Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1999, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1999, Blaðsíða 11
 . %enning« FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 Sprelllifandi ævisaga Ákaflega þótti mér gaman að lesa ævisögu Sveins Þormóðssonar blaðaljósmyndara sem fyrir löngu er orðinn að goðsögn í lifanda lífi. Það kom mér þægilega á óvart hversu margbrotin frásögnin er. Þó meginstef bók- arinnar sé auðvitað líf og störf söguhetjunn- ar eru ofin um það tvenn tilbrigði sem gera bókina snöggtum merkilegri heimild en sagnaritarinn og Sveinn hafa líklega ætlað í upphafi. Söguhetjan er nefnilega svo mikið Reykja- víkurbam að hann tollir ekki einu sinni í sveit nema á gömlum bæ í jaðri borgarinnar þar sem nú stendur Kringlan. Öðrum þræði verður frásögnin því líka sagan af því hvem- ig Reykjavík óx og breyttist. Sú saga er sögð undir ákaflega skemmtilegu sjónarhomi manns sem er í senn gamall fréttahaukur og auk þess svo einlægur í sálinni að hann skynjar hið sögulega og einstaka í því sem okkur hinum finnast marklítil smáatriði þangað til þau eru flutt okkur í öðrum um- búðum. Bókmenntir Össur Skarpháðinsson Hitt tilbrigðið eru merkilegar svipmyndir sem brugðið er upp af þróun fjölmiðlanna. Söguhetjunni er hálfvegis brugðið þegar hann fer af Mogganum þar sem liðið er bind- um fjötrað og stífpressað og kemur yfir á Dagblaðið þar sem önnur goðsögn, Jónas Kristjánsson, nýrekinn af Vísi, er í adrenalín- ham og hefur safnað um sig síðhærð- um villi- mönnum sem þekkja ekki rakvél- ar. í einni andrá lýstur saman í frá- sögninni gamla tíman- um og hinum nýja í heimi fjölmiðlanna, flokksblaði borgarastétt- arinnar og blaði almúg- ans. Þetta eru ákaflega fjör- legir kaflar með hnitmið- uðum karakterlýsingum á þjóðfrægum fréttamönnum. Ekki spillir heldur persónu- leg frásögn Sveins af hinum skyndilega sam- runa Dagblaðsins við Vísi sem sagan hefur sýnt að var í reynd yfirtaka Jónasar og Sveins R. Eyjólfssonar á Vísi. Þó er galli að stundum vantar ítarlegri lýsingar á forvitni- legu fólki, eins og mörgum þeirra sem Sveinn var á vistum með á Mogganum í áratugi. Á hælum löggunn- ar er lifandi og fjörug bók þar sem sprelllif- andi karakterar spretta fram á næst- um hverri síðu. Sögu- hefjan hlífir hvergi sjálfri sér, greinir ná- kvæmlega frá ósigr- um sínum í lífinu, bæði glímunni við Bakkus sem leiðir til þess að Sveinn er rek- inn af Mogganum, og brunanum sem gerir hann að öryrkja og gjörbreytir lífi hans. Einhvern veginn smýgur þó inn í vitund lesara að þessar raunir hafi ekki síst gert söguhetjuna að þeim einlæga og bamslega jákvæða manni sem stígur fram af blöðum bókarinnar. Sagnaritarinn Reynir Trausta- son kemst með mikilli prýði frá frumraun sinni sem bókarhöfundur og á áreiðanlega eftir að senda frá sér fleiri verk. Reynir Traustason Á hælum löggunnar. Sveinn Þormóðsson blaðaljósmyndari í hálfa öld íslenska bókaútgáfan ehf. 1999 Stjarna og aflaéur tréfótur Þegar söguhetja nýjustu skáldsögu Roddy Doyle fæðist er hann skírður Henry eins og faðir hans í trássi við vilja móðurinnar sem finnst nóg að eiga minninguna um frumburð þeirra hjóna sem dó ungur, stjömuna Henry. Henry þarf því frá fæðingu að berjast fyrir lífi sínu í kulda og vosbúð fátæks heimilis í Dyflinni í byrjun aldarinnar, fyrir réttinum til að bera nafnið sitt og síðar meir fyrir frelsi lands síns. Það er klárlega hann sem hefur orðið í íslenskum titili bókarinnar, „Ég heiti Henry Smart“, og þar er áherslan á „Ég“. En báðir nafnar hans fylgja honum alla tíð, stjaman Henry vakir yfir honum og aflagðan tréfót fóður síns skilur hann aldrei við sig þótt hann eigi sjálfur tvo af holdi og blóði. Bókmenntir Sigþrúður Gunnarsdóttir í frumbemsku söguhetjunnar er Henry