Dagblaðið Vísir - DV - 16.11.1999, Blaðsíða 17
16
ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1999
ÞRIÐJUDAGUR 16. NÓVEMBER 1999
2^
Sport
Sport
Franz Beckenbauer, fyrrum
fyrirliði þýska
landsliösins í
knattspyrnu og
leikmaður Bay-
ern Miinchen,
hefur verið út-
nefndur besti
knattspymumað-
ur aldarinnar í
Þýskalandi. Það
voru 2.500 með-
limir í samtökum
iþróttafréttamanna þar í landi sem
stóðu að kjörinu i samvinnu viö
knattspymutímaritið Kicker.
Beckenbauer fékk 557 atkvæði, Fritz
Walter, fyrirliði þýska landsliðsins
sem varð heimsmeistari árið 1954,
varð annar með 135 atkvæði og
markaskorinn mikli Gerd Miiller
varð þriðji með 67 atkvæði.
Lothar Mattháus, leikmaður Bayern
Miinchen og þýska landsliðsins, hef-
ur seinkað for sinni til Bandaríkj-
anna en þar hyggst hann leika á kom-
andi áram. Mattháus hugðist ganga í
raðir Jersey MetroStars i marsmán-
uði en nú hefur hann ákveðið að
leika með Bæjurum út leiktíðina.
Argentínski landsliömaðurinn í
knattspymu, Martin Palermo, verð-
ur frá keppni i 6-9 mánuöi en kapp-
inn þarf að gangast undir aðgerð á
hné eftir aö meiðast í leik með Bocca
Juniors um helgina. Mörg liö í Evr-
ópu hafa rennt hým auga til þessa
mikla markahróks sem skoraði sitt
100. mark í argentínsku A-deildinni
þegar lið hans lagði Colon, 2-1.
Mark Bosnich, markvörður ástr-
alska landsliðsins i knattspymu og
leikmaður Manchester United,
meiddist í landsleik Ástrala og Bras-
ilíumanna á sunnudag og hann verð-
ur ekki með í síðari leik þjóðanna á
morgun. Meiðslin eru ekki alvarleg
en Bosnich vill ekki taka neina
áhættu og hefur ákveðið að snúa til
Englands i dag.
ítalinn Pierlugi Collina mun dæma
leik Englendinga og Skota sem fram
fer á Wembley annað kvöld. Englend-
ingar eiga ekki ýkja góðar minningar
frá Collina og þá sér i lagi Paul Ince
en Collina rak hann af velli í Evrópu-
leik gegn Svíum í fyrra.
Sænski landsliðsmaðurinn í hand-
knattleik, Staffan „Faxi“ Olsson,
hefur framlengt samning við þýska
meistaraliðið Kiel til ársins 2002. Ols-
son, sem er 35 ára gamall, leikur stórt
hlutverk í liði Kiel eins og landi hans
Magnus Wislander sem i síöustu
viku framlengdi samning við félagið
til eins árs.
Þýska handknattleiksliðið Flensburg
er iðið við að framlengja samninga
við leikmenn þessa dagana. í gær
framlengdi danski landsliðsmaöur-
inn Christan Hjermind samning
sinn við Flensburg til 2002 en áður
höfðu landar hans Sören Hagen og
Lars Christiansen gert þaö sama
ásamt markverðinum Jan Holbert
og þá gerði rússneski landsliðsmað-
urinn Igor Lawrow samning til árs-
ins 2004.
Þýski vandræðagemlingurinn Mario
Basler sem rekinn var frá meistur-
um Bayern Mún-
chen fyrir
skömmu er á leið
til Kaiserslaut-
ern. Basler hefur
lengi veriö upp á
kant við forráða-
menn Bayern-
liðsins sem lauk
með því að
Franz Becken-
buer, forseti fé-
lagins, vísaði honum á dyr. Kaisers-
lautem greiðir Bæjurum 60 milljónir
fyrir Basler sem er þrítugur miðju-
maður.
