Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1999, Qupperneq 33
MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ 1999
41
Afmæli
Guðjón Guðmundsson
Til hamingju með
afmælið 17. júní
85 ára
Guðjón Guðmundsson, fyrrv.
rekstrarstjóri hjá Rafmagnsveitum
rlkisins, Kópavogsbraut 1 B, Kópa-
vogi, verður áttræður á föstudag-
inn.
Starfsferill
Guöjón fæddist að Stóra-Lamb-
haga í Garðahreppi en sá bær stóð
þar sem nú er Álverið í Straumsvík.
Hann var tæplega þriggja ára er
hann missti móður sína og ólst því
upp næstu þrjú árin hjá vinafólki
foreldra sinna en síðan hjá fóður
sínum og stjúpmóður, lengst af í
Austurhlíð í Laugardal, þar sem nú
er íþróttaleikvangur Reykvíkinga,
en þai' var faðir hans ráðsmaður á
stórbýli Carls Olsens.
Á unglingsárunum stundaði Guð-
jón öll almenn sveitastörf í Laugar-
dalnum. Hann hóf nám í rafvirkjun
hjá Júlíusi Bjömssyni rafvirkja-
meistara 1931 og lauk sveinsprófi og
varð meistari í þeirri grein.
Guðjón starfrækti eigið rafvirkja-
verkstæði og verslun 1937-39, var
verkstjóri og rafmagnseftirlitsmað-
ur hjá Rafveitu Hafnarfjarðar
1939-41, starfsmaður hjá Rafmagns-
eftirliti rikisins 1941-46, varð deild-
ar- og rekstrarstjóri hjá Rafmagns-
veitum ríkisins þegar þær tóku til
starfa 1946 og sinnti því starfi til
1967 er hann var skipað-
ur skrifstofustjóri hjá því
fyrirtæki. Því starfi
gegndi hann til 1977 er
skipulagsbreyting var
gerð á fyrirtækinu. Guð-
jón tók þá aftur við starfi
rekstrarstjóra Rafmagns-
veitna ríkisins og gegndi
því þar til hann lét af
fóstu starfi fyrir aldurs
sakir í byrjun árs 1985.
Hann vann lengi að
ýmsum sérverkefnum
fyrir Rafmagnsveiturnar,
s.s. að undirbúningi
samningamála og samningagerð,
skráningarmálum, að rafminja-
safnsmálum og fleiru.
Guðjón starfaði árum saman að
gagna- og heimildasöfnun fyrir raf-
stöðvar á íslandi, einkum í þéttbýli,
en sú söfnun var unnin fýrir svo-
nefnda Rafstöðvarbók er Samband
íslenskra rafveitna stóð fyrir. Guð-
jón og Lýður Björnsson höfðu nær
lokið við gerð bókarinnar er forysta
SÍR hætti við útgáfuna að svo
stöddu vegna fjárskorts en handrit-
ið er varðveitt í Þjóðskjalasafni ís-
lands.
Guðjón átti veigamikinn þátt í
rafvæðingu sveitanna sem náði til
um fimm þúsund rafmagnsnotenda
í dreifbýli landsins. Þá starfaði
hann mikið að uppbygg-
ingu hringlínunnar svo-
nefndu 1974-84 er tengdi
saman öll meginrafveitu-
svæði landsins.
Guðjón hefur starfað
mikið að félagsmálum.
Hann starfaði í Rafvirkja-
félaginu, hjá Sambandi
íslenskra rafveitna þar
sem hann er heiðursfé-
lagi, í Skógræktarfélag-
inu, Blindrafélaginu og
víðar.
Hann var sæmdur
riddarakrossi fálkaorð-
unnar 17.6. 1981.
Fjölskylda
Guðjón kvæntist 17.6. 1936 Helgu
Sigurðardóttur frá Riftúni í Ölfusi,
f. 28.2. 1912, d. 23.10.1982, húsmóður
og kjólameistara. Foreldrar Helgu
voru Sigurður Bjamason, bóndi í
Riftúni, og k.h., Pálína Guðmunds-
dóttir húsfreyja af Grímslækjarætt.
Böm Guðjóns og Helgu em Erla
Hafrún, f. 12.7. 1938, bókasafns- og
upplýsingafræðingur, gift Agli Eg-
ilssyni heildsala og eiga þau einn
son, Guðjón Helga viðskiptafræð-
ing; Auður Svala, f. 2.12. 1942, þjón-
usturáðgjafi, gift Rúnari Guðjóns-
syni, sýslumanni í Reykjavík, og
eiga þau þrjú böm, Guðjón lögfræð-
ing, Kristbjörgu Lilju snyrtifræðing
og Frosta Reyr viðskiptafræðing;
Hrafnkell Baldur, f. 9.5. 1946, d. 10.2.
