Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1999, Side 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1999, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1999 Viðskipti Þetta helst: ••• Viðskipti dagsins á Verðbréfaþingi voru 753,1 m.kr. ... Mest með ríkisvíxla, 295,6 m.kr. ... Húsbréf 261,6 m.kr. ... Hlutabréf 182,3 m.kr. ... Mest viðskipti urðu með Opin kerfi, 44.892.789 .. Bréf Opinna kerfa hækkuðu mest, eða um 3,03% ... Bréf SH lækkuðu mest, eða um 4,40% ... ísbú ehf. lætur smíða skip fyrir íslendinga í Kína: Þegar búið að semja um smíði tíu skipa - þetta er aðeins byrjunin, segir Björn Ágúst Jónsson Ráðgjafaríyrirtækið ísbú ehf. í Reykjavík gerði fyrir nokkru samn- inga um smíði á 9 130-140 tonna fiskiskipum fyrir íslendinga í Kína. Þar er um að ræða mesta fjölda skipa sem smíðaður er í einu fyrir íslendinga erlendis, alla vega á síð- ari árum. Skipin eru öll eins, 21,5 metrar að lengd og 6,4 metrar að breidd. Framkvæmdastjórar og eig- endur ísbús, Jens Valdimarsson og Bjöm Ágúst Jónsson, segja að auk samninga um smíði á áðurnefndum bátum, þá hafi áður verið búið að gera smíðasamning á nótaskipi fyr- ir Örn Erlingsson sem væntanlegt er til landsins á fyrri hluta næsta Hús Krossanesverksmiðjunnar á Ólafsfirði. DV-mynd Helgi Ólafsíjörður: Verksmiðja Krossaness hættir DV, Ólafsfiröi: Bæjarstjóm Ólafsijarðar samþykkti nýverið bókun vegna þess að Krossa- nes hf. hefur sagt upp þremur starfs- mönnum sínum á Ólafsfirði og í fram- haldi af því hefur verið ákveðið að hætta allri vinnslu í verksmiðjunni þar í bæ. Bæjarstjóm samþykkti að skora á stjóm fyrirtækisins að hún endur- skoðaði ákvörðun sína hið fyrsta og leitaði allra leiða til að afla hráefnis svo hægt yrði að halda starfseminni álram. Ólafsfirðingar hafa löngum haldið því fram að í verksmiðjunni sé framleitt hágæðamjöl sem hefur reynst auðvelt að selja. -HJ árs. Það verður þá trúlega eitt stærsta nótaveiðiskip í ís- lenska flotanum, um 2.200 tonn að stærð. Þetta skip verður einnig með frystingu um borð og mun geta afka- stað um 120 tonnum á sólarhring. Að sögn þeirra fé- laga er smíði þess- ara tíu skipa bara byrjunin, því nú eru í deiglunni hjá fyrirtækinu frekari smíði á skipum í Kína fyrir útgerðir víða um heim. ís- lenskir útgerðar- menn hafa sýnt þessu máli mikinn áhuga og fylgjast vel með framvindu mála. Þá mun einn útgerðarmaður hér Eitthvað verður unnið við skipin á íslandi skipaiðnaðurinn hér á landi hefur oft verið líflegri. en hafa á landi íhugað smíði á togara i Kína. Lítil endurnýjun hefur verið á is- lenska vertíðarbátaflotanum sem kominn er nokkuð til ára sinna. Bátamir níu sem nú verða smíðað- ir í Kína eru útbúnir til línu- og dragnótaveiða og fara til útgerðar- manna víða um land, m.a. þrír til Vestfjarða. Bjöm segir að með smíði á svo mörgum bátum í einu hafi reynst unnt að ná kostnaði nið- ur á mörgum þáttum sem geri verðið enn hag- stæðara en ella. Það snýr m.a. að flutningi á skipinum til ís- lands með stóra flutningaskipi. Áætlað verð á hverjum þess- ara báta er um 50 milljónir en þá á eftir að ekki veitir af því reikna spil inn í DV-mynd Teitur dæmið en þau verða sett í þá hér á landi. Þá má búast við að gengisbreytingar hafi einhver áhrif á verðið. -HKr. Olíuverð: Bensm mun væntanlega hækka í verði á næstunni - segir Gunnar Karl Guðmundsson „Þær lækkanir sem hafa verið á hráolíu erlendis undanfarið era ein- ungis brot af þeirri hækkun sem hefur verið undanfarna mánuði. Hækkanir erlendis hafa verið það miklar að bensín mun líklega hækka hér á landi,“ segir Gunnar Karl Guðmundsson, framkvæmda- stjóri fjármálasviðs Skeljungs. Hrá- oliuverð erlendis hefur lækkað um örfá prósent en það nær engan veg- inn þeim hækkunum sem hafa ver- ið síðan í maí. „Bensín