Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.1999, Page 16
16
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1999
ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚLÍ 1999
Sport
þeim samningi sem við höfð-
um gert og nýr yrði gerður í
staðinn, þar sem ég vildi að-
eins gera eins árs samning,
einnig þar sem gerður samn-
ingur hljóðaði upp á allt of lág-
ar greiðslur fyrir tveggja ára
samning.
Voru menn ekki á eitt sáttir
um það og buðu Þróttararnir
upp á þá málamiðlun að ef ég
yrði seldur til erlends félags þá
fengi ég 60% af söluupphæð-
inni og þeir 40%. Einnig var
því lofað að þeir stæðu ekki í
veginum ef ég vildi fara utan.
Þrátt fyrir það að vera ekki al-
einhvern hluta söluupphæöar-
innar.
Fer ég síðan til Danmerkur
þann 7. október 1998 í prufu
hjá danska klúbbnum AGF og
er þar í viku. Eftir þá viku
segja forráðamenn AGF að
þeir vilji fá mig til liðs við sig
ef ég kosti ekki of mikið. Ég
verð himinnlifandi yfir þeim
fréttum og hringi heim í Ólaf
formann. Hann virðist einnig
vera mjög ánægður fyrir mína
hönd og allt virðist ætla að
ganga eins og i sögu. Daginn
eftir fer ég niður í klúbbhús og
á þar að skrifa undir samning
Við þessar fréttir brást ég
hin versti við og gekk út af
skrifstofu AGF út úr klúbhhús-
inu. Þar náði umboðsmaður-
inn í mig og spurði hvað væri
málið. Þegar ég var búinn að
greina honum frá því sagði
hann að nú yrði ég að ákveða
hvað yrði, því flugið til íslands
væri eftir einn og hálfan tíma
og það var annaðhvort að
skrifa undir samninginn og
reyna síðan að tala seinna við
Þróttarana eða að segja takk
fyrir mig og fljúga heim.
Gleymi aldrei hvernig
Þróttarar höguðu sér
Eins og þeir
vita sem fylgj-
ast með fótbolta
valdi ég það að
skrifa undir
þriggja ára
samning hjá
AGF og get því
einbeitt mér að
fótbolta 100%
og fæ fyrir það
góð laun, en
aldrei kem ég
til með að
gleyma því
hvernig Þrótt-
arar höguðu sér
í þessu máli og
ber þá sérlega
að nefna Ólaf
/Morthens, Þor-
stein Snædal og
Hauk Magnús-
son.
Sá peningur
sem ég hefði
fengið fyrir fé-
lagaskiptin var
ekki stór upp-
hæð en þó
nægilega stór
til þess að losa
mínar skuldir
heima á íslandi
og borga fyrir
flutning Qöl-
skyldunnar til
Danmerkur.
Tómas Ingi Tómasson, til hægri, í leik með Þrótti gegn Jóni Þ. Stefánssyni og félögum í Val.
Einn dag í febrúarmánuði
1998 átti ég, Tómas Ingi Tómas-
son, fund með stjórn Knatt-
spymufélags Þróttar um hvort
samningar næðust þess efnis
að ég kæmi til með að spila
fyrir Þrótt á komandi tímabili.
Eftir nokkra fundi ákvað ég að
slá til og gera samning. Á þess-
um fundum voru aðeins rædd
peningamál, þ.e. hversu mikið
Þróttarar voru tilbúnir að
greiða mér fyrir að spila.
Taldi samningstímann
vera eitt ár
Aldrei kom fram á þessum
fundum hversu langur samn-
ingatíminn var og taldi ég
hann því vera 1 ár. Daginn eft-
ir í fjölmiðlum kemur í ljós að
samningur milli mín og Þrótt-
ar er til tveggja ára. Hringi ég
því til Ólafs Morthens, þáver-
andi formanns Þróttar og seg-
ist vera mjög ósáttur við að
samningurinn sé til tveggja
ára vegna þess að ég hefði
áhuga á að fara erlendis að
spila árið eftir ef mögulegt
væri. Hann segir þá að Þróttur
muni ekki stoppa mig ef það
verði ósk mín. Þá segist ég
ekki vera tilbúinn að láta allan
þann pening sem ósamnings-
bundnir leikmenn geti fengið
við að skipta erlendis renna til
Þróttar (en það þyrfti ég að
gera ef ég væri á tveggja ára
samningi).
