Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1999, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 22.10.1999, Blaðsíða 13
FÖSTUDAGUR 22. OKTÓBER 1999 13 JDV Fréttir Enn eitt vindhögg Arkins Enn einu sinni virðist hafa ver- ið slegið vindhögg í þeirri baráttu að sanna meinta tilvist kjarnorku- vopna á íslandi. Grein þriggja Bandarikjamanna í tímaritinu Bulletin of American Scientist vakti mikla athygli í gær. Þar var haldið fram að kjarnorkuvopn hafi verið geymd á íslandi á árunum 1956 til 1959. Einn greinarhöfund- anna, William Arkin, hefur áður komið við sögu þegar hugsanleg kjamorkuvopn á íslandi hafa kom- ið til tals. Arkin fullyrti árið 1980 að kjarnavopn væru staðsett hér á landi en sagðist síðan á árinu 1984 hafa haft rangt fyrir sér en að hann hefði vissu fyrir því að flytja ætti kjarnavopn til landsins á ófriðartímum. Árið 1985 greindi New York Times frá því að kjarna- vopn yrðu flutt til íslands við sér- stakar aðstæður og bar Arkin fyrir fréttinni. Engar fullyrðingar Ark- ins um kjarnavopn á ísland hafa verið staðfestar eða sannaðar og hefur trúverðugleiki hans í málinu að sama skapi beðið talsverða hnekki. Ályktanir Arkins og meðhöf- unda hans virðast af grein þeirra og síðan samtölum við íslenska fréttamenn að dæma hvíla á hæpn- um grunni og engin ástæða til að leggja trúnað á þær að óbreyttu. Aftur á móti virðast hvorki íslensk stjórnvöld né íslendingar yfirleitt ekki heldur hafa sérstaka ástæðu til að taka yfirlýsingar banda- rískra stjómvalda um þessi efni trúanlegar. Halldór Ásgrímsson utanríkis- ráðherra gengur á fund utanríkis- málanefndar Aiþingis og ræðir málið við nefndarmenn. Sam- kvæmt samantekt sem starfsmað- ur nefndarinnar vann að beiðni DV hefur hugsanlega staðsetningu kjarnaorkuvopna á íslandi m.a. verið rædd á fundum utanrikis- málanefndar árin 1968, 1980, 1991 og á tveimur fundum árið 1995. Engar aðstæður fyrir kjarna- vopn Heimildarmaður DV sem þekkir til í herstöðinni á Keflavíkurflug- velli, en ekki vill láta nafns getið, segist telja útilokað að rétt geti verið að Bandaríkjamenn hafi nokkru sinni geymt kjarnorku- vopn hérlendis. Heimildarmaður- inn segir íslenska starfsmenn á Keflavíkurflugvelli, sérstaklega slökkviliðsmenn, ávallt hafa haft aðgang að sérhverju skúmaskoti á Einar Ágústsson, sem var utanríkisráðherra 1971 til 1978, kannaði aðstæð- ur á Keflavíkurflugvelli og sagðist í samtali við blaðamann Vísis ekki hafa séð merki um kjarnorkusprengjur í herstöðinni. Á myndinni er Einar hins vegar í heimsókn í einni af herstöð bandaríkjahers í Colorado árið 1975. Sprengjuheld flugskýli á Keflavíkurflugvelli. varnarsvæðinu og því hafi verið óhugsandi að kjamorkuvopn væru geymd þar án vitneskju íslending- anna. Hann lagði áherslu á að við geymslu kjarnavopna væru við- hafðar gífurlega strangar öryggis- kröfur sem ekki aðeins útheimtu sérþjálfað starfslið heldur einnig sérstaklega byggð rammgerð mannvirki sem aldrei hefðu verið reist hérlendis. Að þvi er segir í grein Arkins og félaga höfðu sprengjuvélar