Kristján G. Þorvaldz hefur verið
ráðinn þjálfari kvennaliðs ÍA í knatt-
spymu og þar með eru öll lið úrvals-
deildar búin að ganga frá þjálfara-
málum sínum fyrir næsta tímabil.
Kristján hefur áður þjálfað karlalið
Víkings úr Ólafsvik en mest verið
með yngri flokka. Hann verður jafn-
framt framkvæmdastjóri Knatt-
spyrnufélags ÍA.
Olympiakos vann AEK, 0-2, í grísku
A-deildinni í knattspymu í gærkvöld
og hefur þar með fullt hús stiga eftir
sjö umferðir. Arnar Grétarsson lék
ekki með AEK. Nokkrum þekktustu
leikmönnum AEK var heitt í hamsi
eftir leikinn. Þeir sögðu að dæmt
væri skipulega með Olympiakos og
þeir myndu ekki gefa kost á sér
framar í gríska landsliðið.
-GH/VS
íslendingarnir á toppnum
íslendingamir í norsku A-deildinni í knattspyrnu voru iðnastir við að
skora mörk af útlendingum sem léku í deildinni á síðustu leiktíð. Af
þeim 126 mörkum sem skoruð voru af útlendingum skoruðu Islending-
amir 69 mörk, Sviar 41, Finnar 12 og Senegalbúar eitt mark. 697 mörk
vora skoruð í deildinni svo fimmta hvert mark var skorað af útlendingi.
Þegar listi útlendinga yfir skoruð mörk í deildinn er skoðaður raða ís-
lenskir leikmenn sér í fjögur efstu sætin. Ríkharður Daöason skoraði 17
mörk fyrir Viking, Heiðar Helguson, Lilleström 16, Helgi Sigurðsson
skoraði 14 mörk fyrir Stabæk, áður en hann gekk í raðir Panathinaikos
í Grikklandi, og Tryggvi Guðmundsson, Tromsö, var með 13 mörk. Sví-
inn Andreas Alm hjá Kongsvinger kom næstur með 10 mörk -GH
Brynjar steinlá og er úr leik
Þátttöku Brynjars Valdimarssonar á heimsmeistara-
móti áhugamanna í snóker lauk á frekar
dapran hátt í gær er hann datt úr keppni í
32-manna úrslitum mótsins. Brynjar lék tvo
leiki í gær. Hann sigraði Graham Baker frá
Nýju Gíneu, 4-0. Þá var komið að leik gegn
Farhan Mirza frá Pakistan. Brynjar tapaði
1-5 og náði Pakistaninn að jafna besta skor
mótsins, 124. Síðar bætti hann þetta skor er
hann náði 128 í einu stuði í fimmta ramma. Brynjar
vann 30 ramma á mótinu en tapaði 15. -SK
Köttur og mús í Grindavík
Kvennalið KR átti ekki í neinum vandræðum með slakt lið
Grindvíkinga í Röstinni i gær og sigraði, 38-69. Staðan í hléi var 18-33 KR
i vil. KR beitti pressuvöm sem heimastúlkur réðu ekkert við. í stöðunni
33-47 urðu algjör þáttaskil í leiknum og KR skoraði 22 stig gegn aðeins 5
stigum frá UMFG það sem eftir lifði leiksins og lokatölur urðu 38-69.
Stig Grindavíkur: Svanhildur Káradóttir 12, Sandra Guðlaugsdóttir 10,
Stefanía Jónsdóttir 7, Sigríður Ólafsdóttir 5, Sólveig Gunnlaugsdóttir 2, Þuríður
Gísladóttir 2.
