Dagblaðið Vísir - DV - 29.10.1999, Page 16
Þetta aerist ekki
iinni
„Já, þetta var mjög óvænt og
skemmtilegt og maður heldur áfram á
sömu braut," segir Christof Weh-
meier sem komst í fjórðungsúrslit í
Empire Screenplay Contest. Eins og
nafnið gefur til kynna er þetta banda-
rísk handritasamkeppni og alls bárust
þúsund handrit í hana. Handritið sem
fleytti Christof áfram heitir The
Enemy.
„The Enemy er dramatisk ástar-
saga í spennustíl sem gerist á fimmta
og sjötta áratugnum. Fimmtán fram-
leiðendur í Hollywood lásu handritið
og voru hrifnir af því,“ bætir Christof
við.
Hollywood-framleiðendurnir skrif-
uðu viðurkenningarbréf um handritið
og voru ekkert að skafa utan af því:
„The Enemy“ is certainly worthy of
further attention, and we hope
somebody produces it soon.“ Slík við-
brögð hljóta að hvetja menn til frekari
skrifta.
„Um þessar mundir er ég að leggja
drög að öðru handriti sem flallar um
venjulegt fólk á miklum átakatímum
veraldarsögunnar. Þar fyrir utan
sendi ég handrit i aðra handritasam-
keppni í L.A. Það er yfirnáttúrlegt
spennudrama, einhvers konar nútíma-
draugasaga. Ég sendi þriðja handritið
til Bandaríkjanna sem er í spennu-
striðsdramastíl. Þetta handrit er í
skoðun hjá nokkrum framleiðendum
en umboðsmaður minn í Bandaríkjun-
Christof Wehmeier er kynningarstjóri Stjörnubíós og nýtir hverja frístund til aö
skrifa kvikmyndahandrit.
um hefur mikla trú á því. En maður Kárason. Það er hugsað sem sjón-
verður bara að vera þolinmóður, þetta varpsmynd og er táknræn fjölskyldu-
gerist ekki á einni nóttu." saga. Þetta verkefni hefur fengið góð-
Skrifaröu eingöngu á ensku? an meðbyr og nú þurfa verkin að
„Ég hef skrifað handrit á íslensku tala,“ segir Christof Wehmeier ákveð-
sem styðst við smásögu eftir Einar inn.
MonicU’
töskur
Töskur er gott að hafa og ekki sakar
þegar þær eru þraktískar og fallegar í
senn. Það nýjasta nýtt á handtösku-
markaðinum er glæný lína hönnuð af
sjðlfri forsetasleikjunni Monicu Lewin-
sky. Töskuævintýrið byrjaöi þegar for-
setaskandallinn stóð sem hæst og
Monica lokaði sig inn t húsi til þess að
forðast fjölmiðla. Til að stytta daginn
byrjaði hún að þrjóna og saumaði sér
taupoka undir prjónadótið. Prjónapok-
inn vakti athygli vina hennar sem fljót-
lega fóru einn af öðrum að biðja hana
að búa tii álíka töskur handa sér. Þetta
var upphafið að töskugerð Monicu.
Hver taska er yfirleitt búin til úr einum
til þremur tegundum af efnum og notar
Monica glæsileg og dýr efni viö tösku-
gerðina. Töskurnar eru því síður en svo
gefnar og kosta þær ódýrustu í kring-
um 7000 íslenskar krónur. Á heima-
síðu Monicu stendur að hver taska sé
„made specielly for you by Monica" en
einhvern veginn þá efumst við um það.
Það er þó virðingarvert að stelpan láti
ekki deigan síga miöað við allt sem á
undan er gengið. Sumir hefðu þó hald-
ið að hún hefði grætt meira á því að
sauma vindlahulstur en sam-
kvæmistöskur. Þær stelþur sem vilja
tolla í tískunni með tösku frá Monicu
Lewinsky geta þantað sér svona tuðru-
þoka á heimasíðunni: www.ther-
ealmonica.com
2 haf
Gleðilegt sumar
Nellie's er frekar
undarlegur stað-
ur sem selur
margt á hálfvirði
í október. Þar
eru l!ka mjög
gleðilegir menn
sem þó kveðja
sumarið með
trega. Það stend- [ ’
ur til dæmis enn þá: „Gleðilegt sumar"
utan á barnum. Augljóst er að fólk þar á
bæ ætlar ekki að viðurkenna tilvist vetrar-
ins og neitar að fara í lopann.
Michael
Hutchence
gengur aftur
Það eru orðin tvö ár síðan INXS-söngvarinn
Michael Hutchence fannst hengdur á hót-
elherbergishurð. Konan hans hefur nú lýst
því yfir opinberlega að Michael hafl óvart
drepið sig þegar hann var að stunda heng-
ingarsjálfsfróun
sem er auðvitað
ekkert til að
gera grin að.
Michael hafði
unniö að sóló-
plötu I tvö ár fyr-
ir óhappið og nú
er sú plata loks-
ins komin út og
heitir einfald-
lega eftir söngv-
aranum. Mikill
spenningur var
fyrir plötunni í
heimalandinu,
Ástraliu, en platan fór þó aðeins I þriðja
sæti vinsældalistans. Kannski þetta sé af
þvi að gagnrýnendur sýndu enga virðingu
og tóku plötunni fálega. „Hefðbundin rokk-
plata með aðeins fönkaöri hljóðvinnslu,"
sagði einn þeirra. Aðdáendur Michaels eru
auðvitað á ööru máli og segja aö platan
hjálpi þeim við að skilja dauða söngvar-
ans, enda er hann oft persónulegur I text-
unum og kvartar yfir byrðinni sem fylgi því
að vera poppstjarna. Bono kemur við sögu
I einu lagi á plötunni. Faðir Michaels hefur
nú opnað minningarsíðu um soninn á Net-
inu (www.michaelhutchence.org). Þangað
ættu allir að drifa sig sem áhuga hafa á
Michael og poppinu sem hann gerði sóló
og með INXS.
16
f Ó k U S 29. október 1999