Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.1999, Qupperneq 36
44
MIÐVIKUDAGUR 16. JUNI1999
nn
Tímabært
stórmál
„Guðni Ágústsson landbún-
aðarráðherra hefur fengið í
gegn á Alþingi það
hugðarefni sitt að
hér verði sett sam-
an landslið hesta-
manna. Þetta stór-
mál var tímabært
og óskiljanlegt
hvernig íslensk
þjóð hefur komist af án
þessa landsliðs um aldir. Hér
má ekki horfa í aurinn.“
Vefþjóðviljinn um hugðarefni
Guðna Ágústssonar.
Komu ekki heldur
„Það ótrúlega gerðist að þeir
komu ekki heldur þá nálægt
sjónvarpinu. Þeir héldu ein-
faldlega áfram að drekka úr
kaffibollum og bjórkönnum og
virtust ekki skenkja því hugs-
un að landi þeirra væri
kannski einmitt á þessari
stundu að berjast eins og ljón
fyrir frama síns lands.“
Guðrún Guðlaugsdóttir í
Mogganum, um áhugaleysi út-
lendinga á Eurovision.
Brosandi eða hlæjandi
„Annað hvort borga ég bros-
andi - eða fer í fangelsið hlæj-
andi. Takist mér
ekki að borga mun
ég gefa mig fram
til fangelsisvistar
og fer þangað
með lyftingalóðin
og boxpokann
minn.“
Garðar Björgvinsson, sjó-
maður, í DV en hann er ákærð-
ur fyrir brot á fiskveiðilöggjöf-
Síminn stoppar ekki
„Ég er bæði ökukennari og
fyrrverandi lögregluþjónn eins
og sá starfsfélagi minn sem
hnepptur var í gæsluvarðhald
fyrir að falsa skjöl vegna öku-
skírteina. Síminn hefur ekki
stoppað heima hjá mér. Það eru
allir að athuga hvort ég sé í
fangelsi."
Gylfi Guðjónsson ökukennari,
á Vísí.is, en honum var ruglað
saman við starfsfélaga sinn.
Með Lísu í Undralandi
„Samkeppnisstofnun hefur
gert það að aðalviðfangsefni
sinu að knýja fram
hækkanir á þjón-
ustu Símans á
sama tíma og verð
á símaþjónustu
og fjarskiptum er
hvarvetna að
lækka. Hún hlýt-
ur að eiga heima í ein-
hvers konar Undralandi."
Þórarinn V. Þórarinsson, í DV,
um starfsaðferðir Samkeppnis-
stofnunar.
WflSHINC-TON >
KVfíDDI FYRJR Sa
10 MÍNÚTUM ^
FORSÆTI'b'
RADHh'RRf)
Páll Ásgeir Ásgeirsson blaðamaður:
Kannar töfralandið Homstrandir
Páll Ásgeir Ásgeirsson blaðamað-
ur er núna að gefa út sína leiðsögu-
bók um Hornstrandir og á bókin að
koma í stað leiðsögumanns fyrir
ferðamenn. Hann hefur áður skrifað
leiðsögubók um fjórar gönguleiðir á
hálendi íslands sem kom út 1994 en
var endurútgefm í fyrra og hefur
hlotið góðar viðtökur. Hann segir að
Homstrandir séu afar fallegar og
ósnortnar enda lagðist byggð þar af
fyrir um 50 árum. „Þama var byggð
öldum saman en hún lagðist af áður
en nútíminn hóf innreið
sína. Þarna eru eng-
ir vegir, raf-
magnslínur,
hafnir eða
önnur
mannvirki
sem setja
svip sinn á
venjulegt
umhverfí
fólks.
Þarna em
bara stöku
gamlar tóftir
og bæjar-
stæði. Þess
vegna
er alveg sérstök tilfmning að ferðast
þarna um og komast í snertingu við
náttúruna.“
Páll segir að þama sé miklu fjöl-
skrúðugra dýralíf og gróður en þekk-
ist annars staðar á íslandi. „Hom-
strandir era friðlýstar og þarna hef-
ur ekki verið beitt í um 40 ár og þess
vegna er gríðarlegur munur þarna á.
