Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1999, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1999, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 Fréttir sandkorn Netfang: sandkorn @ff. is Básafell sagöi upp 15 manna áhöfn á Gylli ÍS á Flateyri: Kynlíf á gamlárskvöld M -J Teflonmaður Á dögunum varð hvellur út af fót- boltaferð þingmanna til Færeyja en skattborgaramir greiddu leigu af flugvél sem látin var bíða sólarhring eftb* þingmönnunum. Meðal for- sprakka liðsins voru Eyjamennimir Árni Johnsen og Lúðvík Bergvinsson. Ámi reif stólpakjaft við fjölmiðla en Lúðvík hljóp í felur enda rímaði meint barátta hans gegn spillingu ekki vel við Fær- eyjadæmið. Af því tilefni urðu fleyg ummæli fyrrverandi vara- þingmanns af Suðurlandi sem sagði að ferðin til Færeyja sýndi að með Árna Johnsen hefðu íslensk stjórn- mál loks eignast teflon-mann en hins vegar hefði ferill hins skammlífa and- ófsmanns gegn pólitískri spillingu líklega náð hátindi sínum í Færeyj- um... Hættuhljóð Halldórs Innan Framsóknar verða háværari raddir um að Halldór Ásgrímsson geti hugsað sér að hætta í stjómmál- um fyrr en seinna. Hann er sagður kvarta undan yflrgangi sjálfstæðis- manna, auk þess sem Eyjabakkamál- ið er að sliga flokkinn. Þessa dagana bætist við nýr skandafl þar sem Ingibjörg Pálmadóttir þykir með aflt niðram sig í fjármálum heil- brigðisgeirans. Stóllinn sem Hafl- dór er sagður horfa til æ meiri löngunaraugum er bankastjórastóllinn sem Framsókn á í Seðlabankanum. Sá gafli er á gjöf Njarðar að í Framsókn er enginn augljós arftaki. Margir flokksmenn í Framsókn telja það ganga guðlasti næst að orða Finn Ingólfsson við formennsku eins og hann hefur spilað úr sínum kortum... Gestabók Fjölmargir hafa nú skráð sig á lista Umhverfisvina sem beijast hat- rammri baráttu fyrir lögformlegu umhverflsmati áður en virkjað verð- ur fyrir austan. Á heimasíðunni Um- hverfisvinir.is hafa ýmsir lýst yflr stuðningi við tiltækið þó reyndar séu nokkrir sem nota þennan vettvang til að hvetja til þess að virkjað verði sem fyrst. Meðal nafha sem sand- komsritari rakst á þegar hann renndi yflr „gestabók- ina“ vom Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarfulltrúi og Ámi Þór Sigurðs- son varaborgarfull- trúi, Auður Styr- kársdóttir kven- réttindakona, Ágúst Einarsson, fyrrverandi alþingismað- ur Samfylkingarinnar á Reykjanesi, og Stefán Jón Hafsteiii sem segir sögur af landi þessa dagana... Raddir fyrirtækja? Það vakti þó enn meiri athygli sandkomsritara þegar gestabók Jak- obs Frímanns og félaga var skoðuð að flölmargir sem láta skoðun sína í Ijós á heimasíðunni senda hana úr vinn- unni. Ekki er ætlunin hér að fullyrða að starfsmennimir hafi gert þetta í öðm en hugsunarleysi en víst er að margir yf- irmennimir eru ekki sáttir við að skoöanir einstakra starfsmanna i svo hápólitisku máli séu settar fram und- ir nafni fyrirtækisins. Meðal fyrir- tækja sem reka má augun í á siðunni em Mál og menning, Skref fyrir skref, Spron, Stígamót, Morgunblað- ið, Flaga og Kögun. Þá hafa starfs- menn Reykjavíkurborgar, Selfoss og Kópavogs einnig lýst yfir stuðningi