Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1999, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1999, Qupperneq 13
FÖ8TUDAGUR 23. JÚLÍ 1999 13 ^ Erotic Club Ólafur Ragnar? I hita umræðunnar gleymast oft veigamikil atriði. Þannig hefur það verið í hinum merki- legu deilum um Erotic Club Clinton. Af þeim má greina að við erum ekki lengur kanavæn þjóð sem býst við Clint- onhjálp á borð við þá sem var kennd við Marshall. Nárastöng eða kóngabrjóstsykur? Það smekkleysi hefði verið óhugsandi fyrir nokkrum árum að skíra búllu í höfuðið á Banda- ríkjaforseta, þótt lista- konur á háskólabraut leiki þar fagrar listir, ýmist með hægri fót á lofti og nár- ann við stólpa eða bakið á gólfi í stellingu brjósta, sem minna á júg- ur, meðan strákar horfa á og tala í farsíma við kærustuna. Svo mikil virðing var þá borin fyrir þjóðar- leiðtogum. Ég held að fáum þætti hæfa ef settur yrði á stofn í Washington „Erotic Club Ólafur Ragnar" í til- efni landafundanna miklu á næsta ári með kúskeljastúlkum frá Bása- felli með sprell, annaðhvort við einmanalegan stólpa í miklu speglaveldi eða i einkabásum. Engin hætta, þannig misvirðing er sjaldgæf meðal siðaðra þjóða. Hvort hinar endurhæfðu komm- únistastúlkur, komnar hingað af Intemetinu frá fyrrum alþýðulýð- veldum iðka list almennt séð eða kvennalist út af fyrir sig er erfitt að ákveða, en það má spyrja: Er minni kvennalist að leggja nárann við stöng í Grjótaþorpi en að lima kóngabrjóstsykur á rúðu í lista- safninu á Selfossi? Allar listir jafnháleitar Ætti aðsókn að skera úr um þetta yrði auðsætt að fleiri færu í Club Clinton en í safnið. Og væri Kjallarinn miðað við þá lyst og losta sem listir vekja myndi eflaust fleiri langa til að sleikja nára en kónga þótt úr brjóstsykri væru. Eitt eiga því þessar sjónlistir sameigin- legt: augun mega sleikja, ekki tung- an. Aftur á móti eru í þeim heimi dóm- greindar- og skoð- analeysis, sem við lifum í, allar listir jafnháleitar. En þessar hefðu verið kallaðar á tímum ——— kanasleikja og rússadindla álíka mikil della í engum tengslum við fólkið og fegurðina. Svona fer fyr- ir þjóðum sem glata dómgreind- inni á tímum friðar og markaðs- hyggju. Karlrembusvín á greddugægjum? í sjónvarpinu var umræðuþáttur Guðbergur Bergsson rithöfundur „Ég held að fáum þætti hæfa ef settur yrbi á stofn í Washíngton „Erotic Club Ólafur Ragnar“ í til• efni landafundanna miklu á næsta ári með kúskeljastúlkum frá Básafelli með sprell, annaðhvort við einmanalegan stólpa í miklu speglaveldi eða í einkabásum um klúbbinn með tveimur karll- uðrum og leikhússtjóra af kven- kyninu sem kvaðst ekki þekkja Club Clinton (og talaði því um það sem hún hafði ekki séð; það er afar íslenskt), en kvaðst fara á slíka staði í útlöndum. Síðar í þættinum, vegna ertni El- ínar Hirst, greip hana kvenfrels- isandi og hún sagði að þeir væru aðeins fyrir karl- menn til að niður- lægja konur. Við þessi rök skrapp spurning í hug- ann: Getur verið að Þórhildur Þor- leifsdóttir, fyrr- um alþingiskona og núna leikhús- stjóri, breytist í karlrembusvín á greddugægjum þegar hún skreppur yfir pollinn í staðinn fyrir að fara í leik- húsin í London, París og New York? Guðbergur Bergsson „Það smekkleysi hefði verið óhugsandi fyrir nokkrum árum að skíra búllu í höfuðið á Bandaríkjaforseta," seg- ir Guðbergur m.a. - Ytri umgjörð margfrægs nektardansstaðar í Grjótaþorpi. Ykkar er aflið úr að bæta Enn einu sinni höfum við feng- ið snarpa áminningu um stöðu hinna verst settu í samfélaginu. Enn einu sinni kemur