Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1999, Page 15
FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1999
19
'jf Tlvotí
^SfretfbíUl
CiocArfbcUr
fldgltjjpir
V'o.rStUiur
^fU/^tlíUr
SfcF<iferdtr
frí %S\ 09 S'SK
1jLái^ifeóW£-«'»StijrtólUr!
i>v Fréttir
Nýr einkennisfatnaður hjá Slökkviliði Reykjavíkur:
Aðlagast kröfum
Evrópusambandsins
Stjórn Innkaupastofnunar
Reykjavíkurborgar samþykkti ný-
lega að leggja til við borgarráð að
taka tilboðum Fata ehf. og
66°N-Max-Sjóklæðagerðarinnar í
einkennisfatnað fyrir Slökkvilið
Reykjavikur. Heildarverð á fatnað-
inum til fjögurra ára er um 40 millj-
ónir króna. Alls buðu fimm fyrir-
tæki í framleiðslu einkennisfatnað-
arins en tilboði Fata var tekið í
framleiðslu hátíðarfatnaðar og blás
vinnufatnaðar en tilboði 66°N í
framleiöslu hlífðarfatnaðar. Eining-
arverð hjá Fötum ehf. var 34.924 en
hjá 66°N 31.397. Sérstök fatanefnd
var skipuð hjá Slökkviliðinu og
naut hún aðstoðar fatahönnuðar.
Tekið var tillit til gæða, verðs, við-
gerðarþjónustu og annarrar þjón-
ustu og afhendingartíma.
Samkvæmt upplýsingum frá
Hrólfi Jónssyni slökkviliðsstjóra
var siðast skipt um búninga árið
1991. „Það eru gerðar tiltölulega litl-
ar breytingar núna og helst til að
aðlagast kröfum Evrópusambands-
ins um endurskin á búningum.
Einnig eru aílagðar tignarrendur á
búningunum og í staðinn kemur
spjald með nafni og titli manna. Há-
tíðarbúningar verða áfram óbreytt-
ir,“ segir Hrólfur.
Hvenœr klœðast slökkviliósmenn
hátíðarbúningunum?
“Yfirmenn Slökkviliðsins klæðast
Slökkviliðsmenn stilltu sér upp fyr-
ir Ijósmyndara DV í hátíðarbúningi
og þessum hefðbundna.
DV-mynd S
alltaf hátíðarbúningnum en aðrir
klæðast honum þegar þeir standa
heiðursvörð og öryggisvaktir í fin-
um boðum og eins um jól og á öllum
hátíðisdögum. Annars er ekki svo
langt síðan slökkviliðsmenn klædd-
ust búningnum við öll sín störf. Það
var ekki fyrr en um 1980 að vinnu-
fót komu fyrir almenn störf og um
1990 hættu sjúkraflutningamenn að
klæðast hátíðarbúningnum." -hdm
Suðurlandsbraut 16,
sími 588 9747.
Haraldur Böðvarsson hf:
Styrkur til vinnslu á
súrími úr loðnu
DV, Akranesi:
Vöruþróun hjá útgerðar- og fisk-
vinnslufyrirtækinu HB hf. á Akra-
nesi og Sandgerði er öflug og 1998
litu fjölmargar framleiðslunýjungar
dagsins ljðs. Vonir
standa til aukinnar
framlegðar þegar
verkefhi sem nú er
unnið að koma í
gagnið.
í samvinnu við
íslenskt-franskt eld-
hús er starfandi
vöruþróunarhópur,
skipaður- tveimur
matvælafræðingum
og þremur mat-
reiðslumeisturum.
Þróunarvinna á nýj-
um þægindavörum
hefur m.a. skilað
sér í nýrri vörulínu
fyrir veitingahúsa-
nýjar vörutegundir fyrir kaupend-
um og hve auðveldar þær eru i
notkun.
Á síðastliðnu ári hófst fram-
leiðsla á þurrkaðri loðnu, aðallega
fyrir Japansmarkað, en einnig fyrir
kanna hvort fýsilegt væri að vinna
súrími - fiskmarning - úr loðnu.
-DVÓ
markaðinn í Evrópu. Nefna má sér-
skorna ufsabita, hjúpaða með
grUlsósu, þorskbita með tómötum,
basil og lauk og laxabita með sítrón-
usmjörsósu. Átak er í gangi fyrir
Ameríkumarkað.
Vöruþróun HB og ÍFE er öll inn-
an fyrirtækjanna og sósur eru fram-
leiddar á staðnum enda hægt að
framleiða eftir óskum kaupenda.
Fullkomið tilraunaeldhús var sett
upp á liðnu ári og nýtist það fyrir-
tækjunmn báðum til vöruþróunar
og prófunar á fiskréttum. Þar er
upplagður vettvangur tii að kynna
Oflug vöruþróun er hjá útgerðar- og fiskvinnslufyrir-
tækinu HB hf. á Akranesi og í Sandgerði.
Evrópu- og Amerikumarkað. Nú er í
fyrsta skipti gerð tilraun til að frám-
leiða þessa vöru með sjálfvirkum
hætti en áður var hrognafúll loðna
að mestu seld frosin á Japansmark-
að til frekari framleiðslu þar í landi.
Vonir eru bundnar við að þetta geti
styrkt vinnslu HB í Sandgérði en
þar hafa verið gerðar miklar endur-
bætur vegna tilkomu þessarar
vinnslulínu. Stór verkefni eru í
vinnslu sem miða að því að auka
manneldisvinnslu á uppsjávarfiski.
Fýrirtækið hlaut m.a. styrk frá
Rannsóknarráði íslands til þess að
BORGARSKIPULAG REYKJAVIKUR
BORGARTÚN 3 • 105 REYKJAVÍK • SlMI 563 2340 • MYNDSENDIR 562 3219
Suður-Mjódd -
breyting á aðalskipulagi Reykjavíkur
í samræmi við 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með
auglýst til kynningar tillaga að breytingu á Aðalskipulagi Reykjavíkur 1996-2016
hvað varðar Suður-Mjódd. Landnotkun breytist annars vegar að hluta til úr
blöndu af verslunar-, þjónustu- og stofnanasvæðum í útivistarsvæði til sérstakra
nota, og hins vegar að hluta úr almennu útivistarsvæði til sérstakra nota í blöndu
verslunar-og þjónustu og útivistarsvæðis til sérstakra nota. Jafnframt fellur niður
tengibraut neöan Þverársels frá Skógarási að Fífuhvammsvegi í Kópavogi og ný
tengibraut lögð frá Höfðabakka/Stekkjarbakka samsíða Reykjanesbraut að
Fífuhvammsvegi.
Tillagan liggur frammi í sal Borgarskipulags og Byggingarfulltrúa í Borgartúni 3,
1. hæð, virka daga kl. 10:00 til 16:00 frá 23. júlí til 20. ágúst 1999. Ábendingum
og athugasemdum skal skila skriflega til Borgarskipulags Reykjavíkur fyrir 3.
september 1999.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkja
tillöguna.