Stig KR: Guðbjörg Norðfjörð 14, Hildur Sigurðardóttir 10, Hanna Kjartans-
dóttir 9, Emilie Ramberg 9, Kristín Bjömsdóttir 9, Gréta Grétarsdóttir 9, Linda
Stefánsdóttir 7, Þóra Bjamadóttir 2. -bb
Ekkert rætt um verð
Bjarne Berndtsen, framkvæmdastjóri norska knatt-
spymufélagsins Viking Stavanger, sagði í samtali við
Nettavisen í gærkvöld að ekkert hefði verið rætt um
kaupverðið á Ríkharði Daðasyni við forráðamenn
Hamburger SV í Þýskalandi. Ríkharður fór til við-
ræðna við þýska félagið í gær og er væntanlegur aftur
í dag. „Þjóðverjamir sáu Ríkharð leika með okkur
gegn Werder Bremen, og það eina sem þeir ræddu við
okkur um var að fá fund með honum. Við heimiluðum það, og lengra
er málið ekki komið,“ sagði Bemdtsen. -VS
Ottey sýknuð af lyfjaáti
Sérstakur dómstóll í Jamaíka hefur komist að þeirri niðurstöðu
að hlaupadrottningin Merlene Ottey sé saklaus og hafi ekki neytt
ólöglegra lyfja.
Ottey var dæmd í keppnisbann í júlí sl. eftir Grand Prix mót i
Sviss. Tvö þvagsýni höfðu sýnt inntöku ólöglegra lyfja. Nú gerist
það næst að niðurstaða dómstólsins verður tekin fyrir á fundi lyfja-
nefndar Alþjóða frjálsíþróttasambandsins. Þar verða rökin fyrir
niðurstöðu dómstólsins skoðuð ofan í kjölinn og í framhaldi af því
verður Ottey sýknuð endanlega eða dapur endir ferils þessarar 37
ára gömlu hlaupakonu verður endanlega staðfestur. -SK
Gíslason
, þórðarson og
tréttamanna á f'
Góð byrjun Kristins Björnssonar:
Sjöundi á
sterku móti
Gunnar Þór Gíslason stjórnarformaður og Guðjón Þórðarson,
knattspyrnustjóri Stoke City, lyfta Stoketrefli á Britannia Stadium í gær.
DV-mynd Pjetur
Brynjar og Rúnar á leiðinni til Stoke?
„Mjög áhugaverðir"
- sagði Guðjón Þórðarson, knattspyrnustjóri félagsins
Kristinn Bjömsson, skíðamaður
frá Ólafsfirði, varð í sjöunda sæti í
svigi á svokölluðu
North American móti í
Bandaríkjunum í gær.
Kristinn var 43. sæti í
ráshópnum en fékk
engu að síður 17. besta
tímann eftir fyrri um-
ferðina. í síðari umferð-
inni gerði Kristinn enn
betur og keyrði hana
sérlega vel. Sigurvegari
varð Austurríkismaður-
inn Benjamin Raich, Di-
dier Plaschz frá Sviss
varð annar, Rainer Schonfelder,
Austurríki, varð þriðji, Lasse Kjus,
Noregi varð fjórði og landi hans
Kjetil Ande Aamodt sjötti. Allir
bestu skíðamenn heims-
ins tóku þátt í mótinu en
heimsbikarinn á skíðum
karla hefst á föstudaginn
kemur. Keppnin átti að
fara fram í Park City en
nú bendir flest til þess
að færa verði keppnina
til næsta bæjar vegna
snjóleysis.
Kristinn hefur uppi
áform að keppa einnig í
stórsvigskeppninni en
endanleg ákvörðun af
hans hálfu liggur ekki fyrir. -JKS
Mikil landkynning
Ljóst er að íbúar Stoke og nágrennis vita nú Englendinga mest um ís-
land og þá þjóð sem landiö byggir. Staðarblaðið Sentinel var í gær nánast
helgað yfirtöku Islendinganna á Stoke City og „sagði þar alla söguna"
eins og auglýst var sérstaklega.
Auk þess að fjalla um yflrtökuna sem
slíka var ferill Guðjóns Þórðarsonar rakinn
af nákvæmni og Ásgeiri Sigurvinssyni vora
líka gerð góð skil. Um Ásgeir var sagt að
hann yrði lykilmaður í stjóm Stoke vegna
hinnar miklu þekkingar sinnar og reynslu í
knattspymunni. Hinir nýju stjómarmenn-
irnir, Gunnar Þór Gíslason og Elfar Aðal-
steinsson, vora kynntir, sem og stjórnar-
menn Stoke Holding, þeir Magnús Kristins-
son, Hafliði Þórsson, Júlíus Bjamason, Þor-
steinn Vilhelmsson og Þorvaldur Jónsson.
