Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1999, Page 4
4
Fréttir
Davíð Oddsson, formaður Sjálf-
stæðisflokksins, má vel við una
með hreinan meirihluta.
Halldór Ásgrímsson, formaður Fram-
sóknarflokksins. Flokkur hans tekur
mikla dýfu og er nú minni en VG.
Margrét Frímannsdóttir, talsmaður
Samfylkingar. Kyrrstaða eftir mikið
hrun í sfðustu könnun DV.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður
VG, er með pálmann í höndunum og
flokkur hans er á fljúgandi uppleið.
Skoöanakönnun DV um fylgi flokka sýnir mikla sveiflu:
Framsókn minni
en vinstri - grænir
- Sjálfstæðisflokkur með hreinan meirihluta en Samfylking stendur í stað
Fylgið hrynur af Framsóknar-
flokknum frá því í síðustu skoðana-
könnun DV. Frá því í könnun DV i
september hefur flokkurinn tapað 4,6
prósentum. Vinstrihreyfingin - grænt
framboð bætir við sig 4,7 prósentum
og er nú með fylgi 14,5 prósenta
þeirra sem tóku afstöðu. Framsóknar-
flokkurinn er með 14,3 prósent nú í
stað 18,9 prósenta í september.
Vinstri-grænir mælast því með 0,2
prósenta fylgi meira en Framsókn en
þar sem sá munur er innan skekkju-
marka teljast flokkarnir jafnstórir.
Sjálfstæðisflokkur fengi hreinan
meirihluta eða 52 prósent þeirra sem
tóku afstöðu. Samfylking stendur
nánast í stað frá síðustu könnun og
fengi 17,7 prósent í stað 17,1 prósent.
Þetta eru helstu niðurstöður skoðana-
könnunar DV um fylgi stjómmála-
flokkanna sem gerð var í fyrrakvöld.
Úrtakið í könnuninni var 600
manns, jafnt skipt milli höfuðborgar-
svæðis og landsbyggðar, sem og
kynja. Spurt var: „Hvaða lista mund-
ir þú kjósa ef þingkosningar færu
fram núna?“
Miðað við svör alira í könnuninni
fengi Framsóknarflokkur 9,7 % fylgi
ef kosið yrði nú, Sjálfstæðisflokkur
fengi 34,5% fylgi, Frjálslyndi flokkur-
inn 1,3%, Samfylkingin 12% og
Vinstrihreyfmgin - grænt framboð
9,8% fylgi. Húmanistar fengju 0,2 pró-
sent en Kristilegi lýðræðisflokkurinn
og anarkistar mælast ekki sem fylgi.
Óákveðnir í þessari könnun voru
22,6% og 9,8% neituðu að svara eða
samtals 32,4%. Svarhlutfallið er svip-
að og í skoðanakönnunum DV frá
áramótum og fram undir kosningar.
Sé einungis miðað við þá sem af-
stöðu tóku í þessari skoðanakönnun
DV sögðust 14,3% kjósa Framsóknar-
flokkinn, 51% Sjálfstæðisflokkinn,
2% Frjálslynda flokkinn, 17,7% Sam-
fylkinguna og 14,5% Vinstrihreyfing-
una - grænt framboð. Aðrir fengju
samtals 0,5% fylgi.
Skipting þingsæta
Skipting þingsæta samkvæmt at-
kvæðafjölda í könnun DV er þannig
að Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig
tveimur mönnum og fengi 33 þing-
menn kjörna miðað við 31 í síðustu
könnun DV. Framsókn tapar þremur
mönnum og fengi 9 menn kjöma en
hafði 12 í septemberkönnun DV. Yrði
þetta niðurstaða tapaði flokkurinn
þremur mönnum frá kosningunum.
Samkvæmt könnun DV fengju ríkis-
stjórnarflokkarnir 42 þingmenn en
ráða 38 þingsætum í dag.
Samfylkingin stendur í stað frá sið-
ustu könnun og fengi 11 þingmenn
samkvæmt könnun DV nú, tapaði sex
mönnum frá kosningunum í maí.
Samfylkingin mældist mest með 23
þingmenn í könnun DV í febrúar.
Vinstrihreyfingin - grænt framboð
fengi 9 þingmenn og bætir við sig
þremur mönnum frá síðustu könnun.
í kosningunum fékk VG 6 þingmenn.
