Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1999, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1999, Side 21
FÖSTUDAGUR 23. JÚLÍ 1999 25 Myndasögur ' fTú skaltu sko fá aö kenna svo vel á því að þú sjáir bara | stjörnur og sólir I kringum þinn .auma haus. , Hefur þú hugsaö út í þaö r.. þaö sem ég óska ^ aö ef þú lemur mig svona heist eftir aö fá aö hræðilega mikiö þá upp- skilja - himintunglin lifi ég ... i himinhvolfinu. V J 'VÍ n / 'aSs/7 / \> / t»»i— I f v oishfr fUarm hefur virkilega. ^lamandi áhrif á mann Veiðivonv Sigurjón Þorkell Sigurjónsson með vænan afla úr Korpu. Glerá í Dölum: Veiðin gengur vel Glerá í Dölum er ekki vatnsmesta né lengsta veiðiá landsins en veiðin hefur gengið vel í henni og hafa veiðimenn verið að fá eftir daginn 10 og 9 laxa. Við fréttum af einum sem fór morgunstund fyrir skömmu og veiddi á einum og háifum tíma 9 laxa. Aðeins er leyfð ein stöng í ánni og á Magnússkógum fengust þær upp- lýsingar að öll veiðileyfi í ána væru uppseld. Dagurinn er seldur á 6.500 kr. virka daga en 7.000 kr. um helg- ar. Gleráin er best í ágúst. Rangárnar: 600 laxar á þurrt „Rangárnar eru að komast í 600 laxa en í fyrradag veiddust 42 laxar í Eystri-Rangá og 20 laxar í Ytri- Rangá hjá mér. Ég held að þetta sé allt að koma,“ Veiðivon Gunnar Bender sagði Þröstur Elliðason, við Ytri- Rangá í gærdag en 600. laxinn mun verða veiddur i Rangánum á næsta klukkutímanum. „Veiðiskapurinn hefur verið í lagi í Breiðdalsá en þar eru komnir 30 laxar. Veiðimað- ur fór í stuttan tíma í fyrradag og veiddi 4 laxa,“ sagði Þröstur enn fremur. Miðá í Dölum hefur gefið 25 laxa og helling af bleikjum. Staðan í veiðinni: Meiri laxveiði en í fyrra - minni bleikjuveiði. „Við erum mjög hress hérna í Langá, veiðin núna er helmingi meiri en á sama tíma í fyrra. Ég veit ekki alveg hvað Langá gefur mikið í lokin, hún bætir sig verulega á milli ára,“ sagði Ingvi Hrafn Jónsson, við Langá á Mýrum en áin er að komast í 650 laxa sem er mjög gott. Laxveiðin er betri en í fyrra i mörgum veiðiám - en þó ekki öllum. Laxagöngurnar mættu vera öflugri í mörgum þeirra en þetta er alls ekki búið, það er enn þá mikið eftir af veiðitímanum. Það er erfitt að segja til um hve margir lax- ar hafa veiðst en það gæti legið ein- hvers staðar á milli 15 og 20 þúsund. Þverá í Borgarfírði hefur gefið þá flesta og Norðurá i Borgarflrði kem- ur næst. Svo virðist sem eitthvað hafi komið af laxi nokkrum dögum eftir stórstrauminn. Alla vega var það að heyra á mönnum sem við ræddum við í gærkvöld. Af bleikj- unni er það að frétta að hún virðist vera stærri núna en oft áður en kannski aðeins minna af henni. Holl, sem voru að veiða 50 bleikjur núna vestur í Dölum, veiddu á sama tíma í fyrra 120 bleikjur. En veiðimenn eru að fá 3-5 punda bleikjur og það er nokkuö sem þeir vilja. Það er ekki leiðinlegt að fá þær á fluguna, jafnvel á þurrflugu. Það er toppurinn. Við fréttum af einum sem lenti i „bullandi" bleikju fyrir fáum dög- um og hún tók og tók, eiginlega alltof mikið. Þá ákvað hann að setja > á þurrflugu og kasta fyrir tökuóðar bleikjurnar. Hann veiddi á stuttum tíma 15 bleikjur og allar á þurrflug- ur. Hann settist niður eftir slaginn, enda fannst honum komið nóg. Hann þurfti ekki meira. ÞÍN FRÍSTUND -OKKAR FAG %#INTER Tr sport Bíldshöfða 20 • 112 Reykjavík • 510 8020 • www.intersport.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.