röddin úr klerkastétt, stétt þeirra manna sem fá beint til sín þá sem í neyð eru og sjá ekki út úr erfíðleikum sínum, hvort sem þeir eru á and- lega eða efnalega sviðinu nema hvort tveggja sé. Og enn einu sinni varða neyðarköllin hina efnalegu erfiðleika, þá örbirgð sem allt of margir búa við. Enn vakna spurningar Og enn vakna spumingar um það hvort þeir sem málum ráða „A meðan þessi grein er blaðfest hringir til mín einstæð móðir með þrjú börn, hún er öryrki og segist oft hefðu soltið heilu hungri ef aðstoð hjálparstofnana hefði ekki komið til.“ muni ekki bara meðtaka enduróm þessara neyðarkalla hinna alls- lausu, heidur öllu fremur freista þess af fremsta megni að fá úr slíku neyðarástandi bætt. Mark- tæk hlýtur þessi endurómun að vera þeim sem standa efst á hin- um veraldlega tróni á landi hér, vonandi verður mark á tekið og miðið sett á það eðlilega takmark að útrýma hinni efnalegu neyð. Og er nú von að menn spyrji um hvaða áminningu maðurinn sé að tala. í Morgunblaðinu 6. júlí er vitn- að glögglega til útvarpsmessu þar sem séra Þórhallur Heimisson, prestur í Hafnarijarðarkirkju, pré- dikaði, en messan var 4. júli sl. Skv. frétt Morgunblaðsins hvatti séra Þórhallur til þess að efnt yrði til þjóðarátaks gegn fátækt og til- efnið sagði hann vera það að í lok hvers mánaðar kæmi til hans fólk, leitandi aðstoðar kirkjunnar -------------, vegna þess að það ætti ekki fyrir mat. Okkur hér, sem fáum áþekk neyðar- köll allt of oft, kemur þessi frá- sögn hins mæta klerks síður en svo á óvart. Og enn síður undrumst við framhaldið þar sem séra Þórhallur segir orðrétt: „Þetta eru oft ein- stæðar mæður, öryrkjar, bara venjulegt fólk sem á ekki fyrir mat fyrir sig og sína og verður að leita hjálpar til að fá matarúttekt." - Milligöngu hefur svo séra Þórhall- ur um aðstoð frá Hjálparstarfi kirkjunnar eða Rauða krossi íslands. Ekki einstök dæmi Þeim sem lesið hafa gagnmerkar greinar Hörpu Njáls, sem sér um innan- landsaðstoð Hjálpar- starfs kirkjunnar, ætti að vera fullljóst að ekki eru þetta nein einstök dæmi, því miður. Sá fjöldi sem þannig er tilneyddur að leita á háðir hjálp- arstofnana er allt of mikill og sannar það eitt að hið margróm- aða velferðarkerfi “” okkar nær því engan veginn að veita þeim skjól sem verst eru staddir og sem verðugt væri. „Ég ræddi um að við ættum að stofna til þjóðarátaks gegn fátækt í tilefni af kristnitökuafmælinu,“ segir séra Þórhallur. Og hann heldur áfram og beinir máli sínu að forgangsröðun og áherslum er hann segir: „Mikið fjármagn verður sett í hátíðir um allt land, sem er af hinu góða, en ég vildi líka minna á að kristin- dómurinn berst fyrir lítilmagnann og það væri ágætt tilefni á hátíð- inni að taka nú höndum saman á Kjallarinn Helgi Seljan framkvæmdastjóri Öryrkjabandalagsins breiðum grundvelli til að þurrka út þessa fátækt". Heit hvatning Þarna er engin tæpitunga töluð enda er séra Þórhallur bit- urri og sannri reynslu ríkari úr starfi sínu. Hann kveðst ótrauður ætla að vinna að þessu máli áfram og vissu- lega erum við til alls samstarfs reiðubúin um svo sjálfsagða mannréttindakröfu að unnið sé mark- visst að þvi að „þurrka út þessa fá- tækt“. Hér er kveðið fast að orði og full rök að baki. Undir hvatningu séra Þórhalls er heils hugar tekið. Á meðan þessi grein er blaðfest hringir til mín einstæð móðir með þrjú böm, hún er öryrki og segist oft hefðu soltið heilu hungri ef aðstoð hjálp- arstofnana hefði ekki komið til. Hennar hvatning var heit, enda á bak við böl sárrar reynslu. Enn er því spurt. Hvar