Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1999, Blaðsíða 16
16
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999
rekstrinum T.d. hafi hún verið fljót
að sýna manni fram á að hann ætti
að selja vörubíl sem hann rak.
„Hagnaðurinn var einfaldlega eng-
inn vegna mikils viðgerðarkostnað-
ar.“
„Og virðisaukaskattsskýrslan,
þessi höfuðverkur, verður leikur
einn. Það má keyra út vsk-skýrslu
með því að ýta á einn hnapp. Forrit-
ið reiknar allt út og skýrslan prent-
ast út á einu blaði. Fólki finnst það
töfrum næst eftir að hafa setið
sveitt og pirrað við þá skýrslugerð."
Þóra segir augljóst að tölvubók-
hald nýtist heimilinu einnig mjög
vel. Er þá keypt aukaforrit fyrir
heimilið. Hver og einn getur fengið
viðbætur við grunnforritið eftir
þörfum og umfangi rekstursins.
Borgað er ákveðið gjald fyrir upp-
færslur á öllum þáttum forritsins,
en upphæðin fer eftir umfanginu .
Það þýðir að forritið inniheldur
alltaf nýjustu breytingar á skatta-
lögum og reglum. -hlh
Sparar fé og fyrirhöfn
Þóra Viðarsdóttir mælir eindregið með tölvubókhaldi fyrir einyrkja:
Reikningur endurskoð
andans snarlækkar
- alræmdur ótti við talna- og reikningastúss fljótur að hverfa
Vetrar-
skoðun
„Það er ekki mikið að borga 20-30
þúsund krónur fyrir bókhaldsforrit.
Það tekur varla nema 2-4 tíma að
læra grundvallaratriðin og forritið
er þannig úr garði gert að það leið-
ir mann áfram. Fólk þarf ekki að
hafa sérstakan áhuga á bókhaldi
eða pappírs- og talnastússi. Algeng-
ur ótti við allt slíkt hverfur fljótt
þegar byrjað er að vinna með forrit-
ið og fólk getur farið brosandi til
endurskoðandans,“ segir Þóra Við-
arsdóttir sem notað hefur tölvubók-
hald um nokkurt skeið og tekur að
sér bókhaldsverkefni fyrir aðra.
Eiginmaður Þóru er smiður. Þar
til hún fékk sér tölvu á síðasta ári
og fór að nota tölvubókhald heima
hafði hún farið með allan pappíra
tengda rekstrinum til endurskoð-
anda vegna skattskila. Reikningur-
inn frá endurskoðandanum hljóðaði
gjaman upp á 40-50 þúsund krónur
þrátt fyrir að öllum nótum og öðr-
um pappírum væri raðað skipulega
í möppur.
„Eftir að ég fór að nota tölvubók-
haldið gat ég rétt endurskoðandan-
um allt saman upp í hendumar á
disklingi. Við fengum helmingi
lægri reikning frá honum fyrir vik-
ið því hann þurfti ekki að fletta og
leita í gríð og erg. Það var búið að
stemma allt af fyrir hann. Kostnað-
urinn við kaup á forritinu skilaði
sér því fljótt aftur í beinhöröum
peningum."
Korter á dag
Þóra hefur töluverða reynslu af
tölum og pappírsstússi. Hún vann
áður í banka og í Tollvörugeymsl-
unni. En hún er ekki sérstaklega
menntuð í bókhaldi og fór fyrst að
Kunnugieg sjón við skrifstofu Skattstjorans i Reykjavik: Skattskyrslunni
skilað. Einyrkjar sem nota tölvubókhald vegna reksturs eiga yfirleitt minni
hremmingar við gerð skattskýrslunnar að baki en aðrir.
vinna við það fyrir 4-5 árum. Engu
að síður hefur hún atvinnu af að
færa bókhald fyrir aðra í dag, m.a.
fataverslun á Akureyri, auk bók-
haldsvinnu við nýstofnað fyrirtæki
þeirra hjóna.
Og hún hefur leiðbeint fólki sér
tengdu við að koma sér af stað við
bókhaldsvinnuna.
