Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1999, Blaðsíða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1999, Blaðsíða 3
m g ö m æ 1 i ísmolar fyrir partíið um helgina. Það er líka alltaf að kólna á klakanum og því er málið bara að klæða sig vel og drekka einhvern dræara á klaka. Þá hlýnar þér en hvort það eru fötin eða drykkurinn verður þú bara dæma um. Spælt egg og steiktir kartöfluteningar í morg- unmat. Gott I þynnkunni og ef þú vilt fá einn stuttan I eftirrétt þá er þetta rétturinn. Fyrir hvern disk tekurðu tvær meðalstórar kartöflur og tætir þær niður í 2 cm tepinga, steikir upp úr olíu, saltar, og svo er það bara eggið og tómatsósan. Það skaðar svo ekki að bera þetta fram á sæmilegasta diski. Fyrir 10-15 árum þótti flott að vera með bast- stól hangandi niður úr stofuloftinu. Það er auðvitað löngu farið úr tísku en nú þykir hins vegar í lagi að vera með svona stól úr járni eða tré efni hangandi niður úr stofuloft- inu. Fínt að hafa líka eitthvað af krómuðu járni í honum til a skapa framúrstefnulegí stemningu. Ef þú vilt þennan er síminn hjá fram- leiðandanum: 00 358 50 566 6787 (varúð: Hár slm- reikningur). Uppi á flestum háaloftum er hægt að finna ol- íulampa. Hann er þá örugglega búinn til úr kopar og allur hálfhallærislegur. En það ætti að vera lítið mál að rífa hann I sundur, gylla hann og gera hann flott krómaðan. Síðan er bara að setja hann saman aft- ur, kveikiþráð I og fylla á með olíu, hengja svo upþ I stofu eða inn I eldhús og þá ertu kom- inn með virkilega flott skran. Verið samt ekkert að kveikja á honum ef þið búið I lítilli Ibúð því lampinn mun örugglega svæla gífurlega. Loksins er hægt að smakka á íslenska fán- anum I orðsins fyllstu merkingu. Og svei mér þá, hann er bara alls ekki svo slæmur á bragðið. Fáninn fæst í molaformi I Te og kaffi-búð- unum og er frábær gjöf fyrir vini og vandamenn erlendis sem eru að deyja úr heim- þrá. Einnig er gott fýrir sem vilja efla þjóðerniskenndina að japla á molunum. Á miðvikudaginn hófst norræn stutt- og heimildamynda- hátíðin Nordisk Panorama í Háskóla- bíói. íslendingar eiga þrjár stuttmyndir á hátíðinni og Dagur Kári Péturson (sonur óskabarnsins Péturs Gunnarssonar rithöf- undar) á tvær af þessum stuttmyndum. Það er því nokkuð Ijóst að kauði er mjög sigurstranglegur. Dagur Kári Pétursson er höfundur Thule-auglýsinganna sem hafa skemmt okkur betur en heílu íslensku bíómynd- irnar undanfarin misseri. gefið út brotna og beyglaða popptónlist og er nú bjartasta von íslands í keppninni um bestu stuttmynd norrænu kvik- myndahátíðar- innar. Að okk- ar mati virðist Dagur eiga ágætis mögu- leika á að vinna titilinn því hann er ekki bara með eina mynd í keppninni heldur tvær. I Dagur Kári Pétursson er einn þeirra íslendinga sem eiga kvikmynd á norrænu stutt- og heimildamynda- hátíðinni sem hófst í Háskólabíói á miðvikudaginn. Dagur hefur verið búsettur i Danmörku síðustu 4 árin þar sem hann hefur verið að læra kvikmyndagerð. Hann er nú staddur á landinu í stuttri heimsókn en síðan hann kom á klakann hefur hann varla verið látinn í friði af blaða- mönnum og þegar Fókus hringdi í hann var hann gjörsamlega orðinn uppgefmn á því að svara sömu spum- ingunum einu sinni enn. En það er ekki nema von að Dagur sé umsetinn. Ekki bara er drengur- inn drullusætur, heldur hefur hann Gerir sér engar vonir „Myndirnar heita Old Spice og Lost Week-end og tölfræðilega séð þá á ég náttúrlega meiri sjens á að vinna keppnina þar sem ég er með tvær myndir. Þetta er hinsvegar ekkert happdrætti og því geri ég mér engar vonir í þá átt heldur finnst mér bara gaman að sjá hvað aðrir era að gera,“ segir Dagur Kári. Nú kannast flestir vió Thule-sjón- varpsauglýsingarnar sem þú geróir og hafa verió sýndar í auglýsinga- tímum sjónvarpsins. Eru stuttmynd- ir þínar eins skemmtilegar og þœr? „Mér finnst þær nú miklu skemmtilegri en auglýsingarnar. Old Spice er gamanmynd sem gerist hér á íslandi. Hún gerist á rakara- stofu þar sem fastakúnnar rakarans eru farnir að týna tölunni, einn af öðram. Einn