Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1999, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999
7
v Viðskipti
Þetta helst: Úrvalsvísitalan hækkaði um 0,5% í gær eftir lækkanir síðustu daga •••Viðskipti á VÞÍ
alls 665 m.kr., þar af 160 m.kr. með hlutabréf •••Mest viðskipti með FBA ••• Fiskiðjusamlag Húsavíkur
hækkaði mest, um 5,6% ••• Stálsmiðjan lækkaði mest, um 8,3% •••FBA hækkaði um 3,4% •••
Tal og Síminn GSM
tugmilljarða virði?
Ut frá yfirtökutilboði þýska fyr-
irtækisins Mannesmann í breska
farsímafélagið Orange má áætla að
markaðsverðmæti Tals væri um
12,5 milljarðar króna og markaðs-
verðmæti Símans GSM um 42
milljarðar ef miðað er við það sem
Mannesmann er tilbúið að greiða
miðað við notanda hjá Orange.
í Morgunpunktum Kaupþings í
gær kom fram að Mannesmann
hefur staðfest að fyrirtækið hafi
boðið 21,8 miOjaröa breskra punda,
eða sem samsvarar 2.572 milljörð-
um íslenskra króna, í breska far-
símafyrirtækið Orange.
Orange er þriðja stærsta far-
símafyrirtækið í Bretlandi á eftir
British Telecom og Vodafone, með
um 17% markaðshlutdeild. Sam-
setning áskrifenda Orange hefur
gert fyrirtækið að uppáhaldi
Síminn Internet
og Skíma sam-
einast
Starfsemi Landssímans í inter-
net- og gagnaflutningsþjónustu
annars vegar og Skímu hins veg-
ar verður sameinuð á komandi
mánuðum undir merki Símans
Intemet en fyrirtækin hafa verið
rekin aðskilin til þessa.
Skíma hefur síðastliðið hálft
annað ár verið að öllu leyti í eigu
Landssímans. Hið sameinaða fyr-
irtæki mun hafa rúmlega þriðj-
ungs hlutdeild á intemetmark-
aðnum.
í fréttatil-
kynningu sem
Landssíminn
og Skíma gáfu
út af þessu til-
efni segir að
frá því að fyr-
irtækin tvö
hófu rekstur
internetþjón-
ustu hafi
metnaður
beggja verið
sá að veita
sem besta
þjónustu og að
kynna nýjungar fljótt og örugg-
lega. Hvort fyrirtæki um sig hef-
ur ákveðna sérkunnáttu og hæfhi
á sínu sviði og er sameiningin
framkvæmd til að nýta þessa
krafta betur en áður. Samkeppni
á þessu sviði fer mjög vaxandi og
verða viöskiptavinir sífelft kröfu-
harðari. Sögðu fyrirtækin mark-
mið sameiningarinnar vera að
uppfylla þarfir viðskiptavina enn
betur en áður og bjóða betri þjón-
ustu, hraðari þróun nýjunga og
sem áður samkeppnishæft verð.
Næstu mánuði mun starfsfólk
Landssímans og Skímu undirbúa
sameininguna. Allar breytingar
sem kunna að verða á þjónust-
unni verða kynntar viðskiptavin-
um með góðum fyrirvara. Þess
verður gætt í hvívetna aö þjón-
usta við viðskiptavini raskist
ekki. Þannig munu viðskiptavinir
t.d. halda netfongum sínum
óbreyttum. Fyrirtækin gefa sér
góðan tíma í sameininguna og er
ráðgert að hún verði að fullu
komin til framkvæmda á fyrri
hluta næsta árs.
Dagný Halldórs-
dóttir, fram-
kvæmdastjóri
Skímu.
breskra sérfræð-
inga á hluta-
bréfamarkaði
þar sem stór
hluti þeirra er
efnameira fólk
sem nýtir far-
símann mikið.
Mannesmann
ræður fyrir yfir
tveimur af þrem-
ur stærstu far-
símafyrirtækj-
um i Evrópu og
er talið að Orange verði mikilvæg
viðbót fyrir fyrirtækið á markaði
sem talið er að muni tvöfaldast í
stærð á næstu tveimur árum.