Loks fengi Frjálslyndi flokkurinn 1
þingmann kjörinn en hefur nú 2
menn á þingi. Hvort Frjálslyndir
koma manni á þing er þó háð því að
flokkurinn nái að minnsta kosti 5
prósentum í einu kjördæmi. Þá er
óvíst um það hvar uppbótarmaður
lenti og sömuleiðis hver missti mann
fyrir hann. Samkvæmt fylgi frjáls-
lyndra er því allt eins víst að flokkur-
inn fengi engan mann kjörinn. -rt
Skipan þingsæta fgfj
— samkvæmt atkvæöafjölda — F ~1 nw on /* n 'nn '
35
30
25
20
DV 20/10 99
DV 13/09 '99
Kosnlngar
@
Samfytkingin
Dýrmætur afli
á land
DV, Akureyri:
Aflaverðmæti þeirra skipa sem að-
gang hafa að verðmætari fisktegund-
um hér við land hefur verið mikið að
undanfornu. Skemmst er að minnast
að Samherjaskipið Baldvin Þorsteins-
son landaði fyrir nokkrum dögum 127
milljóna króna farmi sem er verðmæt-
asti farmur sem fengist hefur í einni
veiðiferð hér við land.
I gær var unnið að löndun úr hinnu
þekkta aflaskipi Samherja, Akureyr-
inni, á Akureyri, en togarinn kom
þangað með afla að verðmæti 101 millj-
ón króna, og var uppistaðan í aflanum
þorskur og grálúða. Ekki hafa þó öll
skip útgerðarinnar aflað jafn vel síð-
ustu vikumar. Víðir er t.d. nýkominn
úr veiðiferð í Smuguna þar sem bæði
var reynt í norsku og rússnesku lög-
sögunni en árangurinn var ekki nema
um 11 milljóna verðmæti eftir tæplega
mánaðarúthald. Fleiri hafa reynt bol-
fiskveiðar í Smugunni að undanfómu
en árangur verið lítill sem enginn.-gk
Það var handagangur í öskjunni á togarabryggjunni á Akureyri í gær þegar
landað var úr aflaskipinu Akureyrinni afla að verðmæti yfir 100 milljónum
króna. DV-mynd, gk.
FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999
Hjörl verður kol
Það hefur vakið athygli
margi’a hversu „þaulstæð" Kol-
brún Halldórsdóttir, þingmaður
VG, hefur verið í ræðustól Al-
þingis það sem af er þinginu. Kol-
brún hefur haldið
margar margar
ræður sem marg-
ir segja hreint
ótrúlega langar.
Kolbrún hefur
talað mikið og
lengi t.d. um
umhverfis- og
virkjunarmál
en annars virðist
þingmanninum fátt óviðkomandi
og tjáir hann sig af festu og
ákveðni um hin ýmsu mál. Svo
mikið gengur á að ýmsir eru
strax farnir að sakna Hjörleifs
Guttormssonar sem dvaldi tíðum
I þessum sama ræðustól og talaði
í „hjörlum" sem frægt var. Er nú
talað um nýja tímaeiningu á hinu
háa Alþingi, nefnilega „kol“...
Myrkrahöfðingja flýtt
Nú bendir ýmislegt til þess að
Myrkahöfðinginn
verði frumsýnd-
ur fyrir 1. nóv-
ember. Búist er
við að frumsýn-
ingin fari fram
utan Reykja-
víkur en
ástæðan er
sögð :SÚ að
myndin verði
ekki í endanlegri
gerð og með frumsýningu úti á
landi sé verið að koma myndinni
inn í slaginn um óskarsverðlaun-
in. 1. nóvember er siðasti dagur
sem skila má til að Myrkrahöfð-
inginn sé með í tilnefning-
arslagnum og búist er við að
Friðrik Þór Friðriksson fram-
leiðandi nái að stimpla myndina
inn þannig að hún keppi við Ung-
frúna góðu og húsið ...
Bóndi í raun
Mikið grín hefur verið gert að
stórblaðinu Sunday Times fyrir
að kalla Ólaf
Ragnar Gríms-
son, forseta ís-
lands, bónda. Nú
er komið á dag-
inn að blaðið
hefur rétt fyrir
sér eftir allt
saman. Ólafúr
Ragnar nytjar
nefnilega jörðina
að Bessastöðum. Þar er gott æð-
arvarp sem „húskarlar" eða verk-
takar forsetans era sagðir ann-
ast. Herra Ólafur Ragnar Gríms-
son er því eftir allt saman æðar-
bóndi...
Skaut á ská
Það varð frægt um síðustu
helgi þegar oddviti Þórshafnar-
hrepps skaut Reyni Þorsteins-
son sveitar- ~
stjóra sinn
þar sem þeir
gengu sam-
an til
rjúpna.
Svo virðist
sem veiði-
hæfileik- I
ar þeirra félaga
hafi spurst út því rjúpan er nú
sögð flykkjast til Þórshafnar i ör-
yggið. Hún mun gjarnan halda
sig fyrir utan Hafnarbarinn. Af
þessu tilefni orti Erla Guðjóns-
dóttir á Seyðisfirði.
Oddvitinn hann skaut á ská.
Skotió hitti fótinn.
Sveitarstjóra í brúnir brá,
búinn allur kvótinn.
Já, sveitarstjóri svekktur er,
svona illa marinn.
Er granni Reynis rakur fer,
meö rjúpunni á barinn.
Umsjón Fteynir Traustason
Netfang: sandkorn @ff. is
!