplata Sprota.
Fyrst var það „Spírur", þá „Kvist-
ir“, en nú hlýtur röðin að vera
komin að „Könglum".
Sæti Vikur LAG FLYTJANDI 13/5 6/5
1 5 ALLOUTOFLUCK SELMA (EUROVISION) 1 2
2 5 CANNED HEAT JAMIROQUAI 3 3
3 5 IT’S NOT RIGHT BUT IT’S OK . WHITNEY HOUSTON 4 7
4 9 PROMISES THE CRANBERRIES 5 16
5 15 LADYSHAVE GUS GUS 2 1
6 3 RIGHT HERE RIGHT N0W .... FATBOY SLIM 7 13
7 1 SECRETLY SKUNK ANANSIE
8 4 NEW NO DOUBT 6 15
9 2 THINKING OF YOU LENNY KRAVITZ 11 -
10 10 WHY DON’T YOU GET A JOB .. OFFSPRING 10 8
11 7 EINN MEÐ ÞÉR SKÍTAMÓRALL 8 6
12 13 TENDER BLUR 12 10
13 9 STRONG ROBBIIÍ WILLIAMS 15 12
14 3 LIVIN’LA VIDA LOCA RICKY MARTIN 30 39
15 9 MY NAME IS EMINEM 13 5
16 6 EVERY YOU, EVERY ME PLACEBO 19 20
17 5 ELECTRICITY SUEDE 16 18
18 3 I WANT IT THAT WAY BACKSTREET BOYS 18 34
19 5 NEÐANJARÐAR 200.000 NAGLBÍTAR 14 9
20 8 IN OUR LIFETIME TEXAS 25 21
21 4 HVERJUM KEMUR ÞAÐ VIÐ .. STUÐMENN 21 24
22 12 YOU STOLE THE SUN FROM ME .MANIC STREET PREACHERS 9 4
23 3 FLAT BEAT MR OIZO 25 30
24 7 REALLIFE BON JOVI 26 27
25 2 GENG í HRINGI SÓLDÖGG 28 -
26 6 IFYOUBELIVE SASHA 20 14
27 2 CLOUD NUMBER NINE BRYAN ADAMS 38 -
28 2 BLUE MONDAY ORGY 23 -
29 3 LOOKATME GERI HALLIWELL 33 40
30 6 THANK ABBA FOR THE MUSIC VARIOUS ARTISTS 22 19
31 2 9PM (TILL C0ME) ATB 35 -
32 4 SWEAR IT AGAIN WESTLIFE 34 31
33 7 TEQUILA TERR0VISI0N 27 23
34 1 REDALERT BASEMENT JAXX Utiil
35 2 TABOO GLAMMA KIDD & SHOLA AMA 40 -
36 14 STR0NG ENOUGH CHER 29 17
37 1 SOMETIMES BRITNEY SPEARS
38 1 BOOM BOOM BOOM BOOM ... VENGABOYS KiUli
39 2 CRAZY LUCID 31 -
40 1 ONEANDONE .....................EDYTA GORNIAK
Bjóðum Basement
Jaxx velkomna á
listann: „Red Alert“
númer 34.
og jákvaitt
ghafn
NR. 324
vikuna 20.5-27.5. 1999
Skin og strákarnir í Skunk Anansle
fljuga i númer sjö með „Secretly".
Fatboy Slim nr. 6:
Einmitt hér - einmitt
núna!
í fríhöfnum heimsins og Kringl-
um er nú verið að spila nýjustu
plötu skosku sveitarinnar Texas.
Hún heitir „The Hush“ og er full af
hrekklausri popptónlist sem líður
þægilega í gegnum vitin eins og
hljóðrænt ilmvatn eða ný plata
með Simply Red. Við getum kallað
þetta uppapopp ef við viljum vera
rætin en það er svo sem hægt að
lenda í verri tónlist í fríhöfnum
(t.d. einhverju með panflautum).
„The Hush“ er fimmta plata
Texas. Bandið var stofnað í Glas-
gow fyrir 10 árum þegar Johnny
McElhone var kynntur fyrir átján
ára söngkonu, Sharleen Spiteri.
