Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1999, Side 23
MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1999
31
Fréttir
Tryggingamiðstöðin sammála Hagstofunni:
Hækkanir gegn
uppsöfnuðu tapi
„Við höfum sett þetta fram á
sama hátt og Hagstofa íslands og
alltaf kynnt það þannig," sagði
Ragnar Ragnarsson, trygginga-
stærðfræðingur Tryggingamið-
stöðvarinnar, um útreikninga Hag-
stofunnar á hækkun bílatrygginga.
Þar kemur fram að 2/3 hlutar hækk-
unarinnar séu vegna breytinga á
skaðabótalögum en 1/3 hluti sé
hrein verðhækkun.
Ragnar sagðist vilja benda á að
skaðabótalögin hefðu hækkað tjón-
in árið 1996. Sú breyting hefði vegið
8,5 prósent. Iðgjöldin hefðu ekki ver-
ið hækkuð að sama skapi. Þá hefði
Tryggingamiðstöðin séð sig til-
neydda til að lækka iðgjöldin um
rúm 20 prósent árið 1996, þegar er-
lendur tryggingaraðili hefði komið
inn á markaðinn. Fyrirtækið hefði
ekki talið rétt að lækka iðgjöld svo
mikið, en þegar Vátryggingafélag Is-
lands hefði lækkað sig um rúm 20
prósent, þá hefði ekki verið um ann-
að að ræða fyrir Tryggingamiðstöð-
ina en að lækka sín iðgjöld til jafns
við það til vera samkeppnishæf.
Bókfært tap á lögboðnum öku-
tækjatryggingum hefði numið 49
milljónum árið 1997 og 272 milljón-
um króna 1998. Bótasjóðir væru
inni í þessum rekstrartölmn. Hið
mikla tap á síðasta ári væri að hluta
vegna þess að endurmeta hefði þurft
fjölmörg tjón vegna tveggja dóma
Hæstaréttar, þar sem bótarétturinn
hefði verið aukinn.
„Við töldum, eftir að hafa lagt
mat á sérhvert óuppgert tjón í árs-
lok 1998, að það hefði þurft að
hækka tjónaskuldina í lögboðnum
ökutækjatryggingum um 320 millj-
ónir. Það var ekki hægt að gera með
því fé sem varð til innan greinar-
innar, með iðgjöldum og fjármuna-
tekjum. Þá varð að færa til fé sem
þýðir að það eru ekki bílatryggjend-
ur sem lögðu til þá aukningu nema
að litlu leyti, heldur vátryggjendur í
öðrum greinum, t.d. aðilar í verslun
og iðnaði, húseigendur með bruna-
tryggingar og svo framvegis. Það er
grundvallarsjónarmið í vátrygg-
ingastarfsemi að hver grein fyrir
sig eigi að greiða tjónið og það er
rangt að láta vátryggjendur í einni
grein greiða niður gjöld í annarri
grein með reglubundnum hætti til
lengri tíma.“ -JSS
Sjómannsekkjur heiöraðar:
Sá ekki manninn
sinn í meira en ár
Tvær heiðurskonur á Eskifirði
voru heiðraðar á sjómannadaginn
við fjölmenna athöfn. Þessar tvær
konur eru Hrefna Björgvinsdóttir,
81 árs, og Laufey Sigurðardóttir, 85
ára. Báðar eru þær ekkjur sjó-
manna sem allir elska og virða.
Báðar byrjuðu þær Hrefna og
Laufey að vinna sex ára ásamt
mæðrum sínum við fiskinn. Eftir að
þær höfðu komið sínum mörgu og
góðu bömum á legg tóku þær upp
þráðinn að nýju í fiskvinnunni.
Sumir þessir krakkar eru duglegt
athafnafólk hér á
Eskiflrði í dag.
Laufey, sem á
hundrað afkomendur,
sagði mér að sinn
maður hefði verið til
sjós fyrstu 50 árin
sem þau bjuggu.
Stundum var hann
lengi burtu þegar
hann var á vertíðum
á Hornaflrði eða suð-
ur með sjó. Einu
sinni var hann burtu
í meira en ár.
Þetta era unglegar
og glæsilegar konur
eins og oft er með
konur sem hafa átt
menn á sjónum og
auðséð að þær hafa
ekki haft illt af að
byrja snemma að
taka til hendinni.
Ölver Guðnason,
formaður Sjómanna-
dagsráðs, setti ssim-
komuna með stuttri
en athyglisverðri
ræðu og sóknarprest-
urinn okkar ágæti,
hann Davíð Baldurs-
son, flutti ræðu sem
við munum seint
gleyma. -Regína
Þær Hrefna Björgvinsdóttir og Laufey Sigurðardótt-
ir voru heiðraðar á sjómannadaginn. DV-mynd Emil
Sjúkrahús Reykjavíkur, Slökkvilið Reykjavíkur, Rauði kross íslands og fagdeild Landssamband sjúkraflutninga-
manna undirrituðu í dag samning sem þau hafa gert með sér um áframhaldandi starf í menntamálum. Skólinn sem
aðilarnir standa að hefur starfað í þrjú ár og mun samkvæmt hinum nýja samningi starfa til ársins 2000.
DV-mynd ÞÖK
Veróbréfaguicirin Helga Hlíri:
jjLJ'ÍJU ÍJDIJIJ3JÍJ£|2J
'l'jíjí1 _p2Jíú aiii;
V3/P ÍÍUIJJJ^
*■
allt sem þú þarft að vita
- og miklu meira til
.71 SAiÆfi
M^NNTASK
I REYKJi
3ettu enn betur
hraðaspurningar á netinu
<