Lagði til að samningi
yrði rift
Ákvað Ólafur þá að kalla
saman annan fund og reyna að
laga til samninginn. Á þeim
fundi eru staddir Ólafur, Þor-
steinn Snædal varaformaður,
Willum Þór þjálfari, Valur aö-
stoðarþjálfari og ég.
Legg ég til að við riftum
veg sáttur við niðurstöðuna
sló ég til og skrifaði undir
tveggja ára samning við Þrótt.
Tímabilið 1998 gekk ekki
nógu vel hjá Þrótti og féllum
við niður í næstefstu deild (1.
deild) en mér persónulega
gekk mjög vel. Skoraði ég 14
mörk og lagði upp 6 af 27
mörkum sem Þróttur skoraði á
tímabilinu 1998. Fljótlega eftir
mót voru erlend lið farin að
falast eftir því að fá mig til æf-
inga til að sjá hvort ég gæti
styrkt lið þeirra.
Fannst í góðu lagi að
klúbburinn fengi hluta
Talaði ég við forráðamenn
knattspymudeildarinnar um
hvor ekki væri í lagi að ég
ræddi við þessa menn. Það var
ekkert mál, sögðu þeir, þar
sem ég hefði staðið skyldur
mínar svo vel innan sem utan
vallar. Einnig fékk ég þá til að
samþykkja að ekki yrði sett of
há upphæö á mig þannig að
það myndi ekki stoppa hugsan-
leg félagaskipti mín. Þetta var
samþykkt og komumst við nið-
ur á ákveðna tölu sem allir
vom sáttir við, því mér fannst
í góðu lagi að klúbburinn fengi
hjá nýjum vinnuveitanda, sem
gerir mér kleift að einbeita
mér að að spila eingöngu fót-
bolta næstu 3 árin. Er þangað
kemur bíða eftir mér þjálfar-
inn og umboðsmaður minn.
Segja þeir að þeir séu að bíða
eftir síðasta faxinu frá Þrótti
en það átti að berast klukkan
tvö. Líður nú og bíður og ekk-
ert fax kemur, menn fara held-
ur að ókyrrast því að ef ekki
yrði að samningum þarna
yrðu engir samningar gerðir.
Ég var líka orðinn áhyggjufull-
ur því ég átti pantað flug til ís-
lands klukkan 17 og keyrslan
út á flugvöll var um 1 klukku-
stund.
Vildu að ég skrifaði
undir yfirlysingu
Þegar klukkan er að verða
þrjú hringir hjá mér síminn,
það er Ólafur formaður og
hljóðið í honum er allt öðru-
vísi en ég er vanur að þekkja.
Hann segir að ef ég vilji skipta
um klúbb þá vilji Þróttur að ég
skrifi undir yfirlýsingu þess
efnis að við félagaskipti renni
öll söluupphæðin óskert til
Þróttar en ekki 60 - 40 eins og
samið hefði verið um.
Þetta bréf er
skrifað til þess
að allir þeir sem hafa fylgst
með málinu úr fjarlægð fái að
vita hið rétta og þeir sem ekk-
ert vita um málið fá að vita
hvemig fullorðnir menn geta
gengið á bak orða sinna þrátt
fyrir loforð í margra manna
viðurvist.
Búa til sterkt leikmanna-
samband
Einnig skrifa ég þetta bréf
til þess að bæði ungir og eldri
leikmenn heima á íslandi geri
sér grein fyrir þvi að allir þeir
samningar sem gerðir em
skulu vera skriflegir. Ekki
þýðir að treysta einum eða
neinum í þessum geira frekar
en öðrum.
Einnig skora ég á leikmenn
heima á að sameinast um að
búa til sterkt leikmannasam-
band sem menn geti leitað til
er þeir eru í vandræðum í
samningagerð eða eiga eitt-
hvað óleyst gagnvart sínu fé-
lagi, því við erum mun sterk-
ari sameinaðir heldur en einn
og einn.
Að lokum vill ég óska öllum
knattspyrnumönnum og -kon-
um góðs tímabils.
Tómas Ingi Tómasson
Tómas Ingi Tómasson, knattspyrnumaður í Danmörku:
25
Sport
Breytingar í kvennahandboltanum:
Inga Fríða í Hauka
Inga Fríða Tryggadóttir hand-
knattleikskona, sem valin var hesti
varnarmaður 1. deildar kvenna á
síðustu leiktíð, hefur tekið ákvörðun
um að leika með Haukum á komandi
leiktímabili.
