Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1999, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1999, Blaðsíða 22
Lifid eftir vinnu ► •Síöustu forvöö Sýningu Davíös Art Slgurössonar líkur i dag kl. 18. Hann er að sýna Ijóö og málverk í Delglunnl Akureyri og er til staðar frá kl.13. •F eröir Ferðafélag íslands stendur fyrir tveimur ferð- um í dag. Annars vegar verður lagt af stað kl. 13 og farið til Þingvalla í haustlitaferð. Það er um 3 klst. ganga milli gamalla eyðibýla. Hins vegar verður farið í hellaskoðun I Gjábakka- hraun. Þar er mönnum ráðlagt að hafa vasa- Ijós með. Mjög spennandi ferð, ekki síst fyrir krakka. En krakkamir fá einmitt frítt í ferðina meðan mamma og pabbi þurfa að punga út litlum 1400 krónum. Brottför í ferðirnar er frá BSÍ, austanmegin, og frá Mörkinni 6. Mánudagur^ 27. september •Kr ár Nú flettir Gaukurinn aftur til baka nokkur ár og býður Centaur velkomna aftur með sitt al- ræmda blús-rokk prógram og Slgga á munn- hörpunni fremstan í flokki. Ekki amalegt það, eða hvað? Svo er það líka heimasíðan: www.lslandia.ls/gaukurinn •F u n d i r Vilt þú bæta opinberan rekstur og greiða göt- una til framfara á því sviði? Ef svo er þá er Brendan Martin rétti gæinn fyrir þig. BSRB hefur flutt kauöa til landsins og hann mun halda fyrirlestur um fyrrnefnd atriði kl. 13 á Hótel Loftleiðum. Fyrirlesturinn er öllum opinn og boðið verður upp á túlka. En svo fólk viti hver þessi Brendan er þá er hann heimsþekkt- ur fýrir rannsóknir og ritstörf. Hann hefur starf- að í yfir 40 þjóðlöndum við ráðgjöf og rann- sóknir og unnið verkefni fýrir alþjóðasamtök og stofnanir á borð við OECD og Alþjóðabank- ann. Ef þú hefur áhuga, er um að gera að mæta og hlusta. Þriðjudagur 28. september •Krár í kvöld eru Gauk-á-Stöngverjar hreyknir af því að bjóða Fræbblana velkomna með tónleika- prógram. Þetta gerist ekki á hverjum degi þannig aö það er tvímælalaust skyldumæting í kvöld. YEAH, gemmér bjór væni. í beinni á www.xnet.ls. Breski píanósnillingur- inn Joseph OYBrian hamrar á píanóið á Café Romance. Miðvikudagui 29. september •Kr ár Breski planósnillingurinn Joseph OYBrian hamrar á píanóið á Café Romance. Auðvitað klikka Gaukverjar á Stöng ekki á tón- leikahaldi frekar en fýrri daginn. í gær voru það Fræbblarnlr en I kvöld er þaö sveitt sveifla að hætti Úlla. Hann kann nú að sveifla sveitt þannig að fólki er ráðlagt að mæta ekki í sokkum. Þá er sniðugt að vera í stuttbuxum. Annars er líka hægt að svitna yfir tölvunni á heimasíðunni: www.islandia.is/gaukurinn. tSport l.deild karla í handbolta.6 leikir fara fram I l.deild karla í handbolta I kvöld.Stórleikur verður að Varmá klukkan 20 en þá taka ís- landsmeistarar, Afturelding, á móti FH en þessi lið börðust um titilinn I fyrra. Fimmtudagdf 30. september •Kr ár Breski píanósnillingurinn Joseph OVBrian hamrar á píanóiö á Café Romance. Auðvitað klikka Gaukverjar á Stöng ekki á tón- leikahaldi frekar en fýrri daginn. I kvöld er það sveitt sveifla að hætti Úlla. Hann kann nú að sveifla sveitt þannig að fólki er ráðlagt að mæta ekki í sokkum. Þá er sniðugt aö vera I stuttbuxum. Annars er líka hægt að svitna yfir tölvunni á heimasíðunni: www.is- landia.is/gaukurlnn. @L g i k h ú s Bjarni Haukur Hellisbúi sýnir enn fýrir fullu húsi í íslensku Óperunni. Það eru engin tak- mörk fýrir því hvað margir mæta til hans og hlæja að manninum I lendarskýlunni. Enda er það draumur flestra aö bregða sér í lendar- www.visir.is t ó n 1 i s t Erum eins og Tónlistarflóran okkar er alltaf að endurnýja sig og skipta um ham. Sem betur fer hafa tónlist- armennirnir þannig oftast nóg að gera þannig að líkurnar á því að sauðhugsandi landinn vakni upp einn daginn tónlistarmanna- laus eru litlar. Eitt af nýjustu og ferskustu böndunum sem spratt upp fyrir stuttu er fönk-djass sveitin Oran. Hana skipa engir aukvisar: Pétur Hallgrímsson, Jóel Pálsson, Guðni Finnsson og Matthias Hemstock. Allir eru þeir búnir að skipa sér ör- uggan sess sem eðaltónarar með spilerí í gegnum árin. En hvaðan kemur þessi sveit, hvað er hún eiginlega gömul? Fókus tók gítar- leikara hennar, Pétur Hallgríms- son tali: „Ekki mjög gömul. Við spiluð- um saman í fyrsta skipti fyrir viku síðan á Ozio.