Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1999, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1999, Blaðsíða 7
24 + 25 MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1999 MÁNUDAGUR 27. SEPTEMBER 1999 Sport Sport Bland i noka S nc Aö sögn Fylkis- i hafa iþeir að undan- Ifömu átt 1 við- ræðum við nokkra þjáifara. Þeir eru að vonast eftir þvi að getað gengið frá ráðningu nýs þjálfara í þessari viku. Samkvæmt heimildum DV hefur ver- ið rætt við Pétur Péturs- Þorsteinn Ásgeirsson, framkvæmdastjóri knatt- spymudeildar Leifturs, sagði við DV í gær að þeir stefndu að því að vera búnir að ráða þjálfara fyr- ir Iokahóf KSI um næstu helgi. „Við getum sagt að við séum í viðræðum við þá sem em á lausu í dag,“ sagði Þorsteinn Ásgeirs- son. Þá hefur DV heimildir fyrir því að Þróttarar hafi átt viðræður við Ásgeir Elíasson, fyrram þjálfara Fram. Yfirnjósnari Anderlecht, Jan Dockx, fylgdist með leiknum í Laugardal í gær og við heimkomuna ætlar- hann að sýna þjáifara liðsins ákveðna menn sem hann hreifst af. Skagamenn töpuðu í gær fyrsta bikarúrslitaleik sínum síðan 1975 en frá þeim tíma höfðu þeir unn- ið alla sjö úrslitaleiki sína. Guómundur Benedikts- son var búinn að skora fyrir KR í öllum umferð- um bikar- keppninnar. Hann fékk tvö dauðafæri á lokamínút- unum gegn ÍA en tókst ekki að nýta þau. Samningur Þormóös Eg- ilssonar, fyrirliða KR, rennur út í næsta mánuði. „Ég ætla svona að sjá til hvað ég geri. Núna er ég búinn að ná þeim mark- miðiun sem maður stefndi að. Ég er á ákeðnum tíma- punkti. Ég er þrítugur og búinn að ná því með KR sem hægt er að ná þannig að ég velti fyrir mér fram- tíðinni," sagði Þormóður en hann hefur leikið ailan sinn feril með KR. Atli Eövaldsson, þjáifari KR-inga, mun setjast nið- ur með stjómarmönnum í KR á næstu dögum og ræða framtíð sína hjá fé- laginu. Aðspurður hvort hann væri að taka við landsliðinu sagði Atli að enginn hefði rætt þau mál við sig. David Winnie lék að öll- um líkindum síöasta leik sinn fyrir KR. Þessi öflugi Skoti gekk til liðs við KR í fyrra og hefur reynst fé- laginu einstaklega vel. Hann var kjörinn leik- maður ársins eftir síðasta tímabil. í sumar hefur hann ekki leikið eins vel en hefur miölaö reynslu sinni til annarra leik- manna í liðinu. Þórhallur Hinriksson kann greinilega vel við sig á Laugardalsvellinum en markið sem hann skoraði í gær var hans þriðja á þjóðarleikvanginum i sumar. Hann skoraði sig- urmarkið gegn Kilmar- nock í Evrópukeppninni, innsiglaði 3-0 sigur KR á Víkingi þegar KR-ingar tryggðu sér íslandsmeist- aratitilinn og í gær kom hann sínum mönnum á sporið. KR hefur gott tak á ÍA í bikarkeppninni. Þetta var fjórði bikarúrslitaleik- ur liðanna og hefur ^KR unnið þá aila. 1 11 bikarleikjum, þar sem liðin hafa ást við, hefur KR unnið 18 en ÍA aðeins 3. -JKS/-GH/VS/KB Sagt eftir bikarúrslitaleikinn: Geggjað „Þetta er æðislegt og hreint geggj- að. Ég var ekki ánægður með strák- ana í fyrri hálfleik en við gerðum áherslubreytingar í hálfleik sem skil- uðu sér. Þá fórum við að