Þá var sagt frá landi og þjóð, íslenskum
leikmönnum í Bretlandi, og í einni greininni
var fjallað ítarlega um framgöngu landsliðs-
ins að undanfömu og upprisu Islands sem
knattspymuþjóðar undir stjórn Guðjóns Þórð-
arsonar. -VS
Brynjar Björn Gunnarsson og
Rúnar Kristinsson hafa að undan-
fömu verið sterklega orðaðir við
Stoke City og í fjölmiðlum þar í
borg hafa verið miklar vangaveltur
í þá átt síðustu daga.
DV spurði Guðjón í gær hvort
einhverjir sérstakir íslenskir leik-
menn væru efstir á blaði hjá hon-
um.
„Já, ég er náttúrlega með
ákveðna menn í huga. Nú strax í
dag verður farið að vinna að því hér
á skrifstofum félagsins að ná sam-
bandi við þá leikmenn og klúbba
sem ég hef mestan áhuga á fyrir fé-
lagið.“
Eru Rúnar og Brynjar þar efstir á
blaði?
„Ég vil ekki nefna nein nöfn í því
sambandi. Allar slíkar yfirlýsingar
gætu hækkað verðið á viðkomandi
leikmönnum. Klúbbar vilja alltaf fá
meira fyrir sína leikmenn heldur en
raunhæft er og ég vil ekki
Þorbjörn Jensson:
„Erfitt að fa
landsleiki"
í úrslitakeppni Evrópumóts
landsliða í handknattleik i Króatíu í
janúar munu fimm efstu þjóðimar
þar tryggja sér sæti á heimsmeist-
aramótinu í Frakklandi 2001. Ef
hins vegar Frakkar og Svíar verða í
þeim sætum mun 6. og 7. sætið gefa
rétt til þátttöku á HM.
Að sögn Þorbjöms Jenssonar
landsliðsþjálfara hefur reynst mjög
erfitt að fá leiki fyrir landsliðið til
undirbúnings fyrir keppnina í Króa-
tíu. Á sama tíma og Evrópumótið
stendur yfir í Króatíu era í gangi
forriðlar fyrir HM í Frakklandi og
því eru nánast öll landslið úr Evr-
ópu upptekin á þessum tíma. Króat-
ar lýstu á dögunum yfir áhuga að fá
íslendinga í heimsókn í janúar en
Þorbjörn sagði að ekki hefði verið
áhugi á því svona skömmu fyrir
Evrópumótið.
„Af þeim sökum höfum við þurft
að leita út fyrir Evrópu eftir leikj-
um. Við erum í sambandi við Tún-
ismenn en þeir óskuðu eftir því við
okkur að leika tvo landsleiki í janú-
ar. Formleg staðfesting þar að lút-
andi hefur ekki fengist en vonandi
verður hægt að ganga frá málunum
á næstu dögum,“ sagði Þorbjörn
Jensson.
Gengið hefur verið frá tveimur
landsleikjum við Frakka sem verða
í Bordeaux og Pau 7. og 9. janúar og
ef dæmið gengur upp hvað Túnis-
menn varðar eru leikimir við þá 14.
og 15. janúar og yrðu það síðustu
leikirnir fyrir EM í Króatíu.
í byrjun desember fer íandsliðið á
fimm landa mót í Hollandi og verð-
ur liðið eingöngu skipað leikmönn-
um sem leika hér á landi. Þorbjöm
sagðist vera með liðið í mótun þessa
dagana og hann myndi fljótlega
koma sér í samband við leikmenn
sem færu í ferðina til Hollands.
-JKS
NBA-DEILDIII
Úrslit leikja í nótt:
New Jersey-Seattle......92-100
Marbury 24, Gill 15 -
Baker 21, Maxwell 21.
Houston-Indiana ..........87-96
Barkley 18, Olajuwon 18 -
Harrington 18, Miller 17.
