Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1999, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1999, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1999 Fréttir Þórshöfn: Verkalýðsfélagið vill samvinnu „í vestur" - en sveitarstjórn sameiningu við Austfirðinga Frá Þórshöfn. Þar eru greinilega ekki ailir á einu máli um í „hvaða átt“ sveitar- félagið þeirra skuli leita eftir sameiningu við önnur sveitarfélög. DV-mynd gk DV, Akureyri: Aðalfundur Verkalýðsfélags Þórshafnar samþykkti fyrir skömmu að leita eftir viðræðum við Verkalýðsfélagið á Húsavík, með aukið samstarf og hugsanlega sameiningu i huga. Þetta þykir óvænt í ljósi þess að sveitarstjórn Þórshafnarhrepps hefur dregið sig út úr viðræðum um sameiningu sveitarfélaga í Þingeyjarsýslum og sagt að Þórshafnarbúar horfi frek- ar í hina áttina um hugsanlega sameiningu sveitarfélaga, þ.e. til Vopnaíjarðar og e.t.v. fleiri sveit- arfélaga í þeirri átt. „Þetta tvennt kemur upp á mjög svipuðum tíma og samþykkt okkar er með fyrirvara varðandi það hvað sveitarstjórnin muni gera, enda vissum við það ekki fyrr en daginn fyrir aðalfund okkar að sveitarstjómin væri að horfa í hina áttina“ segir Karen Rut Kon- ráðsdóttir, formaður Verkalýðsfé- lags Þórshafnar. Og hún segir mál- ið reyndar nokkuð ílókið. „Þetta er greinilega mál sem ekki verður farið í strax, það verð- ur að skoðast betur og koma í ljós hvað sveitarstjórnin gerir, málið fer í biðstöðu" segir Karen Rut. En telur hún að vilji félagsmanna verkalýðsfélagsins standi frekar til sameiningar sveitarfélaga í vestur, þ.e. við Húsvíkinga og aðra íbúa í Þingeyjarsýslunum? „Ég veit auðvitað ekki vilja allra bæjarbúa í þessu máli, en þó tel ég að fólk sé hrifnara af því að sameinast í vesturátt. Þessi af- staða sveitarstjórnarinnar kom mörgum hér rosalega á óvart og það eru margir reiðir yfir því að það skuli allt i einu koma fram í fjölmiðlum að hún vilja frekar horfa í hina áttina,“ segir Karen Rut. -gk Umhverfismál: Mengun lítil hér á landi Siv Friðleifsdóttir umhverfisráð- herra kynnti á blaðamannafundi á dögunum niðm'stöður vöktunarmæl- inga á mengandi efnum á íslandi. Þar sagði hún frá starfi nefndar um meng- unarmælingar og skýrsla nefndarinn- ar kynnt. Áður var haldin kynning á öllum efnisþáttum skýrslunar þar sem þeir aðilar sem gerðu skýrsluna kynntu störf sín. Sif talaði mn stöðu íslands gagnvart umheiminum og það að vera vel á varðbergi gagnvart erlendri umhverf- isvá. Hún sagði íslendinga hafa unnið heimavinnu sína mjög vel og dæmi um það væri sá árangur sem náðst hefur gagnvart Bretum og kjamorkuveri þeirra í Sellafield. íslendingar, ásamt Norðmönnum og Irum, hafa einna mest þrýst á Breta. Mjög hefur dregið úr losun geislavirkra efha þaðan í sjó og hefúr það skilað sér í minni meng- Fyrsti fréttamannafundur nýs ráðherra. im í sjó hér á landi. Að sögn Davíðs Egilssonar, formanns nefndarinnar, voru einu slæmu fféttirn- ar þær að þrávirk efni, sem notuð eru í iðnaði, mælast hér á landi. Ekki var far- ið að nota slík efni fyrr en fyrir 50-70 ár- um og þvi eru þetta ekki góðar fréttir. Staða mengunarmála hér á landi er góð og eru áframhaldandi rannsóknir nauðsynlegar til þess að svo verði áffam. Sif Ffiðleifsdóttir sagði að þarna gætu legið sóknarfæri fyrir okkur ís- lendinga. Hún sagði að með auknum kröfum neytenda skapaðist aukið svig- rúm fyrir íslenskar vörur. Við yrðum samt að vera á varðbergi því mikið lægi við og mikilvægt að lenda ekki i ein- hveiju svipuðu og kúafárinu breska eða því sem er að gerast með landbúnaðar- vörur ffá Belgiu um þessar mundir. -EIS L 34 M fc ^ r I f L I| ■ J I .-Ær n ‘ ;L lM mm e,nso9 pabbi? I tilefni feðradagsins 20. júní standa Vísir.is, DV og Matthildur fyrir le'rtinni aö líkustu feðgðum landsins. Kosning stendur nú yfir á Vísi.is um líkustu feðgana en henni lýkur 17. júní. Þeir sem hreppa titilinn fá að launum Lundúnar-ferð með Samvinnuferðum-Landsýn, sportpakka frá Spar-Sport og snyrtivörutösku frá Giorgio Armani. Kíkið á Vísi.is og takiö þátt í valinu. Úrslrt verða kynnt í helgarblaði DV, 19. júní. www.visir.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.