Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1999, Blaðsíða 26

Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1999, Blaðsíða 26
34 FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999 Afmæli Benedikt Sigurðsson Benedikt Eyfjörð Sigurðsson flug- virki, Lækjarsmára 72, Kópavogi, er sjötugur í dag. Starfsferill Benedikt fæddist í Reykjavík og ólst þar upp. Hann hóf nám í flug- virkjun hjá Flugfélagi íslands 1946, fór til Bandaríkjanna 1949, stundaði þar nám við Cal-Earo Technical Institute Glendale í Kalifomíu og lauk þaðan prófum 1950. Að námi loknu hóf hann aftur störf hjá Flugfélagi íslands 1950 og starfaði þar til 1997, lengst af sem skoðunarmaður og flugvélstjóri á Douglas DC-4 og Douglas DC-6B. Benedikt stofnaði og rak Flug- ferðir hf. og siðan, ásamt félögum sínum, Flugstöðina hf. sem annaðist flugkennslu og leiguflug. Benedikt hefur verið einkaflugmaður síðastlið- in fjörutíu ár og flogið flestum gerðum einka- flugvéla. Nú aðstoðar hann Landgræðsluna við eftirlit og viðhald á hennar vél, Douglas DC-3. Fjölskylda Benedikt kvæntist 20.10. 1956 Auði Lellu Ei- ríksdóttur, f. 20.10. 1932, hárgreiðslumeistara. Hún er dóttir Eiríks Helgasonar rafvirkjameistara og Unnar Jóns- dóttur húsmóður sem bæði eru lát- in. Börn Benedikts og Auðar Lellu: Jón Gestur Benedikts- son, f. 13.9. 1952, d. 4.8. 1990, var kvæntur Heiðu S. Ármannsdóttur og eignuðust þau tvö böm; Sigrún Kaya Eyfjörð Benediktsdóttir, f. 1.8. 1967, kaupkona í Reykja- vík, en maður hennar er Guðni Freyr Sigurðsson smiður og eiga þau eitt barn; Eiríkur Eyfjörð Benediktsson, f. 4.9. 1969, bílamálari en kona hans er Jórunn Ólafs- dóttir bankastarfsmaður og eiga þau eitt bam; Þorsteinn Eyijörð Benediktsson sjómaður og á hann tvö börn. Systkini Benedikts eru Jóhann Eyrbekk Sigurðsson, f.15.10. 1928, rafvirkjameistari í Reykjavík; Erla Sigurðardóttir, f. 19.5. 1931, starfs- maður við Langholtsskóla í Reykjavík; Kolbrún Sigurðardótt- ir, f. 26.1. 1936, starfsmaður við Langholtsskóla í Reykjavík; Hrefna Sigurðardóttir, f. 30.7. 1948, bankastarfsmaður, búsett í Garða- bæ. Foreldrar Benedikts voru Sig- urður Gissur Jóhannsson, f. 11.6. 1902, d. 11.8. 1990, pípulagninga- meistari í Reykjavík, og Sigrún Benediktsdóttir, f. 11.5. 1906, d. 2.4. 1998, húsmóðir. Benedikt tekur á móti gestum í félagsheimili flugvirkja, Borgar- túni 22, Reykjavík, laugardaginn 4.12. kl. 15.00-18.00. Benedikt Eyfjörð Sigurðsson. Höskuldur Guðmundson Höskuldur Guðmundsson, kokk- ur og sjómaður á Albatros GK 60, Breiðuvík 24, Reykjavík, er sjötugur í dag. Starfsferill Höskuldur fæddist á Patreksfirði og ólst þar upp. Hann fór fyrst til sjós fimmtán ára og hefur stundað sjómennsku í fimmtíu og sex ár að undanskildu eina og hálfu ári er hann starfrækti fiskbúð við Baróns- stíg í Reykjavik og var kokkur í Hafnarbúðum. Fjölskylda Höskuldur kvæntist 21.4. 1955 Björgu Aðalheiði Eiriksdóttur, f. 8.11. 1931, húsmóður. Hún er dóttir Eiríks Einarssonar og Sigrúnar Benediktu Kristjánsdóttur frá Rétt- arholti en Björg er ein af fimmtán dætrum þeirra hjóna. Börn Höskuldar og Bjargar Aðal- heiðar eru Eiríkur Örn Höskulds- son, f. 18.9. 1955, húsasmiður i Grundarfirði, en kona hans er Ingi- björg Þórólfsdóttir, f. 11.11. 1962, kennari, og eru börn þeirra Örn Ei- riksson, f. 19.12. 1985, og Sigrún Að- alheiður Eiríksdóttir, f. 12.2. 1995, en sonur Eiríks og Mariu Hreins- dóttur, f. 12.1. 