Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1999, Blaðsíða 9
horfnir skemmtistaöir
30 mín. í sýningu: Laddi er orðinn að
röflandi róna.
sokkabuxumar voru inni i honum.“
Hún æðir um og rótar í fatahrúgum og
I flettir í gegnum hálftóm herðatré. „Eru
B ekki til auka sokkabuxur?“ spyr Laufey
II en fær engin svör. Allir eru uppteknir
af sínum málum. í sófanum sitja strák-
amir og ræða Dorrit og fótbolta. Stelp-
urnar hanga fyrir framan speglana og
bæta enn á farðann. Dansararnir
spenna á sig dansskóna.
„Hjúkk, ég er búin að finna sokka-
buxurnar," kallar Laufey eftir nokkrar
mínútur.
Og nú virðist sýningin geta byrjað.
IGjöf frá aðdáanda
Sýningin gengur sinn gang fram að
y hléi en Immý virðist þó hafa út á eitt og
annað setja við leikarana í hléinu. Rætt
er um áhorfendur og leikurunum
finnst furðulegt hversu lítið þeir
klappa en samt hlæja þeir heilmikið.
Dansararnir Brynhildur Tinna og
Berglind kasta mæðinni í sófanum og
bar Eika sem hún tók með sér í nesti.
Einhver kemur og dreifir kóki á mann-
skapinn og Berglind fær bréf og bangsa
frá aðdáanda úti í sal. Bangsinn er
fjólublár og á hann er búiö að tússa I
love you. Hún rífur spennt upp umslag-
ið og les.
„Þetta er frá vini mínum," segir hún
og brosir leyndardómsfullt og vill ekk-
ert meira um málið segja. Nanna hress-
ir sig við með Magic og talar með ákefð
í farsímann. Hún er komin með rúll-
umar aftur i hárið. Aðrir eru úti að
reykja eða á klósettinu.
Tvö leikrit á kvöldi
Baksviðs eru 20 mínútur fljótar að
líða. Hléið er búið og Bjarni fær að
kyssa enn þá fleiri stelpur, verður
hommi og giftir sig loksins og það allt
á sviðinu. Lófatakið í salnum ætlar
engan enda að taka. Áhorfendur virð-
ast vera ánægðir. Leikaramir líka.
Sýningarstjórinn samt ekki alveg.
„Það var of mikill umgangur bak-
sviðs. Þið verðið að reyna að hafa
lægra,“ kallar hún yfir hópinn í bún-
ingsherberginu að lokinni sýningu.
„Og það sem þarf að fara í hreinsun
hengið þið á hvitu slána,“ kallar Immý
en enginn virðist vera að hlusta á
hana.
Það er eins og allir séu i kappi um að
vera fyrstir úr fótunum. Eini leikarinn
sem virðist vera afslappaður er Nanna
sem ræðst á meikið af varfæmi. Laddi
og Steinn Ármann vinna kapphlaupið.
Þeir eru komnir út úr húsi á undan öll-
um öðrum, enn þá með meikið framan
í sér.
„Við erum að fara upp á Hótel Sögu,“
segir Steinn Ármann um leið og hann
skellir bílhurðinni. Þeir Laddi em að
fara að leika í farsanum Sjúkrasaga
sem byrjar eftir skamma stund.
Immý stendur í dyrunum, veifar og
kallar móðurlega: „Sjáumst á næstu
sýningu, krakkar." -snæ
15 mín. í sýningu: Laufey æöir syngj-
andi um í leit að silfurlitum sokka-
buxum.
15 mín. í sýningu: Heimsmálin rædd
í rólegheitum og ekki vottar fyrir
stressi hjá strákunum.
komin aftur með rúllurnar í hárið. Aðr-
ir eru úti að reykja eða á kiósettinu.
í hléi: Berglind fær sendingu frá að-
dáanda úti í sal. „Þetta er frá vini
mínum," segir hún og lætur ekki
meira uppi.
Eftir sýningu: Nanna íklædd brúðar-
kjól ræðst á meikið af varfærni.
Eftir sýningu: Laddi rífur sig úr bún-
ingnum með ofsahraða. Hann og
Steinn Ármann eru stressaðir því þeir
þurfa að fara beint upp á Hótel Sögu
þar sem þeir leika í öðru leikriti. Dav-
íð Þór er hins vegar á ieiðinni í partí.
Skemmtistaðurinn
Kaffi Gestur hét í
höfuðið á svartri
iæðu og var til húsa
á Laugavegi 28b.
Á staðnum var ekki
hægt að dansa þar
sem það var teppi
á gólfinu en Kaffi
Gestur seldi í
staðinn grimmt af
kokkteilum og
morgunverðum.
Kaffi Gestur var gul-
málaður með miklu af
speglum á veggjunum.
stutt
Á Laugavegi 28b, þar sem veit-
ingastaðurinn Shanghæ er nú til
húsa, var einu sinni skemmtistað-
inn Kafíi Gest að finna. Staðurinn
var opnaður í apríl 1984 og lifði í
þrjú ár eða allt þar til Shanghæ
var opnaður i húsakynnunum.
