Dagblaðið Vísir - DV - 21.05.1999, Síða 11
Eminem er hvítur í heimi þar sem
blökkumenn ráða ríkjum, rappheiminum.
Hann hefur fengið sinn skammt af mót-
lætinu en gerir grimmt grín að öilu saman.
/ I /
Hæ! - mæ neim is - ha! - mæ
neim is. Þú þekkir þetta. Rappar-
inn heitir þó hvorki Eminem né
Slim Shady eins og hann heldur
fram, heldur Marshall Mathers.
Þessi 23 ára hvíti rappari skaust
upp á poppbeljuna öllum að óvör-
um með smeilinn „My name is“ og
varð nokkurn veginn frægur á
einni nóttu. Platan hans „Slim
Shady LP“ er full af úrvalsrappi og
textamir eru bráðfyndnir og ógeðs-
legir í senn.
Marshall veit hvað hann syngur.
Hann er úrvalseintak af „hvítu
drasli", mamma hans ól hann upp
á flækingi um Bandaríkin þvi
pabbinn stakk af þegar stráksi var
6 mánaða, bölvaður.
„Ég veit að mamma reyndi að
ala mig upp eins vel og hún gat,“
segir rapparinn og er ekkert fúll út
í þá gömlu þó hann syngi ekki um
hana af sama kærleika og svörtu
rappararnir. „Við vorum á bótum
og mamma vann aldrei handtak. Á
tímabili þurftu félagar mínir að slá
saman í skó handa mér. Ég var
hvítt drasl og það er engin sjarmi
yfir því. Ég skammast mín þó ekki
fyrir neitt.“
Kúl moðerfokker
Marshall ólst upp í fátækrahverf-
um þar sem mikið var af blökku-
mönnum. Það var því eðlilegt að
snemma yrði hann smitaður af
rapptónlistinni. Hann fattaði þó
ekki þann möguleika að hann gæti
rappað sjálfur fyrr en hann heyrði
i bleiknefjunum í Beastie Boys.
„Á götuhornum héngu krakkar
og röppuðu en þegar ég reyndi að
vera með var ég oftast dissaður.
Liðið var alltaf upptekið af húðlitn-
um á mér og þegar ég fór að kom-
ast inn á klúbba varð þetta veru-
lega slæmt. Ég var ekki mjög góður
en ég vissi að ég yrði betri. Þegar
ég hafði tækifæri til að rappa lét ég
vaða en var yfirleitt púaður af svið-
inu.“
Hvaöa áhrif hefur þaö hafí á þig
sem rappara aö vera hvítur?
„í byrjun kom ég alltaf fram fyr-
ir svarta áhorfendur og fólk sagði:
„Þú ert ágætur af hvitingja að
vera,“ og ég tók það sem hól.
Seinna fór ég að pæla: „Hvem djöf-
ulinn þýðir þetta?“ Það biður eng-
inn um að fæðast, enginn ræður
því hvemig hann er á litinn eða
hvort hann er feitur eða mjór. Ég
varð að vinna mig upp á ákveðinn
stall áður en menn gátu litið fram
hjá húðlitnum. En ég gafst ekki
upp og smám saman fékk ég viður-
kenningu. Það besta sem nokkur
hefur sagt við mig var þegar ein-
hver moðerfokker í Detroit sagði:
„Mér er sama hvort þessi gaur er
grænn eða gulur, þessi moðer-
fokker er kúl.“
Reiðin í rappinu er
fantasía
En í Ijósi sögunnar hlýturöu aö
skilja af hverju blökkumenn eiga
þaö til aö dissa þig.
„Auðvitað, en samt, ég get 'ekki
tjáð mig um allt það sem hefur
gerst milli svartra og hvítra í sög-
unni. Ég var ekki á staðnum. Ég
get ekki séð að það að fæðast með
einhvern húðlit geri mann að verri
manneskju."
Hefuróu óskaö þess aö vera svartur?