Þórólfur
Árnason,
forstjóri Tals.
Heildaráskrif-
endafjöldi fyrir-
tækisins eftir
kaupin verður 20
milljónir manna.
í Morgun-
punktum Kaup-
þings er sérstak-
lega skoðað hvað
Mannesmann er Þórarinn v.
að borga fyrir Þórarinssoni
hvem viðskipta- f órj Lands.
vin Orange. - ’
GSM-notendur
hjá Orange em
nú 3,5 milljónir talsins og miðað
við það verð sem Mannesmann
hefur nú boðið greiðir fyrirtækið
rúm 6.200 pund fyrir hvern not-
anda eða sem samsvarar um 735
þúsund krónum. Kaupþing bendir
þó á að töluverðir vaxtarmöguleik-
ar séu enn til staðar og ef tekið er
mið af því að notendafjöldi verði
hlutfallslega svipaður í Bretlandi
og hann er hér á landi í dag þá er
verið að greiða liðlega 410 þúsund
krónur fyrir hvern notanda.
Ef þessar tölur eru settar í sam-
hengi við íslenskan raunveruleika
þá væri Tal hf. 12,5 milljarða króna
virði með um 30.000 áskrifendur og
Síminn GSM væri um 42 milljarða
króna virði með um 100 þúsimd
áskrifendur.
Stálsmiðjan tapar 54 milljónum
Fyrstu átta mánuði ársins var
Stálsmiðjan hf. rekin með 53,6 millj-
óna króna tapi. Velta félagsins á
tímabilinu nam 561 milljón króna.
Árshlutauppgjör fyrir tímabilið
janúar til ágúst 1999 er gert í tengsl-
um við samruna Stálsmiðjunnar hf.
og Slippstöðvarinnar hf. og er upp-
gjörið gert sem hluti af samrunaá-
ætlun félaganna. Eins og áður hefur
komið fram er stefnt að samruna fé-
laganna frá og með 31. ágúst 1999.
Væntingar eru um að
samruninn skili verulegum ár-
angri í rekstri en sá árangur verði
ekki sýnilegur fyrr en á næsta ári,
að því er fram kemur í frétt frá Stál-
smiðjunni.
Rekstur Stálsmiðjunnar hefur gengið illa það sem af er
ári en vonir standa til að með samruna við Slippstöð-
ina á Akureyri náist fram veruleg hagræðing.
Rekstrartekjur
Stálsmiðjunnar
fyrstu átta mán-
uði ársins námu
samtals 561,3
milljónum
króna. Tap af
reglulegri starf-
semi var 39,9
milljónir og að
teknu tilliti til
óreglulegra
gjalda var tap
tímabilsins 53,6
milljónir. Veltufé
frá rekstri var 8,0
milljónir króna.
Launavísitalan hækkar
um 0,2%
Miðað við meðallaun í septem-
ber hækkaði launavísitalan um
0,2% frá fyrra mánuði og er 182,5
stig samkvæmt útreikningum
Hagstofunnar. Samsvarandi
launavísitala, sem gildir viö út-
reikning greiðslumarks fast-
eignaveðslána, er 3991 stig í nóv-
ember 1999.
Byggingarvísitalan upp
um 0,1%
Miðað við verðlag um miðjan
þennan mánuð hefur vísitala
byggingarkostnaðar hækkað um
0,1% frá fyrra mánuði. Sam-
kvæmt útreikningum Hagstof-
unnar er vísitala byggingakostn-
aðar nú 236,9 stig.
Óbreyttir vextir í Evrópu
Seðla-
banki
Evrópu
ákvað í
gær að
halda
stýri-
vöxtum
sinum óbreyttum. Ákvörðun
bankans kemur ekki á óvart en
enn eru taldar nokkrar líkur á
ákvörðun um vaxtahækkun á
næsta fundi bankaráðsins sem
verður 4. nóvember nk.
Roche gæti hagnast um
milljarð dollara á
Genentech
Svissneska lyfjasamsteypan
Roche Holding tilkynnti í gær að
fyrirtækið hefði ákveðið að
bjóða til sölu 20 milljónir hluta í
líftæknifyrirtækinu Genentech.