spila okkar leik. Ég vissi að Skagamenn kæmu grimmir til leiks eftir allt sem á und- an er gengið og þeir veittu okkur harða mótspymu. Við sögðum það í fyrra eftir að við töpuðum fyrir ÍBV í úrslitaleik íslandsmótsins að ef við fengjum annað tækifæri myndum við ekki láta það úr greipum okkar ganga en ég held að innst inni hafi menn ekki órað fyrir svona frammi- stöðu,“ sagði Atli Eðvaldsson, þjálf- ari KR. Fullkomið sumar „Þetta hefur verið fullkomið sum- ar og það var ekki leiðin- legt að enda þetta með því að skora þriðja markið. Við vorum ekki að spila vel I fyrri hálíleik en Skagamenn lokuðu svæð- unum vel og gerðu okkur erfitt fyrir. Eftir að við skoruðum fyrsta markið losnaði um ákveðna pressu. Mér fannst Skagamennirnir standa sig vel og þeir komu vel und- irbúnir til leiks. Það hefur verið frá- bært að fá að taka þátt í þessu ævin- týri og endirinn gat ekki verið betri. Nú tekur atvinnumennskan við hjá mér. Ég ætla að reyna að gera eitt- hvað að viti þarna úti en ég myndi samt ekki gráta það að koma heim og spila með KR,“ sagði Bjarki Gunn- laugsson sem hélt i morgun til Eng- lands en hann mun ganga í raðir enska C-deildarliðsins Preston North End. Small allt saman „Maður lét sig ekki einu sinni dreyma um að þetta gæti gerst þegar æf- ingarnar hófust fyrir þetta tímabil en einhvern veginn small þetta allt saman hjá okkur. Það okkur út af laginu. I þessum leik vissum við að við gætum bætt okkur i seinni hálfleik og við erum með þannig menn frammi að þeir þurfa ekki mikið pláss til að skora. Það var léttir þegar við skoruðum fyrsta markið og eftir það var ég viss um hvernig færi,“ sagði Þormóður Egils- son, fyrirliði KR, sem átti frábært tímabil með vesturbæjarliðinu í sumar. Ánægður með strákanna „Það er leiðinlegt að tapa þegar maður er betri aðilinn. Það var dýrt að nýta ekki færin og munurinn, sem skildi liðin að, var að þeir voru með menn sem klár- uðu sín færi. Ég var ánægður með strákana. Þeir stóðu sig vel og gerðu að mestu leyti það sem fyrir þá var lagt en þeir hefðu þó mátt nýta vængina betur. KR-ingarnir höfðu að hluta til heppnina með sér en það skorar enginn nema andstæðingur- inn geri mistök. Nú er þetta tímabil- ið búið og nú strax hefst undirbún- ingurinn fyrir næsta ár. Ég vonast til að halda flestum leikmönnunum sem léku með liðinu í sumar og stefnan er að bæta við,“ sagði Ólafur Þórðarson, þjálfari ÍA, eftir leikinn. Besta árið í sögu KR „Þetta er búið að vera frábært ár og ég hefði aldrei trúað því að þetta ætti eftir að verða svona sigursælt ár. Þetta er besta ár í sögu félagsins. Ég tel þetta vera sigur allra KR-inga, bæði utan sem innan vallar," sagði Kristinn Jónsson, formaður KR, sem fagnar með David Winnie hér að neðan. -GH Guðmundur Benediktsson lyftir bik- arnum á loft í gríðarlegum fagnaðar- látum vesturbæjarliðsins. Fyrir aftan eru þeir Sigursteinn Gíslason og Gunnleifur Gunnleifsson. DV- myndir Hilmar Þór Þeir refsuðu okkur „Það var sart að tapa þessu. Við fengum þrjú færi til að ná forystunni sem öll brugðust og þeir