Dagblaðið Vísir - DV - 18.08.1999, Síða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 1999
Útlönd
Stuttar fréttir i>v
Á þriöja þúsund látnir eftir jaröskjálftann í Tyrklandi:
Grafa berhentir
í húsarústunum
Tyrkland:
Stórir skjálftar
algengir
- segir Ragnar
„Þessi jarðskjálfti varð á Norð-
ur-Anatoliu-brotabeltinu, eða
brotabelti N-Tyrklands, sem er
mjög langt og liggur í austur-vest-
ur um norður-
hluta Tyrklands.
Á brotabelt-
inu er svokallað
sniðgengi. Fyrir
norðan er Evr-
ópu-Asíuplatan
sem þokast aust-
ur en fyrir sunn-
an er Afríkuplat-
an er þokast vestur. Þessar mis-
gengishreyfingar valda gifurlegum
skjálftum á þessu svæði og þeir
eru nokkuð algengir," segir Ragn-
ar Stefánsson jarðskjálftafræðing-
ur um skjálftann í vestanverðu
Tyrklandi í fyrrinótt, sem var um
7,5 á Richter og í létust rúmlega 2
þúsund manns.
BIFREIÐASTILLINGAR
NIGOLAI
Tyrkneskir björgunarsveitamenn
grófu berhentir í húsarústum í alla
nótt í leit að einhverjum sem kynnu
að hafa sloppið lifandi úr jarð-
skjálftanum mikla í fyrrinótt. Opin-
ber tala látinna var 2160 í morgun
en hætt er við að hún eigi eftir að
hækka á næstu dögum.
Skjálftinn, sem mældist 7,4 stig á
Richter-skalanum, varð á þéttbýlu
svæði í norðvesturhluta Tyrklands
þegar íbúarnir voru flestir í fasta-
svefni.
Björgunarsveitarmenn sem leit-
uðu í rústum flotastöðvar í bænum
Goluck, þar sem tvö hundruð dátar
grófust undir, höfðu fundið tuttugu
lík í gærkvöld og jafnmarga særða.
Iðnaðarbærinn Izmit varð harð-
ast úti í skjálftanum. Griðarlegir
eldar loguðu þar í stærstu olíu-
hreinsistöð landsins. Um tíma var
talin hætta á sprengingu og voru
því nærliggjandi svæði rýmd.
„Fólk hér óttast tvennt. í fyrsta
lagi óttast það annan skjálfta og í
öðru lagi óttast það sprengingu í ol-
íuhreinsistöðinni. Það hefur allt yf-
irgefið heimili sín,“ sagði í fréttum
ríkissjónvarpsins tyrkneska.
Tyrkneskir embættismenn gerðu
sér vonir um að hægt yrði að bjarga
olíuverinu með aðstoð búnaðar frá
Frakklandi og Þýskalandi.
Kofi Annan, aðalframkvæmda-
stjóri Sameinuðu þjóðanna, hét
Tyrkjum allri hjálp og mörg lönd,
meira að segja erkifjandinn Grikk-
land, hafa þegar sent eða lofað að
senda björgunarsveitir, lyf og fé.
Tala látinna hækkaði með hverri
klukkustundinni sem leið í gær en
embættismenn vildu engu spá um
hversu hátt hún ætti eftir að fara.
Bulent Ecevit forsætisráðherra var
vongóður um að fínna mætti ein-
hverja á lífi í rústunum. Óttast er að
hundruð manna séu fost í grjót-
haugunum.
Tyrkneska ríkisstjómin lýsti yfir
neyðarástandi á skjálftasvæðunum.
Dagblöð sökuðu byggingaverk-
taka um að hafa kastað til höndun-
um við byggingu húsanna.
„Morðingjar," sagði í fyrirsögn í
hinu víðlesna dagblaði Húrriyet.