Phoenix-LA Lakers ........82-91
Kidd 20, Hardaway 12 -
O'Neal 34, Rice 23.
Utah Jazz-San Antonio . . . 91-65
Malone 20, Stockton 20 -
Duncan 32, Robinson 12.
Úrslit í fyrrinótt:
Toronto-Philadelphia.....90-93
Carter 27, Christie 19 - Iverson 30,
Ratliff 17.
New York-Miami............88-94
Camby 22, Houston 20 - Mourning 25,
Brown 21.
Sacramento-Denver .... 126-116
Webber 32, Wiiliams 16, Barry 16 -
Van Exel 26, Lafrentz 23.
Vancouver-LA Clippers . . 109-89
Dickerson 23, Harrington 20 - Odom
16, Olowokandi 14.
LA Lakers-Atlanta ........93-88
O’Neai 23, Fisher 20. - Rider 24,
Henderson 14.
Mitt stærsta
tækifæri
- Guöjón var heilinn á bak við kaupin á Stoke
' -----—----------í^mrÞór Gíslason og
Þá geta þeir fariö
Guðjón Þóröarson var fljótur að „stimpla sig
inn“ hjá fjölmiðlunum í Stoke á blaðamanna-
fundinum í gærmorgun þar sem hann var kynnt-
ur sem nýr knattspyrnustjóri Stoke City.
Fyrsta spumingin sem beint var til Guðjóns
var á þá leið hvort ekki yrði erfitt fyrir hann að
ná sáttum við leikmennina, sem hefðu verið
mjög ánægðir með Gary Megson.
Svar Guðjóns var einfalt og ákveðið: „Þetta er
í þeirra höndum. Ef þeir era ekki tilbúnir til aö
vinna fyrir mig, félagið og sjálfa sig, geta þeir
fariö eitthvað £mnað.“ -PS/VS
Haustmótið í fimleikum:
Flestar bættu sig
„Þetta er vissulega stærsta tækifæri
lífs míns,“ sagði Guðjón Þórðarson við
blaðamann DV eftir íjölmennan blaða-
mannafund í aðalstöðvum Stoke City í
gær þar sem tilkynnt að hann tæki nú
við sem næsti knattspymustjóri félags-
ins.
„Að vísu er ég þeirrar skoðunar að
verkefni liöandi stundar sé alltaf
stærsta tækifæri hvers og eins, og ég
hef vissulega fengið stór verkefhi í tím-
ans rás. En þetta er óneitanlega gjöró-
líkt mínum fyrr aðstæðum: Ég er kom-
inn á erlenda grund, farinn að þjálfa
þekkt enskt lið sem á sér langa og
merka sögu og fæ nú að ráða alfarið
hversu mikið liðiö æfir
við hvaða að-
Að þessu
leyti er þetta vissulega stórt og spenn-
andi verkefni."
Það kom íslenskum fréttamönnum
mest á óvart á þessum fundi að þú hef-
ur verið heilinn á bak við þessa fjár-
festingu allan tímann. Má ekki orða
þetta svo að þú og þín snilligáfa hafa
verið að nýta ykkur íslenska fiárfesta
en þeir ekki þig?
„Það er náttúrlega klárt að ég kom
með þessa hugmynd upphaflega og
kom henni á framfæri við Kaupþing í
vor. I maímánuði sl. var hugmyndin
komin á alvarlegt umræðustig og
Kaupþing kom henni á framfæri við
sína fagfiárfesta og síðan hefur boltinn
rúllað fram til dagsins í dag.”
Það var þá allan tíman ákveöið að þú
yrðir knattspymustjóri Stoke City ef af
samningum yrði?
„Já, það var alltaf gengið út frá því
að ég tæki við stjóm liðsins."
Hvemig leggst samstarfið í þig við
nýja sfióm Stoke og við heimamenn
við þessar erfiðu fiárhagsstöðu. Hef-
urðu áhyggjur af deilum og ágreinings-
málum?