Inga Fríða hefur leikið með
Stjörnunni í Garðabæ sl. sex ár og
orðið með henni bæði Islands- og
bikarmeistari á þeim tíma. „Þetta
var erfið ákvörun, en ég hef mikla
trú á Júdit Estergal sem þjálfara og
veit að hún getur kennt mér margt,“
sagði Inga Fríða í samtali við DV.
Meiðsli hrjáðu Ingu Fríðu allt síð-
asta tímabil, þó að hún missti ekki
marga leiki úr vegna þeirra. Hvern-
ig standa þau mál nú?
„Þetta er allt á réttri leið en ekki
enn orðið gott. Ég fór í speglun á
hné fyrr í sumar og hef ekki mátt
hlaupa síðan, en ég hjóla og styrki
mig að öðru leyti og þetta verður
orðið gott í haust.“ -ih
Björn Jakobsson fær mjög góða dóma fyrir frammistöðu sína með
norska B-deildarliðinu Raufoss nú um helgina. Björn, sem var að spila
sinn fyrsta leik fyrir félagið í deildinni, var mjög skæður í framlínunni
og lagði upp tvö mörk þegar Raufoss sigraði Clausenengen, 3-0. Þetta var
mikilvægur leikur í botnbaráttu deildarinnar en þrátt fyrir sigurinn er
Raufoss í fjórða neðsta sæti deildarinnar með 14 stig og í fallsæti en
Clausenengen er með 7 stig.
Björn, sem nýlega gekk í raðir Raufoss frá KR, þótti leika best í liði
Raufoss. Hann var mjög duglegur og ásamt því að leggja upp tvö mörk
skapaði hann mikinn usla í vörn Clausenengen með hraða sínum og bar-
áttu. -GH
Veróiö fyrir KR-inga er
33.900 fyrir flug og gist-
ingu í tvær nætur í
tveggja manna herbergi.
Verð í eins manns her-
bergi er 40.640 krónur
með flugi. Innifalið er flug
til Glasgow, miðvikudag-
inn 25. ágúst, gisting á
Hilton hótelinu (í miðborg
Glasgow) i tvær nætur en um
er að ræða fimm stjörnu hótel.
Gunnsteinn Jónsson sigraði i meistara-
flokki karla á meistaramóti Golfklúbbsins Set-
bergs í Hafnarfiröi. Gunnsteinn lék á 308 höggmn,
Kristján Kristjánsson kom næstur á 303 höggum og Ólafur
Jóhannesson var á 313. I kvennaflokki sigraði Kristin Þor-
valdsdóttir en hún lék á 346 höggum. Heióa Vióarsdóttir lék á
406 höggum og sömuleiðis Lovisa Hermannsdóttir.
Þórir Bragason sigraði í meistaraflokki karla á meistaramóti Golf-
klúbbs Hellu, GHR. Þórir lék á samtals 318 höggum. Óskar Pálsson
varð annar á 328 höggum og Ólafur Stolzenvald þriðji á 330 höggmn. Hjá
konum sigraði Sigríóur Hannesdóttir á 420 höggum, Sólveig Stolzenwald
varð önnur á 421 höggi og Guöný Rósa Tómasdóttir þriðja á 444 höggum.
Hjá Golfklúbbi Sauöárkróks sigraði Guömundur Ingvi Einarsson. Hann
lék á 320 höggum eins og Einar Haukur Óskarsson en hafði betur eftir um-
spil. í þriðja sæti varð Óli Barödal á 327 höggum. Hjá konum sigraði
Arný Lilja Árnadóttir á 342 höggum, Sesselja Barödal kom næst á 372
höggum og Svanborg Guðjónsdóttir þriðja á 393 höggum.
Ottó Sigurðsson vann meistaramót GKG, Golfklúbbs Kópavog-
ar og Garöabœjar um helgina. Hann lék á 282 höggum eða 21
þöggi betur en næsti maður sem var Svanþór Laxdal. Þriðji
varð Ragnar Þór Ragnarsson sem lék á 306 höggum. Ró-
bert Björnsson vann 1. flokk, Gunnar Már Gislason 2.
flokk, Sigrún Ragnarsdóttir 1. flokk kvenna og Guö-
rún Gerða Sigurþórsdóttir 2. flokk kvenna.
f?9| ENGLAND
Coventry hefur gengið frá kaupum á
Marokkómanninum Mustapha Hadji sem
leikið hefur með Deportivo La Coruna á
Spáni. Hadji er 27 ára gamall miðjumaöur
sem á síðasta ári var kjörinn knattspyrnu-
maður ársins í Afríku eftir frábæra frammi-
stöðu með Marokkómönnum á HM.