Smart eldri í forgrunni og vafasöm aðferð hans til að sjá fjölskyldunni farborða. Þegar hann hverfur af sjónarsviöinu stígur sonur hans fram, fimm ára gamall og stunginn af út á stræti borgarinnar ásamt Viktori, bróð- ur á fyrsta árinu. Lýsingin á sambandi bræðranna, sem fyllir fyrsta hluta bókarinn- ar, er óvenjulega mögnuð, hrífandi, hugljúf og skemmtileg. Annar hluti hefst á páska- uppreisninni 1916 og þátttaka Henry Smart í sjálfstæðisbar- áttu íra er rauði þráðurinn afganginn af bókinni. Þar er Henry að verða til sem full- orðinn maöur, stór og mynd- arlegur, ástríðufullur elsk- hugi og ógleymanlegur þeim sem kynnast honum en einnig nógu hrifnæm- ur sjálfur til að verða verkfæri í höndum þeirra sem fyrst og fremst hugsa um eigið skinn. Með aðstoð óvenjubókelskrar ömmu leitar Henry að rótum sínum og kemst að hvemig hann hefur óafvitandi fetað í blóðug fótspor foður síns svo hann ofbýður jafnvel eig- in siðferðiskennd. Ég heiti Henry Smart er fyrst og fremst saga af óvenjulegri manneskju og snilld bók- arinnar felst í frábærri persónusköpun, bæði aðalpersónunnar og þess skrautlega fólks sem verður á vegi hennar. Sérstaklega eru í bókinni skemmtflega óvenjulegar konur sem laðast að Henry af ólikum ástæðum. En svið- ið, Dyflinni við upphaf vopn- aðrar sjálfstæðisbaráttu íra, er ekki síður vel skapað. Henry ræður ágætlega við þann blóð- uga vígvöll en missir ástvini og félaga sem ýmist falla fyrir sjúkdómum eða byssukúlum. Og sviðið minnir óþægilega á að stríðið sem er að hefjast í sögu Roddy Doyle stendur að vissu leyti enn þá núna, næst- um heilli öld síðar. Roddy Doyle hefur fyrir löngu skipað sér meðal fremstu skáldsagnahöfunda íra með ástriðufullum frásögnum sínum. f þessari bók er hann ekki einungis að segja sögu af merkilegri persónu heldur líka miklum um- brotatimum í sögu þjóðar sinnar og útkoman er mögnuð og hrífandi skáldsaga. Þýðing Bjarna Jónssonar rennur ljúflega og ekki verður annað séð en hún sé í fullu samræmi við stil bókarinnar frá höfundarins hendi. Roddy Doyle Eg heiti Henry Smart Bjarni Jónsson þýddi Vaka-Helgafell 1999 Hring eftir hring Smásagnasafn Ágústs Borgþórs Sverris- sonar, Hringstiginn og sjö sögum betur, seg- ir frá „venjulegu" fólki, nafnlausu fólki sem best er lýst með orðum sögunnar „Hjónadjöf- ufl“:.hún var sviplaus, féll inn í umhverf- ið eins og hús eða tré“. Hver er kominn til með að segja að slíkt fólk geti ekki verið söguefni? Þó verður Ágústi ekki alltaf það lostæti sem von væri til úr þessum sögupersónum sínum. Þar kemur ýmislegt tfl. Fyrir það fyrsta nær hann sjaldnast að vekja áhuga lesandans á örlögum og vanda þessa fólks, þó er þetta fólk í vanda. Fólk úr sundruðum Bókmenntir Geirlaugur Magnússon fjöllskyldmn, ófullnægt fólk, fólk án mark- miðs, fólk í leit að sjálfu sér. Oftast tengist þessi vandi kynlifi en ekki getur það kynlíf talist svo áhugavert að veki eftirtekt. Þannig er ein lengsta sagan „Viðvaning- ar“ um forstjóra sem misst hefur áhuga á starfi sínu og leitar uppfyflingar í sam- bandi við vændiskonu. En vandi þessa ágæta manns vekur aldrei áhuga lesand- ans þótt teygður sé með margvíslegum útúrdúrum. Og þar er komið að helstu hnökrum í stíl Ágústs Borg- þórs, honum hættir tfl að bregða sér í gervi félagsráð- gjafa eða sálfræðings og koma með útskýringar á sálarlífi persóna sem ættaðar eru úr skýrslugerð. Það er mik- fll skaði því Ágúst sýnir öðru hverju að hann ræður yfir nokkuð snörpum raunsæis- stíl; þannig er upphaf flestra sagnanna nokk- uð gott en síðan fellur höfundur í þá gildru að ofskýra fyrir lesendum hvaða æskuvanda- mál hafi skapað söguhetjum hans örlög. Ekki eru þó allar sögumar þessu marki brenndár og at- hyglisvert er að tvær af stystu sögum safnsins em líka best heppnaðar. Það