„Það er óhjákvæmilegt að það koma
alltaf upp einhver ágreiningsmál milli
manna sem hafa metnað, vit og áhuga
á knattspymumálum. Þau koma því
upp í þessu tilfelli. Þetta verður enginn
dans á rósum. Þetta verður erfitt og
það er alveg klárt að ég á eftir að láta
reyna á ýmislegt. En aðalatriðið er það
að halda sínu striki og vera sjáifur sér
trúr og samkvæmur. Það hefur alltaf
reynst mér best.” -KGK
Fyrsta mót vetrarins í áhaldafim-
leikum fór fram um helgina. Það
var haustmót í frjálsum æfingum og
sá Grótta um mótshald.
Til stóð að bæði piltar og stúlkur
tækju þátt á mótinu en þegar til
kom höfðu þeir piltar sem skráðu
sig til keppni hætt við og því voru
aðeins stúlkur með aö þessu sinni.
Þær stóðu sig vel og bættu flestar
töluvert við sig í erfiðleika auk þess
sem nokkrar stúlkur tóku þátt í
frjálsum æfingum í fyrsta skipti og
stóðu þær sig með stakri prýði.
Keppnin var þrískipt eftir aldri
og aðeins veitt verðlaun fyrir árang-
ur á hverju áhaldi en ekki saman-
lagt eins og oftast tíðkast. í verð-
launasætum 15 ára og eldri vora eft-
irfarandi stúlkur:
Stökk:
L Bergþóra Einarsdóttir, Árm........8,4
2. Harpa Hlíf Bárðardóttir, Gróttu .8,25
3. Lilja Erlendsdóttir, Gerplu .... 8,05
Tvíslá:
1. Harpa Hlíf Báröardóttir, Gróttu . 7,15
2. Bergþóra Einarsdóttir, Árm. ... 6,55
3. Lilja Erlendsdóttir, Gerplu.....5,9
Slá:
1. Lilja Erlendsdóttir, Gerplu......8,3
2. Bergþóra Einarsdóttir, Árm......8,2
3. Sigríður Harðardóttir, Gróttu . . 7,65
Gólf:
1. Harpa Hlíf Bárðardóttir, Gróttu . 8,3
2. Bergþóra Einarsdóttir, Ármanni 7.95
3. Sigríður Harðardóttir, Gróttu ... 7.9
Þær Elva Rut Jónsdóttir, Jó-
hanna Sigmundsdóttir og Tinna
Þórðardóttir voru ekki með á mót-
inu sökum meiðsla og anna. -AIÞ
Stoke City er í hópi elstu knatt-
spymufélaga Englands. Lengi var tal-
ið aö það hefði verið stofnað árið 1863
en líklega var það þó ekki fyrr en
1868. Atvinnumennska var tekin upp
árið 1885 og Stoke var eitt af stofnlið-
um ensku deildakeppninnar árið 1888.
Stoke City hefur oft leikið í efstu
deild, eða tímabilin 1888-1889, 1891-
1907, 1922-1923, 1933-1953, 1963-1977
óg 1979-1985. Það eru því 14 ár síðan
Stoke lék síðast i efstu deild. Besti ár-
angur er 4. sæti árin 1936 og 1947.
Stærsti sigur í sögu Stoke vannst árið
1972 þegar félagið varð deildabikar-
meistari.
Öll ensk félög bera gælunöfn og hjá
Stoke er það The Potters. Nafniö er
dregið af hinni miklu keramikvinnslu
sem er í borginni.
Stoke City er 1 7. sæti C-deildar en
skammt er á toppinn. Wigan er efst
með 34 stig, Preston og Notts County
eru með 33, Burnley 32, Brentford 30,
og síðan koma Gillingham, Stoke og
Bristol Rovers með 29 stig hvert.
Guöjón Þórðarson stýrir Stoke í
fyrsta skipti þegar liðið sækir Wy-
combe Wanderers heim eftir viku,
þriðjudaginn 23. nóvember. Friið um
næstu helgi er tilkomið vegna þess að
Stoke er fallið úr bikarkeppninni.
