Dagblaðið Vísir - DV - 28.10.1999, Síða 6
26
FIMMTUDAGUR 28. OKTÓBER 1999
Sport
Ánægður með vörnina
„Byrjunin í deildinni er með svipuðum hætti og ég
átti von á svona fyrir fram. Deildin ætlar að skipast
í tvo hópa en til þessa hafa auðvitað átt sér stað
óvænt úrslit Tindastóll, Haukar og KR eru með mjög
breyttan leikmannahóp frá því sem áður hefur verið
og það tekur bara tima fyrir liðin að stilla saman
strengi sína. Ég verð þó að segja að mér finnst Kefl-
víkingar hafa komið hvað mest á óvart. Þeir láta bolt-
ann vinna vel, gefa sér tíma í sóknarleikinn og í
augnablikinu leika þeir skemmtilegasta boltann,"
sagði ívar Ásgrímsson, þjálfari Haukanna, um
körfuknattleikinn það sem af er í vetur.
Hvað með þitt eigið lið? Ertu sáttur með framgang
þess til þessa?
„Ég er ánægður með vamarleikinn en við höfum
átt í erfiðleikum í sókninni. Þeir erflðleikar koma
mér samt ekki á óvart þvi ég átti allt eins von á þeim.
Við munum eftir því sem á líður vinna á þeim vanda,
þetta er bara spuming um tima og þolinmæði. Við
höfum á stuttum tima leikið í þrígang gegn Keflvik-
ingum, unnið einn leik og tapað tveimur. Við áttum
að minu mati að vinna síðasta leikinn í Keflavík en
því miður gekk það ekki eftir.“
Finnst þér körfuboltinn betri núna en áður?
Já, mér fmnst það. Það era margir efhilegir
leikmenn að koma og í þvi sambandi er hægt að
benda á unga leikmenn í KR-liðinu. Deildin skiptist
í tvennt en baráttan á þessum tveimur stöðum á eftir
að verða gríðarleg í allan vetur. Það á ekkert eitt lið
eftir að stinga af og fleiri iið en áður eiga möguleika
á að blanda sér i baráttuna um titilinn.
Útlendingamir vora slakir í bytjun en þeim hefúr
vaxið ásmegin. Brendon Birmingham er mjög
sterkur og KR-ingar hafa styrkst gríðarlega. Það er
mitt mat að deildin eigi eftir að verða skemmtileg i
vetur," sagði ívar.
ívar Ásgrtmsson,
36 ára, þjálfari.
Eyjólfur Jónsson,
25 ára, mlðherji,
0 leikir.
Ingvar Guðjónsson,
20 ára, bakvörður,
43 leikir, 204 stig.
Marel Guðlaugsson,
27 ára, framherji,
254 leikfr, 2239 stig.
Henning Henningsson,
35 ára, bakvörður,
265 leikir, 3071 stig.
Guðmundur Bragason,
32 ára, miðherji,
247 leikir, 4507 stig.
Óskar Pétursson,
23 ára, miðherji,
68 leikir, 514 stig.
Chris Dade,
25 ára, bakvörður,
0 leikir.
Blcmd í poka
Haukar hafa styrkt lid sitt nokkuð frá þvl i
fyrra því tveir leikreyndustu menn Grinda-
víkur frá upphafi, Gudmundur Bragason og
Marel Guúlaugsson, gengu til liðs við liðið
fyrir þetta tímabil. Guðmundur kemur heim
úr atvinnumennsku en Marel frá KR. Auk
þeirra fékk liðiö Eyjólf Jónsson og Davið
Ásgrimsson frá Stjömunni. Tveir leikmenn
fóru: Kristinn Sveinsson fór í Skallagrim og
Daniel Árnason til Svíþjóðar í nám.
Haukar leika nú í úrvalsdeildinn 17. árið i
röð en þeir komust fyrst upp i efstu deild
körfuboltans 1983. Alls hafa Haukar leikið 382
leiki í úrvalsdeild og unniö 219 af þeim sem
gerir 57,3% árangur á þessum 16 árum.