viö umhverfismat með tölvupósti... Reiðarslag og ekkert eftir Það er róinn lífróður - segir Halldór Halldórsson bæjarstjóri inn sem aftur mun tryggja að áhrifamáttur þessa einstaka kvölds verður framlengdur um marga mánuði og enda í sannkallaðri mannfjöldaspreng- ingu á haustmánuðum. Og þar sem foreldramir verða uppteknir í ofurveislum á veitingastöðum bæjarins mun ekki vanta næðið til fyrmefndra æfinga eða næði til að hita upp fyrir ástarleikina með neyslu göróttra drykkja. Dagfari skilur ekki þá veisludellu sem gripið hefur fólk á besta aldri á gamlárskvöld og hefur í fór með sér að ungt fólki sem hyggur á ástarleiki um árþúsundamót verður skilið eftir heima. Því þá mun fleira skjótast á loft en rakettur og blys. Það segir könnun alþjóðlega smokkaframleiðand- ans sem hefur áhyggjur af því að öryggið verði ekki sett á doddinn. Meðan foreldramir slá heimsmet í finiríi á veitingastöðum bæjarins sjá unglingamir um að halda heiðri þjóðarinnar á lofti í kynlífinu - með ófyrirséðum afleiðingum, ef marka má könnunina. Ekki kom fram í fyrrnefndri fýsnakönnun hversu atorkusamt eldra fólk verður í kynlífi um árþúsundamótin. Og þó stöku par spretti úr spori eftir veislugleði úti í bæ verða þau afrek fljót að gleymast því nýtt hlutverk mætir þeim á nýju ári. Og þar sem lífsreyndir ungir foreldrar munu ólmir vilja halda heiðri þjóðarinnar í ofurveislu- höldum á lofti að ári senda þeir hvítvoðungana í pössun til afa og ömmu. Meðan þeir sofa værum blundi fær gamla settið einstakt tækifæri til að tryggja títtnefnt heimsmet í sínum aldursflokki. Dagfari ísfirskir hluthafar Básafells vilja endurvekja togaraútgerð: DV, ísafirði: í dag klukkan 14.00 voru hluthafar Básafells á ísafirði boðaðir til fundar að frumkvæði bæjarstjóra. Ekkert er gefið upp um fundarefnið en sam- kvæmt heimildum DV er hugmyndin m.a. að ræða enduvakningu Togaraút- gerðar ísafjarðar og hugsanleg kaup á togaranum Skutli. „Það má segja að það sé lífróður sem nú er róinn,“ sagði Halldór Hall- dórsson, bæjarstjóri ísaflarðarbæjar, um fundinn sem halda átti i dag. „Það er átakanlegt að lifa við þetta,“ segir Pétur Sigurðsson, for- maður verkalýösfélagsins Baldurs á ísafirði. „Það hljóta allir að fmna til Næstum helmingur ungs fólks hefur hugsað sér að enda fagnaðinn um árþúsundamótin með því að stunda kynlíf. Þetta kemur fram í al- þjóðlegri könnun á veg- um alþjóðlegs smokka- framleiðanda. Töldu 46% aðspurðra á aidrinum 16 til 21 árs líklegt að þeir mundu njóta ásta þetta kvöld. Kanadabúar virð- ast heldur betur til í tuskið en þar segja 63% að kynlífið verði í háveg- um haft á gamlárskvöld. Könnun alþjóðlega smokkaframleiðandans leiddi ekki aðeins í ljós að ungt fólk um heim all- an mun gera dodo á gamlárskvöld heldur af- hjúpaði hún að stór hluti þess hunsar öruggt kynlíf, setur öryggið ekki á oddinn. Er það umhugsunarvert í ljósi þess að 30% hinna kynhvötu ungmenna telja að þau muni njóta ásta með nýjum félaga og að 7% hafa hugsað sér að missa svein- eða meydóminn þessa nótt. Ekki fylgir sögunni hve stór hluti íslenskrar æsku ætlar sér að iðka kynlíf á gamlárskvöld. En þar sem