Coventry greiðir 430 milljónir króna fyrir
leikmanninn.
Robbie Keane, yngri bróðir Roy Keane, fyr-
irliða Manchester United, er á leið til Aston
Villa frá Wolves. Keane er framlínumaður
og er talinn einn af efnilegri knattspyrnu-
mönnum Bretlandseyja. Aston Villa þarf að
greiða 650 milljónir króna fyrir leikmann-
inn.
Vandræðagemlingurinn Stan Collymore
gæti verið á forum frá Aston Villa til Ful-
ham. Búið er að ákveða að Collymore verði
lánaður til Fulham i þrjá mánuði og eftir
þann tima kemur i ljós hvort Fulham kaupi
leikmanninn. Hann er falur á 130 milljónir
en Aston Villa keypti hann frá Liverpool fyr-
ir 730 milljónir.
Raul Blanco, þjálfari ástralska úrvalsdeild-
arliðsins Socceroos, sem tapaði tveimur
leikjum gegn Manchester United, vandar
ekki Andy Cole, framherja United, kveðjurn-
ar. Cole tæklaði einn leikmann ástralska
liðsins það illa að hann verður frá keppni í
hálft ár. „Þetta var mjög ljót tækling hjá Cole
og svona á ekki að sjást i æflngaleik," sagði
þjálfarinn. -GH
Fimmtudaginn 26. ágúst mætir KR
skoska liðinu Kilmarnock í forkeppni
UEFA-bikarkeppninnar á Rugby
Park Stadium í Kilmarnock sem er
í um hálftíma akstur frá miðborg
Glasgow. Um er að ræða há-
annatíma ferðaþjónustu á
þessu svæði en
góðra manna og
Flugleiðum hefur tekist að
taka frá 60 sæti fyrir þá
KR-inga sem vilja fylgja
sínum mönnum.
Nú er um aó gera fyrir KR-inga
að hafa hraöar hendur því ljóst
er að mikill flöldi stuðnings-
manna hyggst fylgja liðinu til
Skotlands. Þangað er margt að
sæltja, fótbolta í hæsta gæða-
flokki, kráarmenningu og útsöl-
ur. Hægt er að bóka sig með
tvennum hætti: A - í gegnum e-mail
fridajul@icelandair.is B - í gegnum
sima 505 0100.
Gaman á ný
Ronaldo er aö komast aftur á skrið eftir erfitt ár í kjölfar sálfræðilegs hruns fyrir
úrslitaleik HM í knattspyrnu í Frakklandi 1998. Ronaldo skoraði eitt mark í 3-0
sigri Brasilíu á Úrúgvæ í úrslitaleik Suður-Ameríkubikarsins á sunnudagskvöld
og var annar markahæsti leikmáður keppninnar ásamt félaga sínum Rivaldo.
Ronaldo sagði efti sigurinn í úrslitaleiknum gegn Úrúgvæ að þetta hefði verið tvö-
faldur sigur, bæði fyrir hann sjálfan sem og brasilíska landsliðið. Kappinn bros-
ir hér út að eyrum á myndinni til hliðar, eftir sjötta sigur Brasilíu á Copa Amer-
ica, og aðra keppnina í röð en þeir unnu einnig 1997. -ÓÓJ
i/fííMiíM
Nökkvi til KR-inga
KR-ingar, sem eru í toppsæti úrvalsdeildarinnar í
knattspyrnu, fengu nýjan leikmann í sínar raðir í
gær en þá skrifaði Nökkvi Gunnarsson undir
þriggja ára samning við vesturbæjarliðið.
Nökkvi er 23 ára gamall framherji sem
leikið hefur með KS á Siglufirði síðustu
tvö árin. Hann lék alla yngri flokkana
með KR, við hlið Andra Sigþórsson-
ar í framlínunni, spilaði með
drengjalandsliðinu og lék tvo
leiki með Stjörnunni í úrvals-
deildinni 1997. Nökkvi er
mjög hávaxinn eða um 1,96
metrar á hæð og gæti því
nýst KR-ingum vel.
