Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1999, Page 10
10
enning
MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1999 JjV
„Þetta er svona
ferðatöskusýning"
- stutt spjall við Hrein Friðfinnsson
Einn af íslands bestu sonum, Hreinn Frið-
flnnsson myndlistarmaður úr Dölum vestur,
opnar sýningu í Galleríi Ingólfsstræti 8 á
sjálfan þjóðhátíðardaginn kl. 17, í þann
mund sem bömin em búin með kandíflossið,
hafa týnt litlu þjóðfánunum sínum og sleppt
500 króna helíumblöðmnum sínum upp í
ljósvakann.
Hreinn er á hraðferð að þessu sinni, snýr
til meginlandsins á laugardag til að ferðast
til Ríga, þar sem hann á að opna sýningu og
taka þátt i málþingi.
„Ég er forvitinn um Eystrasaltslöndin, auk
þess sem mér þykir sjálfsagt aó styöja vió alla
myndlistarstarfsemi þar. “
Eins og venjulega er Hreinn ekki marg-
máll þegar kemur að því að segja frá því sem
hann ætlar að hafa á sýningu sinni.
„Æi, ég veit ekki hvaó veröur. Þetta er
svona feröatöskusýning. Það kemur í Ijós á
morgun (mióvikudag) hvernig hún kemur til
meó aö líta út. Hann Kristinn Hrafnsson er aö
hjálpa mér aöfá botn í þetta.“
Er sýningin sérstaklega unnin fyrir galler-
írýmið? spyr spyrill.
“Ég sníö verk aldrei sérstaklega aö
ákveónu rými. Nema hvaö maöur verður aö
taka tillit til þess hvort rýmiö er stórt eöa lit-
ið. Og plássiö hér í Ingólfsstrœti er auövitaö
ósköp nett. “
Er um að ræða þrívíð verk eða veggmynd-
ir?
„Þetta er nú svona sitt af hverju tagi. Smá-
myndir mest. Flest af því í tveimur víddum, til
dœmis Ijósmynd sem ég er aö láta vinnafyrir
mig hér. Eitt hilluverk þar sem vottar fyrir
þrívídd, þaö kemur til meö aö standa eins og
smáskúlptúr úti í horni, hugsa ég. Svo er
slatti af litlum myndum í römmum. “
Hef gaman af óreiðu
Rammamyndir, em þær ekki sölulegar, er
Hreinn Friðfinnsson.
DV-mynd GVA
spurt af einskærri stríðni, þvf fáir listamenn
hafa minni áhuga á viðskiptahlið myndlistar
en Hreinn. Enda dæsir hann við spuming-
una.
„Sölulegar, þaó veit ég svei mér ekki. Þaó er
víst enginn vegur aó segja til um slíkt nútil-
dags."
Eru verkin ný af nálinni
eða frá ýmsum tímabilum?
„Þetta er samansafn, nýtt og
gamalt. Dálítiö kaos. Ég hef
gaman af óreióu, aö blanda
saman nýju og gömlu. Og þaó
sem er nýtt er i rauninni út-
fcersla á gömlum efniviöi. Mér
finnst gott aö taka verk og
hugmyndir upp aftur og reyna
aö skoöa þœr út frá nýju sjón-
arhorni. “
Er ekki hrein og klár
nostalgía að gera slíkt?
Hreinn sver af sér þá gíu.
„Ég held þetta sé meira í œtt
viö gamaldags hiröusemi.
Maöur var alinn upp viö hana
í œsku. Þaö er heldur ekki
nauösyn aö vera stööugt aö
reyna aö finna upp eitthvaö
nýtt. Þaö eru kannski engar
nýjungar til. “
Hreinn er spurður um gang-
inn í myndlist sinni um þess-
ar mundir.
„Þaö er töluvert aö gera núna. Hver
sýningin hefur rekiö aöra. Ég er nýbú-
inn aö sýna í Helsinki, svo á ég aó sýna
í Berlín í haust. Þaö hefur líka veriö
talaö um Dortmund. Svo er ég enn á
mála hjá mínum gömlu galleríum,
Papillon í Paris og Nordenhake í
Stokkhólmi. Þetta kemur svona í
gusum og svo skeöur ekkert í langan
tíma. “
Er þá ekki afkoman tryggð í bráð og
lengd?