Frónbúar eru alltaf heimsmeistarar þeg- ar tölfræði er annars vegar kæmi engum á óvart þó meirihluti æskufólksins hér á landi hefði ákveðið að gefa sig kynhvötinni á vald í kjölfar milljarða rakettuorgíu. Enda rökrétt framhald af þeim hamagangi sem heltaka mun himinhvolfin. Og svo enn sé vitnað til heimsmetaáráttu íslend- inga munu margir gleyma að setja öryggið á odd- - nema banki, pósthús, sundlaug og séra Gunnar, segir Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson skipstjóri með þvi starfsfólki sem veit raunvem- lega ekki um það að morgni hvort það kemst í gegnum daginn án þess að fá uppsagnabréf. Mér finnst yfirvöld bæjarins ekki hafa haldið vöku sinni. Ég hef verið stimplaður allsherjar nöldrari og röflari þegar ég hef verið að vara við hvað væri að gerast. Mér þykir það því mjög miður aö það virð- ist allt hafa gengið eftir sem ég hef verið að spá. Ég vildi sannarlega að ég hefði haft á röngu að standa. Menn þurfa nú að leggja til um milljarð til að endurreisa Togarafélag Isfirðinga, kaupa Skutul til baka og fá 2.500 tonna kvóta,“ sagði Pétur Sigurðsson. -HKr. Pétur Sigurðsson á skrifstofu sinni. DV-myndir Hiimar Þór DV, Flateyri „Þetta er dapur dagur í dag. Full- veldisdagurinn 1. desember er kannski ekki besti dagurinn til að horfa upp á þetta,“ sagði Aðalsteinn Rúnar Friðþjófsson, skipstjóri á Gylli ÍS frá Flateyri, i gær en hann fékk uppsagnabréf eins og aflir skip- verjarnir 15 á Gylli á þriðjudaginn. Auk þess að skipverjunum hefur verið sagt upp hefur starfsfólki Básafells í landi einnig verið sagt upp enda áformað að leysa fyrirtæk- ið upp. Eigendur Básafells á Flat- eyri undir forystu Einars Odds Kristjánssonar alþingismanns og Hinriks Kristjánssonar vinnslu- stjóra vinna hörðum höndum að því að kaupa eignimar en talið er að þeim sé erfitt að flármagna kaupin vegna lítils flármagns. Þetta er ann- að stóráfallið sem dynur á Flateyr- ingum en nýverið var kúfiskvinnslu Skelfisks lokað og það fyrirtæki stendur í nauðasamningum öðru sinni á skömmum tíma. Þar kemur Aðalsteinn Rúnar, skipstjóri á Gylli ÍS, í brúarglugganum, rýnir út í óvissuna með uppsagnarbréfið í vasanum. DV-mynd Hilmar Þór. Einar Oddur einnig við sögu sem aðaleigandi. „Þetta er kannski ekki mesta kjaftshöggið fyrir okkur hér um borð miðað við byggðina og íbúana hér í kring. Þetta er reiðarslag fyrir fólkið. Afkoma staðarins á vetrum er byggð á aflanum af þessu skipi. Þegar það er ekki lengur til staðar er voðalega lítið við að vera. Trifl- urnar geta ekki sótt sjóinn nema stopult á vetrum. Menn gera ekki út 70 manna vinnustað út á eitthvað sem þeir vita ekki hvað er. Þá er það sérstaklega leiðinlegt fyrir land- verkafólkið að eiga það yfir höfði sér að 1. janúar sé allt búið og ekki taki neitt annað við en atvinnuleys- isbætur. Þetta er jafnvel fólk sem hefur ekki efni á því að flytja burtu. Hér er ekki á neinu að byggja leng- ur og engu að treysta. Hér verða ekki nema þrjár eða flórar trillur yfir veturinn, banki, pósthús, sund- laug og séra Gunnar,“ sagði Aðal- steinn Rúnar skipstjóri. -HKr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.