-GH
Óvíst með Stefán
gegn KR-ingum
Skagamaðurinn Stefán Þ. Þórðarson lék
annan hálfleikinn með enska C-deildarliðinu
Oxford þegar það tapaði fyrir skoska B-deild-
arliðinu Ayr Únited, 0-1, í æfingaleik í gær-
kvöld. Stefán hefur verið hjá Oxford í viku og
mál hans áttu að skýrast í gærkvöld en gerðu
það ekki. Þó er ljóst að enska félagið vill hafa
hann lengur og hefur beðið um að fá hann í
annan æfingaleik síðar í vikunni. Það er því
frekar ólíklegt að Skagamenn njóti krafta hans
þegar þeir mæta KR-ingum í úrvalsdeildinni á
fimmtudagskvöldið.
-VS
Lárus Orri Sigurðsson:
Enn á sölulista
Gary Megson, nýráðinn framkvæmdastjóri
enska knattspymufélagsins Stoke City, sagði
í gær að Lárus Orri Sigurðsson yrði áfram á
sölulista hjá félaginu.
„Ég ræddi við Lárus Orra og við urðum
ásáttir um að hann væri áfram til sölu. Hann
vill spila í hærri deild og til þess þarf hann
að leika vel með Stoke á komandi tímabili, og
það hentar bæði okkur og honum mjög vel,“
sagði Megson við fréttavefmn Teamtalk í
gær.
Lárus Orri á eitt ár eftir af samningi sín-
um við Stoke og getur því farið frítt frá félag-
inu næsta sumar, verði hann ekki seldur
áður. -VS
Blcmd i
Björn byrjar vel í Noregi
»
V
Hjá Golfklúbbnum Kili í Mosfellsbæ sigraði Davíó Már Vilhjálmsson í
karlaflokki og Nina Björk Geirsdóttir í kvennaflokki. Davíð lék á 304 högg-
um og síðan komu Kári Emilsson á 312 og Skúli Skúlason á 320. Nina
Björk vann Helgu Rut Svanbergsdóttur á fyrstu holu í bráöabana en þær
voru jafnar á 315 höggum.
Helgi Dan Steinsson sigraði af öryggi i meistaraflokki karla hjá Leyni á
Akranesi. Hann lék á 287 höggum, Ingi Rúnar Gislason á 297 og Kristvin
Bjarnason á 299 höggum.
Ólafur Gottskálksson og félagar í skoska knattspymuliðinu Hibernian
hafa að undanförnu dvalið í Danmörku í æfingabúðum. Þeir hafa þar gert
jafntefli við tvö B-deildar lið, 1-1 við Ölstykke og 2-2 við Köge.
Jóhann B. Guðmundsson og félagar í enska A-deildar liöinu Watford
máttu sætta sig við 0-0 jafntefli gegn C-deildar liði Oldham á æfingarmóti á
eyjunni Mön á sunnudag. Oldham sigraöi síðan í vítaspyrnukeppni.
Einar Örn Birgisson, framherji knattspyrnuliðs KR, sem meiddist í bikar-
leiknum gegn Fylki á dögunum, er allur að koma til. Hann er orðinn verkja-
laus og verður sennilega orðinn leikfær um næstu mánaöamót.
Einar Þór Danielsson verður að öflum líkindum með KR-ingum út leiktíð-
ina en fyrr i sumar leit allt út fyrir að hann yröi seldur til griska liðsins
OFI. Eftir að ný stjórn tók við hjá félaginu hefur ekkert heyrst frá Grikkj-
unum varðandi hugsanleg kaup á Einari. Ekki er loku fyrir það skotið að
Einar verði leigður til félagsins í haust líkt og á síðasta timabili.
Enginn dómari mætti á leik Gróttu við RKV sem fram átti að fara í 1. deild
kvenna í knattspymu í gærkvöld. Grótta missir því heimaleikinn, sem verð-
ur settur á að nýju á heimavelli RKV á Suðurnesjum. FH vann Selfoss, 3-0,
á Selfossi, og skoraði fyrrum landsliðskonan Arna Steinsen eitt marka FH.