eru sögumar „Sjúkrabíll“ sem er nærfærin lýsing á sorgarferli og „Af- raksturinn", býsna skondin saga af manni sem ekki þekkir konuna sína á götu. Þessar sögur sýna að Ágúst Borgþór Sverrisson gæti orðið snjall smásagnahöfundur, kynni hann að takmarka sig. Ég verð þó aö bæta því við úr minu púrítanska sinni að áhersla höfundar á mikilvægi kynlífsins er næsta yf- irgengileg. Ekki að slíkt hneyksli neinn á þessum frjálsræðistímum en það er einnig líf ofan þindar. Ágúst Borgþór Sverrisson Hringstiginn og sjö sögum betur Ormstunga 1999 Auður á samning Auður Gunnarsdóttir sópransöngkona hef- ur skrifað undir samning við óperuna í Wúrzburg í Þýskalandi. Hún hefur verið bú- sett þar í landi í sjö ár og starfað við kennslu og sungið við ýmis óperuhús. Samningurinn er til tveggja ára og mun hún meðal annars syngja hlutverk Paminu í Töfraflautu Mozarts, Luisu í Unga lordinum eftir Hense og Anninu í Nótt í Feneyjum eftir J. Strauss. Fyrsta hlutverk hennar í Wúrzburg var Despina í Cosi fan tutte og hlaut hún mikið lof gagn- rýnenda fyrir liflega sviðsframkomu og leiftr- andi rödd. Auður hefur komið fram á mörgum ljóða- og óperutónleikum hér heima og er skemmst að minnast söngtón- leika þeirra Gunnars Guðbjömssonar í Saln- um i Kópavogi i janúar sl. en þau héldu hina fyrstu eiginlegu söngtónleika í þeim fræga sal. í viðtali í DV af því tflefni lýsti hún þeirri ósk sinni að komast á samning í tvö- þrjú ár við gott óperuhús og er gaman að sá draumur skuli hafa ræst. Einnig má nefna að geisladiskur er kom- inn út hjá Japis með Auði og Jónasi Ingi- mundarsyni en þau hafa unnið mikið saman. Á honum eru íslensk þjóðlög og sönglög, flest fáheyrð. Auður og Jónas stefna á tónleika í Sainum í mars 2000. Á myndinni er Auður í hlutverki Juliu de Weert í óperettunni Der Vetter aus Dingsda í óperunni í Bielefeld i sumar. Með henni á myndinni er Hans Júrgen Schöpflin tenór- söngvari. Illskan Fjölvi hefur gefið út skáldsöguna Illskan eftir Jan Guillou, einn fremsta skáldsagnahöfund Svía af yngri kynslóðinni. Talið er að höfundurinn hafi verið að skrifa sig frá skelfingum eigin æsku í þessari bók~ sem flallar um miskunnarlaust ofbeldi á heimili. Eiríkur býr við stöðugar misþyrm- ingar föður sins sem leiðir til þess að hann kynnir sér út í æsar hvers kyns baráttuað- ferðir og verður ósigrandi slagsmálahundur í skólanum sínum og foringi strákagengis. Dramaten, þjóðleikhús Svía, hefur nú í fjögur ár samfleytt sýnt leikrit byggt á Illsk- unni við miklar vinsældir. Magnús Ás- mundsson þýddi söguna. Heitt blóð streymir Vaka-Helgafell hefur gefið út bókina Heitt blóð streymir eftir Régine Deforges, höfund hinnar þekktu bókar Stúlkan á bláa hjólinu. Söguhetjur eru enn hinar sömu, Léa og Francois Tavernier, en nú er sögu- sviðið Kúba á sjötta áratugnum. Stjómmálaástandið er eldfimt og upp blossa forboðnar ástir í skugga átaka og ógnar. Höfundur fléttar sannsögulega at- burði og raunverulegar persónur á borð við de Gaulle, Fidel Castro og Che Guevara inn í sögu sína. Jón B. Guðlaugsson islenskaði. Minningar geisju í skáldsögunni Minningar geisju eftir Arthur S. Golden göngum viö inn í heim þar sem ytra borðið skiptir öllu máli. Þar sem meydómur ungrar stúlku er seldur hæstbjóðanda. Þar sem konur eru þjálfaðar til að skemmta valdsmönnum og þar sem litið er á ástina sem tálsýn. Þegar Nitta Sayuri byrjar sögu sina er hún orðin gömul kona en saga hennar hefst í fá- tæku sjávarþorpi í Japan árið 1929. Niu ára gömul er hún seld í ánauð í frægt geisjuhús í Kyoto og við fáum að fylgjast náið með lífi hennar og baráttu langa og viðburðaríka ævi. Sverrir Hólmars- son þýddi bókina og Forlagið gefur út. Umsjón Silja Aðalsteinsdótlir Bmu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.