refsuðu okkur fyrir það. á wm \ Það er erfitt að spila á I. móti þeim. Þeir eru «*;: brögðóttir og stórhættu- 1 legir. Mér fannst við jlfe&á-dt spila nokkuð vel framan | af en þegar við nýtum ■I Kristján Finnbogason - Siguröur Orn Jónsson, Þor- móður Egilsson, David Winnie, Bjami Þorsteinsson - Sigþór Júlíusson (Amar Jón Sigurgeirsson 83.), Þórhallur Hin- riksson (Þorsteinn Jónsson 69.), Sigursteinn Gíslason, Einar Þór Daníelsson - Bjarki Gunnlaugsson (Indriði Sigurðsson 87.), Guðmund- ur Benediktsson. Gul spjöld: Sigurður Örn, Winnie. Olafur Þ. Gunnarsson - Sturlaugur Haraldsson, ----- Reynir Leósson, Gunnlaugur Jónsson, Pálmi Haralds- son - Unnar Valgeirsson (Ragnar Hauksson 83.), Jó- Harðarson, Hálfdán Gíslason (Jóhannes Gíslason 72.), r Högnason. Kári Steinn Revnisson - Stefán Þ. Þórðarson. hannes Harðarson, Hálfdan Gislason (Joh£ Alexander Högnason, Kári Steinn Reynisson - Gul spjöld: Gunnlaugur, Unnar, Reynir, Stefán ekki færi er ekki hægt að vinna. Þetta er búið að vera ár KR í sumar en nú ætlum við að safna liði og mæta sterkari til leiks á næsta tíma- bili,“ sagði Gunnlaugur Jónsson, varnarmaðurinn sterki hjá ÍA. -GH KR-ÍA KR-IA Völlur: Ágætur en sleipur. Dóinari: Bragi Bergmann, ekki sannfærandi. Markskot: 9 Horn: 3 Áhorfendur: 7.401. Maöur leikstns: Gunnlaugur Jonsson, LA. Firnasterkur í vörn ÍA allan tímann. o gekk allt upp og við létum ekkert slá A_/jl Þórhallur Hinriksson (62.) ^ sendi boltann í netið rétt utan markteigs eftir þrumuskot frá Einar Þór Daníelsson I þverslá Skagamarksins. ®nar t'ar Danielsson (65.) ” renndi boltanum í markið af markteig eftir að Ólafur, markvörður ÍA, hélt ekki fyrirgjöf Guðmundar Ben. 0 _ Stefán Þ. Þórðarson (71.) (ékk ” skallasendingu frá Unnari Val- geirssyni lagði boltann fyrir sig í loftinu og þrumaði honum glæsilega í netið. Bjarki Gunnlaugsson (81.) ™ ^ fékk boltann á miðjum vallar- helmingi ÍA, lék að vítateig og skoraði með laglegu skoti. Atla Eðvaldssyni er hér óskað til hamingju með árangurinn á tímabilinu. KR-ingar lakari aðilinn í úrslitaleiknum gep IA en sigruðu samt, 3-1, og eru tvöfaldir meistarar Bjarki Gunnlaugsson og Þórhallur Hinriksson fagna innilega í leikslok. Afmælisbörnum eru gefnar gjafir og KR-ingar fengu eina slíka á Laug- ardalsvellinum í gær. Þeir sýndu mest lítið af þeirri knattspymu sem færði þeim íslandsmeistaratitilinn í sumar þegar þeir mættu ÍA í bikarúr- slitaleiknum - en unnu samt, og það 3-1. Þar með er glæsilegur, tvöfaldur sigur í höfn hjá KR-ingum á 100 ára afmælinu, þeir eru tslands- og bikar- meistarar 1999. Skagamenn mættu grimmir til leiks, enda varla von á öðru með Ólaf Þórðarson við stjórnvölinn. Hann breytti liðinu nokkuð, setti Unnar Valgeirsson og Hálfdán Gíslason inn fyrir Heimi Guðjónsson og Ragnar Hauksson og færði Alexander Högna- son úr vörninni í stöðu aftasta miðjumanns. Tilgangurinn var aug- ljóslega sá að loka á leiðir KR-inga að markinu, gefa Bjarka Gunnlaugssyni og Guðmundi Benediktssyni ekki svæði til aö athafna sig á og það gaf góða raun frá