Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1999, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 24.09.1999, Blaðsíða 16
horfnir skemmtistaöir _____i_________________ Hver man ekki eftir staðnum Tveir vinir og annar í fríi sem var til húsa þar sem Vegas er núna? Skemmtistaðnum sem var með lengsta nafn landsins, karaokevél og geðveik böll um helgar. Tveir vinir og annar í frfi Þeir eru líklega ófáir unnendur lifandi tónlistar sem ekki eiga ein- hverjar minningar frá skemmti- staönum Tveir vinir og annar í fríi á horni Frakkastígs og Laugavegar. Staðurinn var í eigu Gunnlaugs Gunnlaugssonar og var hann upp á sitt besta í byrjun áratugarins en lífshlaup hans varaði frá 1989 og fram til 1995. í fyrrum húsakynn- um staðarins dansa hins vegar ber- ar konur nú undir for merkjum Vegas. „Tveir vinir og ann ar í fríi var kannsk: ekkert sérstaklega fal legur eða fancy innan dyra. Það var lágt und ir loft og gulleit slikja í veggjunum en and rúmsloftið var þeiir mun betra,“ segir Karl Waage sem var á sin um tíma tónlistarstjór: staðarins. Innlendar sem erlendar grúppui Húsnæði staðarins skiptist í tvo sali met básum í fremri salnum en borð í þeim innri. Lítið var um veggskraut nema tónlistarsaga staðarins var smám saman hengd upp á veggina. Þeir sem komu að spila á staðnum fengu sem sagt líka mynd af sér upp á vegg. „Við byrjuðum með trúbadora sem gekk mjög vel þannig að við stækkuðum staðinn og byrjuðum með alvöru böll. Við reyndum að bjóða upp á lif- andi tónlist alla daga vikunnar og Hljómsveitin Todmobile í góðri sveiflu á vel heppnuðu um í október 1992. blúskvöldin sem voru á fimmtudögum voru mjög vinsæl," minnist Karl. Um sem helgar voru svo haldin þrusuböll á staðnum og spiluðu þá ýmsar hljómsveitir. Meðal annars spiluðu þar hljóm- sveitirnar GCD, Loðin rotta, Tod- mobile, Blúsmenn Andreu og Vinir Dóra svo fáein bönd séu nefnd. Þeir sem stunduðu staðinn voru dyggir aðdáendur lifandi tónlistar. „Við vorum bara með öll heit- ustu böndin á þessum tíma. Þeg- ar mest var í hús- inu voru 600 til 700 manns og það var á balli með Sálinni. Nokkur erlend bönd spiluðu einnig hjá okkur, meðal annars hljómsveitirnar Rustics, 22 pist pirrko sem við fluttum inn í balli á Tveimur vin- samvinnu við Hjört Jónsson og Honey Bee and Vegas er núna. ..... annar í frí/ að the T-bones,“ segir Karl og bætir við að það hafi verið mjög dýrt að auglýsa staðinn í lesnum auglýs- ingum því nafnið var svo langt. Alúðleg bardama Einn þeirra tónlistamanna sem spiluðu oft á Tveimur vinum og öðrum í frii var Dr. Gunni: „Þetta var á tímabili eini al- mennilegi tónleikastaðurinn fyrir utan Gauk á Stöng. Hann var svo passlega stór fyrir tónleikahald og ég verð að segja það að mér fannst slæmt að sjá staðinn fara undir strippið," segir Dr. Gunni með vott af eftirsjá. Hann minnist þess líka að hafa sungið í karaoke á staðnum og finnst slæmt að það sé engan karaokepöbb lengur að fmna í mið- bænum. „Mér fannst konan sem vann á barnum einnig alltaf afskaplega al- úðleg,“ bætir Gunni við og á þar við konu eigandans, hana Ragn- hildi, betur þekkta undir nafninu Hilla. Andrea Gylfadóttir spilaði einnig oft á staðnum. „Ég spilaði þarna oft á blúskvöldum og með Todmobile. Það myndaðist alltaf skemmtileg stemning þarna og það var alltaf mikið stuð á böllunum," segir Andrea. Trymbill Stuðmanna, Tómas Tómasson, hefur einnig góða sögu af staðnum að segja. „Ég kunni vel við formið á staðn- um, þ.e.a.s að hafa hann svona tví- skiptan og stærðin hentaði vel fyr- ir tónleikahald. Það sem var þó best við staðinn var það að selt var inn á tónleikana og hljómsveitirn- ar fengu ágóðann en það var eitt- hvað sem ekki tíðkaðist," segir Tómas og bætir við að honum finn- ist vanta stað af þessari stærð- argráðu í Reykjavík. „Pöbbarnir nú eru of litlir til alvöru tónleika- halds.“ -snæ f Ó k U S 24. september 1999

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.