sem gátu borið kjarnorkusprengjur að- stöðu á íslandi á árunum 1956 til 1959 og segja blaðamennimir það renna stoðum undir kenningu sína um að slíkar sprengur hafi í raun verið geymdar hér á þessun tíma. Heimildarmaðurinn segir að vissu- lega hafi B-47 sprengjuvélar haft hér aðstöðu en að hún hafi aðeins verið til millilendinga og því hafi ekki verið um eiginlega bækistöð vélanna að ræða. Hann segir erfitt að ímynda sér hvers vegna vélar sem staðsettar væru í Bandaríkj- unum ættu að millilenda hér til að ná í sprengjur á leið að skotmörk- um í Sovétríkjunum þegar beinast lægi við að hafa sprengjurnar á sama stað og vélamar sjálfar. Hann segir aðstöðu vélanna hér hljóta að hafa verið hugsaða til að vélarnar gætu millilent hér á leið frá skotmörkunum. Hvorki yfirmaður varnarliðsins á Miðnesheiði né fulltrúar hans vilja tjá sig um málið við fjölmiðla. -GAR Árni Þór Sigurðsson um ummæli Helga Hjörvars: Hefnigirni en ekki raunsæ pólitík - umræðan Reykjavíkurlistanum ekki til framdráttar Eg er mjög undrandi á þessari umræðu og finnst hún frekar bera vott um hefnigirni en raunsæja pólitík," segir Ámi Þór Sig- urðsson, varaborgarfulltrúi Alþýðubandalagsins, um ummæli flokksbróður síns, Helga Hjörvars, í DV í gær. í DV í gær sagði Helgi Hjörvar, forseti borgar- stjórnar, að brotthvarf Árna Þórs hefði þjappað al- þýðubandalagsfélögunum í Reykjavík saman og skað- inn af brotthvarfinu væri Árni Þór Sigurðs- son er ekki ósáttur við ummæli Helga Hjörvars en kýs að ræða málin innan borgarstjórnar- fiokks Reykjavík- urlistans. sáralítill. Þá lýsti Helgi yfir efasemdum um að Ámi Þór myndi halda trúnaðarstörf- um sínum í hafnarstjóm og skipulagsnefnd. „Mér fmnst það ekki Reykjavikurlistanum til framdráttar að vera með umræðu af þessu tagi í fjöl- miðlum. Ég kýs því, að svo miklu leyti sem um þessi mál er að ræða, að gera það innan borgarstjómarflokks Reykjavíkurlistans," segir Ámi Þór. -hdm Tilboð á skjávörpum Léttir og bjartir skjávarpar Einstaklega meðfærilegir varpar sem sýna bæði tölvu- og videómerki. Þeir gerast ekki hljóðlátari eða þægilegri í notkun. C5 skjávarpinn hentar einkar vel með nýjustu fartölvum. Varparnir eru með byltingakenndri peru sem endist í 4000 klukkustundir og er gríðarlega björt. ASK C1 ASKC5 Birta 700 Ansi Lumen Birta 800 Ansi Lumen Upplausn C1 800 x 600 SVGA Upplausn C1 1024x768 XGA Þyngd 3,7 kg Þyngd 3,7 kg Ending peru 4000 klst. Ending peru 4000 klst. Hljóð 38 dB Hljóð 38 dB Sýningardrægni 1,1 -10 m Sýningardrægni 1,1 -10 m Tilboðsverð Verð áður kr. 349.000.- kr. 454.400.- Tilboðsverð Verð áður kr. 449.000.- kr. 525.000,- NÝHERJI Skipholt 37 • S:569 7700 http://www.nyherji.is Sölu- og þjónustuaðilar Nýherja: Suðurland: Tölvu- og Rafeindaþjónustan Selfossi og Tölvun Vestmannaeyjum. Austurland: Martölvan Höfn í Hornafirði og Tölvusmiðjan Egilsstöðum/Neskaupsstað. Norðurland: Nett Akureyri, Element Sauðárkróki og Ráðbarður Hvammstanga. Vestfirðir:Tölvuþjónusta Helga Bolungavík

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.