standið þið sem stjórnið málum gagnvart þessari neyð, því ykkar er aflið úr að bæta? Helgi Seljan Með og á móti Frjáls afgreiðslutími áfengis í miðborginni Guölaugur Þór Þóröarsson, borg- arfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins. Borgarráð heimilaði á fundi í fyrradag að vfn- veitingastaðir á svæðinu sem markast af Að- alstræti og Klapparstíg fengju frjálsan af- greiðslutíma á áfengi frá föstudagsmorgnum til sunnudagskvölds. Þetta er tilraunaverk- efni i þrjá mánuði. Fulltrúar minnihlutans i borgarstjórn vildu rýmka enn frekar af- greiðslutímann. Ungir sjálfstæðismenn vilja ganga enn lengra og gefa afgreiðslutíma al- gerlega frjálsan. Af þessarl þróun hafa for- svarsmenn áfengis- og vímuvarnaráðs eðli- lega nokkrar áhyggjur. Dreifir álagi Að því gefnu að menn sætti sig við þá staðreynd að fólk á íslandi neytir áfengis þegar það skemmtir sér þá er hér um mikið framfaraspor að ræða. Það er út í hött að fólk drekki eitt- hvað minna þó opnunartími skemmti- staða sé takmörk- unum háður. Eins og staðan hefur verið fram tO þessa hafa allir skemmtistaðir á landinu þurft að loka á sama tíma. Það hefur kom- ið af stað margs konar vanda, sér- staklega hér í höf- uðborginni. Það segir sig sjálft að þegar þúsundir manna streyma á sama tíma út á eins lítinn blett og miðbærinn er þá skap- ast vandræði. Ekki bara leigubílavandræði held- ur er ýmis önnur hætta fólgin í því þegar fólk, í misjöfnu ástandi, flykkist út af skemmtistöðunum á sama tíma. Það er því mikið þarfaþing að gefa opnunartíma frjálsan. Það er hins vegar ljóst að ákveðinn tíma þarf til að ná jafnvægi með frjálsari opnunartíma. Við íslending- ar erum vanir að hafa höft á ýmsum sviðum. Til þess að ná fram því mark- miði að umferð á skemmtistöðum á kvöldin og um helgar verði jafnari verður að gefa tilraun sem þessari langan tíma. Ég er alls ekki viss um að þrír mánuðir séu nóg. Sömuleiðis veldur það mjög áhyggjum hversu lít- ið svæðið er sem sveigjanlegur opn- unartími verður reyndur á. Miðborg- in hefur átt í vök að veijast og það er nauðsynlegt að sjá ákveðna blöndu af starfsemi þar. Það er líklegt að þetta litla svæði sem tilraunin nær til laði til sín enn fleiri skemmtistaði í stað þess að dreifa álaginu á stærra svæði. Slíkt væri mun skynsamlegra auk þess að gefa tilrauninni lengri tíma. Kallar á hert eftirlit A þessu máli eru í það minnsta tvær hliðar. Það er vel þekkt að um helgar skapast stundum hálfgert öng- þveiti þegar allir veitingastaðimir loka klukkan 3. Það getur því orðið til góðs og dreift álaginu ef þeir loka á mismunandi tímum. Hins veg- ar hef ég áhyggjur af því að rýmri af- greiðslutími og Qölgun vínveit- ingastaða muni leiða til aukinnar áfengisneyslu og að slagsmál, slys og önnur vanda- mál sem gjarnan fylgja öldurhúsa- menningu verði tíðari. Hvernig til tekst með tilraun borgaryfirvalda er sjálfsagt háð því hvernig löggæslu verður framfylgt. Ég er hrædd um að það kalli á veru- lega hert eftirlit ef þetta kemst á til frambúðar. Það er staðreynd að tak- markað aðgengi að áfengi hefur for- varnagildi en slikar takmarkanir eiga ekki upp á pallborðið í nútíma- samfélagi. Það er erfitt að berjast gegn ríkjandi tíðaranda, jafnvel með góðum rökum. Rétt er þó að taka fram að nokkrir hafa haft samband við mig og lýst þeirri skoðun sinni að þeim finnist ekki menningarauki að aukinni áfengismenningu í mið- bænum. -bmg Þorgerður Ragnars- dóttir, fram- kvæmdastjóri áfengis- og vímu- varnaráðs.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.