Dagblaðið Vísir - DV - 30.07.1999, Page 10
fi vikuna 22.7-29.7. 1999
NR. 333
Pearl Jam nálgast toppinn meö lagiö
Last Kiss sem Frank Wiison & The
Cavaliers geröu síöast vinsælt áriö
1964. Útgáfu Pearl Jam er aö finna á
safnplötunni No Bounderies, sem gefin
var út til styrktar fólkinu í Kosovo.
H BEAUTIFUL STRANGER Vikur á lista ©mii
0 LAST KISS t m
& EVERYTHING IS EVERYTHING LAURYN HILL t ii
| MAMBO NO. 5 LOU BEGA t m
SCAR TISSUE .RED HOT CHILLI PEPPERS © mim
AMERICAN WOMEN . . . LENNY KRAVITZ 4 mn
% JIVIN' ABOUT t ii
% MY LOVE IS YOUR LOVE . . . .WHITNEY HOUSTON 1 mi
0 UNPRETTY TLC t i-i
$t* FLJÚGUM ÁFRAM .... SKÍTAMÓRALL l mn
11 SWEET CHILD O’MINE . f m
12 TSUNAMI MANIC STREET PREACHERS t iiii
13 SECRETLY ©mmi
14 IF YOU HAD MY LOVE . 4 rni
15 ALEINN i mi
16 NARCOTIC LIQUIDO 4 mn
17 ÞÚ ERT EKKERT BETRI EN ÉG S.S.SÓL 4 mn
18 WILD WILD WEST WILL SMITH 4 mim
19 ÞÚ VERÐUR TANNLÆKNIR .ÚR LITLU HRYLLINGSB. t iii
20 WHEN YOU SAY NOTHING RONAN KEATING t iiii
4? king of my castle . t ii
loud and clear .... t iiii
HEY BOY, HEY GIRL . . . . .THE CHEMICAL BROTHES 4 mi
WORD UP . .MEL B (AUSTIN POWERS) @ ||||
4, BOOM BOOM BOOM BOOM VENGABOYS 4 mmi
{ SMILE fci
GENIE IN A BOTTLE . . . . . . .CHRISTINA AGUILERA t ii
KOMDU MEÐ (Remix) . 4 iii
ALL OUT OF LUCK . . . 4 mmm
4* BILLS, BILLS, BILLS . . . i
4/ v.i.p. t iii
% SEPTEMBER '99 % i
LENDING 407 4 miu
Qfr TWO IN THE MORNING t iii
I WILL GO WITH YOU . . t n
BUSES AND TRAIN . . . . 4 iii
SUMMER SON ÖM
SONG IN A % 1
% STARLOVERS 4 mim
MAMMA MIA
.ABBA TEENS
íslenski listinn er samvinnuverkefni
Mónó og DV. Hringt er í 300 til 400
manns á aldrinum 14 til 35 ára, af
öllu landinu. Einnig getur fólk
hringt í síma 550 0044 og tekið þátt í
vali listans. íslenski listinn er
frumfluttur á Mono á fimmtudags-
kvöldum kl. 20.00 og birtur á
hverjum fostudegi í Fókus. Listinn er
jafnframt endurfluttur á Bylgjunni á
hverjum laugardegi kl. 16.00. Listinn
er birtur, aö hluta, í textavarpi MTV
sjónvarpsstöövarinnar. íslenski
listinn tekur þátt í vali „World
Chart“ sem framleiddur er af Radio
Express í Los Angeles. Einnig hefur
hann áhrif á Evrópulistann sem
birtur er í tónlistarblaöinu Music &
Media sem er rekiö af bandaríska
tóniistarblaöinu Billboard.
