Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1999, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.06.1999, Blaðsíða 10
 t* vikuna 24.6-1.7. 1999 NR. 329 Sigur Rós frelsa flugur í áttunda sæti. Það er athyglisvert að hlustendur velji þessa tormeltu tónlist svo hátt á listann. Það eru þó tekn á lofti, og í númer níu stekkur dægurfluga Skítamórals og ógnar gáfupoppinu. Hvað gerist í næstu viku? Vikur á lista # ALL OUT OF LUCK .SELMA (EUROVISION) SECRETLY 1 mi SCAR TISSUE RED HOT CHILLI PEPPERS |, |||| C WILD WILD WEST . . .WILL SMITH (WILD WILD WEST) |||| STARLOVERS f III! V;: LIVIN’LA VIDA LOCA f rniii AMERICAN WOMEN tn FLUGUFRELSARINN ©ii FLJÚGUM ÁFRAM t n í RIGHT HERE RIGHT NOW . 4 mm 11 BEAUTIFUL STRANGER . . t ii 12 ÞÚ ERT EKKERT BETRI EN ÉG SSSÓL ® ii 13 TREAT HER LIKE A LADY . CELINE DION tm 14 LENDING 407 i iii 15 WHY DON’T YOU GET A JOB OFFSPRING tn 16 OOH LA LA 4 mmm 17 YOU LOOK SO FINE t ii 18 ALLSTAR ® im 19 THINKING OF YOU 4 mn 20 FLAT BEAT 4 mm ^ HEY BOY, HEY GIRL THE CHEMICAL BROTHES (WTT | 4? BOOM BOOM BOOM BOOM 4 mi 4* NARCOTIC t ii £ YOU NEEDED ME 4- m GET READY ^iiii (j|| LITLA HRYLLINGSBÚÐIN . . .ÚR LITLU HRYLLINGSB. t iii ANYONE %i (jgj IT’S NOT RIGHT BUT IT’S OK . . .WHITNEY HOUSTON 4 mm Qj MY LOVE IS YOUR LOVE . . . .WHITNEY HOUSTON HfSl SfGRÆN ÁST t iiii % PROMISES 4 mmmi SWEET LIKE CHOCOLATE . . .SHANKS & BIGFOOT t iii & CANNED HEAT 4 mm %> BYE BYE BABY 1 4) YOU’LL BE IN MY HEART . #111 4) ALEINN % 1 CLOUD NUMBER NINE . . . 4 mn UNPRETTY fei % ROOTS (FEEL TOO HIGH) . .SUNSHINE STAE & DAZ t n Qjj IF YOU HAD MY LOVE . . . fci íslenski listinn er saravinnuverkefni MónóogDV. Hringterí 300 til 400 manns á aldrinum 14 til 35 ára, af öllu landinu. Einnig getur fólk hringt í síma 550 0044 og tekið þátt í vali listans. íslenski iistinn er frumiluttur á Mono á fímmtudags- kvöldum kl. 20.00 og birtur á hverjum föstudegi í Fókus. Listinn er jafnframt endurfluttur á Bylgjunni á hverjum laugardegi kl. 16.00. Listinn er birtur, að hluta, í textavarpi MTV sjónvarpsstöövarinnar. íslenski listinn tekur þátt í vali „World Chart“ sem framleiddur er af Radio Express í Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er í tónlistarblaöinu Music & Media sem er rekið af bandaríska tónlistarblaðinu Billboard. Nýtt á Hækkar sig frá Lækkar sig frá listanum síðustu viku síðustu viku Taktu þátt í vali listans í síma 550 0044 fókus # Yfirumsjón með skoðanakönnun: Halldóra Hauksdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó Handrit, heimildaröflun og yfirumsjón með framleiðslu: ívar Guðmundsson - Tæknistjóm og íramleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson Útsendingastjóm: Ásgeir Kolbeinsson, Jóhann Jóhannsson og Ragnar PáÚ ólafsson - Kynnir i útvarpi: ívar Guömundsson Sviphreinir súkkulaðidrengir hafa löngum verið vinsælir í poppinu, enda eiga húsmæður og fermingartelpur sömu kröfu á poppi og aðrir