Hin gerðu Friöný Jónsdóttir og Guórún Sveinsdóttir. Haukar unnu Fylki,
5-3, KVA vann Sindra, 2-0, en sömu lið skildu jöfn, 1-1, í fyrrakvöld, Hug-
inn/Höttur og Einherji gerðu jafntefli, 1-1, og Hvöt náði óvæntu jafntefli
gegn þór/KA á Akureyri, 2-2.
Bruni sigraói Reyni úr Sandgerði, 2-1, í A-riðli 3. deildar karla á Akranesi
í gærkvöld. Bruni komst með því í annað sæti með 16 stig en KFS er efst
með 19. Reynir og Njarðvík eru með 15 stig og leik til góða. -GH/-ÓÓJ/VS
360 milyonir
- er Tottenham tilbúið til að bjóða í Eið Smára
Enskir fjölmiölar skýrðu frá
því á sunnudaginn að George
Graham, knattspymustjóri Tott-
enham, væri að undirbúa 360
milljóna króna tilboð í Eið
Smára Guðjohnsen sem leikur
með Bolton í B-deildinni.
Fleiri félög eru með Eið
Smára í sigtinu ef marka má
fréttir enskra blaða en þar er
greint frá áhuga ensku A-deild-
arliðanna West Ham
og Derby og skosku
stórliðanna Glasgow
Celtic og Glasgow
Rangers.
Eiður Smári hefur
hægt og bítandi ver-
ið að ná bata eftir
erfið meiðsli og
frammistaða hans
með Bolton á síð-
ustu leiktíð vakti at-
hygli.
Eiður og félagar hans
i liði Bolton eru þessa
dagana að búa sig af
fullum krafti undir
leiktíðina sem hefst í
næsta mánuði. Um
helgina lék Bolton
sinn fyrsta æfingaleik
og ekki er hægt að
segja að byrjunin lofi mjög góðu
því liðið tapaði fyrir Stoke sem
leikur í C-deildinni, 2-1. Það var
Eiður Smári sem skoraði mark
Bolton í leiknum og kom liðinu í
forystu en Lárus Orri Sigurðs-
son og félagar hans í Stoke skor-
uðu tvö mörk og tryggðu sér sig-
ur. -GH
Ragnar til Skagamanna
Ragnar Amason, fyrrum leik-
maður Stjörnunnar og 21-árs
landsliðsins í knattspyrnu,
skrifaði í gærkvöld undir samn-
ing við Skagamenn út þetta
tímabil. Stöð 2 sagði frá þessu í
gærkvöld. Ragnar hefur leikið
með Bryne í norsku B-deildinni
frá miðju síðasta sumri. Hann
er 23 ára og á 42 leiki að baki í
efstu deild með Stjömunni.
„Ragnar er mjög fjölhæfur
leikmaður, getur spiiaö flestar
stöður og er fljótur og sterkur.
Hann styrkir hóp okkar veru-
lega. Ragnar hefur ekki fengið
tækifæri sem skyldi hjá þjálfara
Bryne, þrátt fyrir að hafa spilað
mjög vel í|
vor, og er þvi
kominn til okkar, en getur farið
aftur til Bryne ef breytingar
verða þar,“ sagði Logi Ólafsson,
þjálfari ÍA, viö DV. -VS
Haraldur
sló í gegn
Haraldur Ingólfsson átti stórleik í
gærkvöld með Elfs-
borg þegar liðið gerði
jafntefli, 4-4, við
Frölunda i sænsku A-
deildinni í knatt-
spyrnu.
Haraldur fékk loks
tækifæri í byrjunarlið-
inu og þakkaði fyrir
sig með því að leggja
upp þrjú marka Elfsborgar.
Þjálfari Elfsborgar, Kalle Björklund,
var rekinn á dögunum og aðstoðarmað-
ur hans, Bengt Strömberg, tók við.
Strömberg gaf Haraldi tækifæri í æf-
ingaleik við Tottenham, sem endaði
1-1, og þar stóð Skagamaðurinn sig vel,
og fékk því að byrja inn á í gærkvöld.
„Haraldur sýndi allt aðra og betri
hlið á sér í kvöld og spilaði mjög vel,“
sagði Strömberg eftir leikinn.
Haraldur var mjög ánægður og sagði
að með þessu hefði sér tekist að gefa
Björklund langt nef.
Þórður Þórðarson stóð sig vel í
marki Norrköping sem tapaði, 2-0, fyri
AIK í gærkvöld. -EH/VS