Haukar uróu íslandsmeistarar 1988 með því
að leggja Njarðvik að velli í ævintýralegum
úrslita- og oddaleik í Njarövík en á árunum
1985 til 1988 komust Haukar þrisvar í úrslit á
fjórum árum en auk jiess komust þeir einnig
alla leið í úrslit um Islandsmeistaratitilinn
1993, er þeir töpuðu fyrir Keflavík.
Bestu sigurhlutfalli á einu tímabili náðu
Haukamir veturinn 1995 til 1996 er þeir unnu
84,4% leikja sinna, eða 27 af 32, en urðu siðan
aö sætta sig við að detta út úr
úrslitakeppninni fyrir verðandi Islands-
meisturum Grindavikur í undanúrslitum.
Haukar hafa unniö bikarinn þrisvar
smnurn, tvö ár í röð, 1985 til 1986, og svo 1996,
en alls hafa Haukar komist fjórum sinnum í
Höllina því þeir töpuðu fyrir Njarðvík í
bikarúrslitaleiknum árið 1992.
Bragi Magnússon,
26 ára, framherji,
196 leikir, 2548 stíg.
Ottó Þórisson
22 ára, bakvörður
0 leikir
Guðmundur Björnsson, Leifur Þór Leifsson, Jón Arnar Ingvarsson,
28 ára, bakvörður, 41 24 ára, bakvörður, 27 ára, bakvörður,
leikur, 42 stig. 42 leikir, 64 stig. 257 leikir, 3936 stig.
Þúsundin hans Jóns
Jón Amar Ingvarsson, fyrirliði Hauka, varð í fyrra fyrsti leikmaðurinn í
úrvalsdeild til að ná þremur tölfræðiþáttum yfir þúsund. Jón Amar hefur leikið 257
leiki í úrvalsdeild, skorað í þeim 3936 stig, gefið 1945 stoðsendingar og náð í 1049
fráköst. Hann er sá áttundi stigahæsti, annar í stoðsendingum á eftir Jón Kr.
Gíslasyni (1359) og sá 14. í fráköstum.
Teitur Örlygsson getur orðið annar maðurinn í sögunni til að ná þremur þáttum
yfir þúsund en hann vantar aðeins 66 stoðsendingar til að hafa náð þrennu af þúsund
stigum, fráköstum og stoðsendingum. Teitur er einmitt sá leikmaður sem hefur stolið
flestum boltum (863) en þar er Jón Arnar í öðra sætinu (543). -ÓÓJ
Jón Arnar Ingvarsson er bæði leikja- og
stigahæstur Hauka frá upphafi en hann hefur
leikið 257 leiki og skorað 3936 stig fyrir þetta
tímabili. Næstleikjahæstur er núverandi
þjálfari Haukanna, ívar Ásgrímsson, með
234 leiki, og þriðji er einnig þjálfari í
úrvalsdeild og bróðir Jóns Amars, en þaö er
Pétur Ingvarsson, þjáifari Hamars. Hann
hefúr leikið 211 ieiki fyrir félagið.
Haukar náöu aöeins 47,7% frákasta í fyrra,
sem var það næstslakasta í deildinni, og til
þess aö bæta þann þátt hjá sér fengu þeir til
sín Guömund Bragason sem fyrir
tímabilið vantar 125 fráköst til að vera sá
sem hefur tekið flest í sögu úrvalsdeildar frá
upphafi með 2423 í 250 leikjum. -ÓÓJ
Heimaleikir:
28/2 Haukar-Þór Ak...........20:00
7/11 Haukar-Skallagrímur......16:00
16/11 Haukar-KR..............20:00
9/12 Haukar-Snæfell..........20:00
14/12 Haukar-Njarðvík........20:00
13/1 Haukar-ÍA ..............20:00
27/1 Haukar-Keflavík.........20:00
10/2 Haukar-Grindavík .......20:00
2/3 Haukar-Hamar.............20:00
9/3 Haukar-KFÍ...............20:00
Iþróttavefui
er alltaf í tc
igurinn!
isir.is