mun vænt- anlega hækka í verði á næstunni. Sú hækkun sem hefur verið á bens- ini erlendis jafngildir um 7 krónum á hvem lítra. Bensinverð mun þó ekki hækka það mikið,“ segir Gunn- ar. Verð á bensínlítra hefur mikið að segja fyrir neytendur og því ljóst að hækkunin á hráolíu erlendis undan- fama mánuði eru slæm tíöindi fyrir þá. íslenski bátaflotinn er einnig mjög háður olíuverði og ljóst aö hækkun á því mun hafa slæmar af- leiðingar, sérstaklega fyrir þá sem veiða uppsjávarfisk, en afurðaverð þar hefur hrunið frá því sem var. Margir hafa rætt um að hækkun ol- íuverðs myndi hafa slæmar afleið- ingar fyrir sjávarútveginn og þá um leið þjóðarbúskapinn. Því miöur náðist ekki í fulltrúa annarra oliufé- laga um hvort og þá hve mikið olíu- verð myndi hækka. -EIS Kínverjar gefa í Kínversk stjómvöld hyggjast auka verulega ríkisútgjöld sín á þessu ári til að örva hagkerfið. Li Lanqing Li, einn af yfirmönnum efnahagsmála í Kína, sagði að aðgerðimar ættu að skapa afslappaðra pólitískt og efna- hagslegt umhverfi. Kínverjar hyggjast taka stór lán til að efla innri byggingu hagkerfisins, uppfæra tækni í helstu iðnaðargeirum og stuðla að umhverf- isvemd. Milliuppgjör Hampiðjunnar og Eimskips I næstu viku em væntanleg milliuppgjör frá Hampiðjunni og Eimskip en búist er við góðri niðurstöðu beggja fyrirtækja. Hampiðjan Wk og Eimskip em rótgróin fyrirtæki og því er ekki búist við neinum hækkun- um á hlutabréfum. Herbalife hagnast Næringarefhafyrirtækið Herbalife International Inc. hagnaðist um 915 milljónir íslenskra króna á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Samanlagður hagnaður fyrirtækisins á fyrri hluta ársins vora tveir milljarðar. Heildar- sölutekjur fyrirtækisins á öðrum árs- fjórðungi jukust um 7% frá sama timabili í fyrra og námu 32 milljörð- um króna. Þetta kom fram á Við- skiptavefnum á Vísi. Fram kemur að Herbalife starfar í 44 löndum og nýjasta landið í hópnum sé ísland, þar sem starfsemi hófst á öðram ársfjórðungi þessa árs. Mike Moore yfirmaður WTO Leiðtogakreppa sem hefur háð WTO hefúr verið leyst. Mike Moore, fyrrver- andi forsætisráðherra Nýja-Sjálands hefúr verið ráðinn aðalritari stofnunn- ar. Miklar deilur hafa verið um stöð- una en það var leyst með þeirri mála- miðlun að fyrrum aðstoðarforsætisráð- herra Taílands, Supachai Panitchpak- di, tekur við starfmu árið 2002. Það er vonandi að þessi niðurstaða geri WTO aftur starfhæfa en helstu forysturíkin hafa mikið deilt um þetta síðustu mán- uði. Þetta kom fram á Viðskiptavefnum á Vísi.is. Norðurljós að veruleika Nú á næstu dögum mun afþreying- arfyrirtækið Norðurljós verða til. Is- lenska útvarpsfélagiö mun renna saman við Skífúna ásamt fleiri dótturfyrirtækjum. Einnig verður 35% hlut- ur í Tal verða í hinu nýja fýrirtæki. Fyrir- tækið mun verða gríðarlega öflugt í fjölmiðlaheiminum og ljóst að fram- tíðarmöguleikar era miklir á sístækk- andi markaði. Viðskiptavefúr Vísis.is sagði frá. Nýr forstjóri verður Hregg- viður Jónsson. -EIS Viltu öruggan sparnað sem er eignaskattsfrjáls? Sjóður 5 er sérsniðinn fyrir þá sem vilja spara til lengri tíma á öruggan, þægilegan og hagkvæman hátt. Hann fjárfestir einungis í ríkisskuldabréfúm og er því eignaskattsfrjáls. Hann er alltaf innleys- anlegur og nafnávöxtun undanfarin 2 ár hefur verið 9,3% að meðaltali. Hægt er að kaupa í honum í áskrift eða fyrir hvaða upphæð sem er. Kostir Sjóðs 5 eru fjölmörgum fjárfestum kunnir enda er hann næststærsti verðbréfasjóður landsins með 7.270 milljónir kr. (VÍB Sjóður 7 er stærstur). yjg VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Kirkjusandi • 155 Reykjavík Sími: 560 89 00 • Myndsendir: 560 89 10 Veffang: www.vib.is • Netfang: vib@vib.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.