1998, veitingamaður í Reykjavík,
var kvæntur Guðlaugu Jónsdóttur
og áttu þau saman tvö börn, Helgu
Eyju og Guðmund Óla en Hrafnkell
Baldur og Guðlaug skildu og er son-
ur Guðlaugar frá því áður Jón
Tryggvi; Helga Sigríður, f. 30.12.
1951, kennari í Garðabæ, gift
Tómasi Kaaber rafmagnstæknifræð-
ingi og eiga þau eina dóttur, Brynju
Sif hárgreiðslunema; Guðrún Sóley,
f. 7.4. 1953, uppeldisfræðingur og
verkefnisstjóri hjá KHÍ i Reykjavík,
gift Þorsteini Hilmarssyni, upplýs-
ingafulltrúa hjá Landsvirkjun, og
eiga þau tvö böm, Hilmar og Hall-
gerði Helgu.
Guðjón átti Qögur alsystkini og er
eitt þeirra á lífl. Auk þess átti hann
þrjár hálfsystur og eru tvær þeirra
á lífi.
Foreldrar Guðjóns voru Guð-
mundur Ólafsson, bóndi og ráðs-
maður, f. á Selparti I Flóa 10.9.1885,
d. 7.1. 1947, og f.k.h., Guðrún Helga-
dóttir, f. 14.11. 1885, d. 12.3. 1917.
Seinni kona Guðmundar og stjúpa
Guðjóns var Herdís Helga Guð-
laugsdóttir, f. 19.5.1894, d. 2.12.1961,
húsfreyja.
Dagmar Einarsdóttir,
Hlíðargötu 62, Fáskrúðsfirði.
Ellen Klausen,
Túngötu 3, Eskifirði.
Inga B. Jóhannsdóttir,
Sléttuvegi 11, Reykjavík.
Ólafur Einarsson,
Skipholti 12, Reykjavík.
80 ára
Jón S. Guðmundsson,
Hringbraut 50, Reykjavík.
Símon Ingvar Konráðsson,
Rjúpufelli 44, Reykjavík.
75 ára
Arndís Guðmundsdóttir,
Hvassaleiti 14, Reykjavík.
Þóra Sigurjónsdóttir,
Hásteinsvegi 62, Vestmeyjum.
Þórður Stefánsson,
Faxastíg 2 A, Vestmeyjum.
70 ára
Margrét Ámadóttir,
Lindargötu 61, Reykjavík.
Ragnar Kristjánsson,
Fossahlíð 4, Gmndarfirði.
Sigurvin Guðbjartsson,
Hlíðarstræti 22, Bolungarvík.
60 ára
Guðmundur Höskuldsson
Guðmundur Höskuldsson, Flétt-
urima 6, Reykjavík, verður áttræð-
ur á fostudaginn.
Starfsferill
Guðmundur fæddist á Hallsstöð-
um í Nauteyrarhreppi og ólst upp í
Nauteyrarhreppi við öll almenn
sveitastörf fram yfir fermingu.
Hann stundaði nám við Héraðsskól-
ann í Reykjanesi. Þá stundaði hann
nám við tryggingaskóla SÍT síðar á
ævinni.
Guðmundur flutti til Reykjavíkur
1939 og stundaði þar ýmis störf, m.a.
við gerð Reykjavíkurflugvallar í
Vatnsmýrinni. Hann var strætis-
vagnstjóri hjá SVR frá 1941-61 og
stundaði auk þess ökukennslu um
árabil. Þá fór hann á síld árin 1946,
1947 og 1954.
Guðmundur hóf störf hjá Sam-
vinnutryggingum 1961 og starfaði
þar í tuttugu og tvö ár. Hann var
þar lengst af við tjónaskoðun og
uppgjör á tjónum.
Guðmundur starfaði i Ökukenn-
arafélaginu um skeið og var formað-
ur þess í tvö ár.
Fjölskylda
Eiginkona Guðmundar er Guðný
Ásgeirsdóttir, f. 17.9. 1923, húsmóð-
ir. Hún er dóttir Ásgeirs Andrésson-
ar og Ingibjargar Jónsdóttur en þau
em bæði látin.
Böm Guðmimdar og Guðnýjar
eru Höskuldur Guðmundsson, f.
27.11. 1944, forstjóri Hagverks, bú-
settur í Reykjavík en kona hans er
Margrét Jóhannsdóttir og
eiga þau þrjú börn; Bragi
Guðmundsson, f. 23.1.
1948, húsasmiður I Kópa-
vogi og á hann tvo syni;
Guðmundur Guðmunds-
son, f. 30.12.1952, vörubíl-
stjóri, búsettur í Dan-
mörku en kona hans er
Hlíf Heiðarsdóttir og eiga
þau tvö börn; Ásgeir Guð-
mundsson, f. 11.1. 1954,
kennari og tæknifræðing-
ur við Vélskóla íslands
en kona hans er Gróa
Friðgeirsdóttir og eiga þau tvö börn
auk þess sem Ásgeir á dóttur frá því
áður; Ingibjörg Guðmundsdóttir, f.