1958, er Sigurjón Vig- fús Eiríksson, f. 17.6. 1974, auk þess sem dóttir Ingibjargar frá því áður er Jóhanna Beck, f. 2.12.1981; Valur Höskuldsson, f. 23.8.1957, starfsmað- ur við Hampiðjuna, búsettur í Reykjavík; Guðmundur Höskulds- son, f. 29.6. 1959, sölumaður hjá Hörpu hf., búsettur í Reykjavik, en kona hans er Sigrún Víglundsdóttir, f. 12.10. 1968, matvælafræðingur, og eru böm þeirra Ýmir Guðmunds- son, f. 8.8. 1988, og Mekkína Guð- mundsdóttir, f. 29.1. 1997, auk þess sem dóttir Guðmundar frá því áður með Rannveigu Biering, f. 1.2. 1960, er Herdís Guðmundsdótt- ir, f. 22.11. 1979; Höskuld- ur Reynir Höskuldsson, f. 12.11. 1961, húsasmiður en kona hans er Sigríður Herdís Pálsdóttir, f. 14.6. 1966 og eru böm þeirra Axel Björgvin Höskulds- son, f. 21.8. 1985, og Snæ- dís Birta Höskuldsdóttir, f. 4.2. 1995. Systkini Höskuldar eru Gísli Briem Guðmunds- son, f. 20.12. 1925, húsa- smíðameistari í Svíþjóð; Kristján Guðmundsson, f. 25.8. 1927, d. 17.6. 1974, bakarameistari á Flat- eyri; Gyða Guðmundsdóttir, f. 11.9. 1928, húsmóðir á Akureyri; Erling- ur Guðmundsson, f. 11.5.1931, húsa- smíðameistari í Svíþjóð; Kristín Guðmundsdóttir, f. 23.8. 1932, hús- móðir á Flateyri; Ólína Guðmunds- dóttir Pettersen, f. 21.4. 1936, hjúkr- unarfræðingur og hús- móðir í Noregi; Ragna Guðmundsdóttir, f. 5.3. 1938, hjúkrunarfræðing- ur, búsett í Garðabæ; Jón Sigurður Guðmundsson, f. 2.10. 1940, múrari í Reykjavík; Hrafnhildur Guðmundsdóttir, f. 3.11. 1946, húsmóðir á Patreks- firði. Hálfbróðir Höskuldar, samfeðra, er Magnús Guðmundsson. Foreldrar Höskuldar: Guðmundur Kristinn Kristjánsson, f. 20.7. 1900, d. 22.8. 1959, verkstjóri og verslunarmaður við Verslun O. Jóhannessonar á Patreksfirði, og Ingveldur Gísladóttir, f. 4.4. 1904, lengst af húsmóðir á Patreksfirði en nú búsett í Fannborg í Kópavogi. Höskuldur og Björg Aðalheiður eru að heiman á afmælisdaginn. Höskuldur Guðmundsson. Olga Sveinbjörnsdóttir Olga Sveinbjörnsdóttir kennari, Skólavöllum 12, Selfossi, er fertug í dag. Starfsferill Olga fæddist i Ólafsvík og ólst þar upp. Hún lauk stúdentsprófi frá MA og B.Ed.-prófi frá KHÍ 1985. Olga var ritari um- dæmisstjóra Pósts og síma á Akureyri 1981-82, starfaði á vinnustofu Múlabæjar, dagvistun aldraðra i Reykjavík 1983-85 og vann við blómaskreyting- ar hjá Blómavali 1985-88. Olga flutti á Selfoss 1988 og hefur átt þar heima síðan. Hún hóf fljótlega kennslu við Sandvikur- skóla á Selfossi en hefur kennt við Sólvallaskóla á Selfossi frá 1995. Fjölskylda Olga giftist 2.12. 1989 Jó- hanni Ágústssyni, f. 2.2. 1963, aðstoðarvarðstjóra við Litla-Hraun. Hann er sonur Ágústs Þorvalds- sonar, f. 1.8. 1907, d. 12.11. 1986, bónda og alþm. á Brúnastöðum i Hraungerðishreppi, og Ingveldar Ástgeirsdóttur, f. 15.3. 1920, d. 6.8. 1989, húsfreyju. Börn Olgu og Jóhanns eru Svein- björn Jóhannsson, f. 19.1. 1989; Ragnar Jóhannsson, f. 24.10. 1990; Jenný Jóhannsdóttir, f. 13.4.1993. Systkini Olgu eru Loftur Svein- bjömsson, f. 20.9. 1952, d. 17.12.1995, verkamaður í Ólafsvík; Kristinn Sveinbjörnsson, f. 13.1. 1954; Guð- björg Jenný Sveinbjörnsdóttir, f. 18.4. 1955, kennari á Selfossi. Foreldrar Olgu: Sveinbjörn Sig- tryggsson, f. 3.10. 1930, starfsmaður við Brunamálastofnun ríkisins, og Gyða Vigfúsdóttir, f. 15.6. 1928, d. 16.2. 