„Já, stundum hugsaði ég með
mér að ef ég.væri svertingi þá væri
þetta ekki svona mikið mál. En ég
er ekkert fífl - ég get vel ímyndað
mér hvernig svertingjum líður í
þessu þjóðfélagi. Tónlist er sögð
vera án landamæra, að fólk geti
hlustað á það sem það vill og feng-
ið eitthvað út úr því. Og fyrir mér
er rappið allt.“
Hvaó finnst þér um hvíta rappá-
hugamenn?
„Við getum ímyndað okkur hvít-
an krakka sem hlustar á rapp.
Þetta er krakki sem hefur allt til
alls og mér fínnst það merkilegt að
hann skuli vilja hlusta á rapp. Það
plötudómur
Rykið c
af snilli
Hér er komin önnur „tribute"
plata. Nú er grúskað í lögum Þjóð-
verjans Peters Thomas sem
samdi tónlist fyrir kvikmyndir og
sjónvarpsþætti. Hans blómaskeið
var á sjöunda áratugnum og í dag
er kallinn orðinn 73 ára. Þýska út-
gáfan Bungalow gefur út en hún er
þekkt fyrir sín þrumuskot þegar
kemur að tilraunapoppi og al-
mennri nýsköpun. Útgáfan vill
meina að Peter eigi heima í flokki
með frægðarmönnum á borð við
Henry Manchini, John Barry og
Ennio Morricone og hefur unnið
ötullega að því að flagga merki
karlsins. Á þessum tvöfalda pakka
er honum gert hátt undir höfði. Á
Warp Back
to Earth ★ ★★★
«
I
fyrri disknum krukka ýmsir jóla-
sveinar í gömlum teipum, bæta við
bitum og sprella í ailar áttir. Út-
koman er heilbrigð heild sem
rennur í gegn með grúfið að leiðar-
ljósi: verulega safarikt sófapopp
sem á jafnt heima á dansgólfínu og
inni í stofu. Tipp topp hetjur eins
og Stereolab, Saint Etienne,
Coldcut og High Llamas fara á
kostum í bland við góðkunningja
Bungalow, sveitir eins og Dauerf-
isch og Momus.
Á seinni disknum er ómenguð
snilld Peters í sinni upprunalegu
mynd. Þessi tónlist var í geimsjón-
varpsþættinum „Raumpatrouille"
(Geimvaktin) og er verulega vit-
Útkoman er heilbrigð heild
sem rennur í gegn með
grúfið að leiðarljósi:
verulega safaríkt sófapopp
sem á jafnt heima á
dansgólfmu og inni í stofu.
fyrrt og framúrstefnuleg. Algjör
sýra og mun ferskari en tónlistin
sem Peter gerði við njósnaraþætt-
ina um Jerry Cotton sem annað
þýskt merki, Crippled Dick, gaf út.
Peter Thomas á það sameiginlegt
með öðru þýskum meistara, Gert
Wilden (Schulmadchen Report),
að hafa verið langt á undan sinni
samtíð. Hér fær hann uppreisn
æru á bráðskemmtilegum og þétt-
holda pakka sem fólk með eyrun í
lagi á að heimta í skóinn.
-glh
Tricky hefur klárað upp-
tökur á fimmtu plötu sinni. Síð-
ustu tvær voru hrikalega þungar
og tormeltar og almenningur fúls-
aði við þeim. Nú getur verið að
Tricky vilji koma til móts við víð-
tækan smekk fólks og hann fékk
Dj Muggs, hljóðstjórnanda Cy-
press Hill og Ice Cube, til að vinna
nýju plötuna fyrir sig.' Það er því
allt útlit fyrir að Tricky sé snúinn
aftur að hipp-hopp rótunum sín-
um. Nýja platan er enn nafnlaus
en kemur út seinna í sumar.
Má bjóða þér
Metallica-varalit?