„Þar er hreint ekki á vísan aö róa. Er
býsna óreglulegt allt saman. En þaó hjálpar
aö vera nœgjusamur. “
Sýning Hreins Friðfmnssonar í Galleríi
Ingólfsstræti 8 stendur til 18. júlí og er opin
Skemmtitónlist í
háum gæðaflokki
Robin Nolan tríó kom hingað í annað sinn
í liðinni viku og léku þeir félagar fjómm
sinnum hér á Reykjavíkursvæðinu. Þeir
komu einnig hingað í fyrrahaust og léku þá
á Fógetanum. Það fór kannski fullhljóðlega,
enda, ef ég man rétt, léku þeir helgina áður
en Djasshátíð Reykjavíkur hófst. En tríóið
skipa þeir Robin Nolan sólógítaristi, Jan P.
Brouwer á hryngítar og Paul Meader á
kontrabassa.
Sígauninn og gítaristinn Django Rein-
hardt hafði mikil áhrif á djassgítarleik. Það
var margt sem gerði Django sérstakan með-
al djassleikara, en hann ólst ekki upp við
djass, heldur sígaunatónlist. Sem gítarleik-
ari var hann einnig sérstakur, og hafði það
vissulega áhrif að nálægt 18 ára aldrinum
brann húsvagn fjölskyldunnar og Django
brenndist illa, og ein afleiðing þess var að
litlifingur og baugflngur á vinstri hönd voru
stífir. Þeir voru því lítt hæfir til spila-
mennsku, og hinir tveir þurftu að sjá um
megnið af vinnunni. Honum tókst að ná upp
ótrúlega góöri tækni þrátt fyrir bæklunina,
en varð einnig fyrir bragðið engum öðram
líkur.
Líkastur Django
Robin Nolan spilar lfkar því sem Django
gerði en allir aðrir gítaristar sem ég hef
heyrt í. Það er líka auðséð og heyrt fyrir þá
sem til þekkja að hann hefúr lagt sig fram
við að læra þá tækni sem Django notaði, og
tónlist tríósins snýst um leik Nolans. Auk
þess er hljómurinn úr gítamum hans nauða-
líkur þeim sem Django var með. Nolan er
frábær gítarleikari, teknískur og hugmynda-
ríkur, og veitir ekki af, því hann er eini
Robin Nolan trio.
sólisti tríósins. Þegar þeir léku á Sóloni ís-
landusi á þriðjudagskvöldið lék Dan Cassidy
fiðlari reyndar með þeim í nokkram lögum
sem gestur. Hryngítaristinn stóð sig frábær-
lega og hélt tríóinu gangandi, en bassistinn
hljóp meira útundan sér þegar honum datt í
Djass
Ársæll Másson
hug. Efnisskráin var að stóram hluta eftir
Django eða lög sem hann spilaði, en þeir
vora einnig með töluvert af frumsömdu efni,
aðallega af nýjustu plötu þeirra, The Latin
Affair og var flest prýðisgott. Þetta var
skemmti- og kaffihúsatónlist í háum gæða-
flokki, bæði músíklega og hvað varðar
skemmtanagildi, og gott að eiga þess kost að
heyra tónlist af þessu tagi í miöborg Reykja-
víkur.
Robin Nolan trio
Sólon íslandus, 13. & 14. júní
Quisling ekki alslæmur
Hver skyldi vera þekktasti Norðmaður aldar-
innar? Hamsun, Thor Heyerdai, Roald Amund-
sen? Það er kaldhæðni örlaganna og allt það, en
líkast til á Vidkun Quisling ( á mynd) vinning-
inn, fyrst og fremst fyrir það að nafn hans varð
gjörvöllum vestrænum heimi samnefnari fyrir
foðurlandssvik á örlagatímum, þökk sé orð-
heppni Winstons Churchills. Nýverið kom út í
Bretlandi þýðing á bók Hans Frederiks Dahl
um Quisling undir nafninu Quisling - A Study
in Treachery. Að sögn breskra gagnrýnenda
felur þessi bók í sér endurmat á þessum „svifa-
seina og lítiihæfa" herforingja, eins og gagnrýn-
andi Sunday Times, Philip Knightley, nefnir
Quisling.
Það virðist vera niður-
staða þeirra beggja,
Dahls og Knightleys, að
Quisling hafi ekki verð-
skuldað dauðarefsingu,
ekki fremur en stjórn-
málamenn í öðrum lönd-
um sem störfuðu með
Þjóðverjum.
Hins vegar hafi verið
búið að „demónisera"
Quisling svo rækilega á
Vesturlöndum að Norð-
mönnum hafi ekki verið
stætt á öðru en taka
hann af lífi.
Dahl og fleiri norskir
nútímasagnfræðingar
virðast einnig vera á
þeirri skoðun að Quisl-
ing hafi hvorki borið ví-
urnar í Hitler fyrir stríð
né lagt á ráðin um inn-
rásina í Noreg, en það
var einmitt fyrir þetta
tvennt - öðru nafni landráð - sem hann hlaut
dauðarefsinguna. Eftir innrásina, um leið og
Hákon konungur yfirgaf landið, bauðst Quisl-
ing einfaldlega til að hlaupa í skarðið, mynda
stjóm og afturkalla herkvaðningu fyrri stjórn-
ar, í þvi augnamiði að forða Norðmönnum frá
stríði. Og þótt Hitler tæki boði hans leið langur
timi uns hann treysti honum. Var þó alltaf með
þýskan „frakka“ á Quisling, eins og sagt er í
knattspymunni.
Það kemur einnig fram í bókinni að meðan á
rétthöldunum yfir Quisling stóð varð hann að
gangast undir læknisrannsóknir sem í dag
mundu vera flokkaðar undir pyntingar. Sam-
þjöppuðu lofti var dælt upp eftir mænunni á
honum og upp í heila og röntgenmyndir teknar
í framhaldinu, og allt án deyfilyfja. Sömuleiðis
var Quisling sveltur dögum og vikum saman
meðan hann sat i fangelsi.
„Hér er um að ræða langa bók um trúgjam-
an, hrútleiöinlegan og óheppinn mann sem
sólundaði lífi sinu,“ segir Philip Knightley.
„Hann var líflátinn að ósekju og er einungis
minnst fyrir nafn sitt.“
Árbæjarsafn ómar af söng
Árbæjarsafn hefur sett saman fjölbreytta
sumardagskrá, meðal annars hafa þar verið
skipulagðir tónleika á laugardögum. Þann 19.
júní mun
Dómkórinn
riða á vaðið
og
skemmta
gestum í
húsinu
Lækjargötu
4. „í sumar
mun
um
oma
safnsvæðið
frönsk kaffihúsatónlist,
barokktónar, djass og söngur,“ segir í fréttatil-
kynningu frá Árbæjarsafni.
Annað nýnæmi í starfsemi safnsins er að list-
iðnaðarfólk hefur verið fengið til að hanna
muni sérstaklega fyrir safnbúð. Þar verður
hægt að fá margs konar skart unnið úr fiski og
skepnubeinum, homum, skeljum og kuðung-
um. Ullarvörur af ýmsu tagi verða þar einnig til
sölu, svo og útsaumspakkar, dúkar og útsaum-
uð nálabréf, tréfuglar, handmáluð hús af svæð-
inu og tréskálar renndar úr birki.
Árbæjarsafn hefur einnig í samvinnu við
Ljósmyndasafn Reykjavíkur gefið út póstkort af
völdum ljósmyndum þar sem leitast er við að
sýna líf og störf Reykvíkinga um síðustu alda-
mót (sjá mynd).
Að öðru leyti er dagskrá safnsins þessi næstu
dagana: 17.júní: Þjóðhátíö, sýning á íslenskum
búningum og búningasilfri. 20. júní: Snikkara-
dagur. 23. júní: Jónsmessunæturganga. 27.
júni: Sýning á gömlum mótorhjólum. 11. júlí:
Fombiladagm-.
Umsjón
Aðalsteinn Ingólfsson