NÝTT
I
550 0044
Nýtt á Hækkar sig frá Lækkar sig frá Stendur
listanum síöustu viku síöustu viku í stað
Taktu þátt í vali
listans í síma
ifókus
Yfirumsjón meö skoöanakönnun: Halldóra Hauksdóttir ■ Framkvæmd könnunar: Markaösdeild DV - Tölvuvinnsla: Dódó
Handrit, heimildaröflun og yfirumsjón meö framleiðslu: ívar Guömundsson - Tæknistjóm og framleiösla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn
Steinsson Útsendingastjóm: Ásgeir Kolbeinsson, Jóhann Jóhannsson og Ragnar Páll Ólafsson - Kynnir I útvarpi: Ivar Guðmundsson
Leon Theremin meö þeramíniö sitt árið 1928.
Hljóðfærið þeramín var fundið upp af sovéskum uppfinninga-
manni árið 1920. Það er í tísku í dag og hljómar enn jafn
framtíðarlega og daginn sem það var fundið upp.
Rafmagnaður
agangur
Þeramín (e. Theremin) er ein-
stakt hljóðfæri að því leyti aö sá
sem spilar á það snertir það hvergi
heldur veifar höndunum á milli
tveggja loftneta sem standa út úr
kassa en á milli loftnetanna
streyma rafsegulsbylgjur. Sovéski
uppfinningamaðurinn Leon Ther-
emin var tuttugu og fjögurra ára
þegar hann fann hljóðfærið upp
fyrir slysni árið 1920. Þá kom sér
vel að hann hafði lagt stund á bæði
tónlistar- og eðlisfræðinám.
Uppfinningamanni rænt
Leon sá fyrir sér að draugaleg
hljóðin sem komu úr tækinu myndu
nýtast í klassískri tónlist. Árið 1924
flutti fílharmóníuhljómsveit Len-
ingrad verkið „Sinfónísk dulúð“ eft-
ir Leon og þremur árum síðar fór
hann í ferð um Evrópu til að kynna
hljóðfærið. Þaðan lá leiðin til New
York þar sem hann kynntist Klöru
Rockmore, rússneskum fiðluleik-
ara, sem margir telja enn besta
þeramínleikara sögunnar. í stúdíói
sínu á miðri Manhattan stofnaði
Leon balletthóp og þeramín-hljóm-
sveit sem kom fram við miklar vin-
sældir í Camegie Hall.
Einkalíf Leons varð jafn dular-
fullt og hljóðfærið hans þegar
hann hvarf á dularfullan hátt árið
1938. Hann var almennt talinn af
og það var ekki fyrr en þrjátíu
árum síðar að upp komst að KGB
hafði rænt honum og haldið í ein-
angrun í Síberiu þar sem hann
vann að rannsóknum fyrir sov-
ésku leyniþjónustuna.
I spennu og afslöppun
Þeramínið hefði fallið í
gleymsku og dá ef framsýnir kvik-
myndagerðarmenn hefðu ekki nýtt
sér möguleika þess. Hljóðin sem
hljóðfærið býr til eru kjörin til
spennumyndunar í hryllingsmynd-
um og Alfred Hitchcock reið á vað-
ið í mynd sinni Suspicion árið
1941. Þar gerði Franz Waxman eft-
irminnilegan draugagang með
hjálp þeramínsins í sálrænu of-
skynjunaratriði sem Salvador Dali
hannaði. Fleiri fylgdu í kjölfarið og
á sjöunda áratugnum þegar fljúg-
andi diskar og skrímsli úr geimn-
um sáust á hvíta tjaldinu voru dul-
arfull hljóðin í þeramíninu sjaldan
langt undan. Bestu dæmin um
þetta er tónlistin í myndinni The
Day The Earth Stood Still (frá
1951), sem snillingurinn Bernard
Herrmann samdi, og geimóperu-
geðveikin í Forbidden Planet, sem
hjónin Louis og Bebe Barron
sömdu á þeramín og önnur frum-
stæð rafmagnshljóðfæri árið 1955.
Þá þótti þeramínið kjörið í
afslöppunar- og hugleiðslutónlist.
Nýlega voru þrjár klassískar plötur
frá 1947-50 end-
urútgefnar í hag-
stæðum pakka.
Hljóðin þóttu
framúrstefnuleg
eins og titlarnir
á plötunum
bera vott um,
t.d. „Music Out Of The Moon“, og
enn má slappa af og hugleiða við
þessa nýaldartónlist fortíðar.
