Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1999, Blaðsíða 18
18
MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1999
Fréttir
DV
Lilja Ólafsdóttir, forstjóri SVR, um væntanlegar fargjaldahækkanir:
Eðlilegt að far-
þegar greiði fyr-
ir þjónustuna
„Það er alls ekki víst að af hækk-
unum verði. Þetta er bara stormur í
vatnsglasi stjómmálamanna," sagði
Lilja Ólafsdóttir, forstjóri SVR, er
hún var spurð um væntanlegar far-
gjaldahækkanir fyrirtækisins. „Það
er ljóst að við þurfum að grípa til
einhverra aðgerða til að bæta fjár-
hagsstöðuna og á síðasta stjómar-
fundi var mér falið að koma með til-
lögur til að auka tekjur fyrirtækis-
ins. Ég hef ekki mótað þessar tillög-
ur enn sem komið er og því liggur
ekki fyrir i hvaða formi þær verða.“
Lilja sagði tæpan hálfan milljarð
vanta í reksturinn til að hann kæmi
út á núlli en vildi ekki segja til um
til hvaða ráða yrði gripið til að bæta
stöðuna. Hún nefndi þó fjóra mögu-
leika: í fyrsta lagi þann að SVR hag-
ræddi rekstrinum, þ.e. reyndi að
veita sömu þjónustu fyrir sama
verð. í öðra lagi að SVR drægi úr
þjónustunni með því að láta vagn-
ana fara færri ferðir, m.ö.o. aö
minnka tíðni þeirra. í þriðja lagi að
framlag Reykjavíkurborgar til
rekstursins yrði aukið og í fjórða
lagi að gripið yrði til fargjaldahækk-
ana.
„Eins og staðan er nú þá höfum
við reynt að hagræða og spara í
rekstrinum eftir megni. Við höfúm
einnig fengið ákveðið fjármagn frá
borginni til rekstursins en eftir
stendur bil upp á tæplega hálfan
milljarð sem fargjaldatekjumar
þrnfa eiginlega að brúa.“
Væri ekki æskilegra að Reykja-
víkurborg yki framlag sitt til rekst-
ursins?
„Borgin hefur úthlutað okkur 510
milljónum til rekstursins og tekið
skýrt fram að meiri peningar séu
einfaldlega ekki til. Það finnst mér
að mörgu leyti mjög ábyrg afstaða
því ef framlag borgarinnar yrði
aukið þýddi það einfaldlega meiri
skattbyrði á borgarana. Fjórði
möguleikinn í stöðunni er sá að
hækka gjaldskrána en með því er
verið að láta þá sem nota þjónust-
una greiða fyrir þá þjónustu sem
þeir era raunverulega að kaupa.“
Og er líklegt að sú leið verði far-
in?
„Ég ætla ekkert að segja um það á
þessari sfundu. Við eram að vinna í
þessu eins og er en þetta ætti að
skýrast á allra næstu vikurn," sagði
Lilja Ólafsdóttir að lokum. esig
Lilja Ólafsdóttir, forstjóri SVR, segir
væntanlegar fargjaldahækkanir
bara vera storm í vatnsglasi stjórn-
málamanna.
uppskriftir
Gestir Vísis.is geta nú auöveldaö sér innkaupin og
eldamennskuna. Á nýjum uppskriftavef Vísis.is er aö finna yfir
1000 uppskriftir frá Nýkaup auk greina úr samstarfsmiölum
Vísis.is, einkum DV, um matreiöslu, hollustu og ýmis húsráö.
Slóðin er www.visir.is
Nýkaup
Explorer á leið að bryggju á Höfn. DV-myndir Júlía
Alsælir útlend-
ingará Höfn
- eftir ferð á Skálafellsjökul og Jökulsárlón
Skemmtiferðaskipið Explorer
sigldi inn á Homafjarðarhöfn síðdeg-
is á laugardag, -12. júní. í tilefni þess
að þetta er fyrsta skemmtiferðaskipið
sem kemur til Homafjarðar á þessu
sumri tók Garðar Jónsson bæjarstjóri
á móti skipinu og bauð skipstjóra,
farþega og áhöfn velkomin og færði
skipstjóra körfu með nýveiddum
humar.
Veðrið var ekki alveg það besta
þegar skipið kom, þoka, rigning og
hægviðri. Bræðsluþokan lá yfir
bryggjunni þar sem skipið átti að
leggjast að en færði sig til suðurs rétt
áður en skipið kom. Þeim sem á
bryggjunni vora létti stórum. Geta
skal þess að þessi leiða peningalykt
fer að heyra sögunni til á Höfh þar
sem ný bræðsla er að komast í gagn-
ið.
Fljótt rættist úr veðrinu og um
morguninn var komin glampandi sól
og gott veður og fóru þá farþegarnir,
sem voru um eitt hundrað, upp á
Skálafellsjökul og að Jökulsárlóni og
var hópurinn alsæll með ferðina.
Skipið kom frá Englandi, með við-
komu í Færeyjum, og hélt frá Homa-
firði síðdegis á sunnudag. Var þá
ferðinni heitið til Mjóafjaröarog
áfram austur og vestur fyrir land og
víða verður komið við þar til þessi
hópur lýkur ferð sinni í Reykjavík.
Aö sögn hafnarsögumanns á Höfn
er það Helena Dejak, sem rekur ferða-
skrifstofuna Nonna á Akureyri, sem
sér um ferðir skipsins og hefur hún
hefur Explorer í sumar. Meðal annars
eru áætlaðar tvær ferðir í viðbót í til
Homafjarðar. Von er á skemmtiferða-
skipinu Caledonian Star nk.laugar-
dag með 200 farþega og kemur skipið
aftur seinna í sumar. -JI
Garðar Jónsson bæjarstjóri færði skipstjóranum körfu með nýveiddum
humri.