Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.1999, Blaðsíða 18
26
FIMMTUDAGUR 2. DESEMBER 1999
Sviðsljós
Jodie með
sléttan hring
Nú velta bandarísku slúðurblöðin
því fyrir sér hvort leikkonan og leik-
stjórinn Jodie Foster sé trúlofuð eða
jafnvel búin að gifta sig. Leikkonan
feimna er nefnilega komin með slétt-
an gullhring á baugfingur vinstri
handar. Þetta sést á forsíðu nýjasta
tölublaðs tímaritsins W.
Það sem kyndir undir vangavelt-
urnar er að vinkona Jodie, Cydney
Bernard, sem er 46 ára, ber nákvæm-
lega eins hring.
Nú er liðin fimm ár frá því að þær
stöllur hittust fyrst. Það var við tökur
á kvikmyndinni Somersby. Sagt er að
þær Jodie og Cydney hafi verið óað-
skiljanlegar síðan.
Bandariskir íjölmiðlar greindu frá
því á sínum tíma að það hafi verið
Cydney og enginn annar sem var hjá
Jodie og studdi hana og hvatti þegar
hún fæddi soninn Charles i heiminn.
Jodie hefur aldrei gefið upp hver fað-
ir þess stutta er.
Felipe ætlar að
flytja úr fjöl-
skylduhöllinni
Krónprins Spánar, Felipe, sem
er orðinn 32 ára, ætlar nú að
flytja úr höllinni sem spænska
konungsfjölskyldan býr í.
Spænskir fjölmiðlar túlka þessa
ákvörðun prinsins á þann veg aö
hann sé að undirbúa brúðkaup
sitt og norskrar fyrirsætu, Evu
Sannum.
Felipe ætlar að flytja inn í ný-
byggt hús í minna en kílómetra
fjarlægð frá konungshöllinni í
Zarzuela, norðvestan við Ma-
dríd. Krónprinsinn flytur síðast-
ur að heiman af þremur börnum
spænsku konungshjónanna.
Eldri systur Felipe, Elena og
Cristina, eru báðar giftar.
Vangaveltumar um brúðkaup
Felipes og Evu hafa verið svo
miklar að spænska hirðin hefur
séð ástæðu til að tjá sig um mál-
ið. Talsmaður hirðarinnar sagði
að um flutning væri að ræða en
ekki brúðkaup.
Spænski prinsinn hefur í tvö
ár verið orðaður við norsku fyr-
irsætuna Evu Sannum sem er 24
ára. Núna í haust fór Felipe í
heimsókn til Óslóar. Viku
seinna voru Eva og Felipe kom-
in í fri saman til Parisar. Að
sögn sjónarvotta, sem sáu skötu-
hjúin á veitingastööum og næt-
urklúbbum, fór ekki milli mála
að þau eru ástfangin. Felipe og
Eva eru einnig sögð hafa verið
saman í fríi i ágúst siðastliðnum
á Maldíveyjum.
Victoria kryddpía segist ekkert of horuð:
Sérréttur mömmu
gömlu í kvöldmat
Kryddpían Victoria segir að því
fari fjarri að hún sé of horuð eða þjá-
ist af lystarstoli og öðrum átröskun-
um. Því til staðfestingar sagðist hún
hafa fengið sér tvær skálar af morgun-
korni í morgunmat, tvær kjúklinga-
bringur og grænmeti í hádegismat og
sérréttinn hennar mömmu gömlu í
kvöldmat. Og allt á einum og sama
deginum, síðastliðinn þriðjudag.
„Ég er ekki með lystarstol. Ég er
ekki með lotugræðgi. Ég er ekki eins
og beinagrind. Ég er fimmtíu kíló, vel
á mig komin og hefur aldrei liðið bet-
ur,“ segir Victoria í viðtali við breska
blaðið Mirror á miðvikudag.
Bresku slúðurblöðin hafa síðustu
daga verið yfirfull af fréttum um
holdafar kryddpíunnar. Þykir mönn-
um sem stúlkan sé helst til mögur og
sé þar af leiðandi ekki góð fyrirmynd
ungra stúlkna sem reyna hvað þær
Krydd-Victoria svarar fullum hálsi
þeim sem segja hana of horaða.
geta til að líkjast eftirlætisstjörnunum
sínum. Og hún gerir sér fullkomlega
grein fyrir því. Þess vegna ákvað hún
að ganga fram fyrir skjöldu og svara
fyrir sig.