Þarna er mikið um fugla og villtan
ref sem er alveg ótrúlega
spakur. Ef maður er þama
á ferð sér maður ref á
hverjum einasta degi
og ef maðin’ hermir
eftir honum er hægt
að lokka hann til
sín. Þetta er
hvergi hægt ann-
ars staðar á ís-
landi.“ En hver er
munurinn á að
ferðast einsamall
og að ferðast með
leiðsögu-
manni
í hóp? „Þetta tvennt á ekkert sameig-
inlegt. Þegar maður ferðast einn
verður maður að vera vakandi fyrir
öOu og hafa aðeins fyrir hlutunum.
Sums staðar verður að sæta sjávar-
follum til að komast um og annars
staðar er sandbleyta þannig að það
er ekki sama hvaða leiðir
maður velur. En það er aUs
ekkert sérstaklega hættu-
legt að vera þama, neyðar-
skýli era víða og neyðartalstöðvar í
þeim. En það er auðvitað hægt að fá
hjartaáfaU hvar sem er, jafnt á Hom-
ströndum sem annars staðar. Það er
hins vegar algjört framskUyrði að
ferðamenn hafi ávaUt með sér átta-
vita og staðsetningartæki sem þeir
kunna á og kort af svæðinu. Að öðr-
um kosti eiga menn ekkert að vera
að ferðast."
En hvenær kviknaði áhugi Páls á
Hornströndum? „Ég veit það nú
ekki. Ég er fæddur og uppalinn Vest-
firðingur og held að aUir Vestfirðing-
ar hafi löngun tft að kanna Hom-
strandir, þetta töfraland sem blasir
við þeim yfir djúpið frá ísafirði. Það
er bara geysilega gaman að ferðast
sjálfur og tvímælalaust mjög þrosk-
andi að fara úr mannlegu samfélagi,
kynnast frummanninum í sér og
verða hluti af dýrum merkurinnar,
ef svo má segja. Maður sækir
svo mikla orku í náttúruna."
PáU er giftur Rósu Sigrúnu
Jónsdóttur myndlistar-
nema. Hann hefur eins og
gefur að skUja mikinn
áhuga á ferðalögum og
útivist en hann syngur
einnig í karlakórnum
Fóstbræðram. -HG
Maður dagsins
Frá Árbæjarsafni.
Islenskir búningar og búningasilfur
Sérstök hátíðardagskrá
verður í Árbæjarsafni þjóð-
hátíðardaginn, 17. júní. í tU-
efni dagsins verður sýning
'■á íslenskum búningum og
búningasilfri í húsinu
Lækjargötu 4.
Gestir geta fylgst
með hvemig
skautfaldur, blæja
og spöng era sett upp og
borin við skautbúning.
..Gullsmiðir sýna búninga-
''silfur, kniplað verður og
balderað og sýndur spjald-
vefnaður. Karl Jónatansson
spilar á harmóníku og í
Dillonshúsi verður boðið
upp á þjóðlegar veitingar.
Bömin geta borið saman
leikföng fyrr og
nú á sérstakri
leikfangasýningu
í Komhúsinu og
leikið sér í þrautabrautinni
við skátaskálann. Teymt
verður undir bömum við
Árbæinn kl. 3.
Samkomur
Myndgátan
Viðarbolur
Myndgátan hér að ofan lýsir nafnorði.
Bylgjan
sendir út
kórsöng frá
Ítalíu.