Meðal eigenda staðarins voru
Freyr Njarðvík og Björgvin
Gíslason.
„Veitingastaðurinn Askur var
til húsa á þessum stað áður en við
opnuðum. Við klæddum innrétt-
ingarnar sem þar voru með
spónaplötum og máluðum staðinn
gulcm. Einnig hengdum við upp
fullt af speglum," segir Björgvin
Gíslason um útlit staðarins. Stað-
urinn var einn stór geirnm- með
stórum bar við endann og við
gluggana sem sneru út að Lauga-
veginum voru básar.
„Nafnið fannst mér aHtaf
skemmtilegt því það gat haft svo
margar merkingar en uppruna-
lega var staöurinn nefndur í höf-
uðið á svartri læðu sem ég átti og
hét einmitt Gestur,“ segir Björg-
vin en Kafíi Gestur varð strax gíf-
urlega vinsæH og sótti hann fólk á
öUum aldri og þjóðfélagsgerðum.
Opnað kl. 7 á morgnana
Kafíi Gestmr var barn síns tíma
og spHaði nýbylgjupopp í græjun-
um en stundum var þó lifandi
uppákomur þar að finna.
„Einu sinni spHuðu Sigtryggur
og Björk á staðnum fyrir troð-
fuHu húsi. Þetta var á þeim tíma
þegar þau voru í Kuklinu," segir
Björgvin en að það hafi aldrei ver-
ið dansað á staðnum þar sem
grátt teppi með svörtum tíglum
var á gólfinu og var mjög óhent-
ugt að dansa á. Staðurinn var því
fyrst og fremst ekta pöbb þar sem
menn komu tfí að tala saman yfir
glasi.
Kaffi Gests
Terta dagsins, kr. 140.
Heimalagaður nougatís
m/möndlukrókant, kr. 15£
Heimalagaður ís Amarettc
með möndlum, kr. 175.
Heimalagaður ís Creme de
Menthe m/kókos, kr. 175.
Heimalagaður ís Creme de
Cacao, kr. 175.
Ferskt ávaxtasalat með
rjoma, kr. 220.
„í upphafi lögðum við
mikla áherslu á mat en smátt og
smátt varð staðurinn meira að
skemmtistað. Við opnuðum aUa
daga kl. 7 á morgnana og það var
aHtaf ákveðinn hópur sem mætti í
morgunmat miUi 7 og 8 enda vor-
um við aUtaf með glæsUeg hlað-
borð árla dags,“ segir Björgvin.
Helgarnar voru þó aHtaf bestar á
Kaffi Gesti og lagði staðurinn i
upphafí mikla áherslu á að bjóða
upp á flotta kokkteUa af ýmsum
gerðum. Egill Ólafsson og Tinna
Gunnlaugsdóttir voru meðal
þeirra sem oft kíktu við á Kafíi
Gesti.
„Ég leit stundum inn þarna.
Þessi staður hafði sinn karakter
og þar var að finna ýmsa borgar-
ketti. Þarna var lfka spUuð tónlist
sem féU mér betur í geð en sú tón-
list sem spUuð var á hinum stöð-
unum sem uppi voru á þessum
tíma,“ segir EgiU. Hann minnir
einnig að hann hafi heyrt í fyrsta
sinn í HaUgrími Helgasyni á Kaffi
Gesti þar sem hann var að lesa
upp.
Myndlistarsýningar
A Kaffi Gesti héngu iðulega ein-
hver málverk á veggjum eftir
þekktari og óþekktari myndlistar-
menn.
„Það var mikið af músíköntum
og öðru listafólki sem sótti stað-
inn. Hommarnir áttu líka sitt
fasta borð,“ segir skáldið Sjón
sem minnist þess að hann hafi les-
ið upp á staðnum.
„Þetta var huggulega hannaður
staður þegar hann var opnaður og
ég man sérstaklega eftir löngum
bekk upp við vegginn sem var iðu-
lega þéttsetinn. Ég leit þarna
stundum við og fékk mér rauð-
vín.“
Fókus reyndi að hafa uppi á
fleiri gestum staðarins en það var
frekar torvelt þar sem margir
þeirra voru einfaldlega horfnir,
dánir eða vUdu ekki tjá sig um
staðinn. Staðurinn átti sér líka
ömurleg endalok, hann fór hrein-
lega á hausinn eins og svo margir
staðir í þessum bransa og var að
lokum lýstur gjaldþrota.
-snæ
á öllum Shellstöövum
Fáðu skafmiða um leið og þú greiðir
fyrir eldsneytib
□r vinning eru félagarnir úr Looney Tunes
Ef þú vinnur ekki geturöu sett mióann
í pott og unniö enn stærri Looney Tunes
Dregió á FM957 tvisvar á dag
virka daga til 12. nóvember
29. október 1999 f ÓkUS