fyrstu mínútu. Skaga- menn réðu nánast lögum og lofum á vellinum í fyrri hálfleik, spiluðu af miklum krafti og með baráttuna að vopni tóku þeir öll völd á miðsvæð- inu. KR-ingar voru gjörsamlega slegnir út af laginu, þeir náðu aldrei að byggja upp sóknir og áttu aðeins eitt einasta markskot allan hálfleik- inn og það ekki hættulegt. Þeir fengu reyndar færi strcix á 4. mínútu en Ólafur Þór Gunnarsson, markvörður ÍA, hirti þá boltann af tám Guðmundar Benediktssonar. Skagamönnum gekk reyndar ekki mikið betur að komast í opin færi en hefðu þó hæglega getað tekið for- ystuna á 32. mínútu. Hálfdán Gísla- son komst þá einn inn fyrir vörn KR en Kristján Finnbogason kom tá í boltann og bjargaði í horn. Spennustigið í leiknum var hátt og það mátti stundum litlu muna að upp úr ,syði. Unnar Valgeirsson Skaga- maður og David Winnie KR- ingur.hefðu hæglega getað fengið rauða .spjaldið með stuttu millibili seint í fyrri hálfleiknum, Unnar fyrir að hrinda KR-ingi um koll og Winnie . fyrir að gefa Stefáni þungt olnboga- skot. ÍA hóf seinni hálfleik af sama krafti og fékk annað dauðafæri á 58. mínútu þegar Alexander Högnason skallaði fram hjá galopnu marki KR af markteig. Það er styrkur sterkra liða að refsa andstæðingnum fyrir að nýta ekki færi og það gerðu KR-ingar svo sann- arlega. Þeir vöknuðu skyndilega til lífsins og skoruðu tvö mörk með þriggja mínútna millibili, fyrst Þór- hallur Hinriksson og síðan Einar Þór Daníelsson. Staðan var allt í einu orðin 2-0 fyrir KR-inga, gjörsamlega gegn gangi leiksins, og þeir búnir að skora úr tveimur af fjórum mark- skotum sinum. Skagamenn gáfust ekki upp, með Gunnlaug Jónsson og Stefán Þ. Þórð- arson sem driffjaðrimar í sínum leik. Gunnlaugur var rétt búinn að skora með skalla áður en Stefán minnkaði muninn í 2-1. Eftir það bættu Skaga- menn í sóknina og Alexander færði sig framar á miðjunni. Um leið var skilið eftir opið svæði fyrir framan vörn ÍA og Bjarki, hreinn farþegi í leiknum fram að því, nýtti sér það til hins ýtrasta og skoraði þriðja markið. Þar með voru úrslitin endanlega ráðin, öll vopn slegin úr höndum Skagamanna, og KR hefði hæglega getað bætt við mörkum í lokin. Leikurinn og úrslit hans endur- spegla stöðu KR-inga í íslenskri knattspymu í dag. Þeir era einfald- lega með besta liðið. í þessum úrslita- leik voru þeir þó lakari aðilinn en nýttu sér þau færi sem gáfust. Heppn- in var 12. liðsmaður vesturbæinga að þessu sinni, þeir hefðu hæglega getað verið í slæmri stöðu áður en mörkin litu dagsins ljós. En eftir að undir- tökunum var náð var sigurstemning- in komin á ný í lið meistaranna og þeir áttu greinilega meira inni en Skagamenn fyrir lokakaflann. Skagamenn hrjáði sama meinið og áður 1 sumar, þeir voru of bitlausir frammi, og aukin grimmd og barátta dugði ekki til að bæta nægilega úr þvi. En þeir fengu þó færin og áttu alla möguleika á að komast í vænlega stöðu en nýttu sér það ekki. Því fór sem fór og enginn stór titill kemur á Skagann, þriðja árið í röð. -VS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.