1972, húsmóðir. Þau bjuggu all- an sinn búskap í Ólafsvík. Ætt Sveinbjörn er sonur Sigtryggs Sigtryggssonar, verkamanns í Ólafs- vík, og Guðbjargar Vigfúsdóttur húsmóður. Gyða var dóttir Vigfúsar Jónsson- ar, húsasmíðameistara á Hell- issandi, og Kristínar Jensdóttur húsmóður. Olga Sveinbjörnsdóttir. Fréttir Eins árs afmæli NETsímans: Verðlækkun um allt að 48 prósent Til hamingju með af- mælið 2. desember 90 ára Filippus Hannesson, Núpsstað, Kirkjubæjarklaustri. 85 ára Svavar Gíslason, Traðarlandi 4, Reykjavík. 80 ára Birna Jónsdóttir, Garðastræti 9, Reykjavík. 75 ára Þórlaug S. Guðnadóttir, Bakkagerði 12, Reykjavík. 70 ára Magnús Hjartarson, Skaftahlíð 29, Reykjavik. Salbjörg Matthíasdóttir, Gullsmára 7, Kópavogi. Unnur Jóhannesdóttir, Kaplaskjólsvegi 9, Reykjavík. Þór Elísson, Háaleitisbraut 18, Reykjavík. 60 ára Einar Erlendsson, Rjúpufelli 27, Reykjavík. Henning Frederiksen, Stjömusteinum 12, Stokkseyri. Jón Lárusson, Hlíðarhjalla 40, Kópavogi. Ólafur M. Kristinsson, Höfðavegi 39, Vestmannaeyjum. Soffía Jakobsdóttir, Bergstaðastræti 54, Reykjavík. 50 ára________________________ Ágústa Áróra Þorsteinsdóttir, Birkilundi 6, Akureyri. Gróa Sigurjónsdóttir, Háaleitisbraut 153, Reykjavík. Hansína Ásta Stefánsdóttir, Lóurima 8, Selfossi. Helga Bryndís Gunnarsdóttir, Eikarlundi 11, Akureyri. Pétur Þórðarson, Breiðuvík 6, Reykjavík. Sigurðin- Kristjánsson, Bjargartanga 11, Mosfellsbæ. Sigurður Rúnar Ragnarsson, Ásgarðsvegi 22, Húsavík. Þorsteinn Haraldsson, Sogavegi, Melbæ, Reykjavík. 40 ára________________________ Árni Már Ámason, Miðhúsum 38, Reykjavik. Ásgeir Þorláksson, Fannafold 131, Reykjavík. Bergrún Helga Gunnarsdóttir, Birkigrund 20, Kópavogi. Gúðsteinn Bjamason, Grenimel 26, Reykjavík. Jóhannes Hilmisson, Skólatúni 6, Bessastaðahreppi. Jón Pálsson, Vallarbarði 17, Hafnarfirði. Jónína R. Sigurbjartsdóttir, Böðvarshólum, Hvammstanga. Sigrún Júlíusdóttir, Krummahólum 8, Reykjavík. Sigurbjörg Sigurðardóttir, Stekkjarbergi 10, Hafnarfirði. Stephen Gaughan, Skúlagötu 60, Reykjavík. Njörður Tómasson markaðsstjóri og félagar á NETsímanum héldu upp á ársafmæli í gær. í gær var eitt ár liðið frá því að Skima opnaði NET- símann. Þar með gafst ís- lendingum í fyrsta sinn kost- ur á að velja á milli síma- þjónustuaðila þegar hringt er til útlanda. NETsíminn hefur lagt áherslu á að bjóða ódýr sím- töl til útlanda og velja sím- nótendur þá einfaldlega 1100 í stað 00 þegar hringt er. Til þess að geta notað 1100 þarf fyrst að skrá sig í þjónust- una í síma 575-1100. í gær lækkuðu mínútugjöld 1100- NETsímans um 5 til 48%. Athyglisvert er að ef borin eru saman mínútugjöld til Bandaríkjanna frá því fyrir ári kemur í ljós að mínútugjöld hafa lækk- að um 44% frá því 00 bauð eingöngu simaþjónustu til útlanda. í tilefhi afmælisins í gær áttu við- skiptavinir NETsímans auk þess kost á því að hringja tvær klukkustund- ir gjaldfrítt og nýttu margir sér það kostaboð. Með NETsimanum hefúr verið unnið brautryðjenda- starf við flutning símtala yfir Intemetið en Skíma var í hópi íyrstu símafyrir- tækja í Evrópu og í Banda- ríkjunum til þess að styðj- ast eingöngu við Intemetið í flutningi símtala landa á milli. Kostir þess að nota Intemetið umfram hin hefðbundnu símkerfi er að rekstrar- kostnaður þjónustunnar lækkar, möguleiki opnast á að flytja myndefni í símtölum og leið fyrir samskipti sim- notenda og tölvunotenda opnast. Á næstunni er fyrirhugað að bjóða síma- þjónustu á milli tölva og simtækja og bjóða tölvunotendum NETsímans upp á myndþjónustu með símtölum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.