Hlutimir eru til sölu á 143,5 doll-
ara hver hlutur. Verði af sölu
bréfanna á þessu verði gæti
hagnaður Roche numið um eða
yfir 1 milljarði dollara.
Upplýsingar um bjóðendur í FBA ekki
gerðar opinberar strax
Þátttökutilkynningar vegna sölu
ríkisins í Fjárfestingarbanka at-
vinnulífsins hf. voru móttteknar i
Ríkiskaupum í gær í samræmi við
ákvæði sölulýsingar. Upplýsingar
um fjölda hópa og umboðsmenn
verða gerðar opinberar þegar mat
á hæfi hópa samkvæmt skilyrðum
í sölulýsingu hefur farið fram.
Þær upplýsingar sem Ríkiskaup
fengu í hendur um hvern hóp fel-
ast í upplýsingum um innbyrðis
samsetningu og hlutfallslega skipt-
ingu eignarhluta innan hópsins.
Þá tilkynnir hópurinn jafnframt
um sameiginlegan umboðsmann
sinn. Nánari upplýsingum, s.s. til-
boðsgengi og fjármögnun, þarf
ekki að skila fyrr en endanlegt til-
boð er sent inn.
Þriggja manna nefnd fer yfir
þátttökutilkynningamar og ef í
ljós kemur að einhver hópur upp-
fyllir ekki skilyrði sem sett hafa
\mmm fiii ■■■■ulm nm Tn iii
Í*ISH 111 ■ai IBB
Ekki liggur enn fyrir hverjir keppa um 51% hlut ríkisins í FBA.
verið um söluna verður umboðs-
manni gert aðvart í siðasta lagi
mánudaginn 25. október næstkom-
andi og honum veittur frestur til
föstudagsins 29.
október til að lag-
færa þau atriði sem
leiðrétta verður.
Umboðsmönnum
hópa sem uppfylla
skilyröin verður af-
hent tilboðseyðublað
mánudaginn 1. nóv-
ember og skal tilboð-
um skOað fóstudaginn
5. nóvember. Við opn-
un verða lesin upp
nöfn umboðsmanna
og tilboðsgengi en
jafnframt verður upp-
lýst um nöfn tilboðs-
gjafa innan hvers
hóps er skilað hafa til-
boði.
Tilboðin miðast við
staðgreiðslu sem skal
fara fram hjá ríkisféhirði eigi síðar
en mánudaginn 15. nóvember.
Bankarnir hafa lækkaö um 5 milljarða í október
- hlutur ríkisins rýrnað um 3,4 milljarða
Markaðsverðmæti bankanna fjög-
urra sem skráðir eru á VÞÍ hefur
samtals lækkað um 5 milljarða frá
septemberlokum, miðað við loka-
gengi hlutabréfanna í gær. Þá var
samanlagt markaðsvirði þeirra 81
milljarður en er nú 76 milljarðar.
Markaðsverðmæti Landsbankans
hefur þannig lækkað um 2,9 milljarða
það sem af er október, FBA um rúm-
lega 800 milljónir, Búnaðarbankinn
um rúmlega 600 milljónir króna og Is-
landsbanki um vel á sjöunda hundrað
milljóna króna.
Gengi Landsbankans hefur lækkað
um 12% í október, gengi FBA um
4,2%, Búnaðarbankinn hefur lækkað
um 3,3% og íslandsbanki hefur lækk-
að um 3,5% það sem af er október.
Ríkissjóður íslands á meirihluta í
þremur bémkanna. Ríkið á 85% bæði
í Landsbankanum og Búnaðarbank-
anum og 51% í FBA. Verðmæti eign-
arhlutar ríkisins hefur því rýmað í
mánuðinum um tæplega 2,5 milljarða
íLandsbankanum, 620 milljónir í
Búnaðarbankanum og 420 múljónir í
FBA.
Samanlagt hefur hlutur ríkisins í
bönkunum því lækkað að markaðs-
verðmæti um 3,4 milljarða króna.