Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1999, Page 4
20
/•"
Trjáplöntur, fallegt birki,
runnar og úrval sumarblóma.
Skuld, gróðrarstöð,
Lynghvammi 4,
Hafnarfirði.
Sími 565 1242
Opið til kl. 21.
Sunnudagatil kl. 18._
Ný sending væntanleg
Glæsilegt úrval
Nýjar gerðir aí gosbrunnum, úti og inni, styttum,
tdælum og Ijósum, garðdvergum,
fuglum o.fl. til garðskreytinga.
' &
m Æ tfÍk I
Vörufell hf.
v/Suðurlandsveg,
Hellu
Sími 487 5470
Nauðsynleg
áhugafólki
um garðrækt
Jafnt fyrir
byrjendur sem vana í|
garðyrkjumenn,
• 550 blaðsíður í
stóru broti.
• 3.000 iitmyndir og
skýringarteikningar.
-
FORLAGIÐ
Gæðamold
í garðinn
Grjóthreinsuð mold,
blönduö áburði,
skeljakalki og sandi.
Þú sækir eða
við sendum.
Afgreiðsla á gömlu
sorphaugunum
í Gufunesi.
GÆÐAMOLD
MOLDBLANDAN - GÆÐAMOLD EHF.
Pöntunarsími 567 4988.
Hús og garðar
MIÐVIKUDAGUR 2. JUNI 1999
Skraut
í garði
Fallegur gróður setur alltaf
mikinn svip á umhverfið en það
er ýmislegt annað sem hægt er
nota til að lífga upp á garðinn.
Margir skreyta garða sína með
efnivið sem finna má í íslenskri
náttúru, t.d. steinum og trjá-
drumbum. Á myndinni hér til
hliðar má sjá dæmi um slikt.
Þessi stóri steindrangur, sem veg-
ur tvö tonn, er í garði í Árbæ og
hefur fylgt eigendum sínum borg-
arhluta á milli. Eins og nærri má
geta kostar það nokkra fyrirhöfn
aö flytja steininn en óneitanlega
setin hann sterkan svip á um-
hverfi hússins.
Listaverk eru æ algengari sjón i
einkagörðum. Eitt fyrsta verk
íbúa hússins á myndinni hér fyr-
ir ofan var að fmna listaverkinu
Jörð eftir Grim Marinó Steindórs-
son stað, og eins og sjá má sómir
það sér vel.
Margir skreyta garða
sína með efnivið
sem finna má í íslenskri
náttúru.
wmummmmm
Þurrkuð blóm og laufblöð
Þurrkuð og pressuð blóm má
nýta á margan hátt. Þau eru vinsæl
í skreytingar og ýmiss konar fond-
ur. Flest okkar muna eftir því að
hafa í æsku tínt blóm og jurtir,
stungið þeim inn í þykkar bækur,
sett þær undir rúmfótinn og beðið í
langan tíma eftir að blómin þorn-
uðu. Til er einiold leið til að varð-
veita fallegustu plöntumar úr garð-
inum með mun minni fyrirhöfn.
Flest okkar muna eftir
því að hafa í æsku tínt
blóm og jurtir, stungið
þeim inn i þykkar bækur,
sett þær undir rúmfótinn
og beðið í langan tíma eftir
að blómin þornuðu.
Takið ræktarlegar og fallegar plönt-
ur og lauf úr garðinum. Setjið á flat-
an disk og leggið eldhúsbréf, dag-
blaö eða annan rakadrægan pappír
bæði undir og ofan á. Gætið þess að
blómin snerti ekki hvert annað.
Notið múrstein eða eitthvað annað
slétt og þungt, sem þolir að fara í ör-
bylgjuofn, tii að pressa blómin. Eft-
ir nokkrar mínútur í örbylgjuofnin-
um eru þau tilbúin. Tímalengdin fer
eftir því um hvemig blóm er að
ræða og styrkleika örbylgjuofnsins.
Þurrkuð blóm eru skemmtileg
minning um fallegan garð og vel
heppnaða ræktun.
-ÓSB
Litir haustsins sóma sér vel i þurrskreytingum.