Rokkurunum í
Metallica fannst
ekkert sniðugt
þegar þeir komust
að því að snyrti-
vörufyrirtækið
Victoria’s Secret
var farið að fram-
leiða tegund af varalit sem heitir
eftir bandinu. Talsmenn snyrti-
vörufyrirtækisins segjast vona að
hægt verði að útkljá málið án af-
skipta dómstóla en það er hiti í
rokkurunum og þeir heimta rétt-
læti, eða alla vega gommu af pen-
ingum.
Doktor Bowie,
eins og hægt er að
kalla gömlu dræs-
una hann David
eftir að tónlistar-
háskólinn í
Berkeley aumkaði
sig yfir hann, sér
um tónlistina í
tölvuleiknum
Omikron: The Nomad Soul sem
kemur á markaðinn í október.
Báví lék líka einn karakterinn í
leiknum, Boz. Þá er karlinn dug-
legur í raunveruleikanum, segist
vera búinn að semja 100 ný lög og
er að vinna í nýrri plötu. Hann
segir að helmingurinn cif þessum
lögum sé lélegur en hinn helming-
urinn góður.
segir mér að fyrir honum er upp-
reisnin og reiðin í rappinu bara
fantasía. Hann vill vera harður,
hann vill lumbra á moðerfokkur-
um án þess að vita hvers vegna.
Krakkar eins og hann eru bara
hrifnir af menningunni í kringum
rappið. Þeir heyra lag um fólk sem
hefur þolað harðræði og vilja kynn-
ast þessu sjálfir. Það sama á við um
svarta krakka sem fæddust með
gullskeið í kjaftinum. Tupac er
bara fantasía fyrir þeim.“
En getur rappiö opnaö fólki nýja
sýn á lífiö?
„Ég veit ekki, maður. Stundum
finnst mér eins og rappið geti
bundið enda á kynþáttahatur. Ég
myndi fíla það, þó það væri ekki
nema í einn dag, að geta labbað í
gegnum hverfi og séð asískan
gaur á einum tröppum og svert-
ingja og hvítingja á annarri ver-
önd og Mexíkóuia ganga fram hjá.
Ef við byggjum í raunverulega
kynþáttablönduðmn heimi væri
rasismi eitthvað sem enginn
myndi nenna að pæla í. En ég
held samt að ég og þú eigum ekki
eftir að sjá þannig heim á okkar
ævi.“
Þyska alabandið Ramm-
stein er t vinsælasta rokk-
bandiö á Liandi i dag. Nýjasta
platan þeirra hefur selst i tæp-
Íega 3000 eintökum og selst enn.
Nú berast þau gleðitíðindi aö
von sé ;'t nýrri Þetta er
tónleikaplata og alKpOlegur út-
gáfudagur er 30. A ágúst.
Nokkrutn vikum seinpf kemur
út myndband af sötnti lónleik-
um. Pakkinn heitir „Live aus
Berlin", tónleikarnir voru i
ágúst i fvrra og vortt notaöar 10
kamerur til að hin einstæða
stemning á Rammstein-tónleik-
um skini í gegn. Gefið verður út
takmarkað úpplag af disknúm
tneð tónleikunum í' Uetkl stnni
(90 min.) en annars v'erður disk-
urinn 70 minútur. Engin ný lög
vortt spiluð, iftra efni af Herzel-
eid og Sehnsucht.
í juni fara buffin un^j^mer-
iku tneð Skunk AnaiWfn?togi.
Rammstein ætla i hljóðver i
haust en þar sem tónlist þýskar-
anna er lengi i vinnslu er ekki
hægt að búast viö að nýja hljóö-
versplatan Ivepíiii út fyrr en ttm
mitt ár 2000. •’
Mánuöi áöttr en Ranunstein-
tónleikapakkinn kemur út verö-
ur hægt aö skoða brot af dýrö-
inui á www.rammstein.de.
21. maí 1999 f ÓkUS
11