Rafgúrúlnn Bob Moog spilar á
þeramín áriö 1993.
Þeramínið í dag
Þeramínið var fyrsta rafhljóðfæri
sögunnar og afi þeirra hljóðgervla
sem við þekkjum í dag. í poppinu
þurfti geðveilan snilling til að prófa
að nota hljóðfærið, fjörulallann Brian
Wilson. Hann gerði þeramínið ódauð-
legt í miní-sinfóníunni sinni „Good
Vibrations" sem tók poppheiminn
með trompi árið 1967. Hljóðfærið hef-
ur ekki unnið stórsigra síðan en í dag
þykir það svalt og allir sem þykjast
menn með mönnum í rafmagns- og
danstónlist hafa komið sér upp
þeramíni, keypt það eða smíðað það
sjálfír.
Þeir sem sáu tónleika Jon Spencers
hér nýverið urðu vitni að græjunni i
fljúgandi notkun og aðrar sveitir sem
hafa nýtt sér tækið eru m.a. Portis-
head og Marilyn Manson. Það er enn
eitthvað dularfullt og ójarðneskt við
hljóðin sem þeramínið myndar og það
mun eflaust halda áfram að skjóta
hlustendum skelk í bringu langt inn í
næstu öld.
plötudómur
Tvíhöfði:
Kondí fíling ★ ★
Afgreiðsla fyrir aðdáendur
Tvíhöfði hefur núna verið að í
þónokkurn tíma og virðast vinsæld-
imar ekki dala, ekki enn þá. Þeir fé-
lagar gáfu út geisladisk í fyrra sem
var á allra vörum enda mjög fersk-
ur. Þessi er ekki jafnferskur. Vanda-
málið með Kondí fíling er það að
maður fær strax á tilfmninguna að
þetta sé afgreiðsla hjá þeim félögum,
framleiðsla fyrir sumarmarkaðinn.
Mörg af sketsunum taka strax á flug
en brotlenda síðan (sbr. Björgunara-
frekið við Látrabjarg) og maður
missir athyglina þegar þau eru
kláruð í tómu lofti. Þá eru örlög
Halldórs Haukssonar, sem eru ein
átta talsins, leiðinleg og hefði ein-
faldlega mátt sleppa þeim. En auð-
vitað er þannig ekki með allt á
Kondí fíling, Tvíhöfði er ekki alveg
búinn að tapa sér. Hommar í
Reykjavík er frábær, langur skets
sem gengur upp. Ekki má gleyma
Taxi, sprenghlægileg innsýn í súld-
arlíf leigubílstjóra, og hver er betri
að skýra frá því en fyrrum bitri
leigubílstjórinn, Jón Gnarr. Maður
heyrir að þama er vanur maður á
ferð sem þekkir bransann út og inn.
Besta sketsið á disknum, aö mínu
mati, er Þýskur túristi. Þar sýnir
Jón gamla Þjóðverjatakta í stuttu,
eðalfyndnu sketsi. Lögin á disknum
eru annars svona bull-Tvíhöfðalög
og stendur Hring eftir hring (eins og
geisladiskur) þar upp úr, þar eru
þeir félagar í essinu sínu. Diskurinn
á örugglega eftir að seljast ágætlega
enda á Tvíhöfði mikið af aðdáend-
um sem logga sig inn undir heila-
Vandamálið með Kondí fíling
er það að maður fær strax á
tilfinninguna að þetta sé af-
greiðsla hjá þeim félögum.
börkinn á þeim á hverjum morgni
með geðveikislegan eftirvænting-
arglampa í augunum. Þeir verða ef-
laust ekki fyrir vonbrigðum með af-
urðina og geta þá gripið til disksins
i fráhvarfseinkennum hversdagsins.
Annars endist Kondí fíling stutt og
verður þá að hvíla hann í ár eða
svo. Tvíhöfði er miklu fyndnari en
þetta. Halldór V. Sveinsson
10
f Ó k U S 30. júlí 1999