„Ég ber mikla ábyrgð sem fyrir-
mynd annarra stúlkna. Sumir ungir
aðdáendur minir fá kannski einhverja
vitleysisflugu í höfuðið. Ég vil því fá
þetta á hreint,“ segir poppsöngkonan
og fótboltamannseiginkonan.
Victoria viðurkennir að vísu að
hún hafi lést um tæp sjö kíló frá því
sonurinn Brooklyn fæddist fyrir átta
mánuðum. „En ég hef ekki breytt
mataræðinu neitt," segir hún.
Upphaf holdarfarsumræðunnar má
rekja til blaðsins Mail sem birti með-
al annars mynd af Victoriu þar sem
hún var að koma úr veislu. Af þeirri
mynd að dæma er stúlkan grindhor-
uð. Ekki svo, segir hún.
Madonna keypti
hús í London á
hálfan milljarð
■ Söngkonan Madonna þurfti að
greiða rúman hálfan milljarð ís-
lenskra króna fyrir nýja húsið sitt í
London. Að sögn blaðsins USA
Today keypti Madonna fimm hæða
hús beint af óþekktum seljanda.
í kringum húsið er stór og glæsi-
legur garður og einkahönnuður
söngkonunnar er nú upptekinn við
að skipuleggja breytingar á honum.
í húsinu er fimm svefnherbergi og
fylgir baðherbergi þremur þeirra.
Madonna hafði leitað í rúmt ár að
rétta húsinu. Hún er reyndar ekki
eina stjarnan í hverfmu því David
Bowie býr ekki langt frá. Sam-
kvæmt fréttum BBC er Madonna
hrifin af lífsstíl, húmor og menn-
ingu Breta. Hún hyggst greinilega
dvelja áfram í heimsborginni þvi
hún hefur þegar innritaö dóttur
sína i einn af finustu skólum
London.
Kvikmyndaleikkonan Sharon Stone gantaðist aðeins við Ijósmyndarana
þegar hún mætti, ásamt eiginmanninum, ritstjóranum Phiilip Bronstein, til
hátíðarsamkomu til styrktar rannsóknum á alnæmi. Sharon var sérstaklega
heiðruð á samkomunni fyrir framlag sitt til baráttunna gegn sjúkdóminum.
Margt annað frægra manna og kvenna var á samkomunni.
A
Grýlukerta
sena
Mikið úrval af Ijósaseríum,
aðventuljósum og perum
í ýmsum gerðum
200 ljosa
1.990 kr.
HIISASMIÐJAN
Sími 525 3000 • www.husa.is
I>V
Rafgellan og
Rodman sleppa
Rafmagnsgellan Carmen El-
ectra og körfuboltaeiginmaður-
inn hennar, hinn litforótti Denn-
is Rodman, sluppu með skrekk-
inn í vikunni þegar dómari
ákvað að sækja þau ekki til saka
fyrir heimilisofbeldi. Hjónakorn-
in höfðu lent í heljarinnar rifr-
ildi á hóteli einu í Miami Beach
og þurfti að kalla á lögreglu til
að skakka leikinn. Dennis og
Carmen voru leidd burtu i jám-
um og þurftu að dúsa á löggu-
stöðinni í nokkrar klukkustund-
ir. Carmen lék eitt sinn í Strand-
vörðum og Rodman tróð körfu
fyrir Chicago Bulls.
Banderas vill
engan móðga
SpænsRi hjartaknúsarinn Ant-
onio Banderas telur litlar líkur á
því að kristnir menn muni
móögast yfir efnisþræði nýjustu
myndarinnar hans, Líkamanum.
Þar leikur Spanjólinn prest sem
fer til landsins helga tfi að rann-
saka fund á líkama Krists, eða
svo telja menn vera. „Maður veit
aldrei en við erum bara að reyna
að vera heiðarleg," sagði Band-
eras i hléi frá myndatökunum í
mannþrönginni á markaðstorg-
inu í Jerúsalem.
Finnskir vonast
til að sjá Pamelu
Níu hundruð finnskir ættingj-
ar kynþokkabombunnar Pamelu
Anderson gera sér vonir um að
stórstjaman heiðri þá með nær-
veru sinni á ættarmóti sem hald-
ið verður í Finnlandi næsta sum-
ar. Talsmaður fjölskyldunnar
sagði að Pamela hefði afþakkað
boð um að koma á fjölskyldumót-
iö 1995 en nú yrði reynt aftur.
Langafi Píunelu, Juho Hyyti-
ainen, fiutti frá Finnlandi til
Kanada árið 1908 og skipti skilj-
anlega um nafn jægar hann var
orðinn nítján ára.