„Frænka mín stofnaði hár-
greiðslustofu. Hún leitaði til mín
um aðstoð og ég ráðlagði henni að
kaupa lítið bókhaldsforrit frá Stólpa
sem er eingöngu fyrir fjárhagsbók-
hald. Eftir fiögurra tíma leiðsögn
hjá mér gat hún gert þetta sjálf og
hefur mjög gaman af því. Hún var
enga stund að ná því hvar bóka ætti
sölu, virðisaukaskatt og fleira. Hún
var hikandi fyrst en hlær að þeim
viðbrögðum í dag. Múr ótta og van-
trúar og þessi alræmda reikninga-
fóbia var fiót að hverfa. Frænkan er
ekki nema korter á dag að færa bók-
haldið og veit þá alltaf hvemig stað-
an er. Fólki líður einfaldlega betur
þegar regla er í bókhaldinu og vill
ekki hafa þetta öðruvísi eftir að það
fyrst kynnist því,“ segir Þóra.
Vsk-töfrar
Hún segir tölvubókhald auðvelda
mjög skoðun á ýmsum þáttum í
Margir bíleigendur leggja
ekki út í miklar aðgerðir undir
vélarhlífinni. Þessum bíleigend-
um er ráðlagt að nýta sér tilboð
viðkomandi bílaumboðs um
vetrarskoðun. í þessum vetrar-
skoðunum eru öll grundvallar-
atriði vegna vetraraksturs skoð-
uð og endurbætt ef þörf er á.
Auk þess er ástand kælikerfis,
ljósa, þurrkublaða og margra
annarra atriða skoðað.
Tjara eyðileggur
veggrip
Margir bíleigendur hafa lent í
því að bíllinn þeirra hefur setið
fastur og spólað og það þótt
hann hafi verið á nýjum snjó-
dekkjum. Saltaustur og um-
hleypingar leysa upp tjöru úr
malbikinu sem sest á dekkin
svo þau missa veggrip og byrja
að spóla. Ráð við þessu er að
hreinsa dekkin reglulega, t.d.
með „White Spirit" eða sérstöku
tjöruþvottaefni sem hægt er
kaupa á næstu bensínstöð. Eftir
slíkan þvott öðlast vetrardekkin
eðlilegt veggrip á ný.
Hált á leið heim
Mikilvægt er að utanbæjar-
menn sem leggja leið sína í salt-
pækilinn á götum Reykjavíkur
hreinsi dekkin áður en lagt er af
stað heim aftur. Þó bíllinn sitji
eins og klettur á veginum á leið
til Reykjavíkur getur hann
endað úti í skurði á
leiðinni heim vegna
þess að dekkin
eru búin að
missa allt veg-
grip vegna
tjöru.
Elds-
voðar:
Byrjaði smátt
Jón byrjaði smátt, keypti fyrst
fiárhagsbókhald fyrir 2000 færslur
og fáa launamenn. Skuldunauta- og
lánadrottnakerfi bættist fljótt við og
síðan launakerfi fyrir 30 manns og
ótakmarkaðar færslur i skuldu-
nauta- og lánadrottnakerfi. Þá
keypti hann einnig tilboðskerfi. Jón
selur viðskiptavininum allt efni,
sem hann notar í verkefnum, og er
því með verðskrá frá Byko í bók-
haldskerfinu.
„Þetta er allt mjög þægilegt. Ég
greiði síðan ákveðna upphæð á
mánuði fyrir viðhald sem þýðir að
þeir hjá Kerfisþróun senda mér all-
ar uppfærslur vegna breytinga á
skattkerfinu og slíkt. Ef skatturinn
gerir athugasemdir hringi ég ein-
faldlega í endurskoðandann og
hann segir mér að búa til nýjan lyk-
il fyrir ákveðnar færslur. Þannig
eru málin leyst í eitt skipti fyrir
öll.“
Ódýrari skattskil
Jón segir skil til endurskoðanda
vera mun þægilegri eftir að hann
fékk tölvubókhaldið. Kostnaðurinn
við gerð skattskýrslu hafi snarlækk-
að.
