Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1999, Síða 22
30
MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1999
Sport
, Fyrstur
íslendinga
- með keppnistæki
frá framleiðanda
Um helgina hefst ein þekktasta þolaksturskeppni á mót-
orhjólum er um getur í Wales. Skráðir til keppni eru tveir
íslendingar, þeir Karl Gunnlaugsson sem keppt hefur
nokkrum sinnum þar áður og Einar Sigurðsson sem kepp-
ir þar í fyrsta skipti.
Það sem er sérstakt við þátttöku Einars í þessari keppni
er að hann er líklega fyrsti íslenski keppandinn í mótor-
sporti erlendis til að fá úthlutað keppnistæki frá framleið-
anda. Það er KTM Racing í Bretlandi sem útvegar honum
hjólið sem er 200 rúmsentímetra, sömu gerðar og hann hef-
ur keppt á í sumar með góðum árangri hérlendis. Hjólið
þykir henta vel í þessa erfiðu keppni sem minnir stundum
frekar á motokross heldur en enduro, leiðimar em upp og
niður brattar hæðir á stígum sem verða að einu dmllu-
svaði í rigningu. Keppnin tekur tvo daga og era eknir rúm-
lega 700 kílómetrar. Einar tekur þátt í svokölluðum Club-
man flokki og á góða möguleika á að ná langt í keppninni
ef allt gengur upp. DV Sport mun fylgjast með gengi KTM-
strákanna í keppninni og birta árangur þeirra eftir helgi.
-NG
Einar Sigurðsson á sams konar hjóli og hann ætlar að keppa á í Wales um helgina.
Fylkissigur
■
Fylklr vann Hauka, 4-1, í 1.
deild kvenna í gær. Sigrún
Bjamadóttir skoraði þrjú
mörk fyrir Fylki og Bryndis
Jónasdóttir gerði eitt. Mark
Hauka gerði Mínerva Al-
freðsdóttir.
-GH
'
Körfubolti:
Bevis
í Þór
Bandaríkjamaðurinn David
Bevis mun leika með úrvals-
deildarliði Þórs á Akureyri í
körfuknattleik á næsta tímabili.
Bevis lék með Skagamönnum á
síðustu leiktíð og þar á undan
með ísfirðingum.
í leikjum sínum með KFÍ og
ÍA skoraði Bevis 28,2 stig að
meðaltali og tók
jafnframt 11,0 fráköst.
„Það hefur farið
töluverður tími í þetta
og era allir ánægðir
með Bevis. Lagt var
upp með hann í upp-
hafi og er þetta að
ganga upp núna. Ég
veit að nokkur lið hafa
verið að reyna að
krækja í hann en við
náðum að landa hon-
um,“ sagði Hilmar
Friðjónsson, formaður
körfuknattleiksdeildar
Þórs, viö DV í gær.
Aðspurður um
hvort reynt yröi að
styrkja Þórsliðið frek-
ar, t.d. með evrópsk-
um leikmanni, taldi hann það
ekki inni í í myndinni.
Bevis mun sannarlega styrkja
Þórsliðið en í því verða allir þeir
sem spiluðu á síðasta tímabili en
eina spumingarmerkið er Kon-
ráð Óskarsson. -JJ
l£, I..
—
mMj ÚRVALSD. KV
KR 5 5 0 0 27-2 15
Valur 5 5 0 0 21-3 15
Stjarnan 5 3 11 14-8 10
Breiðablik 5 3 1 1 13-7 10
ÍBV 5 2 0 3 17-11 6
ÍA 5 1 0 4 5-16 3
Grindavík 5 0 0 5 2-27 0
Fjölnir 5 0 0 5 1-26 0
Markahæstar:
Ásgerður Ingibergsdóttir, Val ... 10
Helena Ólafsdóttir, KR .............8
Karen Burke, fBV....................6
Guðlaug Jónsdóttir, KR..............5
Ásthildur Helgadóttir, KR...........4
Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, KR . 4
Margrétr Ólafsdóttir, Breiðabliki . 4
David Bevis leikur með Þor a
næsta tímabili.
- +
# . » > *' „ i
* '• 1
4- , * . .
.
■ . ■Ir.'ÁV.v
ic
.. ■ ■ - .
■ B ' " •- ' i.
Erla Sigurbjartsdóttir, Val, og Bryndís Jóhannesdóttir, IBV, berjast um skallabolta í leik
liðanna í gær en á innfelldu myndinni fagnar Rakel Logadóttir, Valskona, glæsilegu
sigurmarki sínu. DV-myndir HH
5. umferö meistaradeildar kvenna í knattspyrnu:
Sætt sigurmark
- Valskvenna sem eru ósigraðar líkt og KR eftir fyrstu fimm leikina
Rakel Logadóttir skoraði glæsi-
legt sigurmark fyrir Val í 2-1 sigri
gegn ÍBV á Hlíðarenda í gær.
Rakel þrumaði boltanum í slána
og inn fyrir utan teig eftir einleik og
tryggði Valskonum fullt hús ásamt
KR eftir fyrstu 5 umferðirnar.
Markið kom á 51. mínútu en Ás-
gerður Ingibergsdóttir hafði áður
komið Val yfir á 10. mínútu, mark
sem lagði mikla rangstöðulykt af og
Karen Burke jafnaði á 23. mínútu.
Valskonur unnu þennan ieik á
skynseminni fremur öðru, en þetta
var annað eins mark tap Eyja-
stúlkna í röö og virðist vera sem
þær vanti aðeins meiri trú á sjálfum
sér. Liðið er vissulega að gera góða
hluti með Karen Burke í leiðtoga- og
skaparahlutverkinu. Hjá Val var
Rakel Logadóttir mjög frísk en bæði
íris Andrésdóttir og Ragnheiður
Jónsdóttir urðu að fara út af eftir
högg. Það bætist enn ofan á meiðsla-
hrjáð Valslið sem lætur þó ekki
deigan síga vegna þess.
„Vorum værukærar“
„Það var hundlélegt að missa
þetta niður en við urðum of væru-
kærar og voram ekki á tánum í 90
mínútur. Við nýttum illa færin en
mætum einbeittar í næsta leik gegn
Val,“ sagði Sigrún Óttarsdóttir,
fyrirliði og besti maður Blika I 1-1
jafntefli við Stjörnuna í Garðabæ.
Þetta voru fyrstu stig sem Blikar
missa gegn Stjörnunni í 12 leikjum
eða síðan 1992. Hildur Sævarsdóttir
kom Blikum yfir á 38. mínútu eftir
þunga sókn en Heiða Sigurbergs-
dóttir jafnaði á 88. mínútu rétt eftir
að Blikar heimtuðu víti eftir brot á
Eyrúnu Oddsdóttur sem sloppið
hafði í gegn. Heiða var best í
Stjömuliðinu og Justine Lorton og
Ema Sigurðardóttir léku einnig vel.
Nafna þeirrar síðastnefndu hjá Blik-
um og Hildur Sævarsdóttir léku vel
fyrir Breiðablik ásamt Sigrúnu.
Fjórði stósigurinn í röð
KR tryggði sér áframhaldandi
vera í toppsætinu með sínum Ijórða
stórsigri (+ 5 mörk) í röð, jafnframt
þeim tólfta í röð í deildinni. Nú fóra
þær til Grindavíkur og unnu 0-6.
Ásthildur Helgadóttir skoraði 2
mörk, annað með glæsilegu þrumu-
skoti af löngu færi, Helena skoraði í
sínum sjöunda leik í röð og setti
annað að auki og þær Guðlaug Jóns-
dóttir og Guðrún Jóna Kristjáns-
dóttir gerðu hin mörkin. Helena
hefur skorað 12 mörk í siðustu 12
leikjum og er önnur markahæst í
deildinni í sumar með 8 mörk.
Fyrsti sigur Skagans
ÍA vann sinn fyrsta sigur í sumar
er þær unnu Fjölni, 2-1, á Akranesi.
Elín Anna Steinarsdóttir kom ÍA
yfir, Hrafnhildur Eymundsdóttir
jafnaði með fyrsta marki Fjölnis í
sumar en Kristín Ósk Halldórsdótt-
ir tryggði sigur ÍA. -ih/-ÓÓJ