Johnny hafði verið í Altered Ima-
ges og Hipsway, tveim hljómsveit-
um sem vöktu athygli fyrir sitt
góðlega popp, en Sharleen ætlaði
að leggja hárgreiðslu fyrir sig og
hafði litla reynslu af söng. Þau
sömdu saman lagið „I Don’t Want
A Lover“, sem varð geysivinsælt,
og framtíðin var ráðin.
Náttúruleg blanda
Nýja platan kemur í kjölfar vin-
sælustu plötu Texas, plötunnar
„White on Blonde sem hefur selst í
4 milljónum eintaka. Ilmvatnið á
„The Hush“ ætti auðveldlega að
viðhalda vinsældunum því sándið
Flughafnarpopp
Texas er poppuð
soul-tónlist í slíp-
uðu og geril-
sneyddu umhverfi.
Nýja platan fór
auðvitað beint á
toppinn í Englandi
og er þar enn
er slípað eins og barnsrass og
kampavínspoppið illþyrmilega
grípandi.
„Mér finnst „The Hush“ vera
sexí plata,“ segir söngkonan. „Og
hún er mjög jákvæð plata.“ Mér
fannst „White on Blonde" mjög
sterk plata en hún var safn af lög-
um sem tók okkur þaðan sem við
vorum þangað sem við vildum
fara. Og við viljum vera þar sem
við erum núna á „The Hush“. Ég
meina, allir vita að við filum Stax
og Bítlana og Motown og A1 Green
en núna heyrast áhrif af alls konar
poppi sem við fílum - smá Abba,
Sharleen Spiteri fær sér einn stuttan sundsprett.
smá Roxy Music, jafnvel smá Hum-
an League. Þetta blandast allt sam-
an á mjög náttúrulegan hátt hjá
okkur.“
Besta platan
Johnny og Sharleen semja lögin
á „The Hush“ saman. Sharleen er
þó „aðal“, Johnny greyið fær t.d.
sjaldan að vera með á myndum.
Reyndar eru þrír aðrir karlar í
hljómsveitinni en þeir virðast bara
spila og halda kjafti. Söngkonunni
er tranað fram og þykir hún flink
og góð.
„Ég vissi þegar við byrjuðum -
þegar ég var 18 og eina lagið sem
Texas hafði samið var „I Don’t
Want a Lover“ - að við yrðum ein-
hvem tíman nógu góð til að búa til
plötu sem væri jafnfrábær og „The
Hush“. Það var enginn efi. Fyrir
mér er þessi plata ekki bara okkar
besta til þessa heldur sú plata sem
allur okkar ferill hefur gengið út á
að gera.“
Þá veistu það og líka hvað þetta
er sem þú heyrir i flughöfnunum í
sumar.
Taktu þátt í valí
listans í síma 550 0044
nYiwmnwi
íslenski listinn er samvinnuverkefni Bylgjunnar og DV.
Hringt er í 300 til 400 manns á aldrinum 14 til 35 ára, af
öllu landinu. Einnig getur fólk hringt í síma 550 0044 og
tekið þátt í vali listans. íslenski listinn er frumfluttur á
fimmtudagskvöldum á Bylgjunni kl. 20.00 og birtur á
hverjum föstudegi í DV. Listinn er jafnframt endurfluttur
á Bylgjunni á hverjum laugardegi kl. 16.00. Listinn er
birtur, aö hluta, i textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar.
íslenski listinn tekur þátt í vali „World Chart“ sem
framleiddur er af Radio Express í Los Angeles. Einnig
hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er í
tónlistarblaðinu Music & Media sem er rekið af bandariska
tónlistarblaðinu Billboard.
Yfirumsjón meö skoðanakönnun: Halldóra Hauksdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó
Handrit, heimildaröflun og yfirumsjón með framleiöslu: Ivar Guðmundsson - Tæknistjóm og framleiösla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn
Steinsson Útsendingastjóm: Ásgeir Kolbeinsson, Jóhann Jóhannsson og Ragnar Páll Ólafsson - Kynnir í útvarpi: Ivar Guðmundsson
10
f Ó k U S 21. maí 1999