Þúsundir manna í borgum og
bæjum á skjálftasvæðunum þorðu
ekki fyrir sitt litla lif að sofa í hús-
um sínum og höfðust því við úti
undir beru lofti í nótt. Margir sneru
þó aftur til heimila sinna þegar lýsa
tók af degi. Aðrir sem misstu heim-
ili sín í skjálftanum áttu ekki ann-
arra kosta völ en sofa úti undir ber-
um himni.
U.S. IIMTERIMATIOIMAL
Bráðvantar fólk
1000-2000$, hlutastarf
2500-5000 $, fullt starf
Þjálfun og frítt flug
til Los Angeles.
Viðtalspantanir í síma
698 4200 og 898 9995.
Netfang: iris@mmedia.is
Hert eftirlit við
landamærin
Norsk stjómvöld hafa ákveðið
aö herða eftirlit við landamærin
að Rússlandi til að stemma stigu
við smygli og ólöglegum innflytj-
endum. Eftirlitsmyndavélakostur
verður bættur, svo og fjarskipta-
búnaður. Reiknað er með að eitt
hundrað þúsund manns fari yfir
landamærin á þessu ári.
$ SUZUKI
-////------
Suzuki Baleno GL, árg. '96,
ek. 43 þús. km, beinsk., 4 d.
Verð 890 þús.
Suzuki Baleno GLX, árg.
'96, ek. 56 þús. km, ssk.,
4 d. Verð 990 þús.
Suzuki Swift GLXi, árg. '97,
ek. 25 þús. km, beinsk., 5 d.
Verð 820 þús.
Suzuki Vitara JLX, árg. '97,
ek. 50 þús. km, beinsk., 3 d.
Verð 1.260 þús.
BMW 318 iA, árg. '96, ek.
51 þús. km, ssk., 4 d.
Verð 1.990 þús.
Chevrolet S-10, árg. '89,
ek. 75 þús. km, ssk.
Verð 590 þús.
Daihatsu Feroza EL, árg.
'94, ek. 70 þús. km, beinsk.,,
3 d. Verð 820 þús.
Ford Escort EST, árg. '96,
ek. 60 þús. km, beinsk., 5 d.
Verð 790 þús.
Ford Mondeo Ghia 1/98,
ek. 18 þús. km, beinsk., 4 d.
Verð 1.750 þús.
MMC Lancer GLX, árg.
‘97, ek. 66 þús. km, beinsk.,
5 d. Verð 1.150 þús.
MMC Lancer GLX, árg. '91,
ek. 110 þús. km, beinsk.,
5 d. Verð 490 þús.
Opel Astra GL, árg. '96,
ek. 62 þús. km, ssk., 5 d.
Verð 950 þús.
Opel Corca, árg. '98, ek. 36
þús. km, beinsk., 3 d.
Verð 880 þús.
Subaru Legacy WG, árg.
‘92, ek. 124 þús. km, beinsk.
Verð 940 þús.
Toyota Touring XL, árg. '93,
ek. 79 þús. km, beinsk., 5 d.
Verð 890 þús
SUZUKIBÍLAR HR
Skeifunni 17 • Sími 568 5100
www.suzukibilar.is
Björgunarsveitamenn og íbúar í hverfi einu í Istanbúl bera burt lík eins sem
fórst í jarðskjálftanum mikla í fyrrinótt. Skjálftinn mældist 7,4 stig á Richter
og varð að minnsta kosti á þriðja þúsund manns að bana.
Nýtt stjórnmálaafl í Rússlandi:
Prímakov snýr aftur
- sem leiðtogi „Föðurlandsins“
Hinn vinsæli fyrrum forsætisráð-
herra Rússlands, Jevgení Prímakov,
gekk í gær formlega til liðs við nýtt
kosningabandalag Júrís Lúsjkovs,
borgarstjóra Moskvu, með boðun
um stjórnarskrárbreytingar á tak-
mörkun forsetavaldsins og auknum
völdum til handa þinginu og
ríkissstjóminni.
