Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1999, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1999, Blaðsíða 32
Vinningstölur miðvikudaginn 01.12. ’99 7 13 20 21 30 33 ’v. Fjöldi Vinníngar vinninga Vinning&upphœð 1. 6 aí 6 1 39.077.763 2-Sdt 6* o» 0 401.800 .1.5 0(6 2 157.850 4-4 o( 6 231 2.170 5-3°(67, V 521 410 Heildarvinning&upphœð 40.510.143 Á í&landi 1.432.380 LÍTT9 FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 Varaþingmanni seld ríkisjörð fyrir luktum dyrum: Önnur leynisala - kaupsamningi haldið leyndum. Sala án auglýsingar Landbúnaðarráðuneytið hefur neitað að afhenda kaupsamning vegna sölu eyðijarðarinnar Kambsels sem Guðmundur Bjarna- son, fyrrverandi landbúnaðarráð- herra, seldi eiginmanni fyrrverandi varaþingmanns Framsólmarflokks- ins á Austurlandi. Ráðuneytið ber því við að kaupsamningnum, sem Guðmundur Bjarnason gerði í nóv- ember 1998 við kaupendur Kambsels, Atla Ámason, lækni á Seltjarnamesi, og Helga Jensson, lögmann á Egilsstöðum, hafi ekki verið þinglýst. Ráðuneytið hefur sömuleiðis neitað að upplýsa um kaupverð Kambsels og hefur synjað um afrit að þeim leigusamningi sem í gildi var vegna Kambsels áður en jörðin var seld. Jón Erlingur Jónasson, aðstoðar- maður landbúnaðarráðherra, skýrði Morgunblaðinu hins vegar frá því í lok maí sl. að kaupverðið hefði ver- ið 750 þúsund krónur og samkvæmt afsali frá í febrúar sl. er kaupverðið þegar greitt. Þúsundkall á mánuði Eiginkona Atla er Kristjana Bergsdóttir en hún tók þrívegis sæti á Alþingi á síðasta kjörtíma- bili sem varamaður Halldórs Ás- grímssonar, utanríkisráðherra og alþingismanns af Austurlandi. dasar Kristjana Guðmundur Bergsdóttir.' Bjarnason. Kambsel er í Álftafirði í Djúpa- vogshreppi og höfðu bændur úr sveitinni haft jörðina á leigu og nýtt hana til beitar. Þeim gafst ekki kostur á að kaupa jörðina þar sem Guðmundur Bjamason seldi hana eiginmanni flokkssystur sinnar án auglýsingar og til frí- stundanota. Fyrrverandi leigjend- ur Kambsels greiddu rúmar eitt þúsund krónur á mánuði fyrir af- not af jörðinni samkvæmt upplýs- ingum sem DV hefur aflað sér. í lok september 1998 var Jónasi Jónssyni, fyrrum búnaðarmála- stjóra, falið að meta eyðijarðir í eigu ríkisins og gera tillögur um meðferð þeirra og var þá ákveðin sú vinnuregla í ráðuneytinu að engar eyðijarðir skyldu seldar um óákveð- inn tíma. Þrátt fyrir það var gerður samningur um sölu Kambsels nokkru síðar, eða í nóvember 1998. -GAR Árni Finnsson: Afstaða Norðmanna hefur ekkert breyst „í þeirri yfirlýsingu sem Finnur Ingólfsson krafði Norsk Hydro um í gær sýnir þrátt fyrir allt að afstaða Norðmanna er ekki dregin til baka. Hún hefur í raun ekkert breyst. Norðmennirnir lýstu því yfir að í rauninni myndu þeir fagna um- hverfismati á Eyjabökkum sé slíkt vilji íslendinga. Töf af þeim sökum myndi ekki valda því að þeir misstu áhuga á álveri við Reyðarfjörð," sagði Árni Finnsson, talsmaður Náttúruverndarsamtaka íslands, um atburði síðustu tveggja daga þar sem talsmenn Norsk Hydro hafa gefið út tvær yfirlýsingar. í fyrri yfirlýsingunni sagði að umhverfismat þýddi ekki að Norð- menn misstu áhugann á álverinu - sú seinni, frá í gær, segir að tafir myndu auka áhættuna á að ekkert yrði af verkefninu. -Ótt Vann 39 milljónir: Hringdi í morgun „Það hringdi einstaklingur í okk- ur um leið og ég opnaði skiptiborð- ið hér klukkan rúmlega 8 í morgun. Sá sagðist vera með réttu tölurnar og ég sagði honum bara að koma hingað til okkar með miðann," sagði símastúlkan hjá íslenskri get- spá sem að öllum likindum var fyrst til að ræða við nýjan milljónamær- ing sem vann 39 milljónir í Víkinga- lottóinu í gær. Miðinn var keyptur í sölutuminum Miðvangi í Hafnar- firði. - Var þetta karlmaður eða kona? „Má ekki segja það.“ -EIR Fókus í sjálfsrækt I Fókus sem fylgir DV á morgun er að finna viðtal við Selmu Björns- dóttur, Herra ísland, Quarashi og Mörthu Nordal. Rifjuð er upp stemningin á unglingaskemmti- staðnum Villta tryllta Villa og sjálfsrækt í Reykjavík skoðuð. Fók- us hefur einnig fengið fagfólk til að dæma verstu og bestu bókarkápur og plötuumslög ársins. Lífið eftir vinnu, nákvæmur leiðarvísir um skemmtana- og menningarlíf landsins er. svo að sjálfsögðu á sínum stað. Selma Björnsdóttir hélt útgáfutónleika í gærkvöld f Islensku óperunni í tilefni geisladisksins I am sem er fyrsti sólódiskur hennar. Selma, sem söng sig svo eftirminnilega inn íhjörtu landsmanna í síðustu Evróvisjónkeppni, verð- ur í beinni á Vísi.is á morgun, föstudag. DV-mynd Teitur Veðriö á morgun: Snjókoma norðan til Á morgun verður norðlæg átt, 13-18 m/s vestan til en 8-13 m/s um landið austanvert. Éljagang- ur eða snjókoma verður norðan til en úrkomulítið sunnanlands. Dregur úr vindi vestan til sið- degis. Frost verður á bilinu 1 til 6 stig. Veðrið í dag er á bls. 37. Fyrsta dúkkuvaggan píW Sími 567 4151 & 567 4280 Heildverslun með leikföng og glafavörur i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i i 4

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.