daginn mætir þó einn kúninn sem er látinn til rakarans og myndin ijallar um það hvemig rak- arinn tekur á því máli. Það er erfið- ara að skilgreina hina myndina Lost Week-end. Hún er tekin í Danmörku og í henni er ekki mikil atburðarás heldur byggir hún meira á situ- asjónum. Hún fjallar um plötusnúð sem vaknar á hótelherbergi eftir mikið fillerí og veit ekki hvernig eða hvers vegna hann er þangað kominn. Hann reynir að komast út af hótelinu en af ákveðinni ástæðu þá misheppnast allar hans tilraun- ir,“ segir Dagur. Júlli Kemp og Laddi Kvikmyndahátíðin stendur að- eins fram á laugardag þannig að þeir sem eru hrifnir af norrænum myndum ættu að drífa sig. Mynd- ir Dags verða þó sýndar áfram i Háskólabíói að hátíðinni lokinni. Hin íslenska myndin er líka eftir- tektarverð. Hún heitir Sjálfvirk- inn og er gerð eftir handriti smá- sagnahöfundarins Börks Gunn- arssonar en leikstjóri er enginn annar en JuLíus Kemp. Laddi og fleiri sniðugir leika í myndinni og það er vonandi að hún nái langt í keppninni en það vekur athygli að allar íslensku myndirnar geta flokkast sem grínmyndir. Við get- um þá allavega hlegið af okkar mönnum. g f n i 24. september 1999 f ÓkllS f ókus fylgir DV á föstudögum Forsíöumyndina tók Hilmar Þór af Friöriki Friörikssyni leikara. „Ég hef búið á ís- landi síðustu tvo mánuði og það hefur komið mér einna mest á óvart hve tón- listarlífið hér er líflegt og fólk óhrætt við að gera tilraunir." Friðrik g Friðriksson: Ég er tölvunörd MHogVerzló: 12-13 Hvað breyttist í sum- ar? Bíó: 14 Þriðja dogma- myndin Horfnir skemmtistaðir: 16 Tveir vinir og annar í f ríi Sýndu mér veskið þitt: Og ég segi þér hver þú ert 8-9 Utlönd í Reykjavík: Eru þau í Kringl- unni eða á útikaffihúsum? Popp: 10-11 Röflandi róni Lífici eftir vinnu ypr m jrm ^ 1 ím I m # grunnskc Latex frá 4 Pla Sigurrós að meiki Iverjir voru^ Ábyrgðarlaus en með sterka tungu Didderldú er blásturshljóð- færi frumbyggja Ástralíu. Þetta er ílangur trédrumbur sem termítar hafa holað að innan og ef blásið er í end- ann á hljóðfærinu gefúr það frá sér dularfullt þassahljóð. Sjálfir kalla frumbyggjarnir hljóð- færið yidaki, en didgeridoo er nafnið sem hvíti maðurinn gaf því. Náungi að nafni Buzby hefur verið á landinu síðustu mánuði með didderidú í farteskinu og hefur djammað á það með ýms- um músikönt- um á Sóloni og Thomsen. Á Kaffi Thom- sen verður hann á fimmtudaginn (30. sept) ásamt Pétri Hallgríms (Lhooq), Kristínu Björk (Spúnk) og Daða úr Jagúar. Þrír Afríkanar, sem nú dvelja á íslandi með afrísk hljóðfæri, gætu slegist í hópinn og hugsanlega fleiri, svo þetta verður greinilega heljarinnar djamm. Buz- by kallar kvöldið „Inlakesh Opera“ sem gæti útlagst „Ég-greini-mynd- af-sj álfum-mér-í-þér-óperan“. „Ég er breskur en það er ekki mér að kenna,“ segir Buzby og hlær. „Ég hef búið á íslandi síðustu tvo mánuði og það hefur komið mér einna mest á óvart hve tónlist- arlífið hér er líflegt og fólk óhrætt við að gera tilraunir." Buzby hefur fengið styrk frá bæj- aryfirvöldum í Galway á írlandi til að blása þar lífi í tónlistarlífið og segist ætla að hafa gróskuna á ís- landi til hliðsjónar. Þangað fer hann eftir tónleikana en hann hef- ur annars verið á flakki um heim- inn síðustu sjö árin. „Nei, ég myndi ekki kalla mig heimshornaflakkara," segir hann þó. „Ætli ég sé ekki aðallega bara svona ábyrgðarlaus." Buzby bjó á einni af hundrað byggðum eyjum Tonga í fimm mánuði meðal fólksins þar og tókst einn daginn næstum því að klífa kókoshnetutré. Þaðan lá leiðin til Ástraliu og didderídúið keypti hann á þrjátíu þúsund kall í bæn- um Cairns í Norður-Queensland. „Það er auðvelt að ná tón úr hljóðfærinu en hringöndunin er aðalmálið. Fyrstu fjögur árin æfði ég mig bara í einrúmi og ég er svona nokkurn veginn búinn að ná þessu núna.“ Hringöndun er þarfaþing og sög- ur herma að þeir sem kunni tækn- ina séu betri en aðrir 1 rúminu. Buzby játar hvorki né neitar. „En auðvitað fær maður sterka tungu af þessu,“ segir hann bara og kím- ir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.