“ Nú, er þá bara eitthvað nýja- brum í gangi, kunn- iö þið eitthvaö á hvorn ann- an? „Við smellum saman eins og tæknilego. Við náum saman eins og við séum fjórburar. Það er músíkin sem sér um samskipt- in.“ Hvernig tónar fljúga? „Oran spilar fönki stöff. Þetta er mest af kóver fönki hjá okkur en þessi frumsömdu eru að byrja að seytla inn í hrönnum. Það er til nóg af þeim. En fólk ætti ekki að hika við að koma á tónleika hjá okkur, það er stanslaust stuð. Þar að auki er ókeypis inn þegar við spilum á Ozio, þannig að það er ekki hægt að tapa á þessu." Hvaó þýöir annars Oran? „Nafnið er í höfuðið á borg í Alsír. Oran er þekkt fyrir að vera suðupottur af tónlist. Þar er mikil tónlistarmenning, arabísk og alls konar. Bara almennt stuð.“ Eins og sagði áður eru þeir fé- lagar Jóel Pálsson og Matthias úrstefnulegustu djössurum Skersins. En hvað er aö gerast? Eru þeir aö svíkja djassinn? „Nei, nei. Sjáðu til, djass og fönk eru í sömu fjölskyldu. Það mætti segja að fönk væri systur- sonur djassins. Þannig leiðumst við oft út í mjög djassaða spunakafla. Þetta gerist bara ósjálfrátt þegar maður er í svona fjölskylduboði." En hvaö er fönkiö? Þaó er eitt- hvaö rosalegt, er þaö lífiö? „Úff, ég veit það ekki alveg. Þetta er eins og með Guð, maður talar ekki um þetta. Það er best að njóta þess. Svona eins og það er best að horfa á froskinn hoppa í stað þess að kryfja hann.“ Það er alveg á hreinu að marg- ir tónar eiga eftir að fljúga frá fönk-djass sveitinni Oran í vetur. Þeir eru að spila fyrir lánsama bókmenntafræðinema í kvöld en spila næst á Ozio, 14. október. Þá verða þeir einnig þar vikuna á eftir. Rosa fjör, mega gaman. skýlu og segja brandara. En þó svo að það sé alltaf uppselt er oftast hægt að næla sér í ósóttar pantanir þannig að enginn skal ör- vænta. Leikfélag Reykjavíkur leikur og syngur Litlu hryllingsbúðlna í Borgarleikhýsinu. Þórunn Lárusdóttir er í alveg jafn miklu stuði og þeir Valur Freyr og Stefán Karl. Sprenghlægilegur söngleikur sem áhorfendur virðast mjög ánægðir með. Það er allavega uppselt, því miður, en hægt að panta sér miöa í síma 568 8000. Enn er verið að spila Rommí I Rommí I Iðnó. Rommí er I fullum gangi enda er Rommí skemmtilegt. Plús það að það er sýnt kl.20.30. Þá er einnig hægt að kíkja á heima- síðuna: www.idno.i Stencfur þu fyrir einhverju? Sendu upplysingar i e-mail fokusSfokus is fax 550 5020 ✓=Fókus mælir með |=Athyglisvert Góða skemmtun voru hvar jmeijra. átf www.visir.is hver jir Það var stuð á Kaffibarnum á föstudagskvöld eins og öll önnur kvöld. Jón Sæmundur artík- óngur var mættur eftir þriggja mánaða dvöl hjá Einari og Eiði Snorra I New York. Strákurinn er svo að fara til Skotlands í framhaldsnám I artífræðum og því mun hann verða fiarverandi í Hverjir voru hvar í vetur. En Baltasar Kormákur er alltaf jafnsýni- legur. Hann sat við hliðina á Þóri Snæ Sigurjónssynl fram- leiöanda ásamt fleiri kump- ánum. Andrés Magnússon Moggamaður fagnaði því að verða fyrstur til að koma fram í fréttum RÚV og segjast hafa verið fýrstur til að gefa út lag á vefnum - en auðvitað vita allir að Fókus var nokkrum tímum á undan kauða en hafði bara vit á því að bjóða Ingibjörgu ekki I heimsókn til að lóda inn Maus. Aðrir á barnum voru Friðrik Friðriksson leikari og forsíðustúlka Fókuss þessa vikuna. Hann sat og spjallaöi