þjóðfélagshópar. Nýjasta súkkulaðirúsínan heitir Ricky Martin og er næstum ætur, svo sætur er hann. Hann syngur latínó-popp og gerir það vel. Ricky Martin var á forsíðunni á Time fyrir mánuði. Nýjasta platan hans, „Ricky Martin" - hans fimmta, en hans fyrsta sem er sung- in á ensku - fór beint á topp breið- skífulistans. Það virðist sem Banda- ríkjamenn séu glorhungraðir í lat- inó-poppið hans Rickys, og auðvitað ættu þeir að vera það, spænskumæl- andi fólk er jú stærsti „minnihluta- hópurinn“ í landinu og í gegnum árin hafa spænsku-syngjandi popp- arar átt smelli og tónlistarstefnur eins og salsa og mambó átt góðan dag. Það sem er nýtt núna er að spænskumælandi popparamir eru farnir að syngja á ensku og það er kominn vestrænn poppþefur í ból bjarnar. Auk Rickys hefur t.d. Jennifer Lopez (aðalleikkonan úr Out of Sight) átt vinsæl lög. Ur unglingahljómsveit í sápu Ricky fæddist í Puerto Rico fyrir 27 árum, sonur geðlæknis og end- urskoðanda. Þau skildu þegar Ricky litli var tveggja ára. í æsku fílaði Ricky aðallega vestrænt popp, þá helst David Bowie, Cheap Trick og Boston, en mamma hans varð leið á þessari Vesturlanda- dýrkun og dró strákinn á tónleika með Celiu Cruz. Þá kviknaði áhugi guttans á latínó-tónlist og þeirri hugmynd laust niður hjá honum að fara að syngja sjálfur. Tólf ára reyndi hann að komast í unglinga- sveitina Menudo og komst að í þriðju tilraun. Með henni söng hann um allan heim þangað til hann varð 17 ára (1989) en þá verða menn of gamlir fyrir bandið og detta út. Ricky flutti til New York með sólóferil í huga en mætti ein- tómu mótlæti. Hann flutti því til Mexikós, fékk vinnu i mexíkóskri sápu og tók upp tvær plötur, enda kominn með samning við risann Sony. Þó plöturnar (“Ricky Mart- in“ 1992 og „Me Amaras" 1993) væru voðalegt froðupopp urðu þær nokkuð vinsælar hjá spænskumæl- andi fólki. Kjarkur Rickys óx við velgengn- ina og hann flutti til L.A. 1994 og fékk vinnu í sápunni „General Hospital", lék barþjón og söngvara á næturklúbbi. Hann hóf líka að vinna plötuna „A Medio Vivir", sem kom út ári síðar. Æðið brýst út Með plötunni varð nafn Rickys með þeim stærstu í latínó-deildinni. Heimssalan fór í 600 þúsund eintök á fyrstu mánuðunum og í október 1997 var hún komin í mifljón eintök. Meðan á þessu stóð lék Ricky í Les Miserables á Broadway og „döbb- aði“ spænsku útgáfuna af Hercules fyrir Disney-veldið. Enn vænkaðist hagurinn með fjórðu plötunni, „Vu- elve“, sem Ricky snaraði sér í að gera um leið og árssamningurinn á Broadway rann út. Platan innihélt fyrsta stórsmell Rickys, „La Copa de la Vida“, sem hann var svo frægur að syngja í opnunaratriði síðustu HM-keppni í fótbolta. Ricky kom fram á síðustu Grammy-verðlauna- afhendingunni þar sem vann „besti latínó-listamaðurinn" fyrir „Vuel- ve“ og þar má segja að lokahlykkur- inn á undirbúning Ricky Martin- æðisins hafi átt sér stað. Æðið hófst auðvitað á því að lag- ið „Livin’ La