Kosningabandalagið, er gengur
undir nafninu Föðurlandið Rúss-
land, er talið vera helsta ógnin við
áætlanir Borís Jeltsíns um að halda
völdunum í Rússlandi innan sinnar
kreðsu í þingkosningunum í desem-
ber og í forsetakosningunum á
næsta ári.
Prímakov mun leiða lista banda-
lagsins sem myndað er úr mörgum
flokkum og er ætlað að höfða til
þeirra sem em óánægðir með glæpi,
spillingu og bág lífsgæði rússnesku
þjóðarinnar eftir tíu ára valdatíð
Borís Jeltsins.
Jevgení Prímakov er mættur aftur til
leiks í rússneskum stjórnmálum.
Skjálfti í San Francisco
Jarðskjálfti sem mældist 5 stig
á Richter skók San Francisco og
nærsveitir í gær. Ekki er vitað
til að neinn hafi slasast né að
meiri háttar skemmdir hafi orð-
ið.
Clinton opinn
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
er til í að ræða við leiðtoga
þingsins um að
aflétta hugsan-
lega banni við
sölu á matvæl-
mn og lyfjum
til Kúbu. Að
sögn embættis-
manna í Hvíta
húsinu er for-
setinn opinn
fyrir „trúveröugum hugmynd-
um“ um viðskiptabannið sem
Tom Daschle og fleiri þingmenn
hafa lagt fram.
Samið um vopnahlé
Leiðtogar Úganda og Rúanda
hafa fallist á vopnahlé sem á að
binda enda á þriggja daga harða
bardaga milli hersveita þeirra í
Kongólýðveldinu.
Óbreyttir féllu
Irösk stjómvöld sögðu í gær
að nítján óbreyttir borgarar
hefðu falliö og ellefu særst í loft-
árásum Breta og Bandaríkja-
manna á svæði utan flugbanns-
svæðanna i norður- og suður-
hluta íraks.
Sprengjuótti vestra
Lögreglan í Washington DC
rýmdi byggingar í miðborginni í
gær og beindi allri bílaumferð
burt vegna dularfullrar skjala-
tösku sem fannst nærri Hvíta
húsinu. Síðar kom í ljós að task-
an var meinlaus.
Varar viö veirum
José Ramos-Horta, mannrétt-
indafrömuður á Austur-Tímor
og friðarverð-
launahafi
Nóbels, varar
við því í blaða-
grein í morgun
að alvarlegt við-
skiptastríð
kunni að blossa
upp ef stjórn-
völd í Indónesíu
virði ekki niðurstöðu þjóðarat-
kvæðagreiðslunnar um framtíð
Austur-Tímor. Horta segir að
tölvuveirum kynni jafnvel að
vera komið fyrir i indónesískum
bönkum.
Björgum friöarferlinu
Leiðtogar Sinn Fein, pólitísks
arms írska lýðveldishersins,
hvöttu til aðgerða í gær til að
bjarga friðarferlinu á Norður-ír-
landi.
Enginn radar
Fremsti yfirmaður Pentagon
hefur neitað Japönum um afnot
af nýjum bandarískum radar til
að fylgjast með eldflaugaskotum
N-Kóreu af þeim ástæðum að rad-
arsins sé ekki þörf við verkið.
Margrét skoðar metró
Danir eru nú í óðaönn við að
koma á fót langþráðu neðanjarð-
arlestakerfi í
Kaupmanna-
höfn og mun
Margrét drottn-
ing skoða fram-
kvæmdimar 12.
október næst-
komandi. Heim-
sókninni er
m.a. ætlað að hvetja stóra fjár-
festa eins og t.d. flugfélagið SAS
og Kastrup-flugvöll til að leggja
aukiö fé til smíðarinnar.
„Davíð gegn Golíat"
Saksóknari í Massachusetts-
ríki í Bandaríkjunum, Michael
Sullivan, ákveður á næstu vikum
hvort hann gefur kost á sér fyrir
hönd repúblikana gegn hinum
þaulsætna öldungadeildarþing-
manni demókrata Edward Kenn-
edy í kosningunum árið 2000.