Fyrsta æflng Guðjóns með liðið var í
morgun.
Guöjón stjórnar Stoke síðan i fyrsta
skipti á heimavelli laugardaginn 27.
nóvember en þá kemur Colchester í
heimsókn. í kjölfarið koma útileikir
viö Oxford og Luton, heimaleikur viö
Bristol Rovers, og um jólin leikur
Stoke við Blackpool á útivelli og við
Oldham á heimavelli.
Paul Peschisolido er dýrasti leik-
maður í sögu Stoke en félagiö greiddi
67 milljónir króna fyrir hann árið
1994. Stoke hefur ekki keypt leikmann
í 18 mánuði og spurning er hvort nýju
íslensku eigendurnir slá metið fljót-
lega. Til þess þarf þó að eyða ríflega
helmingi þeirrar upphæðar sem talað
hefur verið um að vefia til leik-
mannakaupa.
-VS
verða valdur að því. Á endanum er
það aldrei neitt eitt sem ræður því
hverjir verða fyrir valinu þegar
leikmenn eru keyptir.
Hins vegar eru Rúnar og Brynjar
mjög áhugaverðir leikmenn. Ég hef
haft góða reynslu af þeim og haft
mjög gott samstarf við þá báða. Þess
vegna eru þeir áhugaverðir. En
reynslan verður á endanum að
skera úr um það hvort þeir koma til
liðsins," sagði Guðjón við DV.
-KGK“
SVRÖPIIKIPPMl
%
Meistaradeildin
(Þriðja umferð af sex)
A-riðill:
Kiel - Ademar Leon ..........39-24
Sandefjord - Montpellier.....21-27
Kiel 3 3 0 0 96-64 6
Leon 3102 82-81 2
MontpeUier 3 1 0 2 66-81 2
Sandefjord 3 1 0 2 64-82 2
B-riðill:
Rishon Le Zion - Celje Lasko . 24-23
Iskra - Alpi Prato...........26-23
Le Zion 3 3 0 0 84-74 6
Celje 3 2 0 1 90-71 4
Iskra 3102 81-90 2
AlpiPrato 3 0 0 3 66-86 0
C-riðill:
Skjern - Zaporozhje ...... 16-20
Suhr - Badel Zagreb..........23-35
Badel
Zaporozhje
Suhr
Skjern
D-riðiU:
Volgograd - Partizan Belgrad . 24-22
Veszprém - Barcelona.......23-31
Barcelona 3 3 0 0 93-66 6
Veszprém 3 1 0 2 74-81 2
Volgograd 3 1 0 2 70-78 2
Partizan 3 1 0 2 69-81 2
Evrópukeppni bikarhafa
(16-liða úrslit, fyrri leikir)
Drammen - Prule Ljubljana . . 26-21
Cantabria - Madeira........25-21
Kolding - Redbergslid......26-15
Portland - Steaua Búkarest... 25-18
Pelister Bitola - Trieste .21-19
Lemgo - Dukla Prag.........25-23
Dunaferr - PTA Wien........36-21
Zelj.Nis - Ark.Minsk . . 34-22 og 35-25
EHF-bikarinn
(16-liða úrslit, fyrri leikir)
Aalsmeer - Flensburg.......23-29
Bosna Visoko - Metkovic .... 23-22
Diyarbakir - Lovcen........20-32
Braga - Magdeburg..........26-23
Slovenj Gradec - PaneUinios .. 32-21
Pick Szeged - Viking Stavang. 31-29
Warszawianka - GOG Gudme . 22-31
Mladost Bogdanci og Ciudad Real leika
báða leikina um næstu helgi.
Borgakeppni Evrópu
(16-liða úrslit, fyrri leikir)
FIF Frederiksberg - Karvina .. 24-22
ASKI Ankara - Brixen ......28-20
Grosswallstadt - Kilkis....25-11
Runar - Trebnje............40-36
Skövde - Sintelon..........25-20
Valladolid - Zaglebie Lubin .. 40-24
Dunkerque - Stockerau......28-24
Frankfurt - Winterthur ....24-26