Bein útsending
frá Ítalíu
Að kvöldi 17. júni stendur tU að
senda beint út frá tónleikum tveggja
íslenskra kóra á ítaliu á útvarpsstöð-
inni Bylgjunni. Þetta eru karlakór-
inn JökuU frá Höfn í Homafirði og
Gospelsysturnar úr Kvennakór
Reykjavíkur. Þetta eru liðlega hund-
rað manns sem eru nú í tónleika- og
æfingaferð á Ítalíu og hyggjast halda
upp á þjóðhátíðardaginn með tón-
leikahaldi í Hertogahöllinni í borg-
inni Massa á Ítalíu en þar hefur
söngfólkið notið leiðsagnar Sigríðar
Ellu Magnús-------------------------
fttur s>ðustu Leikhús
daga. Með að-_______________________
stoð kaþólsku kirkjunnar á Ítalíu og
útvarpsstöð i Massa hefur Bylgjunni
tekist að koma útsendingunni í
kring. Útsendingin hefst kl. 20 og
munu ættjarðarlög skipa stóran sess
í efnisskrá kvöldsins. Eiríkur Hjálm-
arsson, dagskrárstjóri Bylgjunnar,
segist ekki þekkja þess dæmi að út-
sending af þessu tagi hafi áður farið
fram í íslensku útvarpi.
Píanótónleikar á Seyðisfirði
í dag, miövikudag, heldur tón-
leikaröðin Bláa kirkjan á Seyðis-
firði áfram. Tryggvi Ragnarsson,
rithöfundur, píanisti og leikskáld,
leikur á píanó en á dagskránni eru
verk eftir Chopin, Mozart, Beet-
hoven og Liszt en aðgangseyrir er
500 kr. og ókeypis fyrir 6 ára og
yngri.
Bridge
Þeir sem spila eðlilegt sagnkerfi
(standard) og opna á láglit nota oft
þá reglu að segja ekki hálit á fyrsta
sagnstigi i annarri sögn sinni nema
með skiptingarhendi. Ef opnað er til
dæmis á einu laufi, svarhendi segir
eitt hjarta, ber opnara að segja eitt
grand með jafna skiptingu, þó að
hann eigi fjögur spil í spaða. Spaða-
sögn myndi lofa jafnframt að
minnsta kosti fjórum spilum í opn-
unarlitnum laufi (eina staðan með
aðeins 4 lauf, væri 4-1-4-4- skipting)
en oftast 5 eða fleiri laufum. Mörg-
um standard-spiluram finnst hins
vegar eðlilegra að segja alltaf frá lit-
um sínum upp línuna og lofa þá
ekki neinni annarri skiptingu með
sögnum sínum. Þeir sem nota fyrr-
nefndu regluna mega ekki brjóta
hana því afleiðingamar gætu verið
skelfilegar. Skoðum hér eitt dæmi:
é 1098654
* 654
•f ÁKD
* 5
> ÁKD7
* D32
* G32
* KD2
4 G2
V G10
* ♦ 10974
* G10876
Vestur Norður Austur Suður
1 * pass 1 * pass
1 é pass 3 * pass
3 w pass 4 grönd pass
5f p/h pass 6 * dobl
AV nota standarkerfi með 12-14
punkta grandopnun. Vestur verður
því að opna á einu laufi með þaö
fyrir augum að segja næst eitt
grand og sýna 15-17 punkta jafn-
skipta hendi. Vestur brýtur hins
vegar regluna með því að segja einn
spaða, því þar meö lofar hann skipt-
ingarspilum. Austur sér í hendi sér
eftir þriggja hjarta sögn vesturs að
spilin falla mjög vel saman. Vestur
hlýtur að eiga 4-3-1-5 skiptingu, jafn-
vel 4-3-0-6 og slemma því möguleg í
laufi. Hann spyr um ása, fær svarið
einn ás og lætur vaða í slemmuna.
Hann sér að slemma getur staðið, ef
vestur á spaðaás, hjartadrottningu
og KD í laufi. Suður er með langan
lauflit og á fyrir dobli. Sagnhafi fær
ekki nema 8 slagi í þessum samn-
ingi og getur sjálfum sér um kennt
fyrir vitleysuna. Kosturinn er hins
vegar sá að hann er ekki líklegur til
að brjóta regluna oftar.
ísak Örn Sigurðsson