Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1999, Qupperneq 9

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1999, Qupperneq 9
Friðrik Örn Ijósmyndari: Kringlan „Þegar ég kem inn í Kringluna þá finnst mér sem ég sé kominn til Ameríku," segir ljósmyndarinn Friðrik Örn við spurningunni hvar í Reykjavík hann upplifi út- lönd sterkast. Friðrik er annars ný- kominn heim eftir átta ára veru í vöruhúsum Los Angeles. Hann er því gjörsamlega bólusettur fyrir kringlum á meðan landann aftur á móti þyrstir samt í sína Ameríku. „í Ameríku eru kringlur úti um allt og ég verð að segja að ég er ekkert allt of hrifinn af liossum am- erísku söluparadísum," segir Frið- rik og ítrekar að hann sé sterkur stuðningsmaður miðbæjárins sem er eins og allif vita í harðri sam- keppni við paradísina hinum meg- in víð Kringlumýrarbrautina. Af hverjii -értu ekki hrifinn af vöruhúsum? „Að fara í vöruhús er bara merki um leti. Þar er allt á einum stað, ein heildarlausn og það myndast einhvers konar kaupæðis-stemning þar inni og heilu fjölskyldurnar ráfa oft bara um til að eyða tíman- um,“ segir Friðrik og bætir við að hann fari aldrei í Kringluna nema í neyð. Margrét Eir Hjartardóttir söngkona: Útikaffihús Margrét: „Eg skil ekki hvað er svona slæmt við það að sitja úti og drekka rauðvín í rólegheitum á miðjum degi.“ „Það sem minnir mig mest á út- lönd hér á íslandi er fallegur sum- ardagur þar sem maður getur set- ið úti á kaffihúsi og drukkið kaffi eða rauðvín á miðjum degi,“ segir söngfuglinn Margrét Eir Hjart- ardóttir með rómantík í röddinni. Margrét bjó fjögur ár í Boston og hún hefur einnig búið i New York og segist hafa hangið mikið á úti- kaffihúsum þessara borga. En nú hafa íslendingar ekki fengió aó sitja úti í sólinni meö vín- glas mjög lengi: „Nei, og ég skil ekkert í mótþróa yfirvalda gagnvart útivínveiting- um. Ég skil ekki hvað er svona slæmt við það að sitja úti og drekka rauðvín í róleghéitum á miðjum degijén svo er ekkert sagt við því að f&lk veltist blindfullt um bæinn um helgar," segir Mar- grét og fussar. í sumar segist hún hafa notað hvert tækifæri til þess að sitja á kaffihúsum á góðviðrisdögum. Og hvert fer svo Margrét til þess að upplifa íslenska útikaffi- húsastemningu? „Ég sest helst fyrir utan Vega- mót,“ svarar Margrét og bætir við að þessa dagana sé einmitt síðasti séns að upplifa útikaffihúsastemn- ingu íslands áður en veturinn skellur endanlega á. Hafdis Bjarnadottir gítarleikari: Slóra blokkin við Lönguhlíð Hvar eru útlönd í Reykjavík? „Ætli þau séu ekki bara héma við stóru blokkina í Lönguhlíð. Þessi blokk er ofsalega evrópsk og ég var til dæmis i London í febrúar ög maður gæti séð svona blokkir þar. En líklega em meiri líkur á að sjá svona á meginlandi Évr- ópu,“ segir Hafdis Bjamadóttir djáss- gítarleikari. En hún dæmir borgir einna helst út frá arkitektúr þar sem hún er mjög hrifm af húsum. „Þegar maður stendur í garðinum hjá Kjarvalsstöðum, hlustar á um- ferðamiðinn og horfir á blokkina upplifir maður sig sem maður sé í út- löndum," segir Hafdís og nýju strætó- skýlin skemma ekki fyrir stemning- unni. „Þetta er líka allt í hverfinu mlnu og ég þarf þvi ekki að fara langt til að komast til útlanda." En hvar er ísland | Reykjavík? „ísland er örugglega í Grafarvogi. Þar eru öll hálfbyggðu húsin og ný hverfi era alveg hundrað prósent ís- land.“ Vœriröu til í aö búa þar? „Ég veit það ekki alveg. Það er dá- lítið rólegt og kósí þama upp frá. Svona eins og að vera uppi í sveit en ég kann best við mig í rótgrónum hverfum," segir Hafdís og því bendir aOt til þess að hún muni búa i útlönd- um í Reykjavík hér eftir. 24. september 1999 f ÓktlS 9

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.