Vida Loca“ fór beint á toppinn og stóra platan fylgdi á toppinn skömmu síðar. Hún var í síðustu viku númer tvö í Banda- ríkjunum, 6 vikum eftir útgáfudag. Ekki slæmt það, enda hópast stórstirnin að Ricky. Madonna linnti t.d. ekki látum fyrr en hún fékk að syngja lag með Ricky á nýju plötunni. Popparinn sæti tekur frægðinni þó með þokkalegum fyr- irvara og segir: „Ég vona bara að ég verði ekki eingöngu smellur sum- arsins. Eftir tíu ár verð ég vonandi kítamórall plötudómur Skítamórall Skítamórall 0 Hvar er suitdboltinn? Það hefur ekkert breyst síðan Guðmundur Jónsson og Stefán Hilmarsson duttu ofan á poppfor- múlu sem virkaði með Sálinni hans Jóns míns. Ekki nema það að nú heitir Sálin Skítamórall. Þessi nýja plata Skítamórals er miklu vand- aðri (= dýrari) en sú sem kom út í fyrra, en þar var þó allavega smá- vegis gredda í gangi, enda bandið ekki búið áð sanna sig og komið upp í fyrstu deild. Nú er útlit fyrir að bandið haldi sér í deildinni þvi sándið er betra, útsetn- ingarnar metnaðarfyllri (= drekkt í dýrara tæknisírópi) og umslagið nær þvi að vera með útlendri hljómsveit. Lögin eru hins vegar svipuð; ballöður mest (“Myndir" verður líklega næst- um því jafn vinsælt og „Farin") en annars kemur bókstaflega ekkert á óvart á plötunni, hún er fyrirsjáanleg eins og kosningaúrslit eftir hundrað skoðanakannanir. En maður verður samt að spyrja: Þurfti þessi plata að vera svona hrútleiðinleg, strákar? Var ekki hægt að kópera eitthvað skárra, eins og t.d. Red Hot Chili Peppers sem þið fílið í botn? Gátuði ekki breytt aðeins hljómunum í „Krókn- um“ og fengið Andra Bachmann til að syngja með? Gátuði ekki reynt að sýna smávegis frumkvæði og hætt að jarma á gömlum tyggjó- klessum af gangstéttinni? Ég meina, það verður hvort sem er fullt á öllum sveitaböllum með ykk- ur í sumar og þið græðið ekkert á plötum hvort sem er. Á þessari plötu er Skítamórall ekki hresst og skemmtilegt band eins og Á móti sól eða jafnvel Butt- ercup, heldur sífellt vælandi eitt- hvað í vemmflegum fíling og ekkert almennilegt stuð í gangi. Maður set- ur ekki þessa plötu á fóninn í partí- inu og umsvifalaust fara stelpurnar í bíkini og henda sundbolta og strákarnir að frussa úr bjórbauk- I / Hvað er eiginlega að íslensku þjóðfélagi þegar heitasta band landsins er að herma eftir Sálinni eins og hún var fyrir sjö árum? um. Nei, það gerist bara fjandinn mest lítið, það vottar örsjaldan fyr- ir lífsmarki, spilagleði eða töffara- skap, þó lögin „Hey þú (bannað)" og „Villtir draumar" hljómi bæði eins og tilraunir Sálarinnar til að vera kúl á „Þessum þungu höggum“. Hvað er eiginlega að íslensku þjóðfélagi þegar heitasta band landsins er að herma eftir Sálinni eins og hún var fyrir sjö árum? Ha, hvað segiði? Er þetta það sem fólkið vill? Ókei, Þjóðarsálin hans Jóns míns á síðasta orðið. Gunnar Hjálmarsson f Ó k U S 25. júní 1999 10

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.