við þekkta kollega en fðr snemma heim. Svo var módelskrifstofan Eskimo með kokk- teilpartí á föstudagskvöldið. Stelpurnar voru að opna umboðsskrifstofuna Atmo sem á að sinna Ijósmyndurum, stílistum og förðunar- fræðingum. j tilefni opnunarinnar var opnuð heimasíða og elítan mætti til að kíkja á herleg- heitin. Geirl og Snorri Paranoiamenn, Svenni Ijósmyndari, Tobbi og Aggl frá Góðu fólki, ísi Sambíóprins, DJ Margeir og Arna sæta, Hubby tiskuljósmyndari, Rul og Anna María úr 101 Shopping, Hildur Rósa stilisti og Jóna vinkona hennar, Árni Þór og Kristján Skjámenn, Oddur Þórisson, fyrrum ritstjóri Mannlífs, og Húsbændur og hjú, Sigrún úr 17, Bjarnl Gríms og Klddl Ijósmyndarar og systurnar Bára og Hrafn- hildur, heitustu stílistarnir, létu sig ekki vanta. En eftir kokkteilinn fór hersingin i mafíuherbergið á Rex og hékk þar fram eftir nóttu. Að venju var brjálað stuð alla helgina á Skuggan- um og meðal þeirra gesta sem skemmtu sér voru: ívar (íslenski listinn) Guðmundsson og Ás- gelr Kolbelns Bylgjutröll, Ámundi frá Hinu Opin- bera hélt upp á afmælið sitt í Gyllta salnum og þar sást meðal annars til Inglbjargar og Lilju Pálma- dóttur. KR-ingar fjölmenntu á Skuggann og þar var Atli Eð- valdsson þjálfari fremstur í flokki, Arnar Rafn og Rabbi úr Wörtunni BC voru í góðum gír, Framarar sáu ástæðu til að gleðjast og voru þeir Sævar Pétursson og Hilm- ar Bjórnsson meðal gesta, skuggadrottningarn- ar Erla og Anna héldu upp á annan í afmæli, Friðjón R. Friðjónsson SUS-maður var mikið í símanum, Siggl Zoom kíkti inn, Þuri frá ONYX kom að sjálfsögðu, Anna Svala er alltaf jafn flott, Svennl frá Atlanta og frú komu ásamt Gurrí flugfreyju með góöa skapið, Heiðar Austmann FM957, Aggi, yfirkokkur á Grillinu, Óskar Krist- jáns, Lovísa Guðmunds, Playboydrottning með meiru, Hjórtur Harðar og Fannar körfuboltagúrú úr Keflavík létu sjá sig, Mikki fótboltadrengur úr Fylki kom inn á, ívan Burkni frá Fróða, Solla stirða eða bara Selma BJörns Júróvision tók ekki lagið en skemmti sér vel. Föstudagskvöldið á Astró fór vel fram að vana. Robbie Willlams mætti ekki en nokkrir bresk- ir aðdáendur létu sjá sig þrátt fýrir að goðið hefði brugðist þeim með frekju og yfirgangi. I prívatinu sást til Andra i Heimsferöum, Valli sport (með hausverk um helgar) tölti um staðinn, Helðar Austmann og Jól Jó sömu- leiöis, Arna Playboy var á dansgólfinu ásamt vinkon- um, Hallgrímur Helgason rithöfundur og strákarnir i Lögregluskóla islands mældu staðinn út. En á laugardagskvöldinu varð allt vitlaust á Astró. Pushkin mætti með gommu af brenni- vini og helling af útlendingum til að drekka það með þyrstum íslendingum. Kiddl Bigfoot, Dj Julees, Dj Tonkan og George Morel sáu um að þeyta skifur og þlaðamenn frá Penthouse, Bild, Zeitung, Playboy og MTv skráðu niður allt sem fram fór. Þeir íslendingar sem mættu voru Debbie, Bragi og Gaui úr Betrunarhús- inu, Unnur Pálma frá Erobic Sport, Linda GK og Anna Rakel Talstúlka voru hressar, einka- þjálfarinn Raul Rodriguez endaöi ber aö ofan eins og vist margir aðrir, Þorsteinn Stephen- sen markaðsgúru, lögmaðurinn Róbert Árni, Dóri og Maggi i Laugarásbíó, Skúli Mogenzen, Einar Bárðarson spjallaöi viö Ragnheiði Hansen Robbie-innflytjanda, Maggi Magg, Haraldur Daði, Svali og Magga V., Svavar Örn var á gólfinu, Sistó á Þórscafé mætti ásamt kærustu sinni sem á víst að vera fýrrum forsíðustúlka hjá Playboy, Arnór Guðjðns, Júlll Kemp, Jasmlne og Nanna dansarar voru á gólfinu og þóttu svo glæsilegar að MTv tók viötal viö þær, Hallgrímur Helga- son og Grétar Óöalsgreifi voru á Astró þetta kvöld en þó ekki saman. mira.is SJÁÐU Á NETINU BÆJARLIND 6 200 KÓPAVOGI Sími: 554 6300 • Fax: 554 6303 Jt 22 f Ó k U S 24. september 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.