„Ég mæli með tölvubókhaldi fyri
alla sem eru í eigin rekstri, ekki síst
einyrkjana. Bókhaldið er leikur
einn fyrir þá og afkoman verð-
ur einfaldlega yfirleitt
betri. Ef afturkippur
kemur í efnahags-
lífið verða menn
mun betur í
stakk búnir að
mæta honum
ef tölvubók-
hald er til stað-
ar.“
-hlh
Neyðar-
áætlun á
einu heimili
af tólf
Einungis tólfta hvert heimili
hefur gert neyðaráætlun um út-
göngu ef eldsvoða ber að hönd-
um. Þá hefur níunda hvert
heimili ekki fiárfest i eldvörn-
um vegna aukinnar rafmagns-
tækjaeignar. Þetta kemur fram í
könnun sem Félagsvísindastofn-
un hefur gert fyrir Landssam-
band slökkviliðs- og sjúkraflutn-
ingamanna. í tilefni eldveima-
vikunnar, sem nú stendur yfir,
hefur sambandið gefið út for-
varnabækling. Þar er fyrrnefnd
könnun birt. Þar kemur einnig
fram að 97% heimila í dreifbýl-
inu eru með reykskynjara en
80% heimila á höfuðborgar-
svæðinu. -hlh/jr
- fylgist með afkomunni frá einum mánuði til annars
„Ég er ekki í nokkrum vafa um
að fiárfesting í tölvubókhaldskerfi
hefur skilað sér og gott betur. Ég
var að skila hagnaði af rekstrinum
hjá mér þegar illa gekk hjá mörgum
í þessum bransa. Ég þakka það að
miklu leyti tölvubókhaldinu sem
gerði mér kleift að fylgjast grannt
með stöðunni frá einum mánuði til
annars og miða fiárfestingar og aðr-
ar ráðstafanir út frá því. Þeir sem
ekki eru með tölvubókhald vita yfir-
leitt ekki fyrr en langt er liðið á
næsta ár hvernig árið kemur út,
byggja á lauslegum hugmyndum og
tilfinningu. Það gengur ekki,“ segir
Jón Sigurðsson byggingameistari
sem er með eigin rekstur og þrjá
menn á launaskrá.
Jón keypti sér bókhaldskerfið
Stólpa árið 1991. Áður keypti hann
bókhaldsþjónustu vegna reksturs-
ins úti í bæ.
„Bókhaldið var í sjálfu sér ágæt-
lega unnið en gallinn var að ég vissi
aldrei hvernig staðan var og vissi
þar af leiðandi ekki almennilega
hve mikið var óhætt að fiárfesta.
Mér þótti líka bölvað vesen að fara
með pappírana út í bæ og þurfa síð-
an að sækja bókhaldið. Það var
miklu meiri vinna fólgin i því en að
færa bókhaldið sjálfur. Vinnan sem
í því felst er í raun ósköp lítil. Þetta
er lítið meira en innsláttur.“
Þegar mér hentar
Vegna verkefna sem Jón tekur að
sér þarf hann að sitja við reikninga-
gerð á hverjum degi. Hann eyðir um
einum klukktíma á þriggja vikna
fresti í að færa laun og síðan fer um
það bil einn dagur á eins til tveggja
mánaða fresti í að færa sjálft bók-
haldið.
„Með því að vera með verkbók-
hald sjálfur skrifa ég bæði reikn-
inga og færi launin í einu, færslan
Jón Sigurðsson byggingameistari segir mikið hagræði að tölvubókhaldi í
rekstri sínum. DV-mynd E.ÓI.
fer sjálfkrafa í báðar áttir. Þetta er
mikill vinnusparnaður og einnig
þægilegt þar sem ég færi bókhaldið
þegar mér hentar.“
Jón segist hafa lært bókhald í
meistaraskólanum á sínum tíma en
annars ekki vera neinn sérfræðing-
ur í bókhaldi. Hann fór á stutt nám-
skeið hjá Kerfisþróun, sem hannar
Stólpa, en hafði annars lært tölu-
vert af því að lesa útprentuð yfirlit
frá bókhaldaranum sínum.
Ódýr
kostur
Ýmis bókhaldsforrit eru á mark-
aðnum sem nýtast einyrkjum, þar á
meðal Opus Allt, Talk og Stólpi. Fá
má þessi forrit í frá einfóldum litl-
um útgáfum og upp í forrit fyrir
stórfyrirtæki. í viðtölum sem hér
fylgja er Stólpa getið. Einfaldasta
gerð af Stólpa, sem Kerfisþróun hef-
ur hannað, t.d. Qárhagsbókhald,
kostar frá 20.000 krónum en síðan
má bæta við þáttum eins og við-
skiptamönnum, sölukerfi, birgða-
kerfi o.fl. og auka færslufjölda, allt
eftir umfangi rekstrarins.
Yfirleitt er hagstæðara að kaupa
þjónustu fyrir forritin en að kaupa
uppfærslur sérstaklega. Lágmarks-
þjónustugjald á mánuði fyrir Stólpa
er t.d. 750 krónur en 1200-1800 krón-
ur fyrir algengar útgáfur forritsins
handa einyrkjum.
ítarlegar leiðbeiningar á íslensku
fylgja forritum af þessu tagi. Þá
stendur fólki kennsla í ýmsu formi
til boða gegn gjaldi.
-hlh
Jón Sigurðsson notar tölvubókhald vegna eigin reksturs: