Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1999, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1999, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1999 9 Utlönd Rússar senda birgöaflutningabíla til Kosovo: NATO tilbúið að afvopna eftirlegukindur Serba Fi’iðargæsluliðar Atlantshafs- bandalagsins (NATO) voru þess al- búnir í nótt að afvopna alla serbneska hermenn, lögregluþjóna eða aðra vopnaða Serba eftir að frestur þeirra til að yfirgefa Kosovo- hérað rann út á miðnætti. Svo virðist hins vegar sem allar áætlanir um brottflutning serbnesku hermannanna hafi stað- ist. Ekki bárust neinar fregnir um tafir frá friðargæslusveitunum. Serbunum var gert að hafa sig á brott frá landamærasvæðunum í suðri og austri og úr héraðshöfuð- borginni Pristina. Breskir hermenn úr NATO-lið- inu, sem fóru um Pristina snemma í morgun, urðu ekki varir við neina Serba. Fréttamaður Reuters, sem var við norðurjaðar yfirráðasvæðis NATO í Kosovo, greindi frá því að í dögun hefðu tugir bifreiða með serbneska hermenn, óbreytta borgara og her- Þessu albönsku börn eru greinilega glöð yfir að vera nú loksins aftur á leið heim tii Kosovo úr flóttamannabúðum í Makedóníu. Serbar eru aftur á móti farnir að flýja heimili sín og margir hverjir kveikja í þeim á flóttanum. gögn enn verið á leið að landamær- unum. Hann sagði að tóm farartæki, einkum ílutningabílar og rútur, væru á leið til Pristina til að flytja burt þá Serba sem þar væru enn. Varnarmálaráðuneyti Rússlands vísaði í morgun á bug fregnum serbneskrar útvarpsstöðvar að nýr flokkur rússneskra hermanna væri kominn til Kosovo. Ráðuneytið sagði að bílar sem hefðu lagt upp frá Bosníu væru hluti birgðaflutninga sem samið hefði verið um við NATO. Hollenskir friðargæsluliðar fundu brenndar líkamsleifar um tuttugu Kosovo-Albana, að því að talið er. Þá fundu ítalskir hermenn tvær fjöldagrafir i vesturhluta Kosovo. Talið er að um 120 lík séu í annarri þeirra. Óbreyttir borgarar úr röðum serbneska minnihlutans héldu áfram að flýja þúsundum saman af ótta við hefndaraðgerðir. Morðið á Anne Orderud Paust: Deilan um arfinn var nær leyst Deilan um arfinn í Orderudfjöl- skyldunni í Noregi var í þann veg- inn að leysast þegar Anne Orderud Paust, fyrrverandi ritari norska vamarmálaráðherrans, og foreldrar hennar voru myrt, að því er norska blaðið Aftenposten hefur eftir heim- ildarmönnum sínum. Heimildar- menn blaðsins segja að lögreglan verði því að leita að annarri ástæðu fyrir morðunum en deilunni um hver ætti að fá býli foreldranna. Bróðir Anne Orderud Paust, Per Kristian Orderud, og kona hans, Veronica, hafa verið handtekin vegna morðanna. Áður höfðu hálf- systir Veronicu og sambýlismaður hennar verið handtekin. Per Kristian Orderud vildi ekki að systir hans fengi hlut í býli for- eldranna að þeim látnum. Hann hafði þó að sögn heimildarmanna Aftenposten lýst yflr ánægju sinni með að lausn væri í sjónmáli. Hann fór á hundasýningu ásamt konu sinni um hvítasunnuna og sið- an á kínverskan veitingastað. Þá var búið að myrða foreldra og systur Pers Kristians. Heimildar- menn segja hjónin hafa verið í góðu skapi og hafa algjörlega brotnað niður við fregnina um morðin. Bush fær frá- bærar viðtökur í framboðsferð Viðtökurnar og umsagnirnar sem George W. Bush fékk í fyrstu framboðsferð sinni fyrir forseta- kosningarnar á næsta ári minntu frekar á viðtökur Hollywood- stjömu en rikisstjóra frá Texas. „Hann á gott með að ná sam- bandi við fólk,“ sagði Jerry Grace, slökkviliðsmaður frá Manchester í New Hampshire, um Bush sem allt bendir til að verði forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins. „En við skulum sjá hvað gerist þegar hann þarf að taka þátt í kappræð- um og verður að leggja fram skýr- ar áætlanir,“ bætti slökkviliðs- maðurinn við. Bush var ijóra daga í New Hampshire og gekk ferðin áfalla- laust. Enn er þó langt þar til repúblikanar velja sér forsetaefni, ekki fyrr en sumarið 2000. Breskir krakkar vilja að heiman Bresk börn eru svo þjökuð af ótta við einelti, fjárhagsvandræði og alheimsstrið og hafa svo mikl- ar áhyggjur af framtíðinni að meira en helmingur þeirra vill yf- irgefa heimalandið. Samkvæmt könnun sem gerð var opinber í morgun vilja 55 pró- sent breskra ungmenna flytja til útlanda en aðeins fjórðungur er ánægður þar sem hann er. Af þeim sem vilja til útlanda vilja 27 prósent helst fara til Bandaríkjanna en tólf prósent að- spurðra sögðust vilja flytja til annars lands innan Evrópu. Frakkland: Gaullistar í sárum Þessar nunnur biðu í gær í rigningu eftir að páfamessa hæfist í Kraká í Póllandi. Jóhannes Páll páfi var hins vegar veikur og hljóp staðgengill hans í skarðið. Sfmamynd Reuter Flokkur Jacques Chiracs Frakk- landsforseta, RPR-flokkurinn sem er flokkur gaullista, var í sárum í gær vegna úrslita í Evrópuþings- kosningunum. Hægri flokkarnir í Evrópusambandslöndunum náðu í fyrsta sinn meirihluta í Evrópu- þingskosningunum á sunnudaginn en hægri vindarnir blésu aldrei til Frakklands. Flokkur gaullista hlaut aðeins 12,7 prósent atkvæðanna. Sérframboð Charles Pasqua, fyrr- verandi innanríkisráðherra sem er andvígur Evrópusambandinu, hlaut fleiri atkvæði eða 13,05 prósent. Úrslitin kunna að ryðja braut fyr- ir Alain Juppe, óvinsælasta forsæt- isráðherra Frakklands hingað til. Hann var í gær þeðinn um að veita RPR-flokknum forystu á ný eftir að Nicolas Sarkozy sagði af sér formennsku. Flokkur Chiracs Frakklandsforseta tapaði stórt í Evrópuþingskosning- unum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.