10.5. 1962, tækniteiknari og auglýs-
ingahönnuður í Flórída í Bandaríkj-
unum en maður hennar er Magnús
Harðarson og eiga þau
einn son.
Systkini Guðmundar:
Ásgeir Höskuldsson, f.
24.10. 1916, d. 24.3. 1918;
Aðalsteinn Höskuldsson,
f. 23.8.1920, d. 1967, lengst
af stætisvagnstjóri, bú-
settur í Reykjavik; Níel-
sina Steinunn Höskulds-
dóttir, f. 10.1. 1924, d.
1927.
Foreldrar Guðmundar
voru Höskuldur Jónsson,
f. 24.12. 1888, d. 1937,
bóndi í Tungu í Nauteyrarhreppi,
og k.h., Petra Guðmundsdóttir, f.
9.6. 1988, d. 1958, ljósmóðir og hús-
freyja.
Guðmundur og Guðný verða að
heiman á afmælisdaginn.
Guðmundur
Höskuldsson.
Fréttir
Dalvík:
Innbrot
í fimm
togara
DV, Akureyri:
Akureyringur um þrítugt
hefur verið dæmdur fyrir inn-
brot í fimm togara i Dalvíkur-
höfn í desember á síðasta ári
en innbrotin framdi hann í
leit að lyfjum og hafði tvíveg-
is eitthvað upp úr krafsinu.
Maðurinn hefur verið
dæmdur í Héraðsdómi Norð-
urlands eystra í tveggja mán-
aða fengelsi og til greiðslu
bóta. Hann hefur frá árinu
1988 alls sex sinnum gengist
undir sættir vegna afbrota
sem aðallega tengjast neyslu
ávana- og fikniefna og hefur 9
sinnum hlotið refsidóma fyrir
ýmis afbrot.
-gk
Þessar tvær hressu stelpur, Gyða og Kristín, áttu ekki í vandræðum með smíðina þegar Ijósmyndari DV átti leið fram
hjá þeim nú um daginn. Þær voru að smíða sér Formúlu 1 kassabíl og sögðu að þær þyrftu enga hjálp, og þá síst
frá strákum. DV-mynd HH
Agnar Jónsson,
Borgarstíg 1, Fáskrúðsfirði.
Baldvin Árnason,
Brennigerði,
Biskupstungnahreppi.
Gunnar Kristjánsson,
Bugðustöðum, Dalabyggð.
Sævar Líndal Jónsson,
Asparfelli 4, Reykjavík.
50 ára
Gísli Helgi
Árnason
verktaki,
Fróðengi 8,
Reykjavík
Eiginkona hans er
Anna Konráðsdóttir. Þau taka
móti gestum í Kiwanishúsinu,
Smiðjuvegi 13 A, Kópavogi,
laugard. 19.6. frá kl. 20.00.
Andrés Sigurvinsson,
Hagamel 53, Reykjavík.
Hrafnhildur Eysteinsdóttir,
Holtsbúð 36, Garðabæ.
Jóna Bergsdóttir,
Miðleiti 5, Reykjavík.
Loftur Ásgeirsson,
Lokastíg 26, Reykjavík.
Philip Park,
Smáratúni 2, Bessastaðahr.
Ragnheiður Sigurðardóttir,
Hjallavegi 3 C, Njarðvík.
Sverrir Thorstensen,
Lönguhlíð 9 A, Akureyri.
40 ára
Dagný Björk Pétursdóttir,
Lindasmára 11, Kópavogi.
Guðrún Guðbjartsdóttir,
Álftarima 36, Selfossi.
Gunnlaugur G. Snædal,
Vesturbrún 12, Reykjavík.
HaUdór U. Snjólaugsson,
Hlíðargötu 53, Fáskrúðsfirði.
Hannes Karlsson,
Vcmabyggð 4 D, Akureyri.
Helga Þormóðsdóttir,
Sogavegi 103, Reykjavík.
Hilmar Sighvatsson,
Skógarhjalla 19, Kópavogi.
Hulda L. Hauksdóttir,
Hafnarbraut 41, Höfn.
Ingibjörg Aðalsteinsdóttir,
Lágafefli 2, Egilsstöðum.
Jens Einarsson,
Álfhólsvegi 25, Kópavogi.
Kristín D. Björgvinsdóttir,
Vesturvangi 36, Hafnarfirði.
Magnús Stefánsson,
Hátúni 4, Reykjavík.
Sigurjón Guðmundsson,
Brekkubyggð 19, Blönduósi.
Sveinn Þórður Birgisson,
Lindarbyggð 28, Mosfellsbæ.